Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. Innlent 21. janúar 2021 17:46
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. Innlent 21. janúar 2021 14:14
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. Innlent 21. janúar 2021 12:35
Enn engar tilkynningar um ný flóð á Tröllaskaga Veðurstofunni hafa enn ekki borist nýjar tilkynningar um að ný snjóflóð hafi fallið í Siglufirði eða annars staðar á Tröllaskaga. Beðið er eftir að birti til að hægt sé að taka betur stöðuna, en margir vegir á svæðinu eru sem stendur lokaðir og því ekki útilokað að flóð hafi fallið. Innlent 21. janúar 2021 07:29
Hækka viðbúnaðarstig og rýma svæði á Siglufirði Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðbúnaðarstig í hættustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Ákveðið hefur verið að rýma svæði sem er syðst á Siglufirði og mun lögregla hafa samband við fólkið sem þarf að yfirgefa heimili sín. Innlent 20. janúar 2021 15:23
Skíðaskáli Siglfirðinga færðist úr stað í snjóflóði Snjóflóð féll á skíðasvæðinu á Siglufirði, sennilega í morgun. Egill Rögnvaldsson svæðisstjóri skíðasvæðisins segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að átta sig á umfangi flóðsins en mikill skafrenningur er á svæðinu og þurftu menn frá að hverfa. Innlent 20. janúar 2021 11:54
Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi. Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag utan þéttbýlis og hefur Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarvegi verið lokað. Innlent 19. janúar 2021 21:56
Veginum um Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Veginum um Ólafsfjarðarmúla á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur hefur verið lokað vegna snjóflóðs sem féll yfir veginn. Starfsmenn Vegagerðarinnar komu að snjóflóðinu um kvöldmatarleytið. Innlent 18. janúar 2021 20:20
Slasaður vélsleðamaður hífður upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar Laust fyrir klukkan hálf tvö fékk Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um vélsleðaslys í Tröllaskaga nálægt Lágheiði. Viðbragðsaðilar á svæðinu voru ræstir út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar og þá var aðgerðarstjórn virkjuð á Akureyri. Innlent 15. janúar 2021 15:35
Jarðskjálfti við Gjögurtá fannst í Fjallabygð Jarðskjálfti að stærð 2,8 varð um fjórtán kílómetra vestur af Gjögurtá. Tilkynningar hafa borist frá Ólafsfirði og Siglufirði um að skjálftinn hafi fundist, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 5. janúar 2021 11:20
Aflýsa óvissustigi vegna jarðskjálfta á Norðurlandi Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra aflýst óvissustigi vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi. Óvissustigi var lýst yfir 20. júní síðastliðinn vegna jarðskjálftahrinu sem hófst um 20 kílómetrum norðaustan við Siglufjörð. Innlent 29. desember 2020 12:42
Dæmi um að einstaklingar undir tvítugu þurfi jólaaðstoð Dæmi eru um að einstaklingar undir tvítugu þurfi að sækja sér jólaaðstoð hjálparsamtaka á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir komandi jól. Umsókum um aðstoð hefur fjölgað um þriðjung á milli ára. Innlent 5. desember 2020 08:01
Glæpasagan jafn merkilegt bókmenntaform og hvað annað Ragnar Jónasson glæpasagnahöfundur heldur því fram að góð glæpasaga snúist ekki síður um persónusköpun en sjálft plottið. Menning 1. nóvember 2020 09:00
Unglingspiltur gekkst við brotahrinunni á Siglufirði Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði í gær uppi á unglingspilti sem gekkst við fjölda brota á Siglufirði sem lögreglan hefur haft til rannsóknar síðustu daga. Innlent 11. október 2020 12:02
Vill reka bófana úr bænum Siglfirðingar skelkaðir vegna gripdeilda í bænum. Innlent 10. október 2020 08:01
Öskraði þegar hanskaklædd hönd kom inn um glugga á Siglufirði Hann virðist hafa haldið áfram í nótt, þjófurinn sem lögreglan í Fjallabyggð varaði við í gær. Fjölskylda á Siglufirði varð nærri því fyrir barðinu á honum í nótt hanskaklædd hönd koma inn um glugga er þau sátu og horfðu á sjónvarpið. Innlent 7. október 2020 13:16
Lögreglan hvetur fólk til að læsa og vera á varðbergi Lögreglunni á Norðurlandi eystra bárust í gærkvöldi tilkynningar um aðila sem hafði farið inn í nokkur hús á Siglufirði. Innlent 6. október 2020 15:39
Dan Brown naut sín á Tröllaskaga Bandaríski metsölurithöfundurinn Dan Brown er staddur á Íslandi. Það sést glögglega á færslum sem birst hafa á Facebook-síðu hans undanfarna daga. Lífið 28. september 2020 22:18
Siglósveitin sigraði og hlakkar til að mæta í skólann Það er óhætt að segja að íbúar á Tröllaskaga og þá sér í lagi Siglfirðingar séu að rifna úr stolti ef marka má viðbrögð á samfélagsmiðlum. Fulltrúar Menntaskólans á Tröllaskaga komu, sáu og sigruðu í Söngkeppni framhalsskólanna sem fram fór í Ríkissjónvarpinu í kvöld. Tónlist 27. september 2020 00:10
Myndir sýna skuggalegar aðstæður en lítið hægt að gera nema fylgjast með „Þetta lítur hálf skuggalega út á myndunum“, segir Haukur Jónsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni um stöðuna á Siglufjarðarvegi við Strákagöng. Vefmiðilinn Trölli.is birti myndir af veginum í gær sem vakið hafa talsverða athygli. Innlent 23. september 2020 13:00
Blóðug slagsmál á Olísstöðinni á Sigló Erlendir skipsverjar skiptust á hnefahöggum. Innlent 2. september 2020 16:52
Um 150 eftirskjálftar fylgdu skjálftanum sem reið yfir norður af landinu í nótt: Íbúi segir erfitt að venjast skjálftum á svæðinu Um 150 smáskjálftar hafa fylgt jarðskjálfta af stærðinni 4,6 sem reið yfir norður af landinu um þrjú leytið í nótt. Íbúi á Siglufirði segir erfitt að venjast skjálftum á svæðinu. Innlent 8. ágúst 2020 13:00
Skjálfti 4,6 að stærð norður af landinu Skjálfti 4,6 að stærð varð um ellefu kílómetrum norðvestur af Gjögurtá klukkan 3:42 í nótt. Innlent 8. ágúst 2020 07:11
Bátur vélarvana á Skjálfanda Björgunarskip slysavarnafélagsins Landsbjargar á Siglufirði var kallað út í dag eftir að aðstoðarbeiðni barst frá vélarvana báti á Skjálfanda. Innlent 3. ágúst 2020 15:16
Skjálftavirknin hafði hægt um sig Skjálftavirknin á Reykjanesskaga var með rólegasta móti ef marka má óyfirfarnar frumniðurstöður Veðurstofunnar. Innlent 21. júlí 2020 06:24
Stærsti skjálftinn á svæðinu síðan 21. júní Skjálfti að stærð 4,7 mældist tíu kílómetra norðvestur af Gjögurtá klukkan 03:07 í nótt. Innlent 19. júlí 2020 07:17
Skjálftar fundust í Eyjafirði í gær Þrír stærri skjálftar urðu við mynni Eyjafjarðar í gær og varð sá stærsti klukkan 18:34 um 15 kílómetrum norðvestur af Gjögurtá. Sá mældist 3,5 að stærð. Innlent 7. júlí 2020 07:13
Skjálfti að stærð 3,6 fannst í Ólafsfirði Jarðskjálfti 3,6 að stærð varð um sautján kílómetra norðvestur af Gjögurtá í kvöld klukkan 19:20. Innlent 2. júlí 2020 20:16
Kallaðar út vegna báts í vanda utan Ólafsfjarðarmúla Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir voru kallaðar út vegna báts í vanda undan Ólafsfjarðarmúla á tólfta tímanum í dag. Innlent 1. júlí 2020 13:12
Skjálfti 2,9 að stærð norður af Siglufirði Jarðskjálftahrinan við mynni Eyjafjarðar er enn yfirstandandi. Innlent 1. júlí 2020 07:01