Fótbolti

Fótbolti

Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Fréttamynd

Benítez rekinn eftir 40 leiki

Rafael Benítez hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Sverris Inga Ingasonar og félaga í Panathinaikos í Grikklandi. Hann entist aðeins rúmt hálft ár í starfi.

Fótbolti
Fréttamynd

Spilar sinn síðasta leik í dag

Þjóðverjinn Lukas Podolski spilar sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum í dag er lið hans Gornik Zabrze spilar í lokaumferð pólsku úrvalsdeildarinnar. Fertugur Podolski skilur við feikna fínan feril.

Fótbolti
Fréttamynd

„Við réðum ekkert við þá“

„Erfitt að kyngja þessari niðurstöðu, 5-0, en auðvitað eru Víkingarnir með hörku lið,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir stórt tap gegn Íslandsmeisturum Víkings í Víkinni. Lokatölur 5-0 fyrir heimamönnum þar sem gestirnir voru einum færri nánast allan síðari hálfleikinn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Mér fannst vanta upp á orkustigið“

Jökull I. Elísbetarson, þjálfari Stjörnunnar, saknaði þess að sjá orku og ákefð hjá leikmönnum sínum þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld.  

Fótbolti
Fréttamynd

Þakkaði ekki Manchester United fyrir að vera í HM-hóp

Marcus Rashford, leikmaður Manchester United sem er á láni hjá Barcelona, segist ekki vera að skjóta á Manchester United á hringrás hjá sér á Instagram. Hann var einungis að þakka þeim sem hjálpuðu honum síðustu átján mánuði til að vera í landsliðshóp Englands á HM í fótbolta.

Fótbolti
Fréttamynd

Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum

Heildsalan Kansler ehf. hagnaðist um sextíu milljónir króna á sölu nikótínpúða í fyrra. Félagið er í eigu fótboltastjarnanna Sölva Geirs Ottesen, þjálfara Víkings, og Ragnars Braga Sveinssonar, fyrirliða Fylkis, auk Sigurþórs Sigurðssonar. Heildsalan selur aðeins eina tegund nikótínpúða, Ice, sem framleiddir eru af félagi í þeirra eigu.

Viðskipti innlent