Diljá skoraði tvö í sigri gegn Anderlecht Diljá Ýr Zomers, leikmaður OH Leuven, hélt áfram að bæta við markareikning sinn í Belgíu þegar hún skoraði tvö mörk í 3-1 sigri liðsins gegn Anderlecht. Fótbolti 4. nóvember 2023 14:52
Öster hélt úrvalsdeildarvoninni á lífi Sænska knattspyrnufélagið Öster hélt voninni að komast í efstu deild á lífi með 2-1 sigri gegn Östersund. Þorri Mar Þórisson spilaði allan leikinn í hægri bakverði Öster en Alex Þór Hauksson sat á varamannabekk liðsins. Srdjan Tufegdzic, fyrrum leikmaður KA, er þjálfari liðsins. Fótbolti 4. nóvember 2023 14:09
Yaya Toure ráðinn aðstoðarþjálfari Sádí-Arabíu Yaya Toure hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari sádí-arabíska landsliðsins í knattspyrnu. Hann mun þar starfa með Roberto Mancini, sem þjálfari Toure hjá Manchester City og tók við landsliðinu í sumar. Fótbolti 4. nóvember 2023 10:31
Lille bannaði aðdáendum að ferðast af öryggisástæðum Franska knattspyrnufélagið Lille, sem Hákon Arnar Haraldsson leikur fyrir, hefur bannað aðdáendum sínum að ferðast á útileik liðsins gegn Marseille í dag af öryggisástæðum eftir árásir á rútur Lyon þegar liðið mætti Marseille síðustu helgi. Fótbolti 4. nóvember 2023 09:30
Rifta samningi við El Ghazi vegna stuðningsyfirlýsingar við Palestínu Þýska úrvalsdeildarfélagið FSV Mainz 05 hefur ákveðið að rifta samningi sínum við hollenska knattspyrnumanninn Anwar El Ghazi. Fótbolti 3. nóvember 2023 23:01
Leeds batt enda á sigurgöngu Leicester Eftir sex sigurleiki í röð er sigurganga Leicester á enda í ensku B-deildinni í knattspyrnu á enda eftir 0-1 tap gegn Leeds í kvöld. Fótbolti 3. nóvember 2023 22:17
Alfreð kom inn á og lagði upp dramatískt jöfnunarmark Eupen Alfreð Finnbogason átti góða innkomu er Eupen nældi sér í dramatískt 1-1 jafntefli gegn St. Treuden í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 3. nóvember 2023 22:07
Aron skroraði og lagði upp og Kristall tryggði SönderjyskE sigur Íslensku knattspyrnumennirnir Aron Sigurðarson og Kristall Máni Ingason voru í aðalhlutverkum með liðum sínum í dönsku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 3. nóvember 2023 19:55
Ísak og félagar töpuðu mikilvægum stigum í toppbaráttunni Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf máttu þola 3-1 tap er liðið tók á móti Wehen í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 3. nóvember 2023 19:33
Rannsaka hvort Tonali hafi brotið veðmálareglur eftir að hann fór til Newcastle Enska knattspyrnusambandið, FA, rannsakar nú hvort Sandro Tonali, leikmaður Newcastle, hafi brotið veðmálareglur eftir að hann gekk í raðir liðsins frá AC Milan í sumar. Fótbolti 3. nóvember 2023 17:45
Gamli Liverpool-maðurinn hættur hjá Montpellier eftir að hafa slegist við þjálfarann Mamadou Sakho, fyrrverandi leikmaður Liverpool, er hættur hjá franska félaginu Montpellier eftir að hafa lent saman við þjálfara þess. Fótbolti 3. nóvember 2023 12:30
Verðlaunuðu Giakoumakis frekar en Messi Lionel Messi var ekki kjörinn besti nýliðinn í bandarísku deildinni á þessu tímabili en verðlaun MLS deildarinnar voru afhent í gær. Fótbolti 3. nóvember 2023 10:31
Danska sambandið herðir alla öryggisgæslu í kringum landsliðin sín Forráðamenn danska knattspyrnusambandsins hafa áhyggjur af öryggismálum sinna landsliða og stuðningsmanna þeirra vegna þess óvissuástands sem ríkir í heiminum. Fótbolti 3. nóvember 2023 09:01
Sigraðist á eistnakrabbameini þrátt fyrir að bíða í marga mánuði með að fara til læknis Hinn 32 ára gamli Henri Lansbury lagði knattspyrnuskóna nýverið á hilluna. Í viðtali við Sky Sports staðfesti þessi fyrrverandi miðjumaður að hann hefði sigrast á eistnakrabbameini árið 2016 er hann var leikmaður Nottingham Forest í ensku B-deildinni. Enski boltinn 3. nóvember 2023 07:01
Pablo um samninginn hjá KR á sínum tíma: „Ég hló, stóð upp og fór“ Pablo Punyed, miðjumaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, var gestur í hlaðvarpinu Gula Spjaldið. Þar fór hann yfir brotthvarf sitt frá KR árið 2020 en honum stóð til boða að vera áfram í Vesturbænum fyrir aðeins brot af þeim launum sem hann var á. Íslenski boltinn 2. nóvember 2023 23:00
Kristian Nökkvi byrjaði þegar Ajax vann loks leik Kristian Nökkvi Hlynsson byrjaði þegar hollenska stórveldið Ajax vann loks leik í úrvalsdeildinni þar í landi. Fyrir leik kvöldsins hafði Ajax ekki unnið í síðustu 10 leikjum. Fótbolti 2. nóvember 2023 21:36
Mikael skoraði og lagði upp í öruggum bikarsigri AGF flaug örugglega inn í átta liða úrslit dönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með 4-0 útisigri á Ishöj. Mikael Neville Anderson skoraði eitt og lagði upp annað. Fótbolti 2. nóvember 2023 19:35
Ari Freyr leggur skóna á hilluna og snýr sér að þjálfun Ari Freyr Skúlason hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir feril sem spannar nærri tvo áratugi. Hann mun nú snúa sér að þjálfun hjá IFK Norrköping í Svíþjóð, þar sem hann hefur spilað undanfarin ár. Fótbolti 2. nóvember 2023 19:02
Vandræði Man Utd halda áfram: Casemiro meiddur af velli Ekki nóg með að Manchester United hafi steinlegið á heimavelli gegn Newcastle United í leik liðanna í enska deildarbikarnum heldur fór brasilíski miðjumaðurinn Casemiro meiddur af velli í hálfleik. Ólíklegt er að hann verði með liðinu um komandi helgi. Enski boltinn 2. nóvember 2023 17:45
Reyndu að spila kvennalandsleik í einum stórum polli Leikur Albaníu og Írlands í Þjóðadeild kvenna fór fram við hræðilegar aðstæður á Loro Borici leikvanginum í Shkodër í Albaníu. Fótbolti 2. nóvember 2023 15:30
Ronaldo bað um að dómara yrði skipt út af Cristiano Ronaldo var langt frá því að vera sáttur við dómara leiksins Al-Nassr og Al-Ettifaq og bað um að honum yrði skipt af velli. Fótbolti 2. nóvember 2023 13:31
Sædís Rún æfir með Chelsea Íslenska landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er flogin til Englands þar sem hún mun æfa með Englandsmeisturum Chelsea næstu daga. Fótbolti 2. nóvember 2023 13:00
Sagði Albert uppgötvun tímabilsins og kallaði hann hinn íslenska Dybala Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í vetur og fékk skemmtilegt hrós í vinsælu hlaðvarpi. Fótbolti 2. nóvember 2023 11:31
„Langar ekkert að fara þaðan sem manni líður vel“ Ísak Bergmann Jóhannesson nýtur lífsins út í ystu æsar hjá Fortuna Düsseldorf. Hann vonast til að spila með liðinu í þýsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Fótbolti 2. nóvember 2023 11:00
Ólöf valin nýliði ársins í Ivy League Íslenska knattspyrnukonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir var heiðruð með flottum verðlaunum eftir fyrsta tímabil sitt með Harvard-háskólanum. Fótbolti 2. nóvember 2023 10:31
Hafði ekki skorað í ár en gerði svo þrennu: „Þetta eru tómatsósuáhrifin“ Ísak Bergmann Jóhannesson segir að leikur Fortuna Düsseldorf gegn Unterhaching í þýsku bikarkeppninni í fyrradag sé einn af hans eftirminnilegustu á ferlinum. Skagamaðurinn skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum í leiknum og lagði auk þess upp eitt mark. Fótbolti 2. nóvember 2023 09:01
Gagnrýnir forseta FIFA fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð í bakherbergjum Hin röggsama Lise Klavenes frá Noregi er vön því að láta forystumenn Alþjóða knattspyrnusambandsins heyra það og hún er mjög ósátt með fyrirkomulagið við valið á næstu gestgjöfum HM. Fótbolti 2. nóvember 2023 07:41
Bayern úr leik eftir tap gegn liði í þriðju deild Stórlið Bayern Munchen er úr leik í þýska bikarnum eftir 2-1 tap gegn þriðjudeildarliði Saarbrucken. Sigurmark heimamanna kom á sjöttu mínútu uppbótartíma. Fótbolti 1. nóvember 2023 22:00
Neitar að hafa beðist afsökunar og Mainz skilur ekkert Deila Anwar El Ghazi og þýska úrvalsdeildarliðsins Mainz virðist aftur vera komið í hnút. El Ghazi var á dögunum settur í agabann hjá félaginu vegna innleggs hans á samfélagsmiðlum um átökin á Gaza. Fótbolti 1. nóvember 2023 20:31
Íslendingalið í eldlínunni í bikarkeppnum Evrópu Þrjú Íslendingalið hafa lokið leikjum í bikarkeppnum víðsvegar um Evrópu nú í dag. Stefán Fótbolti 1. nóvember 2023 19:01