Azpilicueta líka á leið frá Chelsea César Azpilicueta, fyrirliði enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, er á leið frá félaginu. Hann hefur samið við Inter frá Mílanó á Ítalíu til tveggja ára. Enski boltinn 24. júní 2023 13:31
Markaveisla í Kórnum, FH lék sér að Fram en allt jafnt í Keflavík Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla á föstudagskvöld. HK vann Íslandsmeistara Breiðabliks 5-2, FH pakkaði Fram saman 4-0 og Keflavík gerði 1-1 jafntefli við Fylki. Mörkin má sjá hér að neðan. Íslenski boltinn 24. júní 2023 12:45
Osasuna fær ekki að keppa í Sambandsdeild Evrópu Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að spænska félagið Osasuna fái ekki að taka þátt í Sambandsdeild Evrópu á komandi leiktíð þrátt fyrir að hafa unnið sér inn sæti í keppninni á nýafstöðnu tímabili. Fótbolti 24. júní 2023 11:30
„Ég veit við erum búnar að tala um þetta milljón sinnum“ Fyrir mót var Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum í Bestu deild kvenna í fótbolta af Vísi. Eftir tap gegn botnliði Selfoss er Stjarnan nær fallbaráttunni heldur en toppbaráttunni. Farið var yfir leik Stjörnunnar í síðasta þætti Bestu markanna. Íslenski boltinn 24. júní 2023 11:00
Sá markahæsti um áhuga frá Belgíu: „Myndi ekki hoppa á hvað sem er“ Stefán Ingi skoraði bæði mörk Breiðabliks í 5-2 tapi gegn HK á föstudag. Hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með 10 mörk um þessar mundir og hefur vakið athygli erlendis. Íslenski boltinn 24. júní 2023 09:31
Busquets til liðs við Messi og félaga á Miami Miðjumaðurinn Sergio Busquets og Lionel Messi verða liðsfélagar á ný hjá Inter Miami í MLS-deildinni í fótbolta. Fótbolti 24. júní 2023 09:00
Chelsea neitar að sleppa Mount til Man United Chelsea neitaði þriðja tilboði Manchester United í enska miðjumanninn Mason Mount. Á meðan Chelsea virðist til í að selja mann og annan til Sádi-Arabíu þá neitar það að senda Mount til Manchester-borgar. Enski boltinn 24. júní 2023 07:01
„Er enginn ósigrandi og geti labbað um Ísland með guðs gefandi rétt til að vinna alla leiki“ Óskar Hrafn, þjálfari Breiðabliks, var að vonum vonsvikinn með 5-2 tap sinna manna í kvöld gegn HK. Varnarleikur Blika var ofboðslega dapur oft á tíðum í kvöld og útskýrði Óskar tapið með því að benda á það hversu illa liðið hafði varist fyrirgjöfum HK. Íslenski boltinn 23. júní 2023 23:15
„Við ræddum um starfslokasamning við þá“ Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, segir að Keflvíkingar ætli að styrkja hópinn sinn í félagaskiptaglugganum sem opnar á næstu dögum en liðið er strax byrjað að losa sig við leikmenn til að gera pláss fyrir nýja. Fótbolti 23. júní 2023 23:00
Benítez tekur við Celta Vigo Rafael Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool, Newcastle United, Real Madríd og fleiri liða, er tekinn við liði Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni. Hann mun því ekki taka við Ítalíumeisturum Napoli eins og umræða var um. Fótbolti 23. júní 2023 22:20
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Fylkir 1-1 | Allt jafn í fallbaráttuslagnum Keflavík og Fylkir mættust í fallbaráttuslag í 12. umferð Bestu-deildar karla í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli sem gerir töluvert meira fyrir Fylki á meðan Keflavík er sem fyrr á botni deildarinnar. Íslenski boltinn 23. júní 2023 21:15
Umfjöllun og viðtöl HK - Breiðablik 5-2 | Ótrúlegur sigur HK í Kópavogsslagnum HK skellti grönnum sínum í Breiðablik í leiknum sem stundum er kallaður Baráttan um Kópavog. HK sigraði afar sannfærandi 5-2 sigur í frábærum leik. Íslenski boltinn 23. júní 2023 21:15
Umfjöllun: FH - Fram 4-0 | Heimamenn að blanda sér í Evrópubaráttuna FH lenti ekki í teljandi vandræðum gegn Fram á Kaplakrikavelli í 12. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Með sigrinum er FH komið í bullandi baráttu um Evrópusæti. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 23. júní 2023 21:10
Grétar Rafn hættir hjá Tottenham Grétar Rafn Steinsson er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham Hotspur. Þessu greina enskir fjölmiðlar frá í kvöld, þar á meðal The Athletic. Enski boltinn 23. júní 2023 20:31
Allir útileikmenn Breiðabliks uppaldir hjá félaginu Byrjunarlið Breiðabliks þegar liðið heimsótti HK í Kórinn í Bestu deild karla í knattspyrnu vakti mikla athygli. Allir útileikmenn liðsins eru uppaldir hjá félaginu. Íslenski boltinn 23. júní 2023 20:05
Blair-verkefninu lokið í Keflavík Keflavík og Marley Blair hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins. Hann mun því ekki spila meira með Keflavík í Bestu deild karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 23. júní 2023 18:00
Hluti af starfinu að setja gott fordæmi: „Minnsta sem maður getur gert“ Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn í fótbolta, Jón Daði Böðvarsson, segir það mikilvægt fyrir sig í sinni grein að setja gott fordæmi og vera fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina. Enski boltinn 23. júní 2023 16:15
KSÍ sækir um að halda ársþing UEFA Stjórn knattspyrnusambands Íslands hefur ákveðið að sækja um að halda ársþing knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, árið 2027. Búast má við miklum áhuga á þinginu það ár. Fótbolti 23. júní 2023 13:30
Arsenal reynir að losa sig við Rúnar Alex Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er sagt vilja losa sig við íslenska landsliðsmarkvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson. Fótbolti 23. júní 2023 12:30
Man Utd leggur fram þriðja og seinasta boðið í Mount Manchester United mun í dag leggja fram sitt þriðja og líklega seinasta tilboð í enska landsliðsmanninn Mason Mount, leikmann Chelsea. Fótbolti 23. júní 2023 12:01
Mæta til Íslands með nýjan þjálfara í brúnni: Rekinn eftir mikil læti Faruk Hadzibegic hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara karlaliðs Bosníu og Herzegovinu í fótbolta. Bosnía mun því mæta með nýjan þjálfara í brúnni til Íslands í september. Fótbolti 23. júní 2023 10:57
Segir auðvelt val milli City og Arsenal: „Af hverju ætti hann að velja Arsenal?“ David James, fyrrverandi markvörður ÍBV og enska landsliðsins, segir að Declan Rice eigi auðvelt val fyrir höndum þegar kemur að því að velja á milli þess að fara til Arsenal eða Manchester City. Fótbolti 23. júní 2023 10:31
„Fann höndina fara í mjög óeðlilega stöðu“ „Maður fann rosalega mikinn verk og þegar maður sá höndina, rosalega afmyndaða og ljóta í laginu, þá var strax klárt að það væri eitthvað að,“ segir Sandra María Jessen, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í fótbolta í sumar, um handleggsbrot sitt í fyrrakvöld. Fótbolti 23. júní 2023 10:01
Einnar nætur gaman vatt upp á sig og dómur er fallinn: „Varastu djöflabarnið“ Breski eltihrellirinn, hin 21 árs gamla Orla Sloan hefur hlotið tólf vikna fangelsisdóm, sem er skilorðsbundinn í 18 mánuði, auk 200 klukkustunda samfélagsskyldu, eftir að hún var fundin sek um að hafa áreitt bresku knattspyrnumennina Mason Mount, Ben Chilwell og Billy Gilmour. Fótbolti 23. júní 2023 09:30
Sjáðu TM-mótið í Eyjum: Spenntir hvalir, eldhressar stelpur og fullt af plokkfiski Það var mikið fjör í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þar sem 1.100 stelpur sýndu fótboltasnilli sína á TM-mótinu í fótbolta. Nýr slagari úr smiðju Jóns Jónssonar, tileinkaður krakkamótunum í Eyjum, ómaði um svæðið og stelpurnar virtust njóta sín í botn á eyjunni fögru. Fótbolti 23. júní 2023 09:01
„Eftir að vera á þessu sviði vill maður ekkert annað“ Arnór Sigurðsson samdi í vikunni við Blackburn Rovers og fær því að upplifa drauminn, að spila á Englandi. Hann segist finna sig hvað best í mikilvægum leikjum fyrir framan fullan völl og sannaði það þegar hann skoraði gegn Real Madríd og Roma í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 23. júní 2023 08:05
Lék á EM í fyrra en spriklar nú í strákabolta fyrir vestan Knattspyrnukonan fyrrverandi, Elín Metta Jensen, var hluti af íslenska landsliðinu sem tók þátt á EM í Englandi síðasta sumar. Hún lagði hins vegar skóna á hilluna í október á síðasta ári aðeins 27 ára gömul, en hefur þó ekki alveg sagt skilið við fótboltann. Fótbolti 23. júní 2023 07:31
Grindavík vann slaginn um Suðurstrandaveginn Grindavík vann 3-1 sigur á Ægi í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá unnu Þróttarar góðan endurkomusigur gegn Gróttu. Fótbolti 22. júní 2023 21:30
England byrjar af krafti og Frakkar lögðu Ítali England vann 2-0 sigur á Tékkum í fyrsta leik liðsins á Evrópumóti U-21 árs landsliða sem hófst í Georgíu í dag. Þá unnu Frakkar góðan sigur á Ítölum í D-riðli. Fótbolti 22. júní 2023 20:40
Emilía skoraði og varð bikarmeistari í Danmörku Hin 18 ára gamla Emilía Kiær Ásgeirsdóttir átti stóran þátt í því að tryggja Nordsjælland danska bikarmeistaratitilinn í fótbolta, með sigri gegn Fortuna Hjörring í úrslitaleik í gær. Fótbolti 22. júní 2023 16:46