„Held að Cessa hafi verið extra ánægð að fá að hitta Neuer“ Glódís Perla Viggósdóttir segir ánægjulegt hve samheldnin sé mikil hjá þýska stórveldinu Bayern München en leikmenn kvenna- og karlaliðs félagsins fögnuðu saman meistaratitlum sínum um liðna helgi. Fótbolti 2. júní 2023 10:00
Gæti verið tekinn af úrslitaleiknum vegna tenginga við öfgamann Pólski dómarinn Szymon Marciniak er í vandræðum eftir að hafa haldið ræðu á viðburði á vegum hægri öfgamanns. UEFA skoðar hvort finna þurfi annan dómara á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Fótbolti 2. júní 2023 09:31
Sjáðu markaveislu Fylkis og KR í Árbænum og mörkin úr FH-sigri á Akureyri Fylkir og KR buðu upp á sex marka leik í Lautinni í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og það er ekki hægt að segja annað en Vesturbæingar séu farnir að finna markið aftur. Fótbolti 2. júní 2023 09:01
Banna tveimur bestu mönnum Íslands að fara á EM Afar ólíklegt er að Ísland geti teflt fram tveimur af sínum allra bestu leikmönnum á Evrópumóti U19-landsliða karla í fótbolta í næsta mánuði. Fótbolti 2. júní 2023 08:31
Kapphlaupið um lausa miða á fyrsta leik Íslands undir stjórn Åge hefst í hádeginu Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar sína fyrstu leiki undir stjórn Norðmannsins Åge Hareide í þessum mánuði. Það er búist við að margir vilji ná sér í miða á frumraun landsliðsþjálfarans með Ísland. Fótbolti 2. júní 2023 08:01
Áfram í Sádi Arabíu og segir deildina efni í eina þá bestu Cristiano Ronaldo hefur gefið út að hann ætli sér að vera áfram hjá Al-Nassr á næsta tímabili og segir að deildin í Sádi Arabíu gæti orðið ein af fimm bestu deildum í heimi. Fótbolti 1. júní 2023 23:31
Beckham rak gamla liðsfélagann Phil Neville hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra Inter Miami eftir skelfilegt gengi liðsins að undanförnu. Liðið hefur tapað tíu af fimmtán leikjum sínum á tímabilinu. Fótbolti 1. júní 2023 23:02
Ráðist að Anthony Taylor og fjölskyldu á flugvellinum í Búdapest Stuðningsmenn Roma réðust að Anthony Taylor og fjölskyldu hans þegar þau hugðust ferðast frá Búdapest í dag. Taylor dæmdi úrslitaleik Sevilla og Roma í Evrópudeildinni í gær. Fótbolti 1. júní 2023 22:30
Fjölnir og Afturelding á toppnum eftir góða sigra Fjölnir og Afturelding eru efst og jöfn á toppi Lengjudeildarinnar eftir góða sigra í leikjum kvöldsins. Selfoss er ekki langt undan eftir sigur á Þrótturum. Fótbolti 1. júní 2023 21:22
Mörk frá Birki og Jónatani Inga í norska bikarnum Birkir Bjarnason og Jónatan Ingi Jónsson voru hetjur sinna liða í norsku bikarkeppninni í dag. Birkir skoraði bæði mörk Viking og Jónatan Ingi tryggði Sogndal sæti í 32-liða úrslitum. Fótbolti 1. júní 2023 20:21
Rúnar Þór lagði upp þegar Östers fór upp í annað sætið Rúnar Þór Sigurgeirsson og Alex Þór Hauksson voru báðir í byrjunarliði Östers þegar liðið vann góðan 3-2 sigur á Jönköping í sænska boltanum í dag. Fótbolti 1. júní 2023 19:41
Góður útisigur Twente í umspilinu Twente vann góðan útisigur á Herenveen þegar liðin mættust í fyrri umspilsleik sínum um sæti í Evrópukeppni á næsta ári. Fótbolti 1. júní 2023 18:49
Ofurparið til Bayern og Glódís fær enn meiri samkeppni Þýski knattspyrnurisinn Bayern München tilkynnti í dag um mikinn liðsstyrk sem jafnframt mun auka enn samkeppnina fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur í liðinu, fari svo að hún haldi kyrru fyrir hjá Bayern í sumar. Fótbolti 1. júní 2023 15:00
„Alveg galið hvað þær takast vel á við þetta“ Glódís Perla Viggósdóttir nýtur þess í botn að vera með íslensku liðsfélagana Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Cecilíu Rán Rúnarsdóttur í Bayern München. Hún segir ekki mega vanmeta þeirra þátt í meistaratitlinum sem liðið fagnaði á sunnudaginn. Fótbolti 1. júní 2023 12:00
Man. United og Liverpool enn á undan Man. City Manchester United er verðmætasta félagið í ensku úrvalsdeildinni og það næstverðmætasta í heimi á eftir Real Madrid samkvæmt árlegri úttekt Forbes. Enski boltinn 1. júní 2023 11:31
Fær næstum því fjögur hundruð milljónir í árslaun í nýju starfi Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari Víkings og Breiðabliks, er á leið í afar vel borgað starf í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fótbolti 1. júní 2023 11:00
„Tók meira leiðtogahlutverk og naut mín mjög vel“ Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, lék hverja einustu mínútu á nýafstaðinni leiktíð, þegar Bayern München varð Þýskalandsmeistari í fimmta sinn. Hún segir hlutverk sitt sem leiðtogi hjá Bayern hafa stækkað. Fótbolti 1. júní 2023 10:00
Segir Sveindísi einn besta skyndisóknarleikmann heims Þjálfari Arsenal segir Sveindísi Jane Jónsdóttur vera einn besta skyndisóknarleikmann heims. Fótbolti 1. júní 2023 08:30
Mourinho úthúðaði dómaranum Jose Mourinho tapaði sínum fyrsta úrslitaleik í Evrópukeppni í gær þegar Roma beið lægri hlut í úrslitum Evrópudeildarinnar. Ungur drengur fékk verðlaunapening Portúgalans eftir leik. Fótbolti 1. júní 2023 06:31
Pétur: Bryndís er markaskorari af guðs náð Pétur Pétursson var rólegur við leikslok eftir að lið hans hafði unnið sterkan sigur á Þrótti í toppslag 6. umferðar Bestu deildar kvenna í Laugardalnum á miðvikudagskvöldið. Fótbolti 31. maí 2023 22:52
Björn: Við þurfum meiri ákafa í boxið Björn Sigurbjörnsson var að vonum svekktur eftir tap Selfoss gegn Breiðablik nú í kvöld. Breiðablik var komið yfir eftir innan við þriggja mínútna leik og það var nokkuð ljóst að Selfyssingar væru í vandræðum. Fótbolti 31. maí 2023 22:48
Sædís: Jasmín vill meina að hún hafi skorað Sædís Rún Heiðarsdóttir var valin maður leiksins í 3-0 sigri Stjörnunnar á Keflavík fyrr í kvöld. Það voru þó stigin þrjú sem lágu henni efst í huga að leik loknum. Fótbolti 31. maí 2023 22:37
Sevilla vann Evrópudeildina eftir vítaspyrnukeppni Sevilla er sigurvegari Evrópudeildarinnar í enn eitt skiptið eftir sigur á Roma í vítaspyrnukeppni í kvöld. Þetta er í sjöunda skipti sem Sevilla vinnur sigur í keppninni. Fótbolti 31. maí 2023 22:21
Tap hjá liði Elíasar Más NAC Breda tapaði 2-1 gegn Emmen í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í efstu deild í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 31. maí 2023 18:52
Blikaparið tekur sambandið á næsta stig Ástin blómstrar hjá knattspyrnuparinu Katrín Ásbjörnsdóttur og Damir Muminovic. Parið trúlofaði sig á dögunum. Lífið 31. maí 2023 16:26
Messi valdi tónleika með Coldplay fram yfir brúðkaup samherja Fjöldi stórstjarna gerði sér ferð til Como-vatnsins til að vera viðstödd brúðkaup argentínska fótboltamannsins Lautaros Martínez og Agustinu Gandolfo. Fótbolti 31. maí 2023 13:01
Aron Einar: Finnst líklegra en ekki að Gylfi snúi aftur Margir velta fyrir sér hvort að við munum sjá einn besta knattspyrnumann Íslandssögunnar snúa aftur inn á fótboltavöllinn og jafnvel klæðast aftur íslensku landsliðstreyjunni. Fótbolti 31. maí 2023 11:47
Búið að selja næstum því milljón miða á HM hjá stelpunum Miðasala gengur vel á leikina á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta sem fer fram í sumar í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Fótbolti 31. maí 2023 09:30
Gæti farið frá Liverpool til Real Madrid Roberto Firmino hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool en kannski ekki síðasta leikinn fyrir stórlið. Enski boltinn 31. maí 2023 09:01
Dreymir um að vinna Meistaradeildina og er ekki á förum frá Bayern „Ég vil bara vinna meistaradeildina“, segir Glódís Perla Viggósdóttir sem fagnaði á dögunum þýska meistaratitlinum með liði sínu Bayern München. Fótbolti 31. maí 2023 07:00
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn