
Skuld WOW við Isavia tvöfaldaðist á einum mánuði
Flugfélagið WOW Air skuldaði Isavia rúman milljarð króna í lok júlí á síðasta ári.
Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Flugfélagið WOW Air skuldaði Isavia rúman milljarð króna í lok júlí á síðasta ári.
Var biluð í dag.
Umhverfisverndarsamtökin Landvernd leggjast gegn því að Keflavíkurflugvöllur verði stækkaður frekar vegna umhverfisáhrifa sem það hefði í för með sér. Þetta ályktaði aðalfundur félagsins í gær. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að draga verði úr flugi, engin ástæða sé til þess að ýta undir frekari fjölgun ferðamanna til landsins.
Lögmaður bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation kannast ekki við að félagið beiti dulbúnum persónulegum hótunum, fái félagið ekki Airbus vél sína afhenta sem Isavia hefur kyrrsett. Lögmönnum Isavia hafi hins vegar verið gerð grein fyrir því að kannað verði hvort starfsmenn Isavia kunni að bera skaðabóta- eða refsiábyrgð í málinu.
Vonir standa til þess að flugfélagið SAS geti hafið flug að nýju samkvæmt áætlun eftir hádegi á morgun.
Erindrekar bandarísks félags sagðir hóta íslenskum félögum vandræðum vestanhafs vegna kyrrsetningar Isavia á flugvél sem WOW air leigði af félaginu. Fyrirtækið hafnaði sáttatilboði félagsins.
Flugmenn hafa nú verið í verkfalli í fimm daga. Rúmlega fimm hundruð flugferðum hefur verið aflýst vegna þess í dag.
23 ára indversk kona, sem stefnir á að verða fyrsta konan til að fljúga fisflugvél umhverfis hnöttinn hefur undanfarnar vikur undirbúið sig hér á Íslandi fyrir seinni hluta ferðarinnar. Tilgangurinn er meðal annars að sýna indverskum konum að þeim séu allir vegir færir.
Íslensk kona var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 19. apríl síðastliðinn með mikið magn ávana- og fíknilyfja falið í tösku sinni.
Dennis Muilenburg, forstjóri Boeing, heitir því að ný útgáfa 737 MAX-flugvélanna verði meðal öruggustu farartækja háloftanna.
Gjaldþrot WOW air og árstíðabundin verðsveifla eru sagðar útskýringar þess að flugfargjöld til útgjalda hækkuðu um rúmlega fimmtung á milli mánaða.
Afleiðingar gjaldþrots WOW air teygja anga sína víða. Hætt hefur verið við árshátíðarferð starfsfólks Vinnumálastofnunar, sem fara átti fram erlendis, vegna gjaldþrots flugfélagsins. Starfsfólkið svekkt en stendur þó þétt saman.
Flugmenn American Airlines hafa varað flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum við því að fyrirhuguð þjálfunaráætlun vegna uppfærslu á stjórnkerfi 737 MAX vélanna sé ekki fullnægjandi að þeirra mati.
Aðalfundir Boeing hafa ekki verið sérstaklega fréttnæmir undanfarin ár en búist er við að breyting verði á því á morgun er aðalfundur félagsins verður haldinn í Chigaco.
Fyrrverandi forsetaframbjóðandinn safnar áheitum fyrir stofnun flugfélags.
Í tilkynningu frá Fly Icelandic er fullyrt að á þriðja hundrað manns hafi skráð sig á vefsíðu fyrir flugmílum.
Air Lease Corporation (ALC) segir að forsvarsmenn WOW air hafi samþykkt að afhenda Airbus farþegaþotu í apríl áður en til gjaldþrots íslenska flugfélagsins kom.
Fjölbreyttari fargjaldaflokkar og alþjóðleg samkeppni eru meðal ástæðna þess að Icelandair hefur hækkað breytingargjald sitt á undanförnum mánuðum.
Rúmlega 1400 flugmenn SAS í Noregi, Svíþjóð og Danmörku lögðu niður störf í gærkvöldi eftir að kjaraviðræður þeirra runnu út í sandinn.
Fólki gefst nú kostur á að skrá sig á flyicelandic.is þar sem lofað er fríðindum og ódýrum flugmiðum. Talsmaður FlyIcelandic segir að skapa eigi viðskiptagrunn sem stofna megi flugfélag á eða efna til samstarfs við önnur flugfélög.
Hugmynd að stofnun nýs íslensks flugfélags hefur verið kynnt á vefsíðunni flyicelandic.is en að hugmyndinni standa miklir reynsluboltar, þ.á.m. Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi og athafnamaður.
Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur vegna stýrikerfisgalla í Boeing 737 MAX 8. Flugfélagið hefur keypt níu slíkar þotur frá Boeing en þær eru kyrrsettar sem stendur.
Bogi Nils segir þetta styrkja hluthafahópinn og auka fjölbreytnina í honum en PAR Capital hefur fjárfest mikið í bandarískum flugfélögum og ferðaþjónustufyrirtækjum.
Dennis Muilenberg, forstjóri Boeing, segir að flugvélaframleiðandinn hafi ekki gert nein tæknileg mistök við hönnun Boeing 737 MAX-vélanna sem eru nú í flugbanni um allan heim vegna tveggja mannskæðra flugslysa.
Flugrekstrarhluti í þrotabúi WOW Air úreldist hratt og verðmætin rýrna að sögn forstjóra Samgöngustofu.
Hreiðar Hermannsson, hótelstjóri Stracta hotels, sem nú undirbýr stofnun flugfélags segir að mikið vatn muni renna til sjávar áður en að flugvélar hins nýja flugfélags muni hefja sig á loft. Hann er þó bjartsýnn á framhaldið og segir erlent flugfélag hafa haft samband við sig um kaup á helmingi hlutafjár í hinu nýju flugfélagi.
Þetta staðfestir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar við fréttastofu.
Systkinin Anna og Ingi Jóhann Guðmundsbörn, stærstu eigendur útgerðarfélagsins Gjögurs, hafa tekið sæti í stjórn félags sem keypti fyrr á árinu 51 prósents hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum.
Hreiðar Hermannsson, hótelstjóri Stracta Hotels, vinnur að því að stofna lággjaldaflugfélag.
Fimm milljóna dala yfirdráttarlán WOW var gert upp og Arion eignaðist skuldabréf á félagið. Þrotabúið kannar hvort tilefni sé til að rifta þeirri ráðstöfun.