
Uppbygging í Skerjafirði og framtíð flugvallarins í Vatnsmýri
Uppbygging í Skerjafirði og framtíð flugvallarins í Vatnsmýri verða til umræðu í Pallborðinu í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi.is og Stöð 2 Vísi klukkan 14 í dag.
Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Uppbygging í Skerjafirði og framtíð flugvallarins í Vatnsmýri verða til umræðu í Pallborðinu í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi.is og Stöð 2 Vísi klukkan 14 í dag.
Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til Verona á Ítalíu og Fuerteventura á Kanaríeyjum.
Stjórnmál geta verið allavega. Í mínum huga eru þau mikilvægt tæki til að móta samfélag og vinna að framförum. Átök eru hluti af stjórnmálunum, hluti af lýðræðinu. Almennt gilda í stjórnmálum ákveðnar leikreglur. Þær eru mikilvægar og snúa helst að því að stjórnmálamenn komi fram af heilindum og nýti sér ekki viðkvæm málefni til að skapa ótta meðal borgaranna. Það er ekki aðeins ómerkilegt heldur skaðlegt.
Þingflokkur Framsóknar og sveitarstjórnarfulltrúar hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir ítreka þá afstöðu sína að það eigi ekki að rísa byggð í Vatnsmýrinni sem hefur áhrif á flug- og rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar.
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir Orra Eiríksson, fulltrúa atvinnuflugmanna í starfshópi innviðaráðherra um Reykjavíkurflugvöll, hlaupa frá niðurstöðunni. Ekki sé sanngjarnt að gera lítið úr skýrslu starfshópsins.
Albönsk kona á fimmtugsaldri hefur verið dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tekið við 7.100 evrum af óþekktum aðila og ætlað að ferðast með þær til Póllands. Konan var sakfelld fyrir peningaþvætti en fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness að ekki hafi dulist að peningurinn hafi verið ávinningur refsiverðra brota.
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í fjórtán sveitarfélögum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem áform innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um að hefjast handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning íbúðauppbyggingar í Skerjafirði eru fordæmd. Þau setji framtíð Reykjavíkurflugvallar, og þar með framtíðaröryggi landsbyggðarinnar í uppnám.
Flugslysaæfing fór fram á Bíldudalsflugvelli í morgun. Samkvæmt Landsbjörgu fór allt vel fram og náðust öll markmiðin sem voru sett.
Uppbygging varaflugvalla á Íslandi hafa ekki verið í samræmi við vöxt alþjóðarflugs síðustu misseri. Flestar ferðir til og frá landinu eru í gegnum Keflavíkurflugvöll en hins vegar erum við að sjá aukið millilandaflug gegnum flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum.
Öllum sextán starfsmönnum Niceair hefur verið sagt upp störfum og félagið mun ekki hefja flugið aftur í sumar.
Flugvél sem nauðlenti á Fúlukinnarfjalli í júlí síðasta sumar var með brotinn gormahaldara og ábótavana smurningu á strokki. Er því beint til umsjónarmanna véla með svipaða hreyfla að huga vel að tengingu olíuleiðsna. Þá er því beint til hönnuðar vélarinnar að endurskoða notkun á riffluðum málmrörum í olíkerfi hreyfilsins.
Sú ákvörðun innviðaráðherra og borgarstjóra að hefja uppbyggingu í Nýja Skerjafirði skerðir notagildi Reykjavíkurflugvallar og er einn naglinn í kistu vallarins, að mati talsmanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Borgarstjóri segir að þarna rísi eftirsótt hverfi samkvæmt verðlaunaskipulagi.
Rekstrartekjur Icelandair námu 33,3 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2023. Jukust þær um 47 prósent milli ára. Félagið tapaði sjö milljörðum króna á ársfjórðungnum en veðurtengdar raskanir höfðu neikvæð áhrif á afkomuna.
Flugfélagið Play hefur verið í mikilli sókn síðustu mánuði og hefur verið að vaxa á gríðarlegum hraða. Ársfjórðungsuppgjör félagsins var birt í dag en tekjur félagsins tæplega fjórföldust á einu ári. Forstjóri félagsins segist skíthræddur um að félagið vaxi of hratt, en þó er vel passað upp á að það gerist ekki.
Fulltrúar flugfélagsins Play munu kynna uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung félagsins á fundi sem hefst klukkan 16:15.
Starfshópur innviðaráðherra telur ekki þörf á að hætta við byggingarhugmyndir í Nýja Skerjafirði vegna áhrifa breytts vindafars á flugvöllinn. Hópurinn leggur til mögulegar mótvægisaðgerðir sem fela meðal annars í sér að takmarka hæð húsa í nýrri byggð. Innviðaráðuneytið og Reykjavíkurborg hafa tekið ákvörðun um að hafist verði handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning uppbyggingar.
Icelandair bætir við einni 76 sæta Dash 8 Q400-flugvél í flotann fyrir sumarið. Jafnframt hyggst félagið á ný nota þessa flugvélartegund á nokkrum Evrópuleiðum fyrri hluta sumars en þó einungis tímabundið.
Eldri hjón fá engar bætur frá Wizz air eftir að hafa misst af flugi með flugfélaginu frá Keflavík til Vínarborgar í apríl í fyrra. Þau fengu ekki að innrita sig þótt tæplega þrjár klukkustundir væru í auglýst flugtak.
Ráðherraráð Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um nýjar reglur til þess að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugferðum í nótt. Íslensk stjórnvöld krefjast undanþága frá reglunum.
Rapparinn Desiigner hefur verið ákærður fyrir að fróa sér hamslaust fyrir framan flugfreyjur í flugferð í síðustu viku. Rapparinn segir lyf sem hann tók hafa haft slæm áhrif á sig. Hann er nú búinn að aflýsa tónleikaröð sinni og ætlar að leita sér hjálpar vegna andlegra erfiðleika.
Bandarísk herþyrla af Chinook gerð sem virtist fljúga í austurátt yfir landið um helgina var í raun og veru bandarísk P-8 herflugvél sem notuð er í kafbátaleit. Glöggir flugáhugamenn veittu ferðum þyrlunnar athygli á vef FlightRadar.
Færeyski fiskeldisrisinn Bakkafrost, í gegnum dótturfélag sitt FarCargo, mun í sumar hefja beint flug frá Færeyjum með ferskan eldislax á erlenda markaði. Til flugsins verður notuð fraktflugvél sem sérstaklega var keypt fyrir verkefnið.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað frávísunarkröfum Skúla Mogensen, fyrrverandi forstjóra og eiganda WOW air, og stjórnarmanna flugfélagsins vegna máls sem var höfðað af hópi skuldabréfaeigenda. Ekki var fallist á að vísa málinu frá dómi vegna ákvæðis í skuldabréfunum um að ágreiningur um tiltekna þætti útboðsins félli undir lögsögu sænskra dómstóla.
Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður.
Löggjöf um breyttar reglur um losunarheimildir í flugi var samþykkt á Evrópuþinginu í gærmorgun. Forsætisráðherra segir löggjöfina hafa hlutfallslega mikil áhrif á flugsamgöngur til og frá Íslandi. Hún trúir að raunhæf lausn náist í málinu, sjónarmið Íslands hljóti að mæta skilningi.
Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í morgun löggjöf um breyttar reglur um losunarheimildir í flugi en íslensk stjórnvöld hafa mótmælt þessum fyrirætlunum harðlega. Málið var samþykkt með 521 atkvæðum, en 75 greiddu akvæði gegn og 43 sátu hjá.
Tækifæri Íslendinga til að komast í beint flug til fjarlægari áfangastaða gætu stóraukist með kaupum Icelandair á langdrægum Airbus-þotum. Kalifornía, Mexíkó, Texas og jafnvel Suður-Ameríka en einnig Indland og Norður-Afríka gætu þannig bæst í leiðakerfið.
Dómstóll í Íran dæmdi tíu lágt setta liðsmenn byltingarvarðarins í fangelsi vegna úkraínskrar farþegaþotu sem var skotin niður í janúar árið 2020. Aðstandendur fórnarlambanna segja málalyktirnar óviðunandi.
„Ég finn svo til með honum, og ég vona innilega að það sé í lagi með hann,“ segir hin ástralska Rebecca Troughton í samtali við Vísi. Rebecca, sem er ferðabloggari, dvaldi hér á landi í lok seinasta mánaðar og kom íslenskum karlmanni til bjargar um borð í flugvallarskutlu. Hún veit engin deili á manninum og vill gjarnan vita af afdrifum hans.
Tæknileg bilun varð til þess að flugvél írska flugfélagsins Aer Lingus neyddist til að lenda á Keflavíkurflugvelli síðdegis á miðvikudag. Flugvélin var á leið frá Dublin til Boston.