Voru send í skólasund eftir slysið Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist. Innlent 30.3.2026 20:16
Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Foreldrar barna í Urriðaholtsskóla saka skólann og Garðabæ um ábyrgðarleysi eftir að börnin þeirra lentu í árekstri á leið í skólasund. Börnin voru send fótgangandi í sund og þegar eitt foreldrið bað um að haldinn yrði foreldrafundur sagði skólastjórinn ekki telja ástæðu til. Þau ætla að biðja um fund með Garðabæ til að fá lausn í málinu. Innlent 29.3.2026 15:03
Líkamsárás í verslunarmiðstöð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um líkamsárás í hverfi 103 í nótt. Árásin átti sér stað í verslunarmiðstöð. Innlent 28.3.2026 07:17
Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður og þjálfari leiðir framboðslista Samfylkingarinnar í Garðabæ. Listinn var samþykktur á fjölmennum félagsfundi nú fyrir stundu. Innlent 16. mars 2026 18:36
Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Nú stöndum við á krossgötum. Nýtt deiliskipulag Garðabæjar fyrir Vetrarmýri og Smalaholt boðar miklar breytingar sem munu hafa bein áhrif á eitt dýrmætasta útivistarsvæði okkar. Skoðun 16. mars 2026 09:00
Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. Innlent 14. mars 2026 11:12
Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu. Innlent 13. mars 2026 08:52
Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins. Innlent 12. mars 2026 13:34
Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Innlent 12. mars 2026 06:02
Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar. Innlent 11. mars 2026 11:12
Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lögreglumann ofbeldi Einn var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í nótt eftir að hafa ógnað fólki með hnífi. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann beitti svo lögreglumann ofbeldi. Samkvæmt dagbók lögreglu eru bæði málin til rannsóknar og í ferli. Innlent 8. mars 2026 07:19
Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Hafnarfjarðarvegi var lokað um stund í kvöld vegna áreksturs þegar þrír bílar runnu saman vegna hálku á veginum. Enginn er illa slasaður. Innlent 7. mars 2026 21:06
Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 5. mars 2026 19:31
Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Slæm hola í Elliðavatnsvegi í Hafnarfirði tók fjóra bíla úr umferð í morgun. Búið er að gera við holuna en vegfarandi segir að viðhald á vegkaflanum sé lítið sem ekkert. Hann vonast til að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Vegagerðin gyrði sig í brók. Innlent 4. mars 2026 22:28
Rannsaka frelsissviptingu og fíkniefnavörslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar frelsissviptingu og vörslu fíkniefna. Málið heyrir undir umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Innlent 4. mars 2026 16:48
„Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Bróðir Margrétar Löf, sem var dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að hafa orðið föður þeirra að bana, skilur að upp hafi vaknað spurningar um meint aðgerðaleysi hans vegna heimilisofbeldis sem faðir hans varð fyrir en samband hans við fjölskylduna hafi ekki verið hefðbundið fjölskyldumynstur. Hann gagnrýnir aðgerða- og úrræðaleysi heilbrigðisstéttarinnar. Innlent 3. mars 2026 11:43
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis. Innlent 25. febrúar 2026 10:17
Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í hesthúsi sínu og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína. Innlent 24. febrúar 2026 00:17
Þrír sinueldar á innan við sólarhring Tveir sinueldar komu upp á höfuðborgarsvæðinu á öðrum tímanum í nótt en greiðlega gekk að slökkva eldana. Annar þeirra kviknaði í Norðlingaholti í Reykjavík og náði yfir um fimm hundruð metra langt svæði. Tveir dælubílar voru sendir á staðinn sem slökktu eldinn frá sitt hvorum enda. Innlent 22. febrúar 2026 07:31
Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Lögmaðurinn Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Gerald Häsler Aðalsteinsson, viðskiptastjóri hjá Arion banka, hafa sett 179 fermetra raðhús sitt við Hörgslund 17 í Garðabæ á sölu. Ásett verð er 172 milljónir. Lífið 19. febrúar 2026 16:11
Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn. Innlent 18. febrúar 2026 13:30
Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum. Innlent 17. febrúar 2026 15:40
Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Hlynur Bæringsson, sem setti körfuboltaskóna á hilluna eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni síðasta vor, segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Innlent 17. febrúar 2026 11:11