Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Bandaríkjaforsetanum Donald Trump hefur snúist hugur og segir hann nú að það sé ekki viðeigandi fyrir íranska landsliðið að mæta á HM í sumar. Fótbolti 12.3.2026 18:00
Potter framlengdi við Svíþjóð áður en HM-örlög landsliðsins ráðast Graham Potter hefur skrifað undir nýjan samning sem þjálfari sænska karlalandsliðsins í fótbolta. Fótbolti 12.3.2026 17:17
Neymar svaraði gagnrýnendum sínum: „Mjög erfitt að vera ég“ Brasilíski framherjinn Neymar taldi sig þurfa að svara gagnrýnendum sem halda áfram að efast um líkamlegt ástand hans fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar, þangað sem hann dreymir um að komast. Fótbolti 12.3.2026 15:30
Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA. Fótbolti 7. mars 2026 11:03
Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, tók í fyrradag sögulega ákvörðun í aðdraganda komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. Hætt er við að breytingin hafi afgerandi áhrif á sífellt peningavæddari fótbolta, á kostnað leiksins sjálfs. Fótbolti 7. mars 2026 09:01
Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Walid Regragui hefur nú sent frá sér tilfinningaríkt myndband og endanlega staðfest það að hann sé hættur sem þjálfari Marokkó, aðeins um hundrað dögum áður en liðið hefur leik á HM karla í fótbolta í Ameríku. Fótbolti 5. mars 2026 23:16
RÚV má gera fleiri auglýsingahlé í hverjum leik á HM FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur ákveðið að heimila sjónvarpsrétthöfum að HM karla í fótbolta í sumar að skipta yfir í auglýsingar í nýju hléunum sem gerð verða í bæði fyrri og seinni hálfleik, í öllum leikjum. Fótbolti 5. mars 2026 17:50
HM-draumar fleiri þjóða í uppnámi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum Vonir Íraka um að komast á heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar eru í uppnámi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum þar sem leikmenn fá ekki vegabréfsáritanir fyrir umspilsmótið í Mexíkó og þjálfari liðsins er fastur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fótbolti 5. mars 2026 06:49
Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Brasilíski knattspyrnumaðurinn Rodrygo hjá Real Madrid sleit krossband í grannaslagnum gegn Getafe í spænsku deildinni á mánudaginn en það þýðir að brasilíska stjarnan kemst ekki á HM í sumar. Fótbolti 4. mars 2026 11:01
Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir í samtali við vefmiðilinn Politico að honum sé alveg sama hvort Íran taki þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar eða ekki. Fótbolti 4. mars 2026 09:33
Tímabilinu lokið og HM úr sögunni hjá Rodrygo Rodrygo, sem leikur með Real Madrid og brasilíska fótboltalandsliðinu, sleit krossband í hné og verður frá keppni í 6-7 mánuði. Marca á Spáni greinir frá. Fótbolti 3. mars 2026 15:37
„Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Tafarlaust hlé hefur verið gert á öllum fótboltakeppnum í Íran í skugga árásar Bandaríkjanna og Ísraels á ríkið í gær. Forseti knattspyrnusambands landsins segir ólíklegt að íranska landsliðið keppi á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. FIFA fundar um málið. Fótbolti 1. mars 2026 08:01
Pollrólegur yfir stöðunni í Mexíkó Þrátt fyrir óeirðirnar sem brutust út í Mexíkó í byrjun vikunnar, sem meðal annars valda því að gríðarleg öryggisgæsla verður á landsleik Íslands og Mexíkó í kvöld, hefur forseti FIFA fulla trú á að Mexíkóum takist vel til með að halda HM í fótbolta í sumar. Fótbolti 25. febrúar 2026 09:00
Portúgal vill fá enska unglingalandsliðsmanninn Hinn ungi Mateus Mane hefur vakið mikla athygli með Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í vetur og nú vilja bæði Englendingar og Portúgalar eigna sér hann. Enski boltinn 24. febrúar 2026 20:18
Þjálfari danska landsliðsins með augun á gamla Valsaranum Frammistaða danska knattspyrnumannsins Kasper Högh í Meistaradeildarævintýri Bodø/Glimt gæti tryggt honum framherjastöðuna í danska landsliðinu þegar Danmörk keppir um sæti í lokakeppni HM í næsta mánuði. Fótbolti 24. febrúar 2026 18:16
Staðan í Mexíkó og Bandaríkjunum valdi áhyggjum Andreas Rettig, framkvæmdastjóri þýska knattspyrnusambandsins, DFB, segir ofbeldisöldu í Guadalajara í Mexíkó ýta undir kvíða fremur en spennu fyrir komandi heimsmeistaramóti í sumar. Fótbolti 24. febrúar 2026 14:31
Sló met Íslands en hættir vegna veikinda dóttur sinnar Landslið Curacao, sem í sumar bætir met Íslands með því að verða fámennasta þjóðin til að spila á HM karla í fótbolta, er nú allt í einu komið með nýjan þjálfara þegar skammt er í mótið. Fótbolti 23. febrúar 2026 12:02
Íslenskir barir skoða næturopnun á stórleikjum HM Bareigendur eru farnir að velta fyrir sér næturopnun á meðan heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu stendur næsta sumar. Sparkspekingar hér á landi þurfa að setja sig í stellingar vegna tímamismunar en mótið fer fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir vikið hefjast sumir leikir þegar flestir eru farnir að sofa. Fótbolti 21. febrúar 2026 16:30
Skorar meira en Cristiano Ronaldo og dreymir um sæti í HM-hópnum Enski framherjinn Ivan Toney hefur skorað meira en Cristiano Ronaldo í sádíarbísku fótboltadeildinni í vetur og vonast nú eftir endurkomu í enska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið í sumar. Fótbolti 16. febrúar 2026 16:46
Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Englendingar vona að sagan endurtaki sig ekki eftir að landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel skrifaði í gær undir samning við enska knattspyrnusambandið sem gildir fram yfir EM 2028. Fótbolti 13. febrúar 2026 07:00
ICE-sveitin verður í lykilhlutverki í öryggisgæslu á HM í Bandaríkjunum Starfandi yfirmaður bandarísku útlendinga- og tollgæslunnar í Bandaríkjunum, þekkt undir nafninu ICE, sagði þingnefnd að stofnunin væri í lykilhlutverki í heildaröryggisgæslu heimsmeistaramótsins í fótbolta þegar hann var spurður hvort hann myndi gera hlé á aðgerðum vegna mótsins í sumar. Fótbolti 12. febrúar 2026 12:32
Tuchel sagður ætla að framlengja samning sinn Þjóðverjinn Thomas Tuchel mun framlengja samning sinn sem landsliðsþjálfari Englands til og með Evrópumótsins 2028. Fótbolti 12. febrúar 2026 10:24
Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Óljósar fréttir hafa borist af því að þjálfari Marokkó, Walid Regragui, hafi sagt af sér aðeins fjórum mánuðum áður en liðið hefur keppni á HM í fótbolta. Fótbolti 6. febrúar 2026 16:02
Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Stjórnarmaður í þýska knattspyrnusambandinu segir að kominn sé tími til að íhuga sniðgöngu á heimsmeistaramótinu í fótbolta vegna aðgerða Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Fótbolti 24. janúar 2026 08:32