Húsnæðismál

Húsnæðismál

Fréttamynd

Íbúðahótel í Reykja­vík hætti rekstri vegna nýrra laga

Rekstrarstjóri fyrirtækis sem þjónustar íbúðahótel og íbúðir í heimagistingu telur að rekstur margra íbúðahótela sé í hættu með tilkomu lagabreytingar sem takmarkar skammtímaleigu. Samtök leigjenda fagna breytingunum en rekstrarstjórinn telur of mikið gert úr þeim áhrifum sem þær geti haft á íbúðamarkað.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Byrjum á byrjuninni – Fram­boð, ekki bara fjár­mögnun

Í gær, 19. mars 2026, var tilkynnt að starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi hefði tekið til starfa undir forystu Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þetta er gott skref og þörf hreyfing á málaflokknum. En ættum við kannski að staldra aðeins við og byrja á byrjuninni?

Skoðun
Fréttamynd

Helstu hug­tök í fast­eigna­við­skiptum

Kaup á fasteign eru yfirleitt meðal stærstu fjárfestinga fólks á lífsleiðinni og oftar en ekki liggur aleiga fólks í fasteignum þeirra. Skiljanlegt er því að ýmsar vangaveltur, ágreiningsefni og margþætt lögfræðileg álitaefni komi upp við kaup og sölu á fasteignum.

Skoðun
Fréttamynd

„Valsreiturinn... í Pyongyang“

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið.

Lífið
Fréttamynd

Einn leik­skóli inn, annar út og starf­semin á flakki milli húsa

Þrátt fyrir boðaðar úrbætur með Reykjavíkurmódelinu svokallaða í leikskólamálum þarf meira til að leysa úr húsnæðis- og mönnunarvanda að sögn leikskólastjórnenda. Fréttastofa leit við á þremur leikskólum í dag þar sem flutningar standa yfir, ýmist vegna eftirleiks af völdum myglu eða yfirvofandi þakviðgerða. 

Innlent
Fréttamynd

Skilar Kópa­vogur auðu í húsnæðis­málum?

Það vakti athygli að bæjarráð Kópavogs hafnaði í síðustu viku umsókn Bjargs Íbúðafélags um 220 milljón króna stofnframlag til byggingar á 24 íbúðum fyrir tekjulágar og eignalitlar fjölskyldur í sveitarfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Skipu­lags­stofnun lögð niður

Alþingi hefur samþykkt sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. HMS tekur við verkefnum Skipulagsstofnunar og mun nú heita Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun en heldur samt sem áður skammstöfuninni HMS.

Innlent
Fréttamynd

Lík­legra en áður að nýjar í­búðir seljist undir á­settu verði

Undirboð á fasteignamarkaði hafa aukist og hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu verði hefur farið vaxandi. Þá dregur úr verðþrýstingi á leigumarkaði þar sem leiguverð hefur í fyrsta sinn í nokkur ár hækkað minna en verðbólga. Húsnæðismarkaðurinn sýnir merki um áframhaldandi kólnun og fleiri íbúðir seljast nú undir auglýstu söluverði að því er nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Heimilis­leysi á Ís­landi

Opinn fundur um heimilisleysi á Íslandi fer fram í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar milli klukkan 9 og 10:40 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Byggjum fyrir fólk en ekki fjár­festa

Við þurfum að byggja meira ódýrt, óhagnaðardrifið og félagslegt húsnæði þar sem græn svæði, ljósvist og góðar tengingar við öflugar almenningssamgöngur ráða för.

Skoðun
Fréttamynd

Land­fylling í Skerja­firði: Óttast að borgin vaði af stað

Íbúar í Skerjafirði eru hræddir um að Reykjavíkurborg gangi á bak orða sinna og hefji landfyllingu á svæðinu án tilskilinna leyfa. Þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa stefnir allt í að síðasta náttúrulega fjara suðurhluta Reykjavíkur verði að landfyllingu.

Innlent
Fréttamynd

Telur að þre­falda þyrfti fjölda minni í­búða til að koma jafn­vægi á markaðinn

Miðað við lýðþróunina hér á landi þá er þörf á því að byggja yfir 53 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu sem eru minni en 80 fermetrar að stærð, þreföldun frá því sem nú er, þannig að hlutfall þeirra verði áþekkt því sem þekkist í höfuðborgum hinna Norðurlandanna og jafnvægi komist á markaðinn. Framkvæmdastjóri fasteignaþróunarfélagsins varar hins vegar við því að þróunin sé í öfuga átt og íbúðir í byggingu séu að stækka, ekki minnka.

Innherji
Fréttamynd

Byggja þarf 53 þúsund litlar í­búðir

Á höfuðborgarsvæðinu þarf að byggja 53.500 íbúðir sem eru 80 fermetrar og minni til að koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn. Miðað við húsnæði sem er í uppbyggingu og skipulagi verða byggðar alltof fáar íbúðir og til að bæta gráu ofan á svart þá mæta þær íbúðir sem eru byggðar ekki þeirri þörf sem er til staðar.

Umræðan
Fréttamynd

Eldri þjóð þýðir öðru­vísi hús­næði

Mikilvægt er að aðlaga húsnæðisuppbyggingu næstu ára að öldrun þjóðarinnar sem mun skila fleiri einstæðingum á húsnæðismarkað að mati hagfræðings HMS. Framkvæmdastjóri Arnarhvols segir skipulagsmál geta valdið því að uppbygging taki allt í allt 50 ár.

Innlent
Fréttamynd

Miklar launa­hækkanir stærra vanda­mál en verð­tryggingin

Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar. 

Viðskipti innlent