Krefjast þess að Rússar sendi hermenn Kim heim Utanríkisráðherra Suður-Kóreu kallaði sendiherra Rússlands þar í landi á teppið í morgun. Kim Hong Kyun krafðist þess við Georgy Zinoviev að hermenn frá Norður-Kóreu yrðu sendir frá Rússlandi. Erlent 21. október 2024 13:01
Vopnakaup eru landráð Vopnakaup Alþingis og þátttaka í stríði úti í heimi stangast á við Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, Varnarmálalög nr. 34/2008 og Almenn hegningarlög nr. 19/1940 og brýtur beinlínis gegn þeim. Ísland er nú orðið beinn þátttakandi í stríði og þar með hernaðarskotmark. Með þessum ráðstöfunum sínum hafa íslenskir ráðamenn framið landráð. Skoðun 20. október 2024 21:30
Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18. október 2024 15:31
Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur ákveðið að senda fjögur stórfylki, eða um tólf þúsund hermenn, til aðstoðar Rússa við innrás þeirra í Úkraínu. Kim sendi hóp sérveitarmanna tli Rússlands í ágúst þar sem þeir fengu fölsk skilríki og hljóta þjálfun, áður en þeir verða sendir til Úkraínu. Erlent 18. október 2024 09:51
Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. Erlent 16. október 2024 15:33
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16. október 2024 11:22
Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Rússneskur faðir sem var sakfelldur fyrir óhróður um herinn vegna myndar sem dóttir hans teiknaði er laus úr fangelsi eftir eins og hálfs árs vist. Skólastjóri stúlkunnar tilkynnti lögreglu um teikninguna á sínum tíma. Erlent 15. október 2024 15:49
Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir vera að stofna nýtt herfylki sem skipað verður allt að þrjú þúsund mönnum frá Norður-Kóreu. Kim Jon Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur heitið Vladimír Pútín, kollega sínum, fullum stuðningi vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 15. október 2024 14:14
Rúmar þrjár milljónir króna á hvert gæludýr úkraínskra flóttamanna Ráðstafanir til þess að úkraínskir flóttamenn gætu tekið gæludýr sín með sér til Íslands kostuðu hátt í 59 milljónir króna. Kostnaðurinn á hvert gæludýr nam rúmum þremur milljónum króna en koma þurfti á fót sérstakri einangrunarstöð fyrir dýrin. Innlent 15. október 2024 09:41
Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur engar skýringar á dauða Viktoriiu Roshchynu, úkraínskrar blaðakonu, í rússnesku fangelsi. Blaðakonan, sem var 27 ára gömul, hvarf í hernumdri Austur-Úkraínu í ágúst í fyrra. Erlent 13. október 2024 10:00
Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Úkraínumenn gerðu í kvöld árás á vöruskemmu í sunnanverðu Rússlandi sem þeir segja að hafi hýst fjögur hundruð Shahed-sjálfsprengidróna. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi renna stoðum undir frásögn úkraínska hersins. Erlent 9. október 2024 22:34
Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Leyniþjónustur Rússlands vinna að því að valda miklum usla á götum Evrópu. Útsendarar GRU, leyniþjónustu rússneska hersins, eru sértaklega kræfir og hafa staðið að sífellt fífldjarfari árásum og leyniaðgerðum. Erlent 8. október 2024 23:19
Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Hermenn frá Norður-Kóreu verða líklega sendir til liðs við rússneska hermenn í Úkraínu. Sex hermenn frá einræðisríkinu einangraða eru þar að auki sagðir hafa fallið í eldflaugaárás í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Erlent 8. október 2024 19:32
Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Flugmaður rússneskrar herþotu skaut á laugardaginn niður sjaldgæfan rússneskan dróna yfir Úkraínu. Svo virðist sem að Rússar hafi verið að nota drónann, sem er búinn tækni svo hann sést verr á ratsjám, til að varpa svifsprengjum á Úkraínu þegar þeir misstu stjórn á honum. Erlent 7. október 2024 21:33
Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma. Erlent 7. október 2024 14:16
Versnandi ástand í Pokrovsk Rússar gera ítrekaðar árásir á bæinn Pokrovsk í austurhluta Úkraínu og eru helstu innviðir bæjarins, þar sem um þrettán þúsund manns búa, ónýtir. Hersveitir Rússa eru um sjö kílómetra frá bænum, sem er mikilvæg birgðamiðstöð fyrir úkraínska herinn og óbreytta borgara í Dónetsk-héraði. Erlent 4. október 2024 15:12
Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, er í heimsókn í Kænugarði í Úkraínu. Þetta er fyrsta opinbera ferð Rutte frá því hann tók við embættinu á þriðjudaginn en hún var ekki opinberuð fyrr en hann var kominn þangað í morgun. Erlent 3. október 2024 12:13
Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Ráðamenn í Rússlandi vilja hækka fjárútlát til varnarmála um tæpan þriðjung á næsta ári, samanborið við þetta ár. Þetta kemur fram í fjárlagadrögum sem birt voru í gær. Um metupphæð er að ræða en verðbólga hefur hækkað hratt í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 1. október 2024 11:30
Ræðismaður segir mikinn baráttuanda í Úkraínumönnum Ræðismaður Íslands í Úkraínu segir að Úkraínumenn muni berjast gegn innrás Rússa þar til landið hljóti fullt frelsi á ný. Stuðningur Íslands við landið væri mjög mikilvægur. Innlent 30. september 2024 19:31
Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Utanríkisráðuneytið segir íslensk stjórnvöld ekki hafa neina leið til þess að greina hvernig rússnesk stjórnvöld kjósa að skilgreina siðferðisleg og andleg gildi þjóðar sinnar. Ísland er á lista ríkja sem Rússar telja að hafi viðhorf sem stangist á við gildi sín. Innlent 30. september 2024 13:45
Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, ítrekaði í dag að landið myndi alltaf verja sig fyrir árásum annarra ríkja eftir að einn nánasti ráðgjafi hans kom sér í klandur með því að segja að Ungverjar hefðu ekki tekið til varna ef Rússar hefðu ráðist inn í landið. Erlent 27. september 2024 22:24
Selenskí fundaði með Trump Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði í dag með Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og forsetaframbjóðanda. Trump hefur á undanförnum mánuðum ítrekað gagnrýnt stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu varðandi varnir þeirra gegn innrás Rússlands. Erlent 27. september 2024 15:51
Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti tillögum um að Úkraínumenn afsali sér landsvæði sínu til þess að kaupa sér frið við Rússa sem hættulegum og óásættanlegum í dag. Það væru ekki friðartillögur heldur uppgjafartillögur. Erlent 26. september 2024 22:27
Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag umfangsmikla hernaðaraðstoð til Úkraínu og sagði hann að stuðningurinn ætti að hjálpa Úkraínu að „vinna“ stríðið gegn Rússum. Hann mun seinna í dag fá Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í heimsókn til Hvíta hússins. Erlent 26. september 2024 13:18
Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði á fundi með öryggisráði sínu í gær að Rússar myndu íhuga að beita kjarnorkuvopnum ef þeim bærust áreiðanlegar upplýsingar um yfirvofandi loftárás með hefðbundnum vopnum. Erlent 26. september 2024 06:26
Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kom fram fyrir þingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag og sagði Rússland vera að skipuleggja frekari árásir gegn kjarnorkuverum Úkraínu og varaði viðstadda við „kjarnorku hörmung“. Erlent 25. september 2024 19:54
„Virkið“ Vuhledar að falli komið Hersveitir Rússa eru komnar langleiðina með að ná tökum á bænum Vuhledar í Dónetsk-héraði í Úkraínu. Rússar hafa lagt mikið púður í sóknina að bænum á undanförnum dögum og hafa verjendur hans þurft að hörfa undan þessum áhlaupum. Erlent 25. september 2024 15:05
Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Erindrekar frá Íran hafa komið að viðræðum milli yfirvalda í Rússlandi og Húta í Jemen, sem vilja fá háþróaðar eldflaugar frá Rússum til að sökkva skipum á Rauðahafi. Hútar hafa gert ítrekaðar árásir á skip á svæðinu og óttast er að umræddar eldflaugar gætu aukið getu þeirra til muna. Erlent 25. september 2024 10:15
Í orði en ekki á borði - stuðningur Íslands við Úkraínu Rússum hefur orðið ágengt undanfarið í ólöglegri styrjöld sinni gegn Úkraínu og horfur eru heldur neikvæðar. Stuðningur Vesturlanda er áfram gríðarmikilvægur. Pólitískur stuðningur Íslands hefur verið aðdáunarverður, en því miður hefur stuðningur Íslands í verki ekki verið jafn kröftugur, og ekki í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda. Skoðun 24. september 2024 11:01
„Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ „Ég tel okkur vera nærri friði en menn halda... Við erum nærri endalokum stríðsins,“ sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í samtali við Good Morning America. Erlent 24. september 2024 06:57