Fleiri fundist látin eftir jökulhlaupið í Dólómítafjöllum Björgunarlið í ítölsku Dólómítafjöllum hefur fundið lík þriggja til viðbótar eftir jökulhlaupið á fjallinu Marmolada síðastliðinn sunnudag. Tíu hafa því fundist látin og er tveggja enn saknað. Erlent 8. júlí 2022 08:00
„Það er pólitísk nálykt af þessu“ Skipulagsstofnun hefur samþykkt aðalskipulagsbreytingu sveitarfélagsins Dalabyggðar vegna tveggja vindorkuvera, annars vegar í landi Hróðnýjarstaða og hins vegar í Sólheimum. Innviðaráðherra hafði áður synjað sveitarfélögunum um staðfestingu á sambærilegum breytingum vegna þess að þær samræmdust ekki lögum um rammaáætlun en með breyttri skilgreiningu á svæðinu virðist það vandamál hafa verið leyst. Verkefnastjóri hjá Landvernd er afar ósáttur yfir málinu og segir pólitíska nálykt af því. Innlent 8. júlí 2022 07:01
Brettum upp ermar Skýr stefnumörkun og gagnsætt bókhald er grundvöllur þess að hægt sé að meta árangur af beitingu stjórntækja, líkt og grænum sköttum, ívilnunum og styrkjum sem notuð eru í þágu loftslagsmarkmiða. Umræða um loftslagstengda fjármálastefnu, fjárlagagerð og notkun tekna af tekjuskapandi loftslagsaðgerðum hefur aukist verulega á alþjóðlegum vettvangi. Skoðun 7. júlí 2022 10:30
Evrópusambandið skilgreinir kjarnorku og gas sem umhverfisvæna orkugjafa Evrópuþingið samþykkti í dag tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að kjarnorka og gas verði skilgreind sem umhverfisvænir, eða „grænir“, orkugjafar. Erlent 6. júlí 2022 13:00
„Við verðum að gera betur“ Loftslagsráð og Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna stjórnvöld fyrir óskýr markmið í loftslagsmálum á sama tíma og losun gróðurhúsalofttegunda eykst gríðarlega hratt eftir heimsfaraldur. Ráðherra tekur undir þetta og vill gera betur. Innlent 5. júlí 2022 20:01
Versti þurrkur sem sést hefur í sjötíu ár Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fimm héröðum á Ítalíu vegna mikilla þurrka. Héröðin eru öll við ána Pó en þar geysar nú versti þurrkur sem sést hefur í sjötíu ár. Erlent 5. júlí 2022 07:16
Um fimmtíu þúsund manns ráðlagt að yfirgefa heimili sín vegna flóða Um fimmtíu þúsund manns í Sydney í Ástralíu hefur verið ráðlagt að yfirgefa heimili sín vegna mikilla flóða sem hrjá borgina. Erlent 5. júlí 2022 07:05
Þjálfun flugmanna að hefjast á fyrstu rafmagnsflugvél Íslands Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands er komin með flughæfisskírteini og hefst þjálfun flugmanna á næstu dögum. Flugvélin var dregin út úr flugskýli á Reykjavíkurflugvelli síðdegis en stefnt er að því að æfinga- og reynsluflug verði frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Innlent 4. júlí 2022 22:42
Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum. Viðskipti innlent 2. júlí 2022 07:07
Tvö prósent af fjárfestingum ríkisins voru græn Um tvö prósent af heildarfjárfestingu íslenska ríkisins geta talist til grænna fjárfestinga samkvæmt þröngri skilgreiningu á hugtakinu. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, þingmanni Viðreisnar. Innherji 1. júlí 2022 11:31
Hæstiréttur bannar alríkinu að fyrirskipa aðgerðir í umhverfismálum Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Umverfisstofnun Bandaríkjanna sé óheimilt að skylda ríki landsins til að draga úr útblæstri. Úrskurðurinn er mikið áfall fyrir Joe Biden forseta, sem hefur lagt mikla áherslu á að Bandaríkjamenn dragi verulega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Erlent 1. júlí 2022 06:59
Gætu ráðstafað kolefnissköttum til tekjulágra til að draga úr ójöfnuði Íslensk stjórnvöld gætu stuðlað að réttlátum umskiptum í loftslagsmálum með því að ráðstafa skatttekjum af kolefnislosun til heimila og fyrirtækja í viðkvæmri stöðu, að mati Loftslagsráðs. Ólíkt öðrum Evrópuríkjum hefur Ísland enga stefnu um að láta tekjur renna til loftslagstengdra verkefna. Ráðið telur að auka þurfi gagnsæi og tengja loftslagsmál skýrar við áætlanagerð opinberra fjármála. Innlent 30. júní 2022 08:00
Ná þrjátíu megavöttum með betri nýtingu á varma Reykjanesvirkjunar Mestu virkjanaframkvæmdir landsins um þessar mundir standa yfir á Reykjanesi en þar er verið að stækka jarðgufuvirkjun HS Orku um þrjátíu megavött. Ekki þarf þó að borar nýjar holur á svæðinu til orkuöflunar heldur er ætlunin að nýta betur þann jarðvarma sem þegar er til staðar. Viðskipti innlent 29. júní 2022 22:22
Náðu saman um loftslagslög fyrir Evrópu Umhverfisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins náðu samkomulagi um frumvörp að loftslagslögum eftir viðræður sem stóðu fram á nótt. Sölubann við jarðefnaeldsneytisknúnum bifreiðum árið 2035 lifði nóttina af en ráðherrarnir samþykktu einnig milljarðasjóð til að hjálpa fátækari íbúum álfunnar að takast á við aukinn kostnað við losun kolefnis. Erlent 29. júní 2022 15:39
Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis. Innlent 28. júní 2022 22:44
„Ísland birtist óvænt sem stórveldi“ Afköst Íslendinga í kolefnisförgun eru í þann mund að margfaldast með tilkomu nýrrar verksmiðju á Hellisheiði. Landsvirkjun hefur þá ákveðið að hefja kolefnisförgun, en allt er þetta gert með aðferðum CarbFix. Innlent 28. júní 2022 11:55
Landsvirkjun hefur föngun koltvísýrings Landsvirkjun ætlar að fanga og dæla niður koldíoxíði frá Þeistareykjastöð og jafnframt draga úr losun koldíoxíðs frá Kröflustöð með stýringu á vinnslu þar. Það er hluti af ætlun fyrirtækisins að verða algjörlega kolefnishlutlaust árið 2025. Innlent 28. júní 2022 09:46
Versta hitabylgja í Japan í eina og hálfa öld Hitabylgja sem gengur nú yfir Japan er sú versta í júnímánuði í tæplega 150 ár. Mikið álag er á raforkukerfi landsins vegna hitans og vara yfirvöld við því að ekki sé útilokað að grípa þurfi til skammtana. Erlent 28. júní 2022 09:14
Mun tífalda föngun og förgun koltvísýrings á Hellisheiði Framkvæmdir við Mammoth, nýju lofthreinsiveri Climeworks á Hellisheiði, eru hafnar og er áætlað að verið muni tífalda núverandi afköst föngunar og förgunar á koltvísýringi úr andrúmsloft á svæðinu. Viðskipti innlent 28. júní 2022 07:59
Betra sé að bjarga hvölum en planta trjám Stórir hvalir taka til sín um það bil 33 tonn kolefnis hver yfir ævina á meðan hvert tré getur ekki tekið til sín meira en 48 pund af kolefni á ári. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Erlent 24. júní 2022 23:36
Forn borg fannst í Írak vegna mikilla þurrka Forn borg í Írak hefur litið dagsins ljós vegna mikilla þurrka en borgin er sögð vera 3.400 ára gömul. Borgin er talin vera bronsaldarborgin Zakhiku, borgin fór á kaf eftir að stjórnvöld í Írak byggðu Mosul stífluna á níunda áratugi tuttugustu aldar og hefur varla sést síðan. Erlent 22. júní 2022 18:34
Samþykktu að svipta stóriðju fríum losunarheimildum fyrir 2032 Evrópuþingið samþykkti stórtækar breytingar á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir í dag. Stóriðjufyrirtæki hætta að fá ókeypis losunarheimildir fyrir árið 2032 en í staðinn verður tekinn upp kolefnisskattur á innflutt stál, sement og fleiri vörur. Erlent 22. júní 2022 14:46
Hundruð þúsunda Kínverja flýja heimili sín vegna flóða Hundruð þúsunda hafa flúið heimili sín í nokkrum héruðum í Kína, í suður- og austurhluta landsins. Gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu sem hafa orsakað flóð og aurskriður. Erlent 22. júní 2022 07:05
Hundruð meta slegin í hitabylgjunni í Evrópu Hitabylgja sem gekk yfir hluta meginlands Evrópu um helgina gat af sér hundruð hitameta, ekki síst í Frakklandi þar sem hitinn var hve hæst yfir meðaltali. Í Baskalandi var sögulegt hitamet slegið rækilega. Erlent 21. júní 2022 13:56
Dregur brátt til tíðinda í stríði repúblikana gegn loftslagsaðgerðum Niðurstöðu er að vænta í máli fyrir Hæstirétti Bandaríkjanna sem gæti takmarkað verulega getu alríkisstjórnarinnar til skikka orkuver til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Málið er sagt fyrsta orrustan í stærra stríði repúblikana gegn hvers kyns loftslagsaðgerðum og reglum stjórnvalda. Erlent 21. júní 2022 07:01
Loftslagsráð gagnrýnir aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda Á 55. fundi Loftslagsráðs þann 9. júní síðastliðinn samþykkti ráðið álit tileinkað íslenskum stjórnvöldum í ljósi skýrslu IPCC. Loftslagsráð segir markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 óljós og sé þörf á frekari útskýringum á markmiðum. Innlent 20. júní 2022 18:41
Segir Íslendinga hlutfallslega heimsmeistara í steypunotkun Magnús Rannver Rafnsson, verkfræðingur, segir að losun af hálfu mannvirkjagerðar sé gróflega vametin og þar sé efnisnotkun stærsti þátturinn. Hann segir Íslendinga hlutfallslega heimsmeistara í steypunotkun og telur þjóðina einhverja mestu umhverfissóða í Evrópu þegar kemur að mannvirkjagerð. Innlent 19. júní 2022 22:20
Hraðasta hlýnun á jörðinni yfir Norður-Barentshafi Norður-Barentshaf og eyjarnar þess eru sá staður á jörðinni þar sem loftslag hlýnar hraðast svo vitað sé samkvæmt rannsóknum norrænna veðurfræðinga. Hlýnunin þar er allt að sjöfalt hraðari en annars staðar á jörðinni. Erlent 15. júní 2022 22:12
Fordæmalaus flóð í Yellowstone Fordæmalaus flóð í Yellowstone þjóðgarði hafa tætt í sig norðurhluta þjóðgarðsins og skolað burt brúm, vegum og húsum. Enginn hefur slasast eða látist í flóðunum en meira en 10.000 gestir hafa þurft að yfirgefa þjóðgarðinn. Erlent 15. júní 2022 11:10
Hætta á grænþvotti víða í fjárfestingarkeðjunni Húsleitin hjá þýska eignastýringarfyrirtækinu DWS kemur í kjölfar þess að eftirlitsaðilar hafa verið að beina sjónum sínum að hættunni á grænþvotti í fjármálageiranum. Áhugi fjárfesta á því að beina fjármagni sínu í farveg sem byggir á sjálfbærniþáttum hefur vaxið gríðarlega á síðustu misserum og er geirinn nú metinn á um 40 billjónir Bandaríkjadala. Umræðan 15. júní 2022 10:00