Rán og síðan líkamsárás við verslun í austurhluta borgarinnar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um rán við verslun í austurhluta borgarinnar. Gerendur voru sagðir nokkrir og fékkst góð lýsing á þeim en þeir voru sagðir hafa verið með hnífa á sér. Innlent 3. maí 2023 06:24
Flúði frá Ítalíu eftir manndrápstilraun og fór huldu höfði á Íslandi 43 ára Nígeríumaður sem flúði óafplánaðan fangelsisdóm á Ítalíu og fór huldu höfði á Íslandi hefur nú verið afhentur lögregluyfirvöldum í Róm. Fjölmargir ítalskir fjölmiðlar greina frá málinu. Innlent 2. maí 2023 15:56
Vilja ná tali af fjórum ungmennum vegna stórbrunans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum ungmennum í tengslum við rannsókn hennar á bruna í Drafnarslippnum í Hafnarfirði gærkvöldi. Innlent 2. maí 2023 14:56
Kviknaði í húsi sama eiganda í höfninni fyrir fjórum árum Slökkvistörfum við Hafnarfjarðarhöfn lauk klukkan þrjú í nótt, eftir að eldur kom upp í húsnæði sem til stóð að rífa. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök en tæknirannsókn lögreglu fer fram í dag. Annað húsnæði við höfnina í eigu sama aðila brann fyrir fjórum árum. Innlent 2. maí 2023 14:32
Útskrifaður af gjörgæslu eftir skipsbrunann í Njarðvíkurhöfn Skipverji sem slasaðist þegar Grímsnes GK-555 brann í Njarðvíkurhöfn fyrir viku er útskrifaður af sjúkrahúsi. Rannsókn lögreglu á brunanum mannskæða er sögð miða vel áfram en ekki er talið að upptök eldsins hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 2. maí 2023 13:47
Pantaði sér pizzu á spítalafötunum eftir hamarsárás Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan 17:30 í gær um stórfellda líkamsárás í póstnúmerinu 111, þar sem einstaklingur hafði verið sleginn ítrekað í höfuðið með hamri. Innlent 2. maí 2023 06:48
Slökkvistörfum lokið og tæknirannsókn fyrirhuguðu í dag Slökkvistörfum við Hafnarfjarðarhöfn lauk klukkan þrjú í nótt, eftir að eldur kom upp í húsnæði sem til stóð að rífa. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök en tæknirannsókn lögreglu fer fram í dag. Innlent 2. maí 2023 06:33
Minnist systur sinnar sem lést á Selfossi í síðustu viku Konan sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi fimmtudaginn 27. apríl hét Sofia Sarmite Kolesnikova og var á 29. aldursári. Eldri systir hennar segir Sofiu aldrei hafa neytt áfengis, reykt eða neitt því líkt. Hún treystir á að lögreglan komist til botns í því hvað gerðist. Innlent 2. maí 2023 00:46
Kominn í leitirnar Maðurinn sem lögreglan lýsti eftir í dag er kominn í leitirnar. Innlent 1. maí 2023 22:39
Engar ábendingar borist vegna Sölva Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að hinum nítján ára gamla Sölva Guðmundssyni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa enn engar ábendingar borist vegna Sölva en lýst var eftir honum fyrr í dag. Innlent 1. maí 2023 19:15
Nafn hinnar látnu ekki gefið upp Lögreglan á Suðurlandi hyggst ekki gefa upp nafn ungrar stúlku sem lést á Selfossi síðastliðinn fimmtudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 1. maí 2023 17:54
Lögreglan lýsir eftir Sölva Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sölva Guðmundssyni. Sölvi er nítján ára, tæpir 190 sentimetrar að stærð, grannvaxinn með dökkt, hrokkið hár og brún augu. Hann er klæddur í svartar jogging buxur, ljósa hettupeysu og svartan primaloft jakka með hettu. Hann er í hvítum slitnum Nike skóm. Innlent 1. maí 2023 14:13
Horfði á þátt í símanum á meðan hann keyrði Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöldi bifreið vegna gruns um að ökumaður hennar væri að keyra undir áhrifum áfengis. Þegar lögreglan stöðvaði bílinn komst hún að því að ökumaðurinn var allsgáður en var að horfa á þátt í símanum sínum á meðan hann keyrði. Innlent 1. maí 2023 09:14
Hélt vöku fyrir nágrönnum sínum Maður var í nótt handtekinn fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Tilkynning barst lögreglu frá nágrönnum hans um að maðurinn væri ölvaður og héldi vöku fyrir nágrönnum sínum með hávaða í sameign. Maðurinn dróg ekki úr hávaða þrátt fyrir ítrekuð fyrirmæli lögreglu og var hann því vistaður í fangageymslu lögreglu. Innlent 1. maí 2023 07:16
Reyndi að hindra störf sjúkraflutningamanna með því að halda í börur Einn var handtekinn í nótt eftir að hafa reynt að hindra lögreglu og sjúkraflutningamenn við störf í samkvæmi. Lögreglan hafði mætt á svæðið vegna meðvitundarlauss gests. Innlent 30. apríl 2023 07:21
Tugir bíla skemmdir í Eyjafirði: „Ég ætlaði að sækja bílinn um síðustu helgi“ Skemmdarvargar tjónuðu um það bil þrjátíu bíla, sem geymdir eru í gamalli námu í Eyjafirði, í gærkvöldi. Eigandi eins bílsins telur tjónið jafnvel geta hlaupið á milljónum króna. Innlent 29. apríl 2023 19:19
Fallist á gæsluvarðhald yfir mönnunum Héraðsdómur Suðurlands hefur fallist á kröfur Lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem voru handteknir í tengslum við rannsókn á andláti konu í heimahúsi á Selfossi. Verða mennirnir í gæsluvarðhaldi til 5. maí næstkomandi. Innlent 29. apríl 2023 11:46
Dyravörður réðst á gest á skemmtistað Klukkan tuttugu mínútur yfir eitt í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Dyravörður staðarins er grunaður um að hafa beitt gest ofbeldi. Ekki kemur fram hverjar aðgerðir lögreglu voru eða hvort slys voru á fólki. Innlent 29. apríl 2023 07:20
Lögregla verst alla frétta af mannsláti á Selfossi: Misvísandi sögusagnir í umferð Lögreglan á Suðurlandi verst allra frétta af mannsláti á Selfossi síðdegis í gær. Ung kona sá sig knúna til að setja færslu á samfélagsmiðla og upplýsa um að hún væri ekki sú látna, þar sem sögur þess efnis gengu um bæjarfélagið. Innlent 28. apríl 2023 23:07
Krefjast gæsluvarðhalds yfir mönnunum á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi hefur krafist þess að tveir karlmenn verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir andlát konu á Selfossi. Grunur er um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 28. apríl 2023 15:57
Ekki talið að eldurinn hafi brotist út með saknæmum hætti Ekki er talið að eldurinn um borð í skipinu Grímsnesi GK555 aðfaranótt 25. apríl hafi brotist út með saknæmum hætti. Innlent 28. apríl 2023 10:57
Á að draga ungmennin „Lúlla/Lúllu lúser“ sem fremja afbrot fyrir sér dómstól? Til að fylgja eftir greininni sem ég skrifaði „Lögreglunemar með Lúlla/Lúllu lúser í tilsjón“ langar mig að koma inn á þegar ungmenni er dæmd fyrir dómstólum landsins og hvað við eigum að hafa í huga þegar þau eru dæmd að mínu mati. Skoðun 28. apríl 2023 07:31
Athugull borgari kom upp um felustað óhlýðins ökumanns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvisvar kölluð út vegna líkamsárása í gær og einu sinni vegna hótana. Í tilkynningu lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir ekkert meira um líkamsárásirnar en einn var handtekinn í tengslum við hótanirnar. Innlent 28. apríl 2023 06:42
Konan sem lést á Selfossi var á þrítugsaldri Konan sem lést á Selfossi í gær við grunsamlegar kringumstæður var á þrítugsaldri. Hún lést í heimahúsi. Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir á vettvangi og var haldið af lögreglu í gær. Innlent 28. apríl 2023 06:31
Eftirför lögreglu endaði á göngustíg á Völlunum Lögreglan veitti ökumanni eftirför á Völlunum í Hafnarfirði um fimmleytið í dag. Að sögn sjónarvotta spændi ökumaður gegnum göngustíga og keyrði loks fram af bílaplani niður á göngustíg. Í kjölfarið flúðu ökumaður og farþegi á fæti áður en lögregluþjónar handsömuðu þá. Innlent 27. apríl 2023 23:31
Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi Tveir voru handteknir á Selfossi í dag vegna andláts sem varð í bænum. Að sögn lögreglu eru málsatvik enn óljós og er frumrannsókn í gangi. Innlent 27. apríl 2023 19:04
Piltarnir áfram í haldi næstu fjórar vikurnar Átján ára piltur sem er í haldi lögreglu vegna manndráps í Hafnarfirði var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 24. maí. Innlent 27. apríl 2023 16:05
Skemmdir unnar á ljósleiðara við Þykkvabæ Lögreglan á Suðurlandi fékk í gær tilkynningu um að skemmdir hefðu verið unnar á ljósleiðarastreng í grennd við Þykkvabæ. Innlent 27. apríl 2023 14:42
Krefjast gæsluvarðhalds yfir þremur vegna manndrápsins Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarhald yfir þremur ungum mönnum sem grunaðir eru um að eiga þátt í dauða manns sem stunginn var til bana á bílastæði í Hafnarfirði í síðustu viku. Mennirnir verða leiddir fyrir dómara í hádeginu og fram eftir degi. Innlent 27. apríl 2023 11:21
Hnífaþjófnaður, háreysti og líkamsárásir meðal verkefna lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð út vegna einstaklings sem var staðinn að því að stela hnífum úr ónefndri verslun og fela þá innan klæða. Innlent 27. apríl 2023 06:47