PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 sigur á Englandsmeisturum Liverpool á Anfield í kvöld. Fótbolti 14. apríl 2026 20:59
Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Sænski framherjinn Alexander Isak fær stórt tækifæri í Meistaradeildinni í kvöld. Isak er nýkominn til baka eftir meiðsli en er klár í þennan risastóra leik þar sem Liverpool þarf að vinna upp tveggja marka forskot Paris Saint-Germain. Fótbolti 14. apríl 2026 18:11
„Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Þrátt fyrir að Liverpool sé 2-0 undir fyrir seinni leikinn gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain hefur knattspyrnustjóri liðsins, Arne Slot, trú á því að hans menn geti snúið dæminu sér í vil. Hann segir að Liverpool verði að taka áhættu í leiknum í kvöld. Fótbolti 14. apríl 2026 12:30
Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Hansi Flick, þjálfari Barcelona, telur Atlético Madrid reyna að beita brellibrögðum til að hægja á leik Börsunga þegar liðin mætast í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti 14. apríl 2026 08:32
„Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að Liverpool þurfi að gera „eitthvað mjög sérstakt“ til að halda vonum sínum í Meistaradeildinni á lífi gegn Paris Saint-Germain. Enski boltinn 14. apríl 2026 07:31
Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Ungverski knattspyrnumaðurinn Dominik Szoboszlai hefur fengið harða útreið á samfélagsmiðlum eftir að hafa yppt öxlum frammi fyrir stuðningsmönnum Liverpool. Hann segir það hafa verið misskilning. Enski boltinn 13. apríl 2026 19:32
Vill fá frí milli leikja eins og frönsku liðin Ibrahima Konaté, varnarmaður Liverpool, vildi óska þess að þurfa ekki að spila milli Meistaradeildarleikja og væri til í að fá frí eins og PSG fær í frönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 9. apríl 2026 22:33
Álvarez reyndi að herma eftir Messi Julián Álvarez skoraði frábært aukaspyrnumark fyrir Atlético Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöldi en eftir leikinn talaði hann um að hafa þar reynt að leika eftir tilþrif argentínska liðsfélaga síns, Lionel Messi. Fótbolti 9. apríl 2026 17:46
Luis Díaz: Ég tók rétta ákvörðun með því að fara frá Liverpool Kólumbíumaðurinn Luis Díaz telur sig hafa tekið rétta ákvörðun með því að ganga til liðs við þýska félagið Bayern München frá Liverpool síðasta sumar. Fótbolti 9. apríl 2026 13:01
„Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Liverpool slapp kannski með 2-0 tap frá París í gær en er í erfiðum málum fyrir seinni leikinn á móti Paris Saint-Germain í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Meistaradeildarmessan velti fyrir sér stöðunni hjá Liverpool. Enski boltinn 9. apríl 2026 09:02
Sjáðu Atletico enda tuttugu ára bölvun í Barcelona og PSG leika sér að Liverpool Atletico Madrid og Paris Saint Germain eru í góðum málum eftir fyrri leiki sína í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir flotta sigra í gærkvöldi. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Fótbolti 9. apríl 2026 07:47
„Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, viðurkenndi að lið hans hefði verið „tætt í sundur“ af Evrópumeisturunum í 2-0 tapi fyrir Paris Saint Germain í gærkvöldi í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 9. apríl 2026 05:13
Tveggja marka sigur PSG hefði hæglega getað orðið stærri PSG er með 2-0 forystu í einvíginu gegn Liverpool í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Desiré Doué og Kvicha Kvaratskhelia skoruðu mörkin en þau hefðu hæglega getað verið fleiri. Fótbolti 8. apríl 2026 18:30
Aukaspyrnur í algleymingi í sigri Atlético Atlético Madrid sótti 0-2 sigur gegn tíu leikmönnum Barcelona í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Julian Alvarez skoraði beint úr aukaspyrnu og Alexander Sorloth tvöfaldaði forystuna í seinni hálfleik. Fótbolti 8. apríl 2026 18:30
PSG segist ekki vera sigurstranglegra liðið á móti Liverpool Evrópumeistarar Paris Saint-Germain kepptust við að létta pressunni af liði sínu á blaðamannafundi fyrir fyrri leik sinn á móti Liverpool í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fer fram í kvöld. Fótbolti 8. apríl 2026 14:00
Wirtz segir Van Dijk hafa haft rangt fyrir sér Florian Wirtz hefur hafnað fullyrðingum fyrirliða síns hjá Liverpool, Virgil van Dijk, um að leikmenn Liverpool hafi gefist upp í 4-0 tapi í ensku bikarkeppninni gegn Manchester City á laugardaginn. Fótbolti 8. apríl 2026 11:33
Sjáðu Harry Kane skora eftir tuttugu sekúndur á móti Real Tveir leikir fóru fram í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr þessum tveimur leikjum hér inni á Vísi. Fótbolti 8. apríl 2026 08:32
Isak í hópnum í París Alexander Isak verður í leikmannahópi Liverpool sem ferðaðist til Parísar í dag fyrir leik við Paris Saint-Germain í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Enski boltinn 7. apríl 2026 23:18
Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Sigur Arsenal á Sporting Lissabon í kvöld tryggði það að fimm efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Enski boltinn 7. apríl 2026 21:37
Havertz hetjan í steindauðri skák Þjóðverjinn Kai Havertz skoraði eina mark leiksins úr eina færi leiksins er Arsenal vann 1-0 sigur á Sporting í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Fótbolti 7. apríl 2026 21:00
Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Bayern Munchen vann 2-1 sigur á Real Madrid í stórskemmtilegum fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Santiago Bernabéu í Madríd í kvöld. Fótbolti 7. apríl 2026 20:55
Ein af hetjunum úr sögu félagsins gæti endað drauminn Augu margra verða á sænska framherjanum Viktor Gyokeres í kvöld þegar Arsenal heimsækir Sporting til Portugal í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 7. apríl 2026 13:33
Vinícius Júnior segir mikilvægt að Yamal láti í sér heyra Vinícius Júnior framherji Real Madrid hrósaði stjörnuleikmanni Barcelona, Lamine Yamal, fyrir að fordæma opinberlega níðsöngva gegn múslimum í nýlegum leik og sagði að leikmenn þyrftu að standa saman í baráttunni gegn mismunun. Fótbolti 7. apríl 2026 12:30
PSG fær að hvíla sig fyrir Liverpool-leikinn Franska liðið Paris Saint Germain er þegar komið með forskot á Liverpool fyrir leiki liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 26. mars 2026 17:01
Á í vandræðum með að fara á klósettið eftir meiðslin gegn Liverpool Meiðslin sem Noa Lang, leikmaður Galatasaray, varð fyrir í leiknum gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu hafa haft ýmis óþægindi í för með sér fyrir hann. Litlu munaði að Lang missti fingur í slysinu á Anfield. Fótbolti 25. mars 2026 13:03
PSG vill auðvelda sér lífið fyrir Liverpool-leikinn Frönsku Evrópumeistararnir í Paris Saint-Germain hafa óskað eftir því að fresta leik sínum í frönsku deildinni til að létta álaginu á liðinu í kringum leikina mikilvægu á móti Liverpool í Meistaradeildinni. Enski boltinn 24. mars 2026 18:17
Úr fernu yfir í einn bikar: „Hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal“ Sparkspekingurinn Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal, segir að sitt gamla lið muni aðeins vinna einn bikar á tímabilinu, ensku úrvalsdeildina, eftir að Manchester City valtaði yfir Arsenal á dögunum í úrslitaleik enska deildarbikarsins. Enski boltinn 24. mars 2026 17:33
Viktor Bjarki á lista með þeim bestu Viktor Bjarki Daðason, framherji FC Kaupmannahafnar er á lista Goal yfir bestu ungu karlkyns leikmennina í heimi fótboltans um þessar mundir. Fótbolti 24. mars 2026 14:00
Hafði ekki fundið guð á Hlíðarenda en las svo Biblíuna Danski landsliðsframerhjinn, Kasper Högh, fyrrverandi leikmaður Vals og nú einn heitasti framherji Evrópu fann Guð eftir mikla erfiðleika á sínum ferli. Hann vonast nú til þess að hjálpa Dönum að tryggja HM sæti. Fótbolti 24. mars 2026 13:02
Býst við því að Salah jafni sig fljótt Mohamed Salah mun ekki spila með Liverpool gegn Brighton um helgina en þjálfarinn Arne Slot býst ekki við því að hann verði jafn lengi frá og aðrir leikmenn sem lenda í vöðvameiðslum. Enski boltinn 20. mars 2026 12:32