Ferguson slefaði yfir leik Barcelona og Real Madrid Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var kátur en að sama skapi auðmjúkur eftir glæstan sigur hans manna gegn Arsenal í kvöld. Fótbolti 5. maí 2009 21:20
Ronaldo: Kominn í mitt besta form Portúgalinn Cristiano Ronaldo fór á kostum í liði Man. Utd á Emirates í kvöld. Skoraði tvö mörk, annað þeirra úr aukaspyrnu á 40 metra færi. Fótbolti 5. maí 2009 21:13
Fletcher hefði líklega verið í liðinu í úrslitaleiknum Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var afar ósáttur við rauða spjaldið sem Darren Fletcher fékk í kvöld. Sést greinilega á sjónvarpsmyndum að Fletcher nær boltanum áður en hann kemur við Fabregas. Fótbolti 5. maí 2009 20:50
Man. Utd í úrslit annað árið í röð Evrópumeistarar Man. Utd munu verja titil sinn í Róm þann 27. maí næstkomandi. Það varð ljóst í kvöld er liðið pakkaði Arsenal saman, 1-3, á Emirates-vellinum í London. Fótbolti 5. maí 2009 18:22
Verðum að klóna miðjumenn Barcelona Luis Enrique, fyrrum leikmaður og núverandi þjálfari hjá Barcelona, líkir spilamennsku liðsins í 6-2 sigrinum á Real Madrid um helgina við knattspyrnulega fullnægingu. Fótbolti 5. maí 2009 16:50
Ferguson: Erum einni spyrnu frá Róm Sir Alex Ferguson segir lítið vanta upp á hjá sínum mönnum í Manchester United svo þeir geti farið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað árið í röð. Fótbolti 5. maí 2009 15:08
Ferguson: Ég ber virðingu fyrir Arsene Wenger Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United og kollegi hans Arsene Wenger hjá Arsenal voru litlir vinir á tíunda áratugnum en hafa nú lært að bera virðingu hvor fyrir öðrum. Fótbolti 5. maí 2009 10:45
Wenger er bjartsýnn Arsene Wenger hefur tröllatrú á sínum mönnum í Arsenal fyrir síðari leikinn gegn Manchester United í meistaradeildinni annað kvöld. Fótbolti 4. maí 2009 16:02
Fréttir af meiðslum Henry bornar til baka Svo gæti farið að Thierry Henry verði í liði Barcelona í síðari leiknum gegn Chelsea í meistaradeildinni eftir allt saman. Fótbolti 4. maí 2009 14:57
Van Persie og Silvestre æfðu með Arsenal Framherjinn Robin van Persie og varnarmaðurinn Mikael Silvestre æfðu báðir með Arsenal í dag og verða því væntanlega klárir í síðari leikinn gegn Manchester United í meistaradeildinni annað kvöld. Fótbolti 4. maí 2009 12:31
Henry missir af leiknum gegn Chelsea Thierry Henry verður ekki með Barcelona í leiknum gegn Chelsea í Lundúnum nú á miðvikudaginn en hann verður frá næstu tvær vikurnar vegna meiðsla. Fótbolti 4. maí 2009 12:30
Ferdinand gat æft Rio Ferdinand æfði í dag með liði Manchester United og eru það góða fréttir fyrir liðið en United mætir Arsenal í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á morgun. Fótbolti 4. maí 2009 11:23
Evra: Áttum að vinna 4-0 Franski bakvörðurinn Patrice Evra hjá Manchester United segir að liðið hefði átt að gera betur í leiknum við Arsenal í gær svo það væri í betri stöðu fyrir síðari leikinn í Lundúnum. Fótbolti 30. apríl 2009 15:30
Ferguson segir Arsenal-vörninni að passa sig Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var nokkuð sáttur með 1-0 sigur sinna manna á Arsenal í fyrri leik undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni. Fótbolti 30. apríl 2009 11:00
Wenger sáttur við niðurstöðuna Arsene Wenger segir að sínir menn í Arsenal eigi enn góða möguleika á að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þrátt fyrir 1-0 tap fyrir Manchester United í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2009 23:04
Ferdinand fluttur á sjúkrahús Rio Ferdiandn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir að hann fór meiddur af vell í leik Manchester United og Arsenal í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2009 22:36
O'Shea: Getum skorað á útivelli John O'Shea var vitanlega ánægður með 1-0 sigur sinna manna í Manchester United gegn Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en varaði þó við of mikilli bjartsýni. Fótbolti 29. apríl 2009 21:23
United vann með minnsta mun Manchester United vann 1-0 sigur á Arsenal í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Old Trafford í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2009 18:47
Sir Alex Ferguson: Við megum ekki fá á okkur mark Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, leggur mikla áherslu á það að liðið hans fá ekki á sig mark á móti Arsenal í fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer á Old Trafford í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2009 10:30
Guardiola brjálaður út í dómarann í Chelsea-leiknum Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, var allt annað en sáttur með þýska dómarann Wolfgang Stark í fyrri undanúrslitaleik Barcelona og Chelsea í Meistaradeildinni í gær en leiknum endaði með markalausu jafntefli. Fótbolti 29. apríl 2009 10:00
Tímabilið búið hjá Marquez Rafael Marquez leikur ekki meira með Barcelona á leiktíðinni en hann meiddist í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gær. Fótbolti 29. apríl 2009 08:30
Barcelona ekki unnið Chelsea í síðustu fjögur skipti Barcelona tókst ekki að vinna sigur á Chelsea í leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Það er fjórði leikur liðanna í röð þar sem Barcelona mistekst að innbyrða sigur. Fótbolti 29. apríl 2009 07:00
Þór/KA og Stjarnan í úrslitin Þór/KA og Stjarnan tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Lengjubikars kvenna eftir sigur í sínum leikjum í undanúrslitum keppninnar. Fótbolti 28. apríl 2009 23:26
Hiddink: Vorum hugrakkir Guus Hiddink var afar ánægður með frammistöðu sinna manna í Chelsea sem náðu markalausu jafntefli í Barcelona í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meisataradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 28. apríl 2009 22:33
Terry: Heimavinnan skilaði sér John Terry, fyrirlði Chelsea, sagði eftir leik sinna manna gegn Barcelona að heimavinnan hefði skilað sér en liðin skildu jöfn í Barcelona, 0-0. Fótbolti 28. apríl 2009 21:19
Markalaust í Barcelona Barcelona og Chelsea gerðu markalaust jafntefli í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Nou Camp í kvöld. Fótbolti 28. apríl 2009 18:26
Ferguson: 1-0 er nóg Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að hann yrði hæstánægður ef hans menn næðu að leggja Arsenal að velli 1-0 á Old Trafford í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Fótbolti 28. apríl 2009 16:22
Hiddink: Bosingwa getur stoppað Lionel Messi Guus Hiddink, stjóri Chelsea, hefur ekki áhyggjur af því hvernig hans mönnum gangi að eiga við Argentínumanninn Lionel Messi sem hefur spilað frábærlega með Barcelona á tímabilinu. Barcelona og Chelsea mætast í kvöld í fyrri leik sínum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 28. apríl 2009 10:30
Carvalho og Deco ekki með gegn Barcelona Chelsea verður án þeirra Ricardo Carvalho og Deco þegar liðið sækir Barcelona heim í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Þá tekur Ashley Cole út leikbann. Fótbolti 27. apríl 2009 14:45
Hiddink er búinn að slá Barcelona út í huganum Guus Hiddink knattspyrnustjóri Chelsea, segist þegar vera búinn að spila báða leikina við Barcelona í Meistaradeildinni í huga sér. Fótbolti 27. apríl 2009 12:42