Sjáðu þrennu þess vanmetna, Bodö-gleði, horn í síðu Arsenal og markaveislu í París Sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eru hálfnuð eftir að fjórir leikir fóru fram í gær. Real Madrid, Paris Saint Germain og Bodö/Glimt eru í góðum málum eftir fyrri leikinn en Arsenal náði ekki að fagna sigri í fyrsta sinn í keppninni á þessu tímabili. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Fótbolti 12. mars 2026 08:15
Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Chelsea tapaði með þriggja marka mun í fyrri leik sínum á móti Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi og pirringurinn fór vel yfir mörkin þegar Chelsea-maðurinn Pedro Neto hrinti boltastrák. Enski boltinn 12. mars 2026 08:02
„Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Federico Valverde var maður gærkvöldsins í Meistaradeildinni eftir stórbrotna frammistöðu í 3-0 sigri Real Madrid á Manchester City. Fótbolti 12. mars 2026 07:32
Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Hjörvar Hafliðason, helsti knattspyrnusérfræðingur þjóðarinnar segir það vel líklegt að Tottenham fallir úr ensku úrvalsdeildinni. Of mörgum leikmönnum liðsins standi á sama. Hjörvar er með stjóra í huga sem gæti bjargað liðinu frá falli. Enski boltinn 11. mars 2026 23:02
Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Það er allt útlit fyrir að Bodö/Glimt frá Noregi verði með í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, gegn Arsenal eða Leverkusen, eftir frábæran 3-0 sigur norska liðsins á Sporting Lissabon í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 22:10
Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Chelsea tókst tvívegis að jafna gegn PSG en varð að sætta sig við 5-2 tap í París í kvöld, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 11. mars 2026 21:50
Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Federico Valverde fór langt með að koma Real Madrid áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld, með þrennu í fyrri hálfleik gegn Manchester City. Fótbolti 11. mars 2026 21:50
Sjáðu ótrúlega þrennu Valverde í fyrri hálfleik Úrúgvæska fótboltaséníið Federico Valverde þurfti bara rétt rúmar tuttugu mínútur til að skora stórkostlega þrennu gegn Manchester City, í fyrri hálfleik á Santiago Bernabeu í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 21:01
Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Það er allt jafnt í einvígi Leverkusen og Arsenal, 1-1, eftir fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Þýskalandi í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 17:16
Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ Fjöldi markvarða, þar á meðal Peter Schmeichel og Joe Hart, hafa lýst yfir stuðningi við Antonín Kinsky, markvörð Tottenham Hotspur, eftir skelfilega frammistöðu hans í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atlético Madrid. Enski boltinn 11. mars 2026 13:03
„Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Mohamed Salah var tekinn af velli eftir klukkutíma leik þegar Liverpool tapaði 1-0 á móti Galatasaray í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 11. mars 2026 12:32
Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Hjörvar Hafliðason, helsti sparkspekingur þjóðarinnar, er ósammála stórum prófílum í knattspyrnuheiminum sem hafa gagnrýnt Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham harðlega fyrir það hvernig hann tók á aðstæðum í gær þegar að markmaður Tottenham hafði gerst ítrekað sekur um slæm mistök. Hjörvar telur Tudor hins vegar ekki stætt lengur í starfi. Fótbolti 11. mars 2026 11:58
Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fjórir fyrstu leikirnir í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar fóru fram í gær en nú má sjá mörkin úr þeim hér inni á Vísi. Fótbolti 11. mars 2026 08:53
„Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Antonin Kinsky, 22 ára markvörður Tottenham, upplifði algjöra martröð í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hann var tekinn af velli á sautjándu mínútu eftir að hafa gefið tvö mörk og fengið á sig þrjú. Kinsky og skiptingin voru til umræðu í Meistaradeildarmörkunum eftir leikinn. Fótbolti 11. mars 2026 08:02
Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir? Tottenham er í afar erfiðri stöðu eftir stórt tap gegn Atletico Madrid á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dagar Igor Tudor í starfi knattspyrnustjóra liðsins gætu verið taldir. Lokatölur í kvöld 5-2 sigur Atletico Madrid. Fótbolti 10. mars 2026 21:59
Bæjarar gengu frá Atalanta Bayern Munchen gjörsamlega valtaði yfir ítalska liðið Atalanta á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ítalska liðið þarf kraftaverk og meira til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum í seinni leik liðanna eftir viku. Lokatölur 6-1 sigur Bayern Munchen. Fótbolti 10. mars 2026 21:57
Flautumark kramdi drauma norðursins um sigur gegn Börsungum Flautumark frá Lamine Yamal í uppbótartíma tryggði Barcelona dramatískt jafntefli gegn Newcastle United á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur á St. James' Park, 1-1. Fótbolti 10. mars 2026 21:55
Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Tottenham er í martraðarlandi gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem nú stendur yfir. Rikki G, sem lýsir leik liðanna á Sýn Sport 2, gagnrýndi meðferð Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham, á einum leikmanni liðsins harðlega í beinni útsendingu. Fótbolti 10. mars 2026 21:12
Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Það er mikill fjöldi stórleikja á dagskránni hjá Manchester City á næstu sex vikum og hún hefst á rimmunni við Real Madrid á Spáni annað kvöld. Enski boltinn 10. mars 2026 20:31
Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi Liverpool mátti sætta sig við eins marks tap í fyrri leik sínum gegn Galatasaray í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 1-0 sigur Galatasaray. Fótbolti 10. mars 2026 19:39
Sögulegt kvöld í vændum hjá Salah? Með því að byrja leik Liverpool gegn Galatasaray í Meistaradeild Evrópu nú fyrir skemmstu varð Mohamed Salah leikjahæsti leikmaður Liverpool í sögu aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu með áttatíu og einn spilaðan leik í keppninni fyrir félagið. Salah gæti bætt við öðrum merkum áfanga í kvöld. Fótbolti 10. mars 2026 17:45
Tudor segir að fallslagurinn sé mikilvægari en Meistaradeildin Igor Tudor, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að aðalmarkmið liðsins á þessari stundu sé að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Árangur í Meistaradeild Evrópu mæti afgangi. Enski boltinn 10. mars 2026 12:30
Alisson ekki með gegn Galatasaray en meiðslin ekki alvarleg Liverpool verður án brasilíska markvarðarins Alissons í fyrri leiknum gegn Galatasaray í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 10. mars 2026 10:30
Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Vél Icelandair flutti leikmenn karlaliðs Liverpool í fótbolta til Istanbúl í dag. Liðið mætir Galatasaray í Tyrklandi í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Fótbolti 9. mars 2026 18:01
Endurheimta Haaland fyrir Real-rimmuna Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, býst við því að geta nýtt krafta Erlings Haaland í fyrri leiknum gegn Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn. Fótbolti 9. mars 2026 15:31
Meinað að selja miða á mikilvægan útileik gegn Liverpool Tyrkneska félagið Galatasaray má ekki selja stuðningsmönnum sínum miða á útileikinn gegn Liverpool á Anfield í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 4. mars 2026 15:31
Stórlið mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu Dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu við hátíðlega athöfn í Sviss í dag. Manchester City mætir Real Madrid í stórleik umferðarinnar og Chelsea mætir Evrópumeisturum PSG. Arsenal og Liverpool gætu hugsað sér gott til glóðarinnar. Fótbolti 27. febrúar 2026 11:23
Segir að bannið hans Prestianni sé „sigur“ fyrir alla Aurélien Tchouaméni, miðjumaður Real Madrid, telur að það hafi verið „sigur fyrir okkur öll“ að Gianluca Prestianni hjá Benfica hafi ekki spilað í Meistaradeildarleiknum á miðvikudaginn þegar Real Madrid mætti Benfica á Bernabéu-leikvanginum. Fótbolti 26. febrúar 2026 20:02
Vel merktur á hausnum eftir að hafa fiskað vítið sem kom Atalanta áfram Nikola Krstovic, leikmaður Atalanta, fórnaði sér heldur betur fyrir liðið sitt á miðvikudagskvöldið í mikilvægum leik á móti Borussia Dortmund í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 26. febrúar 2026 17:46
Tókust á í stúdíóinu: „Hvernig á hann að geta annað en rekið hann útaf?“ Menn voru algjörlega ósammála í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport í gærkvöld, um hvort að rétt hefði verið að reka Lloyd Kelly af velli í leik Juventus og Galatasaray. Fótbolti 26. febrúar 2026 15:18
Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Íslenski boltinn