Hvar eru mannvinirnir? Á síðustu rúmum tveimur vikum hefur ríkt uppreisnarástand í Íran. Almenningur hefur fengið nóg af klerkastjórninni, sem hefur undir heraga og ofbeldi þvingað landsmenn í áratugi og keyrt efnahagskerfi landsins í þrot. Skoðun 19. janúar 2026 07:45
Um peninga annarra Það er gjarnan gripið til líkingar um heimilisbókhald þegar talað er um fjármál sveitarfélaga; útgjöld þurfi að vera í einhverju samræmi við innkomuna. En það breytir því ekki að það er eðlismunur á venjulegu heimilisbókhaldi og bókhaldi miðstýrðs valds á borð við Reykjavíkurborg. Skoðun 18. janúar 2026 07:30
Öxlum ábyrgð og segjum satt Ég hef í prófkjörsbaráttunni gert takmarkað traust borgarbúa til borgarstjórnar að umræðuefni og það er ein ástæða þess að ég gef kost á mér í oddvitasæti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Ég tel einfaldlega að hægt sé að gera mun betur og að borgarbúar verðskuldi að geta treyst borgarfulltrúum sínum. Skoðun 17. janúar 2026 10:31
764 – landamæralaus tala skelfilegs ofbeldis Númer póstfangs í Texas er nú orðið samnefnari viðurstyggilegrar starfsemi sem meðal annars gengur út á að festa börn og ungmenni í net glæpamanna í gegnum samfélagsmiðla og kúga þau til að gera hræðilega hluti, til dæmis að fremja ofbeldiglæpi, skaða sig sjálf, sína nánustu og/eða gæludýr. Skoðun 16. janúar 2026 07:32
Ekki eina ríkisleið í skólamálum, takk! Kastljósið beinist þessa dagana að skólamálum í kjölfar yfirlýsinga nýs ráðherra í barna-og menntamálaráðuneytinu um endurskoðun og uppstokkun á skólakerfinu. Það er fagnaðarefni að ráðherrann tali umbúðalaust um þau vandamál sem við blasa og að taka eigi á málunum. Skoðun 15. janúar 2026 17:30
Lýðheilsa og lífsgæði í Reykjavík Borgir sem leggja áherslu á lýðheilsu verða sjálfbærari, öflugri og betri til búsetu fyrir alla aldurshópa. Mitt hjartans mál er að Reykjavík sé borg sem gefur öllum tækifæri til heilbrigðs, öruggs og innihaldsríks lífs – þar sem heilsan, vellíðanin og jöfnuðurinn eru hjartað í samfélaginu. Skoðun 15. janúar 2026 13:47
Sundabraut á forsendum Reykvíkinga Sundabraut er eitt allra stærsta samgönguverkefni sem Reykjavík hefur staðið frammi fyrir í áratugi. Hún vekur sterk viðbrögð, sumir sjá í henni lausn á umferðavanda en aðrir óttast áhrif hennar á borgina og lífsgæði íbúa. Skoðun 15. janúar 2026 09:45
Börnin geta ekki beðið lengur. Hættum að ræða og byrjum að framkvæma Við vitum hvað þarf að gera. Hugmyndirnar liggja fyrir, tillögurnar eru til, fagþekkingin er til staðar. Það sem vantar er pólitískur vilji til að klára málin. Skoðun 15. janúar 2026 09:16
Afnám jafnlaunavottunar Í dag mæli ég fyrir frumvarpi sem gerir ráð fyrir því að jafnlaunavottun verði lögð niður í núverandi mynd án þess þó að hvikað verði frá markmiðum um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns. Það kerfi sem kemur í staðinn verður reglubundin skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Skoðun 15. janúar 2026 08:00
Nýtum kennsluaðferðir sem skila betri árangri Mikil umræða er um menntamál í samfélaginu ekki síst um kosti og galla hugmyndafræðinnar skóli án aðgreiningar, hvort námsmat er birt í bókstöfum eða tölustöfum, samræmd próf og árangur á PISA prófum sem sýna samanburð á milli skólakerfa víða um heim. Mun sjaldnar er rætt um það starf sem fram fer í skólunum, kennsluhætti og áhrif mismunandi aðferða. Skoðun 15. janúar 2026 07:00
Ég reyndi að byggja ódýrar íbúðir í Reykjavík Reykjavík er frábær borg. En margt má gera betur. Skoðun 14. janúar 2026 13:47
900 metrar sem geta breytt Grafarvogi Í gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur til 2040 er gert ráð fyrir að Hallsvegur verði framlengdur frá Grafarvogi að Vesturlandsvegi og skilgreindur sem tveggja akreina gata milli Vesturlandsvegar og Sundabrautar. Skoðun 14. janúar 2026 09:33
Er skóli án aðgreiningar barn síns tíma? Undanfarna áratugi hefur verið unnið eftir hugmyndafræði „skóla án aðgreiningar“ í íslenska menntakerfinu. Hugmyndafræðin var og er falleg og þeir sem stóðu að innleiðingu skóla án aðgreiningar vildu sannarlega vel. Fyrirkomulagið hefur engu að síður ekki gengið nægjanlega vel upp. Skoðun 14. janúar 2026 08:01
32 dagar Í tveimur leikskólum borgarinnar hefur verið gripið til svokallaðra fáliðunaraðgerða til að mæta viðvarandi manneklu. Foreldrar á leikskólanum Funaborg þurfa að taka einn og hálfan frídag frá vinnu í hverri viku vegna fáliðunar. Skoðun 13. janúar 2026 09:33
Reykjavík stígi alla leið Reykjavíkurborg er eigandi mikilvægra innviðafyrirtækja á Íslandi, fyrirtækja sem reka grunninnviði samfélagsins eins og orku, samgöngur, sorphirðu, hafnir og fjarskipti. Þetta eru fyrirtæki sem eiga ekki að vera leikvangur pólitískra sviptinga heldur faglegar, stöðugar einingar sem vinna að langtíma hagsmunum borgarbúa. Skoðun 13. janúar 2026 08:30
Gæði í uppbyggingu frekar en bara hraða og magn Þegar ég talaði um mikilvægi þess að passa upp á gæðin í uppbyggingu í kosningabaráttunni 2022 var nánast hlegið að mér. Mantran um hraða og magn tröllreið umræðunni um húsnæðismál sem eina raunhæfa viðfangsefnið og fólk kepptist við að ræða aðferðafræðina. Skoðun 13. janúar 2026 08:01
Auglýst eftir heimili á Facebook Týndir kettir, misjafnlega góð ráð um þyngdarstjórnun, fréttir af vinum og fólk að leita að leiguhúsnæði. Þetta er Facebook feedið mitt á venjulegum degi. Ég veit ekki hvað ég get gert varðandi alla týndu kettina en ég staldra hins vegar við allar þessar leiguauglýsingar þó ég eigi ekkert húsnæði til að leigja út. Skoðun 12. janúar 2026 11:03
Ísland á krossgötum Í umræðunni um áhuga Bandaríkjamanna á Grænlandi hefur ráðamönnum hvaðanæva að verið tíðrætt um nauðsyn og rétt þjóða til að verja lýðræðið, menningu, tungu og gildi sín. Skoðun 12. janúar 2026 08:17
Fyrirsjáanleiki í frístundastarfi Öruggt og stöðugt starfsumhverfi í frístundastarfi í Reykjavík er forsenda þess að hægt sé að veita faglega þjónustu og byggja upp starfsferil. Þess vegna er óásættanlegt að óvissa um mönnun frístundaheimila skapist ár eftir ár. Skoðun 12. janúar 2026 06:01
Atvinna handa öllum Atvinnuleysi á Suðurnesjum mælist nú 8,9%, samkvæmt Vinnumálastofnun, og er hlutfallslega tvöfalt meira en víðast annars staðar á landinu. Þetta eru alvarlegar tölur og á bak við þær eru raunverulegar sögur fólks sem vill vinna, fjölskyldna sem lifa í óvissu og ungs fólks sem spyr sig hvort framtíðin sé annars staðar en heima. Skoðun 11. janúar 2026 11:32
Ný kynslóð Alla ævi hef ég gert grín að frambjóðendum. Þegar venjulegt fólk gengur til liðs við þennan þjóðflokk verður það umsvifalaust 30% hressara, fer út að hlaupa strategískt á móti umferð á Sæbraut á álagstímum, setur upp pottaplan í mismunandi sundlaugum og mætir í Bónus á annatíma í stað þess að Wolta eins og venjulegt fólk. Skoðun 10. janúar 2026 07:32
Manst þú eftir hverfinu þínu? Breiðholtið í kringum 1980 var algjör draumastaður til að búa á. Að minnsta kosti ef maður var sjö ára með grasgrænu á buxunum og mamma kallaði af svölunum í Suðurhólunum að það væri kominn kvöldmatur. Ég held það hafi verið gaman hjá fullorðna fólkinu líka. Skoðun 10. janúar 2026 07:01
Tímabært að koma böndum á gjaldskyldufrumskóginn Stöðum þar sem innheimt eru bílastæðagjöld hefur fjölgað ört undanfarin ár. Samhliða hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem bjóða upp á tæknilegar lausnir og þjónustu við gjaldtökuna og á sama tíma höfum við ítrekað heyrt frá neytendum sem kvarta yfir viðskiptaháttum á gjaldskyldum bílastæðum, skorti á upplýsingum, merkingum og handahófskenndri framkvæmd. Skoðun 9. janúar 2026 10:02
Börnin okkar eiga betra skilið en ókunnugar afleysingar Mannekluvandi leikskóla Reykjavíkurborgar hefur nú verið viðvarandi í fjölda ára. Viðbrögð borgarinnar við vandanum eru afskaplega aum en innan borgarinnar er starfandi svokölluð afleysingastofa með starfsfólk sem stekkur inn í þau störf sem þarf að leysa. Skoðun 9. janúar 2026 08:33
Verum ekki föst í umferð næsta áratuginn Öll sem aka í Reykjavík þekkja það að sóa tíma í bílnum. Föst í umferð. Líka fólk sem notar Strætó. Ef ekkert er að gert mun þetta versna áður en það batnar. Skoðun 8. janúar 2026 07:02
Þátttaka í bandalögum styrkir fullveldið Heimurinn hefur breyst. Vægi alþjóðalaga og fjölþjóðastofnana hefur veikst og sá heimur sem við blasir er síst af öllu betri fyrir smærri þjóðir. Skoðun 7. janúar 2026 21:01
Enga uppgjöf í leikskólamálum Þegar börnin mín voru á leikskóla voru verkföll á leikskólanum, svo kom covid með tilheyrandi lokunum og síðan fundust rakaskemmdir og mygla þannig að deild barnanna okkar þurfti að flytja tímabundið annað. Skoðun 6. janúar 2026 12:32
23 borgarfulltrúar á fullum launum í Reykjavík, en 7 í Kaupmannahöfn Reykjavíkurborg er eina höfuðborg Norðurlanda þar sem allir borgarfulltrúar eru í 100% starfi hjá borginni. Heildarkostnaður við borgarfulltrúa í Reykjavík er tæplega 700 m.kr. á ári. Skoðun 6. janúar 2026 07:30
Sækjum til sigurs í Reykjavík Ég ákvað fyrir skemmstu að gefa kost á mér sem oddviti Samfylkingar í Reykjavík. Prófkjör flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar fer fram með rafrænum hætti laugardaginn 24. janúar og er opið öllum skráðum flokksfélögum. Skoðun 6. janúar 2026 07:00
Ert þú ekki bara pólitíkus? Ég er enginn pólitíkus, hef ég stundum heyrt fólk segja sem hefur brennandi áhuga á samfélagi sínu og hvernig því er stjórnað. Í grunninn þá snýst stjórnun sveitarfélags fyrst og fremst um að veita íbúum lögbundna þjónustu á sem bestan hátt og bera ábyrgð á skipulagsmálum og rekstri sveitarfélagsins. Skoðun 5. janúar 2026 07:47