Stuðningur barna í grunnskóla- hvar liggur vandinn? Fyrir nokkrum árum var tekið það skref að búa til kerfi sem heitir samræmd móttaka flóttafólks. Þetta voru mikilvæg skref til að samræma þjónustu og gera hana betri, skilvirkari og á jafnréttis grunnvelli. Í þeirri vinnu var mjög margt gert vel þegar kemur að félagsþjónustu. Skoðun 22. apríl 2024 08:31
Viðurkennir að hafa brugðist of hægt við áhyggjuröddum heimilislækna Heilbrigðisráðherra viðurkennir að hafa brugðist of hægt við áhyggjuröddum heimilislækna varðandi álag vegna skriffinsku. Hann ætlar að minnka kröfur um vottorða- og tilvísunarskrif og hefur boðað fulltrúa Félags heimilislækna á fund eftir helgi. Innlent 21. apríl 2024 21:00
Sameiningarviðræður á Suðurnesjum komnar á næsta stig Viðræður um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum eru komnar á næsta stig og haldnir hafa verið íbúafundir vegna málsins. Bæjarstjóri í Vogum segir endanlega ákvörðun alltaf vera íbúanna. Innlent 21. apríl 2024 18:21
Menntakerfið - lykill að inngildingu Breytt samfélagsgerð kallar á breyttar áherslur hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það getur varðaði fjölbreyttara samfélag, fjölmenningu eða hvers kyns aðrar breytingar sem heimurinn er að ganga í gegnum og þær áskoranir sem þeim fylgja. Skoðun 21. apríl 2024 15:01
„Þurfum að breyta kerfinu okkar, það tekur því miður tíma“ Barnamálaráðherra kveðst vera meðvitaður um vanda einhverfra barna í skólakerfinu og langþreytta foreldra þeirra. Breyta þurfi kerfinu en kerfisbreytingar taki tíma og allir þurfi að leggja hönd á plóg. Innlent 21. apríl 2024 14:20
Varaþingmaður segir sig úr Samfylkingunni eftir flokksstjórnarfund Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir aðjúnkt og varaþingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að segja sig úr flokknum og í leiðinni segja af sér varaþingmennsku og öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Ástæðuna segir hún vera sífellt minnkandi áherslu flokksins á mannréttindamál. Innlent 21. apríl 2024 13:48
Forysta Framsóknar endurkjörin Sigurður Ingi Jóhannsson var á Flokksþingi Framsóknar fyrr í dag endurkjörinn formaður flokksins með rúmlega 96 prósent greiddra atkvæða. Innlent 21. apríl 2024 12:45
Stendur þétt við bak Heru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar segir lífið vera allt annað eftir hnéaðgerð. Áður gat hún ekki gengið á öðru en jafnsléttu. Hún segir fjölskylduna standa þétt að baki systur sinni Heru Björk í Eurovision. Þá hrósar hún minnihlutanum í borgarstjórn og segir samstarfið aldrei hafa gengið betur. Lífið 21. apríl 2024 07:01
„Sorgmædd en stolt“ eftir flokksstjórnarfund Ósætti er innan Samfylkingarinnar um nýjar áherslur flokksins í útlendingamálum eftir flokkstjórnarfund sem haldinn var í Miðfirði í dag. Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar greindi frá því í dag að tillögu hennar um ályktun um að endurskoðun á útlendingalöggjöfinni verði aðeins gerð með mannúð að leiðarljósi hafi verið vísað til nefndar í stað þess að greitt hafi verið um hana atkvæði. Innlent 20. apríl 2024 23:42
Snorri tekinn í bólinu af Miðflokksmönnum Snorri Másson fjölmiðlamaður vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason mættu í heimsókn til hans á Tómasarhagann í morgun. Þeir sögðust hafa verið í hverfinu og þurft að ræða við Snorra. Lífið 20. apríl 2024 20:19
„Ég er neyddur til að vera með rándýra tunnu” Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði beiðni íbúa Reykjavíkurborgar um að sorptunnugjöld fyrir blandaðan heimilisúrgang og matarleifar yrðu felld niður. Björn Guðmundsson, efnafræðingur, kvartaði til nefndarinnar eftir að hann fékk rukkun frá borginni fyrir sorptunnugjaldi en hann notar hvoruga tunnuna. Innlent 20. apríl 2024 17:05
Kristrún varar við kæruleysi Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hvatti félagsmenn til að ganga sameinuð til verka. Hún hvatti þau til að vera þolinmóð, skipulögð og öguð og til þess að sýna almenningi að Samfylkingin geti unnið samkvæmt áætlun. Á sama tíma megi þau ekki verða kærulaus. Innlent 20. apríl 2024 16:51
Lilja hjólar í Samfylkinguna: „Hver tekur Samfylkinguna alvarlega?“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi Samfylkinguna harðlega í ávarpi sínu á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag. Hún sagði Samfylkinga hafa tekið upp þeirra stefnu, miðjustefnuna. Innlent 20. apríl 2024 13:53
Nauðsynlegt að koma í veg fyrir skautun og tvístrað samfélag Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, er stoltur af árangri flokksins í stjórnmálum og því hvernig flokkurinn fer með völdin. Hann ræddi verkefnin framundan og þeim sem lokið eru í ávarpi sínu á flokksþingi flokksins fyrr í dag. Innlent 20. apríl 2024 13:43
Formaður ávarpar flokksþing Framsóknar 37. Flokksþing Framsóknar er haldið í dag og á morgun á Hótel Hilton í Reykjavík. Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Innlent 20. apríl 2024 12:45
Bein útsending: Sigurður Ingi, Lilja og Einar ávarpa flokksþing Framsóknar 37. flokksþing Framsóknar fer fram um helgina og mun formaður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra flytja yfirlitsræðu sína klukkan 13. Innlent 20. apríl 2024 12:16
Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi sagðist ekki vilja tjá sig um Katrínu Jakobsdóttur, sem einnig gefur kost á sér til embættisins, þegar hún væri ekki viðstödd. Jón Gnarr, sem er líka að bjóða sig fram, segir smá meðvirkni í því að tjá sig ekki um aðra frambjóðendur þegar þeir gætu alveg verið á staðnum. Innlent 20. apríl 2024 10:11
Fé, fæða og fjármálaáætlun Málefni matvælaráðuneytisins bera oft á góma í samtölum fólks. Það er eðlilegt, á könnu ráðuneytisins eru fjöldi málaflokka sem varða okkar daglega líf, matinn sem við borðum, stórar atvinnugreinar og umhverfið í kringum okkur. Skoðun 20. apríl 2024 08:00
Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Móðir níu ára einhverfrar stúlku hefur tvívegis tilkynnt sig til barnaverndar í örvæntingafullri tilraun til að fá aðstoð fyrir dóttur sína. Á tímabili var vanlíðan stúlkunnar slík að hún missti lífsviljann. Innlent 19. apríl 2024 19:30
Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Fjármálaráðherra skoðar nú gera róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu. Alþjóðlegar stofnanir á borð við Alþjóðabankann og OECD hafi lengi haft margt við kerfið að athuga á liðnum árum og því sé tilefni til að endurskoða það í heild. Innlent 19. apríl 2024 14:55
Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Anna Lísa Björnsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Þá hefur verið gengið frá endurráðningu Áslaugar Maríu Friðriksdóttur og Dagnýjar Jónsdóttur sem aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar. Innlent 19. apríl 2024 14:14
Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Guðmundur H. Garðarsson fyrrverandi alþingismaður lést að Hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfararnótt 18. apríl. hann var 95 ára að aldri. Innlent 19. apríl 2024 10:52
Traust og gagnsæi Fyrir tveimur árum birtu þáverandi formenn stjórnarflokkanna yfirlýsingu á vef Stjórnarráðsins þar sem þeir sögðust sammála um ákveðin atriði varðandi umdeilda sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka sem fram hafði farið í mars 2022. Skoðun 19. apríl 2024 09:01
Grunnskóli á krossgötum Á dögunum hélt Sveitarstjórnarráð VG ráðstefnu um menntamál, sem bar heitið Máttur menntunar. Má segja að erindin sem lutu að grunnskólanum hafi verið tvö. Annars vegar erindi Ragnars Þórs Ragnarssonar grunnskólakennara í Norðlingaskóla, Menntun og mannvit á krossgötum: Um áhrif gervigreindar á skóla og samfélag. Skoðun 19. apríl 2024 08:00
Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir börn á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri verður komið á fót í kjölfar fjölskyldusameiningar fólks frá Palestínu. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag og stefnt er að formlegri opnun mánudaginn 22.apríl. Innlent 18. apríl 2024 20:24
Farsæl hagræðing í kjötiðnaði innan ramma samkeppnislaga Stuðningsmenn nýlegra breytinga á búvörulögunum, sem veita kjötafurðastöðvum víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum, virðast sumir hverjir haldnir þeim reginmisskilningi að lagabreytingin hafi verið nauðsynleg til að tryggja hagræðingu í kjötiðnaðinum. Skoðun 18. apríl 2024 11:00
Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Hæstaréttarlögmaður segir frumvarp um húsaleigulög, sem ætlað er auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda, geta leitt til þess að húseigendur vilji síður leigja út eignir sínar. Þannig myndi framboð minnka og leiguverð hækka. Viðskipti innlent 18. apríl 2024 09:31
Hvað felst í frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum? Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingu á húsaleigulögum. Erfitt getur verið fyrir aðra en lögfróða að átta sig á þýðingu breytinganna fyrir leigusala og leigjendur, en ljóst er að áhrifin verða þónokkur og athugasemdir hafa verið gerðar við frumvarpið. Hér verður leitast við að skýra á mannamáli hvað felst í frumvarpinu. Ef frumvarpið verður að lögum þá munu eftirfarandi skyldur leggjast á herðar leigusala: Skoðun 18. apríl 2024 09:00
Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Næsta föstudag, þann 19. apríl kl. 16.00 er aðalfundur Landsbanka Íslands og samkvæmt dagskrá fara þar fram venjuleg aðalfundastörf en í henni er ekki minnst einu orði á kaup Landsbankans á TM. Skoðun 18. apríl 2024 08:31
Varnargarðar utan um fólkið í Grindavík Í síðustu viku fór tími Alþingis ekki í neitt nema að bíða eftir því að hulunni yrði svipt af nýrri (eða lítillega breyttri) ríkisstjórn. Önnur og mun mikilvægari verkefni voru látin sitja á hakanum. Skoðun 18. apríl 2024 07:30