„Við getum ekki látið draga okkur inn í þessa sjálfseyðingarhvöt ESB“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson alþingismaður segir nýjar reglur Evrópusambandsins um að sporna gegn mengun vegna flugsamgangna rústa samkeppnisstöðu Íslands. Hann segir svör ESB einkennast af óvirðingu. Ríkisstjórnin verði að standa á sínu. Innlent 25. mars 2023 23:07
Ónýtt húsnæðiskerfi og heimilisleysi Heimilisleysi er skýr birtingarmynd ónýts húsnæðiskerfis, þar sem nægt framboð er af lúxusíbúðum, yndisreitum, risíbúðum eða hvað þetta allt heitir nú í dag. Á sama tíma er lítið sem ekkert til af ódýru leigu- eða eignarhúsnæði. Skoðun 25. mars 2023 08:30
Vilja nota skrifstofuhúsnæði undir flóttafólk Ríkisstjórnin vill rýmka tímabundið reglur vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Frumvarpsdrög voru send á þingflokka stjórnarflokka í morgun. Verði frumvarpið að lögum er hægt að nýta húsnæði, sem ekki var upphaflega hugsað til búsetu, undir flóttafólk. Innlent 24. mars 2023 22:03
Hvers vegna á að loka pósthúsinu í Mjódd? Skorað hefur verið á Íslandspóst að halda áfram rekstri póstafgreiðslunnar í Mjódd. Tillagan kom frá borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem var samþykkt á borgarstjónarfundi þann 21. mars. Breytingar sem þessar eru gerðar að vel ígrunduðu máli, með þarfir viðskiptavina og hagræðingu í rekstri að leiðarljósi. Í greinargerð með tillögunni eru gefið í skyn að hyggilegra væri að loka frekar pósthúsinu við Dalveg og ýmsar ástæður tíndar til. Skoðun 24. mars 2023 17:01
Kerfi sem bjóði þingmönnum upp á spillingu Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir fyrirkomulag við bókanir ríkisstarfsmanna á flugferðum bjóða upp á spillingu. Þarna sé verið að viðhalda kerfi sem hvetji starfsmenn ríkisins til þess að beina viðskiptum sínum til ákveðins flugfélags. Innlent 24. mars 2023 16:56
Kynningu á fjármálaáætlun frestað um óákveðinn tíma Fjármálaáætlun verður ekki kynnt á fundi fjárlaganefndar á mánudag líkt og áður stóð til. Þetta staðfestir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður nefndarinnar. Hún bendir á að ríkisstjórnin hefur afgreitt málið frá sér og því sé líklega um frágangsatriði að ræða. Innlent 24. mars 2023 15:34
Lætur kanna fýsileika jarðgangna til Vestmannaeyja Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem ætlað er að leggja mat á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja, byggt á fyrirliggjandi vísindagögnum og nýjustu upplýsingum. Innlent 24. mars 2023 12:45
Látum þau bara borga brúsann Í vikunni hækkuðu stýrivextir um eitt prósentustig og ekki verður annað séð en að það sé meðvituð stefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að láta raðstýrivaxtahækkanir Seðlabanka Íslands lenda sem mest og verst á almennu launafólki. Skoðun 24. mars 2023 10:30
Þingmenn fá punkta á sitt kort fyrir flugferðir greiddar af ríkinu Þingmenn sem ferðast til útlanda vegna starfs síns fá flugpunkta á kort sín fljúgi þeir með ákveðnum flugfélögum, þrátt fyrir að ferðin sé greidd af ríkinu. Punktana geta þeir svo notað sjálfir þegar flogið er í persónulegum erindagjörðum. Forstjóri Play segir að þarna sé svakalegur hvati sem stýri viðskiptum þingmannanna. Innlent 24. mars 2023 09:50
Tölvupúki lét líkkistufélag ráðherra hverfa úr hagsmunaskrá Galli í tölvukerfi sem ráðherrar nota til þess að skrá hagsmuni sína olli því félag í eigu Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra, féll út úr hagsmunaskráningu hans. Annar óþekktur galli veldur því að ráðherrann hefur ekki getað leiðrétt skráninguna. Innlent 24. mars 2023 09:27
Samvinna fyrir betra heilbrigðiskerfi Um er að ræða tilboð í allt að 700 aðgerðir sem munu bæta lífskjör einstaklinga til muna. Þessi aðgerð er að frumkvæði Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og hefur það að markmiði að stytta biðlista fyrir liðskiptaaðgerðir. Skoðun 24. mars 2023 08:02
Einkavæðing hrognkelsa/grásleppu Ekkert í stjórnarsáttmálanum kveður á um kvótasetningu í fiskveiðistjórnarkerfinu og skýtur því skökku við að búið sé að kvótasetja sandkola og hryggleysingja nú þegar með framsali og nú stendur til að kvótasetja grásleppu með framsali. Skoðun 24. mars 2023 07:30
Hvað svo? Um leikskólamál í Reykjavík Leikskólamál í Reykjavík eru núna í brennidepli. Fyrir því eru frekar einfaldar ástæður. Að loknu 12 mánaða fæðingarorlofi hafa margir foreldrar í höfuðborginni ekki aðgang að dagvistunarúrræði fyrir börnin sín. Afleiðingar þess fyrir fjárhag heimilisins geta orðið umtalsverðar. Skoðun 24. mars 2023 07:01
„Þetta er óskiljanleg ráðstöfun“ Formaður Félags náms- og starfsráðgjafa segir veigamikið verkfæri tekið úr sambandi með lokun upplýsinga og ráðgjafavefsins Næsta skref. Ráðgjafar séu bæði ósáttir og undrandi þar sem vefurinn hafi verið mikið notaður og fallið vel í kramið. Stjórnvöld þurfi að koma að málinu, finna stað fyrir vefinn og tryggja fjármagn en arðsemi vefsins sé ekki mældur í peningum. Innlent 23. mars 2023 22:27
Ríkið gæti þurft að koma heimilunum til aðstoðar Fjármálaráðherra segir til greina koma að ríkisstjórnin grípi til aðgerða vegna aukinnar vaxtabyrði heimilanna. Skilaboð Seðlabankans í gær hafi verið skýr varðandi baráttuna við verðbólgu en einnig þurfi að gæta þess að hækka vexti ekki of mikið þannig að það skapist samdráttur og kreppa í samfélaginu. Innlent 23. mars 2023 19:40
Mikilvæg skref í lengri vegferð Í dag voru til umræðu á Alþingi breytingar á lögum um almannatryggingar og félagslega aðstoð. Í ríkisstjórnarsáttmála er lögð rík áhersla á að málefni örorkulífeyrisþega verði tekin til endurskoðunar á kjörtímabilinu með það að markmiði að bæta lífskjör og lífsgæði einstaklinga með skerta starfsgetu og er málið sem rætt var í dag hluti af heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins. Skoðun 23. mars 2023 17:01
Selenskí þakklátur Íslandi Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis. Erlent 23. mars 2023 14:32
Bjarni segir skatta á launafólk ekki verða hækkaða Fjármálaráðherra segir að engar breytingar verði gerðar á sköttum sem bitni á launafólki í væntanlegri fjármálaáætlun. Hins vegar verði dregið úr ýmsum ívilnunum sem rafbílar hafi notið og gjaldtöku á umferð og vegi almennt breytt. Innlent 23. mars 2023 14:00
Mikið í húfi að fá veðurstöð í Vík Unnið er að því að fá veðurstöð í Vík í Mýrdal. Sveitarstjórnin telur að í ljósi margföldunar umferðar um svæðið á síðustu árum sé mikið í húfi að hægt sé að spá fyrir um veðrið á svæðinu með sem nákvæmustum hætti. Innlent 23. mars 2023 13:51
Mikill hallarekstur samhliða háu atvinnustigi „eitraður kokteill“ Mikill hallarekstur á sama tíma og atvinnustig er komið í eðlilegt horf vekur áleitnar spurningar um hagstjórn hins opinbera. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Arion greiningu, segir að í hallarekstrinum felist ónýtt tækifæri til að vinna bug á verðbólgunni og ástæða sé til að hafa áhyggjur af svigrúmi hins opinbera til að takast á við áföll í framtíðinni. Innherji 23. mars 2023 13:30
Alþingi ályktar að hungursneyðin í Úkraínu hafi verið hópmorð Alþingi samþykkti nú í morgun þingsályktunartillögu Diljár Mistar Einarsdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að hungursneyðin í Úkraínu á árunum 1932-1933 hafi verið hópmorð. Innlent 23. mars 2023 12:50
Allt í einu er lögreglan með rafbyssur Allt í einu hefur lögreglan fengið leyfi til þess að nota rafbyssur. Sama dag og dómsmálaráðherra segist hafa tekið ákvörðun um að gera nauðsynlegar breytingar til þess að láta lögregluna fá rafbyssur segir forsætisráðherra að það þurfi nú að ræða málið í ríkisstjórn og í þinginu. Skoðun 23. mars 2023 10:30
Segir engar raunverulegar aðgerðir til að draga úr losun á Íslandi Ríkisstjórnin hefur ekki komið fram með neinar aðgerðir til að hamla innkaupum á bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Það skjóti skökku við að veita bílaleigum milljarð í styrk til að kaupa rafmagnsbíla í stað þess að stöðva innflutning á bensín- og dísilbílum. Innlent 23. mars 2023 09:44
Forgangsröðum í þágu menntunar Á nýafstöðnum landsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs voru samþykktar tvær ályktanir um menntamál. Í annarri er lýst yfir þungum áhyggjum af starfsaðstæðum í skólum landsins. Víða hefur skólahúsnæði verið lokað vegna myglu og annarra vandamála og mikið álag er í leik- og grunnskólum vegna undirmönnunar. Skoðun 23. mars 2023 09:31
Taugaveiklun í Seðlabankanum Flest í efnahagslega umhverfi landsins er hagfellt; fisk- og álverð er hátt, ferðamenn streyma til landsins og hagvöxtur á kínverskum mælikvarða á sl. ári eða rúm 6%. Skoðun 23. mars 2023 07:30
Langvarandi verðbólga eykur líkur á kreppu Þrálát verðbólga eykur hættu á kreppu að sögn seðlabankastjóra. Mikill hiti sé í hagkerfinu og nauðsynlegt að hægja meðal annars á fjárfestingum fyrirtækja. Vextir verði hækkaðir þar til verðbólga minnki. Innlent 22. mars 2023 19:40
„Er ekki kominn tími á að ríkisstjórnin skili lyklunum að Stjórnarráðinu?“ Tólfta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð hefur vakið hörð viðbrögð víða í samfélaginu en þingmenn vöktu margir hverjir athygli á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina kjarklausa og verkstola og þingflokksformaður Viðreisnar segir þau ekki geta dvalið lengur í Hvergilandi. Innlent 22. mars 2023 16:59
Leikskólavandinn? Það þarf að leysa vanda leikskólanna áður en leikskólavandi borgarinnar, eins og hann er kallaður, verður leystur. Fulltrúar borgarinnar í fjölmiðlum eru að reyna að svara mótmælum frá foreldrum og atvinnulífi en gleyma að líta inn á leikskólana sjálfa og sjá raunverulega vandann sem er jú þeirra að leysa. Skoðun 22. mars 2023 16:31
Kjarklaus og verkstola ríkisstjórn Stýrivaxtahækkun dagsins kom fáum á óvart enda kjarklaus og verkstola ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við völd hér á landi. Stýrivextir eru nú 114 – 188% hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum og Seðlabankinn hefur fá önnur ráð í glímunni við óðaverðbólguna en að hækka stýrivexti. Skoðun 22. mars 2023 16:00
Bein útsending: Alþjóðasamskipti og þjóðaröryggi Örar breytingar á alþjóðavettvangi hafa í för með sér að stjórnvöld þurfa að takast á við samfélagslegar og alþjóðlegar áskoranir á sviði þjóðaröryggis með nýjum áherslum. Hvernig getum við nýtt alþjóðasamstarf til að tryggja öryggi þjóðar á breyttum tímum? Innlent 22. mars 2023 12:31