Hringsóla utan við Alþingishúsið til að mótmæla leigubílafrumvarpi Hópur leigubílstjóra ekur nú bílum sínum í hringi utan við Alþingishúsið til þess að mótmæla leigubílafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem þar er til umræðu. Lögregla bannaði þeim þó að þeyta flautur sínar. Innlent 14. desember 2022 23:40
Fela ráðherra að endurskoða styrki í ljósi fjölmiðlaumræðu Meirihluti fjárlaganefndar beinir því til ráðherra að endurskoða reglur um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um ákvörðun nefndarinnar um hundrað milljón króna styrk til framleiðslu sjónvarpsefnis. Innlent 14. desember 2022 20:53
Sakar stjórnarþingmenn um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils Þingmaður Samfylkingarinnar sakar meirihluta fjárlaganefndar um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils með hundrað milljón króna styrk sem hún leggur til að verði í fjárlögum næsta árs. Ákvörðun um styrkinn hafi ekki byggt á leikreglum í lögum. Innlent 14. desember 2022 19:17
Fjárfestum í friðsömum lausnum Leiðarljós Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna er að sérhver einstaklingur sé borinn frjáls og jafn öðrum að virðingu og réttindum. Yfirlýsingin var undirrituð 10. desember 1948 eftir að mannkynið hafði kynnst hungri og stríði sem endaði með fjöldamorðum af völdum kjarnorkuvopna, stríði sem grundvallaðist á mannhatri og grimmd, grillunni um að sumt fólk væri æðra öðru líkt og helförin sýndi. Skoðun 14. desember 2022 17:30
Samstarf um stöðugleika Þegar ég bauð mig fram til Alþingis síðastliðið haust var það vegna þess að ég vildi gera vel. Ástandið í heiminum hefur haft áhrif á efnahagsástandið hér á landi sem og annar staðar. Við getum þó ornað okkur við það að allar líkur eru á að um tímabundið ástand sé að ræða, staða ríkissjóðs er mun sterkari en áður var gert ráð fyrir og viðsnúningur getur því orðið hraður þegar ástandið færist aftur í eðlilegt horf. Við þurfum þó að stíga varlega til jarðar næstu mánuði, tryggja stöðugleika og ná niður verðbólgu og vöxtum. Skoðun 14. desember 2022 17:01
Þingmaður tók þátt í að samþykkja beiðni mágkonu sinnar Þingmaður Framsóknarflokksins stóð að tillögu fjárlaganefndar um hundrað milljóna króna styrk til fjölmiðla á landsbyggðinni. Þingmaðurinn er mágur framkvæmdastjóra N4 sem sendi nefndinni bréf og óskaði eftir styrknum. Innlent 14. desember 2022 16:27
Eingreiðslan skipti miklu máli í ljósi hækkandi verðlags Á fjórða tímanum í dag var eingreiðsla upp á 60.300 krónur til örorku og endurhæfingarlífeyrisþega samþykkt á Alþingi. Innlent 14. desember 2022 16:18
Ráðherra láti eins og hann sé „hvítþveginn af glæp sem ríkisstjórnin framdi“ Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, vandaði félags- og vinnumarkaðsráðherra og öðrum stjórnarliðum ekki kveðjurnar á Alþingi í dag. Það væri stundum eins og fólk í stjórnarliðinu ætti erfitt með að skilja á milli veruleika og ímyndunar. Umdeilt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verður ekki á dagskrá þingsins fyrir jól, sem Píratar fagna. Innlent 14. desember 2022 15:38
„Svona myndi ekki gerast í nokkru öðru lýðræðisríki“ Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljónir króna í styrk úr ríkissjóði á næsta ári. Viðskipti innlent 14. desember 2022 15:01
Sjálfstæðismenn vilja að borgarhátíðir beri íslensk nöfn Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja að borgarhátíðir beri íslensk nöfn. Borgarsjóður styrkir hátíðir á borð við Reykjavik Dance Festival og Reykjavik Film Festival. Styrkur úr borgarsjóði nemur samtals fimmtíu milljónum króna. Innlent 14. desember 2022 14:37
Tekist á um Jóladagatalið á Alþingi Skiptar skoðanir eru á Alþingi um útspil Útlendingastofnunar vegna Jóladagatals Ríkisútvarpsins. Þingmenn Miðflokksins eru hæstánægðir með upplýsingasíðu stofnunarinnar en þingmaður Pírata spurði hvort að eðlilegt gæti talist að starfsmaður stofnunarinnar hafi verið settur í þá vinnu að horfa á Jóladagatalið. Innlent 14. desember 2022 11:41
Veit um tvo fjölmiðla sem gætu skipt með sér hundrað milljón króna styrk Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljón króna styrk úr ríkissjóði á næsta ári. Formaður nefndarinnar getur bent á tvo slíka fjölmiðla, N4 á Akureyri og Víkurfréttir á Suðurnesjum. Framkvæmdastjóri N4 sendi nýverið erindi á nefndina þar sem óskað var eftir hundrað milljón króna styrk. Viðskipti innlent 14. desember 2022 08:48
Afurðastöðvar fái ekki undanþágu frá reglum um ólöglegt samráð Samkeppniseftirlitið leggst gegn frumvarpsdrögum um undanþágur frá samkeppnislögum til handa afurðastöðvum í kjötiðnaði og telur drögin alls ekki til þess fallnar að treysta íslenskan landbúnað. Viðskipti innlent 14. desember 2022 08:40
Kaldar kveðjur forsætisráðherra Nú liggja fyrir drög að frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til heildarlaga um sanngirnisbætur til vistheimilabarna sem urðu fyrir varanlegum líkamlegum, sálrænum eða félagslegum skaða vegna illrar meðferðar meðan á vistun þeirra stóð. Skoðun 14. desember 2022 08:00
Vill ekki að hótanir séu notaðar til að afvegaleiða umræðu um völd lögreglu Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir að ef hann yrði myrtur væri það síðasta sem hann myndi vilja að minning hans yrði notuð til að draga úr frelsi fólks og auka ofríki yfirvalda. Það fari gegn öllum hans hugsjónum vill hann ekki að hótanir í hans garð séu notaðar til að afvegaleiða umræðuna um lögreglu- og öryggismál hér á landi. Innlent 13. desember 2022 23:25
„Óásættanleg“ framganga leigufélaga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir framgöngu sumra leigufélaga óásættanlega. Hún hvetur leigufélög til að axla ábyrgð og sýna hófstillingu. Vinna við endurskoðun húsaleigulaga hefst fljótlega. Innlent 13. desember 2022 22:57
Ætti að lækka fjármögnunarkostnað banka sem getur skipt „töluverðu máli“ Frumvarp um breytingar á lögum um sértryggð skuldabréf, sem mun greiða fyrir útgáfu og viðskiptum íslenskra banka með slík bréf þvert á landamæri innan Evrópu, ætti að leiða til þess að fjármögnunarkostnaður fjármálastofnana lækki á tímum þegar aðstæður á mörkuðum hafa versnað til muna, að sögn fjármálaráðherra, sem vill tryggja framgang málsins á sem skemmstum tíma. Samtök fjármálafyrirtækja segja mikilvægt að frumvarpið verði að lögum fyrir áramót ef bankarnir eiga að geta gefið út sértryggð skuldabréf sem teljast veðhæf hjá Evrópska seðlabankanum. Innherji 13. desember 2022 17:50
Áminntur fyrir að ræða um óheiðarleika í framsetningu Katrínar á barnabótum Þingmaður Samfylkingar sakaði forsætisráðherra um óheiðarlega framsetningu á breytingum á barnabótum vegna kjarasamninga í ræðustól Alþingis í dag og var í kjölfarið beðinn um að gæta orða sinna. Þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku áminninguna óstinnt upp og kölluðu eftir sérstökum umræðum um fundarstjórn forseta. Innlent 13. desember 2022 16:16
Sækjum fram á óvissutímum Kjarasamningar fyrir stærstan hluta launafólks á almennum vinnumarkaði hafa nú verið undirritaðir eftir að Starfsgreinasamband Íslands reið á vaðið í byrjun mánaðarins og verslunarmenn og samflot iðn- og tæknifólks fylgdi svo í kjölfarið gær. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir fólkið í landinu, ekki síst á óvissutímum. Skoðun 13. desember 2022 15:30
„Þetta eru plástrar á svöðusár“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og þingmaður Flokks fólksins, segir að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin kynnti í gær vegna kjarasamninga sýni að hún geri sér enga grein fyrir því hversu slæmt ástandið sé á mörgum heimilum hér á landi Innlent 13. desember 2022 15:21
Leigusalar hirði hækkun húsnæðisbóta ef engin er leigubremsan Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir að í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga sé ekki að finna leigubremsu. Hækkun bóta og húsnæðisstuðningur muni einfaldlega renna til fjármagnseigenda ef leigubremsa er ekki innleidd á sama tíma. Innlent 13. desember 2022 13:49
Reykjavík nýfrjálshyggjunnar Í síðustu viku komu borgarfulltrúar saman í borgarstjórn til þess að ræða fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, 2023. Þarna höfðu kjörnir fulltrúar tækifæri til þess að sýna og segja borgarbúum hvernig þau hygðust vilja reka borgina. Hlutverk Reykjavíkur er að sjá til þess að það sé hér til grunnur fyrir alla. Skoðun 13. desember 2022 11:31
(Sér)íslensk jólaljós á krepputímum Jólaljósin í skammdeginu á Íslandi eru eitt af mörgu sem er í uppáhaldi hjá mér við jólin. Maðurinn minn fór án mín í jólaljósa-innkaup á dögunum og missti sig örlítið. Það verður í það minnsta enginn runni hjá okkur óupplýstur þetta árið. Skoðun 13. desember 2022 09:01
„Hefðuð þið viljað þennan gaur sem bæjarfulltrúa?“ „Hefðuð þið viljað þennan gaur, núverandi formann Ölmu, sem bæjarfulltrúa? Myndu þið treysta honum til þess að koma að ákvarðanatöku um húsnæðismál í Kópavogi? Eða velferðarmál? Málefni öryrkja?“ spyr Hans Alexander Margrétarson Hansen leikskólaleiðbeinandi og stofnandi Pírata í Kópavogi og á þar við Ingólf Árna Gunnarsson framkvæmdastjóra Ölmu leigufélags. Ingólfur var Oddviti Pírata árið 2014. Innlent 12. desember 2022 21:02
Stórt skref fyrir Vestmannaeyjar Þær fréttir bárust í dag að innviðaráðuneytið hefði náð samkomulagi við Flugfélagið Erni um áætlunarflug til Vestmannaeyja þrisvar sinnum í viku. Skoðun 12. desember 2022 17:00
Heilbrigðiskerfið sem fékk lítinn plástur Nýlega heyrðum við af uppsögn forstjóra Sjúkratrygginga. Hún treysti sér ekki til að sinna starfinu með þeim fjárveitingum sem Sjúkratryggingum er úthlutað. Í framhaldinu heyrðust síðan þau merkilegu viðbrögð heilbrigðisráðherra að uppsögnin hafi ekki komið honum á óvart. Skoðun 12. desember 2022 16:01
Fleiri fá barnabætur og húsnæðisbætur hækka Stjórnvöld kynntu á blaðamannafundi á þriðja tímanum aðgerðir sem ráðist verður í vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Gerðar verða kerfisbreytingar á barnabótakerfinu og það einfaldað til muna. Húsnæðisbætur leigjenda hækka um 13,8% í upphafi næsta árs auk þess sem tekjuskerðingarmörk húsnæðisbóta hækka um 7,4%. Innlent 12. desember 2022 15:23
Telur stjórnmálamenn misnota hugtakið „pólitísk ábyrgð“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er þeirrar skoðunar að stjórnmálamenn séu mjög duglegir að teygja hugtök og toga til að verja mistök sín og afglöp. Innlent 12. desember 2022 13:08
Boða til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan hálf þrjú Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í klukkan hálf þrjú í dag þar sem kynnt verður yfirlýsing stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Innlent 12. desember 2022 11:57
Hvar er kjarapakkinn, Katrín? Við sem viljum stjórna í þágu almennings gerum kröfu um framfarir. Í staðinn verðum við vitni að stjórnarháttum sem festa kerfin okkar enn frekar í hjólförunum. Stjórnarháttum sem fela í sér að neyð er sköpuð til þess eins að valdhafar geti hlaupið inn líkt og bjargvættir rétt fyrir jól til að stoppa í götin. Með þessum stjórnarháttum komumst við einfaldlega ekkert áfram. Skoðun 12. desember 2022 11:31