Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo. Innlent 15. maí 2022 03:50
Lokatölur úr Garðabæ: Áfram hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum. Innlent 15. maí 2022 03:39
Lokatölur úr Mosfellsbæ: Ótrúlegt gengi Framsóknar Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt. Innlent 15. maí 2022 03:34
Lokatölur úr Reykjanesbæ: Meirihlutinn styrkti stöðu sína Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu. Innlent 15. maí 2022 03:20
Opin fyrir samstarfi með Framsóknarflokknum Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, segist vera opin fyrir því að starfa með Framsókn í borgarstjórn ef núverandi samstarfsflokkar missa meirihluta sinn. Samkvæmt fyrstu tölum er meirihluti Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna fallinn en Píratar bæta þó við sig manni. Innlent 15. maí 2022 03:16
„Þetta er klárlega ekki það sem við stefndum að“ Skúli Helgason og Heiða Björg Hilmisdóttir, frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík, útiloka ekki meirihlutasamstarf með Sósíalistaflokknum eða Framsóknarflokknum. Fyrstu tölur séu ekki það sem stefnt var að en tækifærin eru mörg. Innlent 15. maí 2022 03:05
Segir félagslegt húsnæði skilyrði og útilokar Viðreisn Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, segist ekki geta hugsað sér að vinna í meirihlutasamstarfi með Viðreisn og hún setur aukið félagslegt húsnæði sem skilyrði. Innlent 15. maí 2022 02:45
Ekki úrslitaatriði að halda í borgarstjórastólinn Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar, lagði áherslu á það að nóttin væri enn ung þegar hann talaði við stuðningsmenn sína eftir fyrstu tölur í Reykjavík. Innlent 15. maí 2022 02:40
Lokatölur úr Fjallabyggð: Nýr meirihluti í pípunum Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa. Innlent 15. maí 2022 02:35
Lokatölur frá Sveitarfélaginu Hornafirði: Meirihluti Framsóknar fallinn Framsókn missir tvo fulltrúa og Sjálfstæðisflokkur bætir við sig einum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Innlent 15. maí 2022 02:30
Lokatölur úr Norðurþingi: Meirihlutinn heldur Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Samfylkingar heldur í Norðurþingi. Innlent 15. maí 2022 02:20
Lokatölur frá Grindavík: Miðflokkurinn nær flestum inn Miðflokkurinn nær þremur fulltrúum inn í Grindavík. Innlent 15. maí 2022 02:10
Hildur hæstánægð með fyrstu tölur í Reykjavík „Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn. Og það sem meira er, Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjavík,“ sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, við mikil fagnaðarlæti eftir að fyrstu tölur voru kynntar í Reykjavík. Innlent 15. maí 2022 02:09
Í-listinn með hreinan meirihluta samkvæmt fyrstu tölum Í- listi Ísafjarðarbæjar hlýtur skínandi góða kosningu samkvæmt fyrstu tölum og eru með hreinan meirihluta. Nóttin er auðvitað ung og endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. Innlent 15. maí 2022 02:09
Lokatölur frá Ölfusi: Meirihlutinn heldur Á kjörskrá í Ölfusi 1.811. Sjö bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Innlent 15. maí 2022 02:00
Meirihlutinn fallinn og Einar í skýjunum Miðað við fyrstu tölur í Reykjavík er meirihlutinn fallinn. Samkvæmt sömu tölum er Framsóknarflokkurinn ótvíræður sigurvegari kosninganna. Innlent 15. maí 2022 01:58
Lokatölur úr Skagafirði: Meirihlutinn heldur Fimm fulltrúa meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar heldur í Skagafirði. Innlent 15. maí 2022 01:50
Gríðarleg stemning og eftirvænting hjá Pírötum Oddviti Pírata í Reykjavík segir stemninguna á kosningavöku flokksins vera gríðarlega. Biðin eftir fyrstu tölum í Reykjavík sé þó erfið. Innlent 15. maí 2022 01:40
Lokatölur frá Seltjarnarnesi: Sjálfstæðisflokkur tryggði sér áframhaldandi meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi tryggði sér fjóra fulltrúa, líkt og í síðustu kosningum. Innlent 15. maí 2022 01:30
Útskýrir tafirnar á fyrstu tölum í Reykjavík Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík, segir ýmsar ástæður fyrir miklum töfum á fyrstu tölum úr Reykjavík en upphaflega var gert ráð fyrir því að þær yrðu tilkynntar um miðnætti. Innlent 15. maí 2022 01:12
Lokatölur úr Borgarbyggð: Framsókn komin með hreinan meirihluta Lokatölur eru komnar úr Borgarbyggð og er Framsóknarflokkurinn með hreinan meirihluta. Innlent 15. maí 2022 01:10
Telur talsverðar líkur á því að meirihlutinn falli Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, telur það vera fimmtíu prósent líkur á að meirihlutinn falli í Reykjavík. Hann skilur ekki töf á fyrstu tölum í kjördæminu þegar talningin virðist ekki vera vandi annars staðar á landinu. Innlent 15. maí 2022 01:06
Óttast ekki að Framsókn snúi við sér baki Miðað við fyrstu tölur missir Sjálfstæðisflokkurinn einn mann úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Oddviti listans segir þó að um varnarsigur sé að ræða. Innlent 15. maí 2022 01:02
Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks heldur Framsókn missir einn fulltrúa í Dalvíkurbyggð en meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks heldur. Innlent 15. maí 2022 00:50
Lokatölur úr Hveragerði: Sjálfstæðisflokkur missir meirihlutann Lokatölur eru komnar úr Hveragerði og Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur fulltrúum. Innlent 15. maí 2022 00:40
Spennan magnast hjá Samfylkingunni í biðinni löngu Heiða Björg Hilmisdóttir, sem skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir stemninguna á kosningavöku flokksins í Iðnó vera góða. Innlent 15. maí 2022 00:34
Lokatölur á Akranesi: Framsókn stal manni frá Sjálfstæðisflokknum Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. Innlent 15. maí 2022 00:30
Oddvitarnir yfirgefa Efstaleiti vegna tafa á fyrstu tölum Oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Reykjavík hafa yfirgefið höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins í Efstaleiti vegna tafa á fyrstu tölum í Reykjavík. Til stóð að tilkynna fyrstu tölur í höfuðborginni á miðnætti en ljóst er að einhver töf verður á því. Innlent 15. maí 2022 00:29
Lokatölur úr Suðurnesjabæ: Meirihlutinn fallinn Framsóknarflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa í Suðurnesjabæ og er því kominn í lykilstöðu. Innlent 15. maí 2022 00:25
Veðjaði í fyrsta skiptið á sigur Sjálfstæðisflokksins Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru í miklum gír á Hilton í kvöld. Fyrstu tölur hafa enn ekki borist í Reykjavík en gestir eru þó vongóðir. Innlent 15. maí 2022 00:09