D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Flokkarnir hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2024. Innlent 23. maí 2026 16:53
Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. Innlent 22. maí 2026 20:32
Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag. Innlent 22. maí 2026 19:08
„Þetta parísarhjól sökkar“ Fréttir af því að parísarhjól á Miðbakka muni líklega rísa á ný hafa fallið í grýttan jarðveg. Margir undra sig á ákvörðun borgarinnar um að ganga til viðræðna við rekstraraðila hjólsins og syrgja körfuboltavöllinn og hjólabrettasvæðið sem var þar áður. Formaður borgarráðs segir að ekki hafi fundist tími til að finna eitthvað annað fyrir svæðið og að tilvonandi meirihluti hafi ekki sett sig upp á móti framlengingunni. Menning 22. maí 2026 16:31
Nýr meirihluti í Hörgársveit G-listi Grósku og H-listi Hörgársveitar hafa myndað meirihluta í Hörgársveit. Snorri Finnlaugsson heldur áfram sem bæjarstjóri. Innlent 22. maí 2026 14:18
Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur boðið Viðreisn til formlegra meirihlutaviðræðna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna um liðna helgi. Innlent 22. maí 2026 13:25
Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref. Innlent 22. maí 2026 13:20
Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Von er á tíðindum frá Mosfellsbæ í dag varðandi meirihlutaviðræður í næstu bæjarstjórn samkvæmt oddvita Sjálfstæðisflokksins sem vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni hittir oddvita Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í dag. Innlent 22. maí 2026 13:05
Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn hafa myndað saman meirihluta fyrir kjörtímabilið í Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Innlent 22. maí 2026 13:04
Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði furðar sig á því að enginn hafi nálgast flokkinn í meirihlutaviðræðum í bænum. Hann segist velta fyrir sér hvort ástæðan sé fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB en viðurkennir að það sé ekki spennandi að vera síðasti valkosturinn í samstarfi. Innlent 22. maí 2026 12:50
Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Svo virðist sem parísarhjólið muni rísa á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í þriðja sinn í sumar. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af svæðinu til að reka parísarhjól, þrátt fyrir mótmæli Samfylkingar. Innlent 22. maí 2026 11:13
Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að áður en viðræðum var slitið við Framsókn hafi samningar tekist um að Valdimar Víðisson yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þeir hafi handsalað það að halda viðræðum áfram daginn eftir, en svo hafi skrítin atburðarás farið af stað sem lauk með því að Sjálfstæðisflokkur sleit viðræðum. Innlent 22. maí 2026 10:25
Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Fundi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er lokið en mikil leynd ríkir yfir því hvað kom fram á fundinum. Hildur hefur ekki boðað annan fund sem stendur. Innlent 21. maí 2026 17:56
Vilhjálmur verður bæjarstjóri Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs. Innlent 21. maí 2026 17:34
„Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði og bæjarstjóri segir af og frá að hann hafi sett upp leikrit og komið óheiðarlega fram í meirihlutaviðræðum. Hann hafi komið fram af heilindum og komið því á framfæri við oddvita Sjálfstæðisflokksins í morgun. Framsókn sé enn reiðubúin í meirihlutaviðræður verði þess óskað. Innlent 21. maí 2026 16:41
Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Fundur kjörinna borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hófst um tuttugu mínútur yfir þrjú. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fundaði með oddvitum Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokks í gær. Innlent 21. maí 2026 16:11
Hyggjast halda samstarfinu áfram Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur hafa formlega hafið viðræður um myndun meirihluta í Múlaþingi. Flokkarnir hafa unnið saman síðustu kjörtímabil. Innlent 21. maí 2026 15:46
Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði segir samstarf við Framsókn ekki lengur spennandi kost vegna meints trúnaðarbrests oddvita flokksins. Þá segir hún erfitt að sjá fyrir sér meirihluta með Miðflokki. Möguleikar Framsóknar á að komast í meirihluta í bænum virðast því úti. Innlent 21. maí 2026 14:49
Kristinn verður áfram bæjarstjóri Í Snæfellsbæ var Sjálfstæðisflokkurinn einn í framboði og var því sjálfkjörið í sveitarstjórn. Til að fagna kjördeginum og gera fólki dagamun hélt framboðið kosningakaffi á kjördag. Innlent 21. maí 2026 14:17
Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Valdimar Víðisson og bæjarfulltrúar Framsóknar hafna alfarið þeim fullyrðingum sem fram hafa komið um meintan trúnaðarbrest af hálfu Framsóknar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 21. maí 2026 14:06
Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Berglind Guðmundsdóttir verður bæjarstjóri á Akureyri og Óðinn Svan Óðinsson verður formaður bæjarráðs. Þetta er meðal þess sem kynnt var á blaðamannafundi nýs meirihluta L-lista, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í dag. Innlent 21. maí 2026 13:42
Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun boða borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun. Innlent 21. maí 2026 12:31
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um meirihlutasamstarf í bænum vegna alvarlegs trúnaðarbrests. Innlent 21. maí 2026 11:51
Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Listi Samfélagsins, Z-listinn fékk flest atkvæði í Mýrdalshreppi. Listinn fékk 58,1 prósent atkvæða og þrjá sveitarstjórnarfulltrúa af fimm. Innlent 21. maí 2026 10:20
Guðbjörg með flest atkvæði og flestir vilja sameinast Stykkishólmi Guðbjörg Gunnarsdóttir hlaut flest atkvæði til sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi á laugardaginn. Þar fóru fram óbundnar kosningar og voru því allir íbúar í framboði. Samhliða kosningunum fór fram könnun til að kanna hug íbúa til mögulegrar sameiningar. Innlent 21. maí 2026 07:38
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. Lífið 21. maí 2026 07:02
Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu. Innlent 20. maí 2026 22:25
Ein breyting í sveitarstjórn Kaldrananeshrepps Finnur Ólafsson fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum í Kaldrananeshreppi. Gengið var til óhlutbundinna kosninga. Innlent 20. maí 2026 21:14
Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn í Reykjanesbæ hafa náð samkomulagi um nýjan meirihluta. Samkomulagið verður undirritað á morgun. Innlent 20. maí 2026 19:31
Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er sögð verða næsti bæjarstjóri. Innlent 20. maí 2026 16:02