Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum, en nokkur minni snjóflóð hafa verið að falla á svæðinu. Ekkert þeirra hefur þó náð niður á veg. Innlent 22. janúar 2021 18:16
„Það er ekki hægt að ætla neinu nútímasamfélagi að lifa við þetta“ Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir Siglfirðinga orðna langþreytta á lokunum með tilheyrandi raski á atvinnustarfsemi. Það sé allt of algengt að íbúar verði innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Eina lausnin séu jarðgöng. Innlent 22. janúar 2021 12:11
Snjóflóð féll fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð Í morgun féll lítið snjóflóð á varnarþil fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð sem liggur á milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Innlent 22. janúar 2021 11:26
Gular viðvaranir vegna norðanhríðar: Skafrenningur, lítið skyggni og snjóflóðahætta Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna norðanhríðar á norður- og austurhluta landsins. Viðvaranirnar taka gildi klukkan níu nú fyrir hádegi og gilda til miðnættis annað kvöld. Þær gilda í eftirfarandi landshlutum: Innlent 22. janúar 2021 07:15
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. Innlent 21. janúar 2021 17:46
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. Innlent 21. janúar 2021 14:14
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. Innlent 21. janúar 2021 12:35
Köldu norðlægu áttirnar ekkert að gefa eftir Köldu norðlægu áttirnar með ofankomu fyrir norðan og austan eru ekkert að fara að gefa eftir næstu daga. Einna helst er að sjá að hiti nái að skríða yfir frostmark syðst á landinu. Veður 21. janúar 2021 07:41
Skíðaskáli Siglfirðinga færðist úr stað í snjóflóði Snjóflóð féll á skíðasvæðinu á Siglufirði, sennilega í morgun. Egill Rögnvaldsson svæðisstjóri skíðasvæðisins segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að átta sig á umfangi flóðsins en mikill skafrenningur er á svæðinu og þurftu menn frá að hverfa. Innlent 20. janúar 2021 11:54
Kuldinn bítur í kinnar í stífri norðanáttinni Það verður í grófum dráttum sama veður út vikuna og er hann lagstur í ákveðna norðanátt eins og það er orðað í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 20. janúar 2021 07:05
Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi. Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag utan þéttbýlis og hefur Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarvegi verið lokað. Innlent 19. janúar 2021 21:56
„Í vikulokin ætti að hafa bætt vel í snjóinn norðan- og austanlands“ Í dag og á morgun er útlit fyrir norðlæga átt á landinu með strekkingi eða allhvössum vindi víða, jafnvel hvassari á stöku stað í vindstrengjum við fjöll að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19. janúar 2021 07:21
Norðanáttin ríkjandi á landinu næstu daga Það verður norðaustan kaldi eða stinningskaldi á landinu í dag og mun norðanáttin vera ríkjandi á landinu næstu daga að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 18. janúar 2021 06:51
Norðanátt sem ríkir fram að næstu helgi Í dag verður vestlæg eða breytileg átt á landinu. Víðast hvar verður hún hæg en þó allt að 13 metrar á sekúndu austast á landinu, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Innlent 17. janúar 2021 07:31
Búast ekki við að rýmingu verði aflétt strax Rýming er enn í gildi á Seyðisfirði og fylgjast sérfræðingar náið með stöðunni. Talsverðri úrkomu var spáð á Seyðisfirði í nótt en var hún þó minni en búist var við. Sérfræðingar gera allt eins ráð fyrir því að úrkoman gæti orðið meiri í dag. Innlent 16. janúar 2021 10:17
Sveimandi lægð stjórnar veðri helgarinnar Veðri helgarinnar er stjórnað af lægð sem sveimar um landið. Sökum nálægðar hennar við landið er veður fjölbreytt á landinu, austlæg átt og rigning austanlands framan af degi en breytilegar áttir í öðrum landshlutum. Innlent 16. janúar 2021 07:38
Gul viðvörun á Austfjörðum vegna mikillar rigningar Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. Viðvörunin tekur gildi klukkan eitt í nótt og stendur til klukkan þrjú síðdegis á morgun, laugardag. Þá á að draga úr úrkomuákefð. Innlent 15. janúar 2021 07:03
Ekki talið að hreyfingar hafi orðið á jarðlögum á Seyðisfirði Ekki er talið að sprunga í skriðusári skriðunnar, sem féll þann 18. desember á Seyðisfirði, hafi stækkað en tilkynning þess efnis barst í dag. Hreinsunarvinna hafði verið í gangi á áhrifasvæði skriðunnar en henni var hætt af öryggisástæðum vegna mögulegrar hreyfingar í skriðunni. Innlent 14. janúar 2021 19:57
Fljúgandi hálka á götum borgarinnar Fljúgandi hálka er á höfuðborgarsvæðinu og ættu ökumenn og aðrir vegfarendur því að fara mjög varlega nú í morgunsárið. Innlent 14. janúar 2021 06:48
„Umhleypingar næstu daga og lítið um vetrarstillur“ Það verða umhleypingar í veðrinu næstu daga og lítið um vetrarstillur að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 14. janúar 2021 06:38
Mild og vætusöm suðaustanátt og víða hvöss Útlit er fyrir fremur milda og vætusama suðaustanátt í dag og víða hvassa. Seinnipartinn fer svo að lægja og dregur jafnframt talsvert úr úrkomu, fyrst um landið vestanvert. Veður 13. janúar 2021 07:28
Vindur vaxandi af austri og hlýnar Eftir nokkra bjarta og kalda daga um landið sunnanvert fer vindur nú vaxandi af austri og suðaustri og þykknar upp. Vindur verður á bilinu þrettán til tuttugu suðvestantil í kvöld þar sem hvassast verður syðst. Veður 12. janúar 2021 07:16
Norðlæg átt og frost á bilinu tvö til tíu stig Von er á norðlægri eða breytilegri átt í dag og strekkingi austast fram eftir degi en gola eða kalda annars staðar. Léttskýjað verður á Suður- og Vesturlandi, en dálítil él norðaustanlands. Frost yfirleitt á bilinu tvö til tíu stig. Veður 11. janúar 2021 07:39
Festi undurfalleg eftirköst óveðursins fyrir austan á filmu Mikið aftakaveður var á Austurlandi í gær og voru appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Í gærmorgun mældist vindur þar á bilinu 28 til 32 metrar á sekúndu auk þess sem íbúar fundu fyrir 10 til 12 stiga frosti og snjókomu. Innlent 10. janúar 2021 19:31
Farið í yfir 60 verkefni í aftakaveðri á Austurlandi Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Innlent 9. janúar 2021 18:33
Vestanverðum Neskaupstað lokað fyrir umferð vegna aftakaveðurs Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Búist er við því að veðrið taki að lægja eftir miðnætti en þangað til verður ekkert ferðaveður. Innlent 9. janúar 2021 16:22
„Hér er snarvitlaust veður“ Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Bátar hafa losnað frá bryggju, rúður sprungið og þakklæðningar losnað. Innlent 9. janúar 2021 12:55
Ekkert ferðaveður á Austurlandi í dag Mjög slæmt veður er á austurhelmingi landsins og hríð á norðausturfjórðungnum. Appelsínugular viðvaranir eru í gildi á meðan ofsaveðrið gengur yfir, en búist er við að það taki að lægja eftir miðnætti. Innlent 9. janúar 2021 10:05
Appelsínugular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi að stórum hluta landsins í nótt. Appelsínugular viðvaranir eru á miðhálendi og austurhluta landsins og ekkert ferðaveður. Innlent 8. janúar 2021 21:39
Appelsínugul viðvörun á stórum hluta landsins Almannavarnir vekja athygli á því að Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Norðausturlandi, Austurlandi, Austfjörðum, Suðausturlandi og á miðhálendinu sem tekur gildi klukkan tvö í nótt og gildir til klukkan 18 á morgun. Innlent 8. janúar 2021 13:57