Vogar

Vogar

Mannfjöldi: 1.741 (2025). Flatarmál: 164 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex

Áhrifavaldurinn Axel Máni lagði af stað skríðandi til Bessastaða frá Njarðvík á mánudaginn og var ætlunin að skríða þessa sirka 45 kílómetra á þremur dögum. Hins vegar skaddaðist Axel svo illa á höndum að verknaðurinn mun taka allavega sex daga.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Meiri hveralykt af vatninu vegna við­halds og við­gerðar

Tímabundið getur verið meiri hveralykt af vatni en venjulega í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum vegna íblöndunar súlfíts í heita vatnið. Íblöndunin er vegna viðhalds og viðgerðar HS Orku á búnaði sínum á Fitjum í Reykjanesbæ. Fólk sem viðkvæmt er fyrir súlfíti í matvælum er bent á að heita vatnið sé ekki ætlað til neyslu eða til matreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Blása í lúðra vegna at­vinnu­leysis á Suður­nesjum

Vinnumálastofnun hvetur atvinnuleitendur á Suðurnesjum til að leita til sín. Skráð atvinnuleysi á svæðinu mælist nú yfir 6,5 prósent. Þróunin gefi tilefni til markvissra aðgerða af hálfu Vinnumálastofnunar í samræmi við lög um atvinnuleysistryggingar og um vinnumarkaðsaðgerðir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Heitavatnslaust á Suður­nesjum og raf­magns­laust víða um land

Heitavatnslaust varð víða á Suðurnesjum í kvöld eftir að dælustöð fyrir heita vatnið sló út vegna rafmagnstruflunar. Truflunin varð þegar tenging HS Veitna við Landsnet sló út fyrr í kvöld sem jafnframt olli rafmagnsleysi í Grindavík, Vestfjörðum og víðar í dreifikerfinu. 

Innlent
Fréttamynd

Allt stopp á lokametrunum

Framkvæmdir við loftlínuhluta Suðurnesjalínu 2 eru nú í biðstöðu á meðan beðið er niðurstöðu í dómsmálum sem tengjast verkefninu. Verkefnastjóri segir þetta hafa áhrif á raforkuöryggi á Suðurnesjum en til stóð að taka hana í notkun nú í haust.

Innlent
Fréttamynd

Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum

Það mun allt iða af lífi og fjöri í Vogunum um helgina því þar eru haldnir fjölskyldudagar með fjölbreytti dagskrá. Væb bræður munu meðal annars skemmta, ásamt Páli Óskari svo eitthvað sé nefnt. Kvöldið í kvöld endar svo með glæsilegri flugeldasýningu í umsjón Björgunarsveitarinnar Skyggnis.

Innlent
Fréttamynd

Eldri borgarar í Vogum leiddu knatt­spyrnu­menn inn á völlinn

Eldri borgurum í Vogum á Vatnsleysuströnd þótti það mikill heiður þegar þeim var boðið að leiða leikmenn knattspyrnudeildar Þróttar inn á völlinn á móti Víði í Garði í gærkvöldi. Venjan er að börn leiði leikmenn inn á völlinn. Tveir af eldri borgurum mættu með göngugrindurnar sínar á völlinn og þótti það ekki til töku mál.

Innlent
Fréttamynd

Loft­gæði mun betri á höfuð­borgar­svæðinu

Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu mælast töluvert betri í dag en í gær. Enn er þó svifryksmengun yfir Reykjanesskaga og á Ísafirði mælast loftgæði óholl. Á miðvikudag gæti síðan aftur farið að byggjast upp mengun á gosstöðvunum vegna hægs vinds.

Innlent
Fréttamynd

Hval­reki í Vogum

Hval rak á land við Voga á Vatnsleysuströnd síðdegis í dag. Að sögn Guðrúnar Óskar Barðadóttur er hvalurinn rétt fyrir neðan byggð.

Innlent
Fréttamynd

Kæmi mér ekki á ó­vart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið

Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að eldgosið í nótt hafi ekki komið á óvart þar sem mælingar á landrisi hafi sýnt að gos gæti hafist um þetta leyti. Hann spáir því að verulega muni draga úr eldgosinu á næstu klukkstundum og telur að það geti orðið það síðasta á Sundhnúkareininni.

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­ráð Voga vill gera ráð fyrir flug­velli í Hvassahrauni

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga vill að við gerð svæðisskipulags Suðurnesja fyrir tímabilið 2024 til 2040 verði tekið jákvætt í tillögu starfshóps innviðaráðuneytis um að svæði í Hvassahrauni verði tekið frá undir framtíðarflugvallarstæði. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs síðastliðinn miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Sig­ríður svarar gagn­rýni á störf lög­reglunnar á Suður­nesjum

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift.

Innlent