Ók niður fólk í New York í kjölfar ágreinings Einn er látinn og þrír alvarlega slasaðir eftir að ökumaður ók fólkið niður í New York. Lögreglan leitar mannsins en ekki er talið að atvikið tengist hryðjuverkum. 3.12.2017 12:30
Einn alvarlega særður eftir stunguárás á Austurvelli Maður hefur verið handtekinn fyrir að stinga tvo menn á Austurvelli snemma í morgun. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi en var handtekinn í Garðabæ skömmu síðar. 3.12.2017 11:41
Bandaríkin hætta þátttöku í sáttmála um flótta- og farandfólk Áfram heldur ríkisstjórn Donalds Trump að draga sig í hlé í alþjóðasamstarfi. 3.12.2017 10:37
Líkurnar á stríði við Norður-Kóreu fara vaxandi Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna segir Hvíta húsið í kapphlaupi við tímann að finna lausn á kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. 3.12.2017 09:44
Fréttamaður ABC settur í straff eftir ranga frétt um Flynn Frétt ABC um hvað fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump væri tilbúinn að bera vitni um var leiðrétt á föstudag. Fréttamaðurinn hefur nú verið settur í launalaust leyfi. 3.12.2017 08:35
Lögregla og mótmælendur tókust á við fund þýsks öfgaflokks Harðlínumenn voru kjörnir til forystu þýska öfgahægriflokksins Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) á meðan lögregla beitti vatnsþrýstibyssu og piparúða gegn mótmælendum fyrir utan fundarstaðinn. 3.12.2017 08:18
Sif Gunnarsdóttir ráðin skrifstofustjóri menningarmála borgarinnar Skrifstofustjórinn vinnur meðal annars að undirbúningu helstu hátíða Reykjavíkurborgar eins og Menningarnótt. 3.12.2017 07:41
Mueller veik FBI-manni til hliðar vegna skilaboða um Trump Alríkislögreglumaður sem vann við rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa skipst á skilaboðum við hjákonu sína sem túlka mætti sem neikvæð um Trump forseta. 3.12.2017 07:21
Trump eftir nýjustu ákæruna: „Alls ekkert samráð“ Fjórir starfsmenn forsetaframboðs Donalds Trump hafa verið ákærðir. Trump fullyrðir að ekkert samráð hafi átt sér stað við Rússa í kosningabaráttunni. 2.12.2017 14:51