Vísindi
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 52 ›
Stefnir í hlýjasta árið frá upphafi eftir funheita sumarmánuði Vaxandi líkur er á því að árið í ár verði það hlýjasta frá upphafi mælinga eftir fordæmalaust heita júní- og júlímánuði. Veðurfyrirbrigðið El niño í Kyrrahafi og hnattræn hlýnun af völdum manna leggjast nú á eitt um að þrýsta meðalhita jarðar upp í nýjar hæðir. Erlent 8.8.2023 09:32
Rannsaka áhrif hraunsins á innviði undir og yfir yfirborði Vísindamenn við Háskóla Íslands bíða þess nú að hraun renni yfir tilraunasvæði nærri Litla-Hrút en þar á að kanna hvaða áhrif hraunið hefur á mikilvægi innviði sem liggja ofan í jörðu og eru ofan hennar. Aldrei hafa slíkar rannsóknir verið gerðir áður. Innlent 1.8.2023 19:01
Endurlífguðu orm sem hafði verið frosinn í 46 þúsund ár Vísindamönnum hefur tekist að þíða og endurlífga þráðorma sem höfðu legið frosnir í síberískum sífrera í um 46 þúsund ár. Ormarnir eru taldir hafa verið uppi á ísöld, á sama tíma og loðfílar og sverðtígrar. Erlent 29.7.2023 09:28
Segir Ísland núna besta stað í heimi til að rannsaka eldgos Nýsjálenskur eldfjallafræðingur við Háskólann á Hawaii, sem kom sérstaklega til að fylgjast með Reykjaneseldum, segir Ísland besta stað í heimi um þessar mundir til að rannsaka eldgos. Hér gefist stórkostlegt tækifæri til að skýrari mynd af hraungosum. Innlent 26.7.2023 09:56
Steinbítur leyfði kafara að setja sýnatökupinna upp í sig Eftir covid-faraldurinn er landsmönnum eflaust flestum enn í minni hvernig var að láta stinga pinna upp í sig til sýnatöku. En hvernig skyldi steinbítur bregðast við slíku? Kafarinn Erlendur Bogason ákvað að prófa sömu aðferð til að ná DNA-sýni úr svokölluðum grábít til að fá úr því skorið hvort hann væri í raun steinbítur eða sérstök tegund. Innlent 22.7.2023 23:40
Nýtt lyf gegn Alzheimer's sagt marka tímamót Nýtt lyf er sagt marka tímamót í baráttunni gegn Alzheimer's sjúkdómnum eftir að niðurstöður lyfjarannsóknar gáfu til kynna að það hægi á hnignun heilans. Erlent 17.7.2023 16:48
Varnargalli úr kísilveri nýtist vel við eldgosarannsóknir Eins og flestir vita er hraunið sem nú kemur upp úr jörðinni við Litla-Hrút mjög heitt. Jarðvísindamenn þurfa þó að fara alveg upp að því til þess að taka mikilvæg sýni og þá er eins gott að vera klæddur góðum varnargalla. Innlent 14.7.2023 12:33
Heitasti staki dagurinn frá upphafi mælinga Bráðabirgðatölur benda til þess að mánudaginn 3. júlí hafi verið heitasti einstaki dagur á jörðinni frá því að mælingar hófust. Meðalhiti jarðar fór þá í fyrsta skipti yfir sautján gráður. Hlýindin eru að hluta til knúin af sterkum El niño-atburði í Kyrrahafinu. Erlent 5.7.2023 09:50
Bein útsending: Hljóta Íslendingar evrópsku nýsköpunarverðlaunin? Evrópsku nýsköpunarverðlaunin verða veitt í dag og kemur það þá í ljós hvort íslenskir vísindamenn hljóti þau. Sýnt er frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu frá Valencia á Spáni. Viðskipti innlent 4.7.2023 10:14
Fólk á suðvesturhorninu má búa sig undir reglulega jarðskjálfta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið í Reykjanesskaga gæti breytt sýn fólks á eldstöðvakerfin. Sífellt styttist í næsta gos og íbúar megi búa sig undir að búa við jarðskjálfta. Innlent 3.7.2023 18:03
Evklíð ætlað að afhjúpa hulduöfl alheimsins Nýr evrópskur geimsjónauki sem verður skotið á loft í dag á að hjálpa vísindamönnum að skilja dulin og leyndardómsfull öfl sem halda vetrabrautum saman og valda sívaxandi útþenslu alheimsins. Athuganir hans gætu varpað ljósi á ýmsar brýnustu spurningar heimsfræðinnar. Erlent 1.7.2023 13:00
Heyrðu öldunið þyngdarbylgna sem ganga um alheiminn Alheimurinn er fullur af þyngdarbylgjum sem ganga um tímarúmið samkvæmt niðurstöðum fimmtán ára langrar og byltingarkenndrar rannsóknar alþjóðlegs hóps vísindamanna. Uppgötvunin á þessum þyngdarbylgjubakgrunni alheimsins er sögð hjálpa fræðimönnum að skilja hvernig vetrarbrautir myndast og þróast. Erlent 29.6.2023 09:30
Fann hornstein lífrænnar efnafræði í sólkerfi í fæðingu Kolefnissameind sem er talin hornsteinn lífrænnar efnafræði fannst í fyrsta skipti í fjarlægu sólkerfi sem er verða til með athugunum James Webb-geimsjónaukans. Rannsóknin á frumsólkerfisskífunni er einnig sögð sýna fram á þátt útfjólublárrar geislunar í lífvænleika nýrra sólkerfa. Erlent 27.6.2023 12:21
Elsti maðurinn til að hljóta Nóbelsverðlaun er látinn Bandaríski eðlisfræðingurinn John B. Goodenough er látinn, hundrað ára að aldri. Goodenough var einn þriggja sem hlaut Nóbelsverðlaun í eðlisfræði árið 2019 fyrir þróun liþíumrafhlaða og varð þar með elsti maðurinn til að hljóta Nóbelsverðlaun. Erlent 27.6.2023 10:23
Sýna hvernig geimvera skaðar ónæmiskerfið Virkni hvítra blóðfruma sem leika lykilhlutverk í ónæmiskerfi manna minnkaði í geimförum um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Ný rannsókn sýnir í fyrsta skipti hvernig ónæmiskerfi manna veikist í þyngdarleysi í geimnum. Erlent 22.6.2023 12:24
Ein af hverjum fimm verður ólétt án aðstoðar eftir ófrjósemismeðferð Um það bil ein af hverjum fimm konum sem fær aðstoð við að verða þunguð verður ólétt „á gamla mátann“ eftir að hafa áður reynt meðferðir á borð við glasafrjóvgun. Erlent 21.6.2023 12:17
Stefnir í að 75 prósent jökla í Himalaja hverfi á öldinni Vísindamenn áætla að jöklar í Himalaja- og Hindu Kush-fjallgörðunum í Mið-Asíu missi allt að 75 prósent rúmmáls síns fyrir áhrif hnattrænnar hlýnunar fyrir lok aldarinnar. Hop jöklanna er talið valda hættulegum flóðum og vatnsskorti fyrir á þriðja hundrað milljóna manna á svæðinu. Erlent 20.6.2023 14:32
Sátu um vísindamann eftir „áskorun“ Rogan og Musk Bandarískur vísindamaður segir að andstæðingar bóluefna hafi setið um heimili sitt eftir að Joe Rogan, þekktur hlaðvarpsstjórnandi, og Elon Musk, eigandi Twitter, skoruðu á hann að rökræða við forsetaframbjóðanda um ágæti bóluefna um helgina. Erlent 20.6.2023 11:38
Enginn alvöru lofthjúpur utan um lofandi fjarreikistjörnur Líkur á að lífvænlegar aðstæður finnist í Trappist-sólkerfinu fara þverrandi eftir að rannsóknir James Webb-geimsjónaukans bentu til þess að þykkan lofthjúp sé ekki að finna á tveimur af sjö bergreikistjörnum þar. Fundur reikistjarnanna vakti athygli á sínum tíma þar sem þær eru nær allar á stærð við Venus. Erlent 20.6.2023 10:09
Lykilhráefni lífs í neðanjarðarhafi tungls Satúrnusar Ofgnótt af frumefninu fosfór, sem er nauðsynleg byggingareining lífs eins og við þekkjum það, er líklega að finna í neðanjarðarhafi undir ísskorpi Enkeladusar, tungls Satúrnusar. Efnasambönd sem innihalda frumefnið fundust í einum hringja Satúrnusar sem íshverir Enkeladusar fóðra. Erlent 15.6.2023 20:02
Notuðu hvorki sæði né egg við gerð fósturvísa Vísindamenn við Cambridge háskóla í Bretlandi hafa ræktað fósturvísa úr stofnfrumum, alfarið án þess að nota sáðfrumur eða egg. Þróunin er talin vekja upp erfið siðferðis- og lagaleg álitamál. Erlent 14.6.2023 19:28
Oculis valið Þekkingarfyrirtæki ársins 2023 Augnlyfjaþróunarfélagið Oculis hlaut í síðustu viku verðlaun sem Þekkingarfyrirtæki ársins. Það er Félag viðskipta- og hagfræðinga sem veitir verðlaunin fyrir nýsköpun byggða á íslensku hugviti í þágu bættra lífsgæða og lausna á samfélagslegum áskorunum. Viðskipti innlent 12.6.2023 11:27
Fundu erfðabreytu sem hefur áhrif á tónhæð raddar Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar á upptökum af tali um þrettán þúsund Íslendinga varpar ljósi á erfðabreytu sem hefur áhrif á hversu djúp eða há röddin er. Erfðabreytan er sú fyrsta sem vitað er að hafi áhrif á tónhæð að sögn vísindamanns. Innlent 11.6.2023 15:00
Segja prímata hafa stundað sjálfsfróun í 40 milljón ár Þróunarfræðingar segja sjálfsfróun hafa verið iðkaða meðal prímata fyrir allt að 40 milljón árum síðan. Þeir hafa kortlagt hegðunina meðal núlifandi prímata en segja enn óljóst hvaða þróunarfræðilega tilgangi hún hefur þjónað. Erlent 7.6.2023 08:26
Stærsti „garðúðari“ sólkerfisins við Satúrnus Hátt í tíu þúsund kílómetra langur vatnsstrókur frá Enkeladusi, ístungli Satúrnusar, sést teygja sig um reikistjörnukerfið eins og gusa úr garðúðara á nýlegum myndum James Webb-sjónaukans. Aldrei áður hefur slíkur strókur sést spanna svo miklar vegalengdir. Erlent 1.6.2023 15:18
Synd að eina náttúrugripasýningin verði í skötulíki Finnur Ingimarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs, óttast að starfsemi eina náttúrugripasafnsins á höfuðborgarsvæðinu verði í skötulíki eftir að öllu starfsfólki var sagt upp. Innlent 28.5.2023 14:00
Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi. Skoðun 28.5.2023 07:01
Gervigreind gæti sparað tíma og pening í heilsugæslunni Ný rannsókn fjögurra íslenskra vísindamanna sýnir að gervigreind getur aðstoðað við að raða sjúklingum eftir einkennum. Einkenni margra ganga yfir af sjálfu sér án inngrips á heilsugæslu. Innlent 26.5.2023 15:43
Forsvarsmenn OpenAI kalla eftir Alþjóðagervigreindarstofnun Stofnendur og stjórnendur OpenAI, sem eru að þróa gervigreindarforritið ChatGPT, kalla eftir því að komið verði á laggirnar stofnun á borð við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina til að vernda mannkynið frá því að þróa „ofurgáfaða“ gervigreind sem gæti tortímt mannkyninu. Erlent 24.5.2023 07:12
Fresta læknisheimsóknum og leysa ekki út lyf vegna kostnaðar Ný könnun Félagsvísindastofnunar sýnir að læknis og lyfjakostnaður sé mörgum öryrkjum um megn. Prófessor í félagsfræði segir að staðan hafi versnað síðan árið 2015. Innlent 23.5.2023 14:01