Dýr

Tíkin Irma tók að sér kettling eftir að hafa misst sjö hvolpa
"Allt er gott sem endar vel“ er málsháttur sem á sérstaklega vel við tíkina Irmu á Selfossi þessa dagana. Ástæðan er sú að hún gaut nýlega sjö hvolpum sem fæddust allir andvana.

Eltur á röndum af ungum íkorna
Lögregla í Karlsruhe í Þýskalandi fékk tilkynningu frá manni í bænum sem bað um hjálp vegna þess að íkorni elti hann á röndum. Um var að ræða íkornaunga. Maðurinn gat með engu móti hrist dýrið af sér og stóð eltingaleikurinn enn yfir þegar lögregla kom á svæðið.

Geitungarnir átt erfitt uppdráttar á suðvesturhorninu
Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, segir að geitungasumarið á suðvesturhorninu hafi verið afar dapurlegt.

Dýravinir báru eld að dýragarði
Anarkistar hafa lýst yfir ábyrgð á íkveikju sem framin var í dýragarði í Frakklandi í byrjun mánaðarins.

Tveir refir og krummi meðal dýra í Sveitagarðinum í Grafningi
Geitur, svín, kálfar, hænur, skrautdúfur, endur, refir og krummi er meðal dýra sem gestir nýs dýragarðs í Grafningi geta skoðað. Garðurinn sem heitir Sveitagarðurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur.

Bókunarrisi hættir viðskiptum við Seaworld
Bókunarþjónustan Thomas Cook mun hætta sölu á ferðum í sædýragarða þar sem finna má háhyrninga.

Tíundi nashyrningurinn dauður í kjölfar flutninga
Ellefu svartir nashyrningar voru í fyrra fluttir í þjóðgarð í Kenía en aðeins einn þeirra hefur lifað flutningana af.

Frægasti gíraffi heims með fangi
Gíraffakýrin April, líklega sú þekktasta sinnar tegundar, er með fangi á nýjan leik.

Mal katta ekki bara merki um hamingju
Þótt mal katta tákni venjulega að þeir séu hamingjusamir geta kettir líka malað til að tjá stress eða ótta þótt hið fyrstnefnda sé algengast.

Formaður loðdýrabænda til átján ára lokaði minkabúinu
Formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda síðustu átján ár er hættur loðdýrarækt. Hann kveðst þó ekki í vafa um að markaðurinn eigi eftir að rétta úr kútnum.

Segir vörslusviptingu hrossa í Þrastalundi „ástæðulausan hamagang“
Árni Stefán Árnason, lögfræðingur, gagnrýnir aðferðir dýraeftirlitsmanns hjá Matvælastofnun, MAST, þegar Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Þrastalundar var sviptur tveimur hrossum sem voru í vörslu hans í Þrastalundi.

Skildi hvolp eftir einan heima í lengri tíma
Matvælastofnun tók nýverið dýr úr vörslum umráðamanna þar sem aðbúnaður stóðst ekki þær kröfur sem eru samkvæmt lögum um velferð dýra og annars vegar reglugerðar um velferð hrossa og hins vegar reglugerðar um velferð gæludýra.


Hundsbitin hátt í 700 talsins
Á árunum 2013-2017 leituðu einstaklingar í 640 skipti aðstoðar á sjúkrahúsi eða heilsugæslu eftir að hafa verið bitnir af hundi.

Innbrotsþjófur reyndist íkorni
Lögregla var kölluð til í Harrow-hverfi í London aðfaranótt laugardags eftir að íbúi þar tilkynnti um innbrot í íbúð sína.

Kveikur í sæðingum vegna mikilla vinsælda
Stóðhesturinn Kveikur frá Stangarleik í Grímsnesi var að mörgum talin stjarna landsmóts hestamanna sem fór nýlega fram í Víðidal í Reykjavík.

Hamingjusöm hross frýsa meira en önnur
Hamingjusöm hross frýsa. Þetta eru niðurstöður franskra vísindamanna sem hafa fylgst með hestum við fjölbreyttar aðstæður til að reyna að túlka hugarástand þeirra. Eyru sem vísa fram eru líka vísbending um að hesturinn sé sáttur við lífið.

Hinn þrífætti Bangsi Ragnheiðar Gröndal enn ekki kominn í leitirnar
Ekkert hefur spurst til Bangsa, þrífætts heimiliskattar tónlistarkonunnar Ragnheiðar Gröndal, síðan í júní.

Nýkrýndur ljótasti hundur heims dauður
Megan Brainard, eigandi Zsa Zsa, greindi frá málinu í bandaríska sjónvarpsþættinum The Today Show.

Ef ekki hvítabjörn, þá „ógnvænlegasta kind allra tíma“
Leit að hvítabirninum hefur staðið yfir í dag.

Saga hvítabjarna hér á landi óblíð
Tilkynning um hvítabjörn á Melrakkasléttu um sjöleytið í gær hefur vakið mikla athygli og jafnframt vakið upp minningar um komu hvítabjarna hingað til lands.

Hræddust svo björninn að þeir gleymdu að taka mynd
Engar nýjar vísbendingar bárust í nótt um ferðir hvítabjarnar á Melrakkasléttu, í grennd við Raufarhöfn, sem greint var frá í gær.

Veitti viðtal með köttinn á öxlunum og kippti sér ekkert upp við það
Viðtal hollenska fréttaskýringarþáttarins Nieuwsuur við pólska sagn- og stjórnmálarýninn Jerzy Targalski hefur vakið mikla athygli undanfarna daga, þökk sé heimilisketti fræðimannsins.

Blaut og vindasöm sumarkvöld halda lúsmýinu í skefjum
Færri hafa orðið fyrir barðinu á flugunum í sumar en undanfarin ár.

Hvítabjörn drap Kanadamann
Kanadískur karlmaður lést eftir samskipti sín við hvítabjörn í norðurhluta landsins á þriðjudag. Maðurinn er sagður hafa fórnað lífi sínu svo að börnin hans gætu komist undan.

Kengúra á flótta í Danmörku
Lögreglan á Suður-Jótlandi í Danmörku birti í morgun nokkuð óvenjulega tilkynningu á Twitter-síðu sinni.

Norski flökkukötturinn loksins kominn heim til sín
Norski heimiliskötturinn sem kom óvænt hingað til lands sem laumufarþegi í gámi er kominn aftur til síns heima við mikinn fögnuð eigenda sinna.

Norskur landnámsköttur fær að snúa aftur heim úr víking á Íslandi
Ferfættur laumufarþegi kom ungum hjónum sem voru að flytja heim frá Álasundi í Noregi á óvart þegar þau byrjuðu að tæma gám með búðslóð sinni í gær.

Köttur sem villtist af heimili sínu í Noregi ferðaðist til Íslands í gámi
Kötturinn Pus villtist frá heimili sínu í Noregi þann 9. júní en fannst á Íslandi í gær.

Málglaða górillan Koko dauð
Górillan Koko, sem þekktust er fyrir ótrúlegt vald sitt á tungumáli manna, er dauð. Hún var 46 ára gömul.