
Ofbeldi gegn börnum

Samfélagið einkennist af spennu sem brýst út í ofbeldi
„Ég man í mínu ungdæmi, við strákarnir vorum með hnífa. Við vorum með dálka, meira að segja mjög hættulega dálka. Fengum þetta frá foreldrum í afmælisgjöf eða eitthvað slíkt. Það er ekkert nýtt að það séu hnífar í umhverfi okkar. Notuðum þá til að tálga og gera alls konar hluti en það hvarflaði ekki að okkur að beina þessu gegn öðrum. Þar er ákveðin breyting sem hefur átt sér stað.“

Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru
Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu.

Játaði á sig hundruð brota gegn 60 barnungum stúlkum
Barnaníðingur að nafni Ashley Paul Griffith hefur játað að hafa brotið gegn um það bil 60 stúlkum í Brisbane í Ástralíu og á Ítalíu á árunum 2007 til 2022. Hann hefur þegar verið dæmdur sekur en bíður þess að vera gerð refsing.

Leggja aukinn þunga í að rannsaka ásetning hins grunaða
Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði.

Drengurinn fluttur á Hólmsheiði til að tryggja öryggi hans
Sextán ára drengur sem sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa stungið þrjú á menningarnótt er nú vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir Fangelsismálastofnun ekki vista börn í fangelsum sínum nema það sé í samræmi við hagsmuni barnsins.

Þörf á fleiri lögreglumönnum á djammið í Reykjavík
Agnes Hlynsdóttir í Samtökum reykvískra skemmtistaðaeigenda og rekstrarstjóri skemmtistaðarins Lemmy segist verða vör við meira ofbeldi og vopnaburð á djamminu. Þá sé einnig töluvert um ungt fólk sem sé að reyna að smygla sér ölvað inn á skemmtistaði. Hún segir þurfa átak og meiri viðveru lögreglu í miðbænum.

Starfsfólk í skólum muni leggja þunga áherslu á að stöðva vopnaburð barna
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs í Reykjavík, hvetur foreldra til að ræða við börn sín um vopnaburð og hversu hættulegt það er að ganga með hníf á sér. Hann segir að næstu daga muni starfsfólk í skóla- og frístundastarfi leggja þunga áherslu á að stöðva hnífaburð barna.

Vilja koma í veg fyrir að börnin taki lögin í eigin hendur
Elísabet Ósk Maríusdóttir hefur verið lögreglumaður í fjögur ár og þar af þrjú sinnt svokallaðri samfélagslöggæslu. Hún sinnir því meðfram almennum löggæslustörfum einn dag í viku. Samfélagslögreglan vinnur markvisst að því að stytta boðleiðir og efla traust í nærsamfélaginu.

Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum
Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er slegin yfir lífshættulegulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.

Létu ungmenni millifæra á sig fé með ofbeldi og hótunum
Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 20. september vegna gruns um ofbeldi, hótanir og þjófnað í garð barna og ungmenna í Hafnarfirði. Mennirnir eru fæddir árin 2003 og 2005 og eru því 21 árs og 19 ára. Þá hefur sá þriðji verið vistaður vegna sama máls á Stuðlum en ekki var hægt að úrskurða hann í gæsluvarðhald sökum aldurs.

Stúlkan enn í lífshættu en rannsókn miðar vel
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir rannsókn lögreglu á stunguárás við Skúlagötu á menningarnótt miða vel og að lögregla hafi verið í nokkuð hefðbundnum rannsóknaraðferðum. Stúlkan sem var stungin er enn í lífshættu.

Forvarnir gegn ofbeldi: Samfélagsátak í upphafi skólaárs
Haustið hefur alltaf verið uppáhalds tími ársins hjá mér. Það er eitthvað við það þegar nýtt skólaárs hefst og loftið fyllist af spennu og tilhlökkun fyrir nýju upphafi, nýjum vinum og nýjum tækifærum. Haustið er hinsvegar líka mikilvægur tími til að einbeita sér að því sem er kannski minna sýnilegt en alveg jafn mikilvægt: forvörnum gegn ofbeldi.

Myrti tveggja ára dóttur sína fyrir að sinna ekki heimilisverkum
Ellen Rachel Craig, fyrrum meðlimur sértrúarsöfnuðar í Ástralíu, var í dag dæmd í níu ára fangelsi fyrir dómi í Sydney í Ástralíu fyrir að berja tveggja ára dóttur sína til bana eftir að hún hafði ekki klárað tilsett heimilisverk sín.

Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi
Karlmaður sem stendur til að vísa úr landi þarf að sæta gæsluvarðhaldi þar til brottflutningurinn er framkvæmdur. Talið er að mikil hætta sé á að hann rjúfi nálgunarbann gagnvart fjórum dætrum sínum.

Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma
Aukning hefur orðið í komum í Kvennaathvarfið síðustu mánuði og hafa rúmlega þrjátíu konur verið þar yfir sumartímann. Framkvæmdastýran telur aukningu í heimilisofbeldi ekki endilega skýringuna.

Ekki frekari þjáningar takk!
Börn eru ekki ábyrg fyrir þeim átökum og ófriði sem nú skekja löndin fyrir botni Miðjarðarhafs. Samt þjást þau vegna ástandsins og djúp sár hafa myndast á sálir barnanna – sem dýpka enn. Ekki þarf að tíunda um öll þau ungu saklausu líf sem hafa týnst í þessu brjálæði öllu.

550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan
Lögregluyfirvöld á Taílandi hafa ráðist gegn stærsta ólöglega klámhring sem vitað er um í landinu. Um 550 manns voru handteknir í tengslum við málið, sem varðar deilingar á barnaníðsefni og myndskeiðum af konum sem voru tekin án samþykkis þeirra.

Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð
Sjónvarpsmaðurinn Huw Edwards, 62 ára, hefur játað að hafa „búið til“ kynferðislegar myndir af börnum. Edwards, sem starfaði í áratugi hjá BBC og var einn þekktasti fréttalesari Bretlands, á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi.

Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum
Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja dóu í heimavistarskólum í Bandaríkjunum sem reknir voru af yfirvöldum eða trúarstofnunum. Markmiðið með vistun barnanna var að aðlaga þau hvítu samfélagi.

„Ég var búinn að byrgja allt saman inni í mörg ár“
„Mér líður þúsund sinnum betur í dag en áður, og það er vegna þess að ég byrjaði að tala um hlutina,“ segir Pétur Elvar Sigurðsson en hann leitaði til Bjarmahlíðar fyrir fimm árum til að takast á við erfið mál úr fortíðinni.

Hafa áhyggjur af auknu ofbeldi, áhættuhegðun og vopnaburði barna
Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði umtalsvert fyrstu mánuði þessa árs samanborið við í fyrra. Neikvæð áhrif kórónuveirufaraldursins, aukin vanlíðan meðal barna og samfélagsmiðlar er meðal þess sem kann að skýra þróunina að sögn forstjóra forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Þróunin sé mikið áhyggjuefni sem tilefni sé til að rannsaka betur.

Var áfram með eiginmanninum þrátt fyrir brot hans gegn dótturinni
Yngsta dóttir rithöfundarins og Nóbelsverðlaunahafans Alice Munro hefur stigið fram og greint frá því að hafa verið beitt kynferðisofbeldi af stjúpföður sínum. Hún segir móður sína hafa vitað af ofbeldinu en ákveðið að vera áfram með manninum.

Fagnar umræðu um kynfæralimlestingar barna
Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn börnum, sem tók kynfæralimlestingar á börnum meðal annars til umfjöllunar. Silja lagði fram frumvarp árið 2018 þar sem banna átti umskurð á drengjum, sem náði ekki fram að ganga.

Mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé búið undir kynfæralimlestingar á börnum
Það er mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé undirbúið fyrir fjölgun á limlestingum á kynfærum barna. Það er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis.

Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið
Karlmaður hefur hlotið átján mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, en þar af verða fimmtán mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára, vegna fjölda brota gegn konu og börnum.

Fimmtán mánaða skilorð fyrir vörslu barnaníðsefnis
Karlmaður um fimmtugt var á dögunum dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í vörslu sinni ljósmyndir og myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, og fyrir að hafa dreift slíku myndefni til ótilgreindra aðila í gegn um spjallhópa á netinu.

Refsivert að ganga í hjónaband með barni í Síerra Leóne
Barnahjónabönd voru nýlega gerð refsiverð í Sierra Leone. Markar þetta mikil tímamót þar sem í landinu er ein hæsta tíðni barnahjónabanda í heiminum. Fjörutíu prósent stúlkna undir átján ára aldri hafa verið neyddar í hjónaband í landinu.

Fjórtán aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna á blaðamannafundi í Hannesarholti í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Bein útsending: Aðgerðir kynntar gegn ofbeldi meðal barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið minna á blaðamannafund um aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna í dag kl. 13:00 í Hannesarholti að Grundarstíg 10 í Reykjavík.

Góð samskipti við börn besta forvörnin
Afbrotafræðingur segir að ákveðin hugmyndafræði sé ríkjandi meðal ungmenna sem virðist réttlæta það að beita ofbeldi við minnsta tækifæri. Góð samskipti við börn sé besta forvörnin.