Íran
1 2 3 4 5 6 7 … 20 ›
Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir meðlimi ríkisstjórnar sinnar staðráðna að gera íbúum Norður-Ísrael kleift að snúa aftur til síns heima. Að leiðtogar Hezbollah muni fljótt átta sig á stöðunni, eftir árásir sem þeir hefðu ekki getað ímyndað sér fyrir nokkrum dögum. Erlent 22.9.2024 15:02
Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Að minnsta kosti 51 er látinn og tuttugu eru særðir eftir að stór sprenging varð í kolanámu í Íran í gærkvöldi. Slysið varð í Suður-Khorasanhéraði í Íran, þar sem bróðurpartur kola er grafinn upp í landinu. Erlent 22.9.2024 13:21
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon. Erlent 16.9.2024 16:06
Lofar að svara árásum Húta af hörku Flugskeyti sem skotið var frá Jemen til Ísrael virkjuðu í morgun loftvarnaflautur á alþjóðlega flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael. Flugskeytunum var skotið í loft upp af Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen sem studdir eru af írönskum yfirvöldum. Forsætisráðherra Ísrael segir að árásunum verði svarað. Erlent 15.9.2024 12:18
Hafa fengið skotflaugar frá Íran Klerkastjórn Íran hefur sent skammdrægar skotflaugar til Rússlands, sem nota á til árása í Úkraínu. Fregnir af þessum sendingum hafa verið á kreiki undanfarna daga en ráðamenn í Evrópu og Bandaríkjunum segja að vopnasendingarnar hafi verið í undirbúningi um langt skeið. Erlent 10.9.2024 12:27
Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Erlent 9.9.2024 11:34
Fjórir sagðir látnir eftir árásir Ísraela á Sýrland Minnst fjórir eru sagðir hafa látist í eldflaugaárásum Ísraelshers á bæinn Masyaf í vesturhluta Sýrlands í kvöld. Ekki liggur fyrir hvort hinir látnu séu hermenn Erlent 8.9.2024 23:20
Ítrekaði mikilvægi samkomulags um vopnahlé við Netanjahú Forseti Bandaríkjanna Joe Biden ítrekaði mikilvægi þess að komast að samkomulagi um vopnahlé á Gasa í símtali við forsætisráðherra Ísrael, Benjamín Netanjahú, í dag. Hann sagði viðræðurnar sem eiga að fara fram í Kaíró í Egyptalandi á næstu dögum ákaflega mikilvægar fyrir möguleika á vopnahlé. Sáttasemjarar sem hafa reynt eftir fremsta megni síðustu mánuði að fá Hamas og Ísrael til að komast að samkomulagi munu hittast þar. Erlent 21.8.2024 23:45
Hátt í þrjátíu pílagrímar fórust í rútuslysi Minnst tuttugu og átta pakistanskir pílagrímar fórust þegar rúta valt í Íran í gærkvöldi. Tuttugu og þrír til viðbótar slösuðust. Erlent 21.8.2024 07:59
Staðfesta að Íranar brutust inn í tölvur framboðs Trump Bandaríska leyniþjónustan staðfestir að írönsk stjórnvöld hafi staðið á bak við gagnastuld frá forsetaframboði Donalds Trump. Hún telur Írani einnig hafa reynt að brjótast inn í tölvukerfi framboðs Kamölu Harris. Erlent 20.8.2024 10:07
Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði framboði Kamölu Harris viðvart um að erlendir aðilar sem sækjast eftir að hafa áhrif á forsetakosningarnar beini spjótum sínum að henni. Framboð Donalds Trump segist fórnarlamb íranskra tölvuþrjóta. Erlent 14.8.2024 08:53
Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Hamas munu ekki senda fulltrúa til friðarviðræðna á morgun, þegar áætlað er að sendinefndir frá Ísrael, Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar munu koma saman. Erlent 14.8.2024 06:56
Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Skrifstofa Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sendi frá sér yfirlýsingu í gær eftir að fregnir bárust af því að varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefði kallað yfirlýst markmið Netanyahu um að tortíma Hamas „vitleysu“. Erlent 13.8.2024 08:32
USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skipað flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln, sem ber meðal annars F-35 herþotur, að hraða för sinni til Mið-Austurlanda vegna áhyggja af árás Íran á Ísrael. Erlent 12.8.2024 06:58
Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Benjamín Netanahjú, forsætisráðherra Ísrael, staðfesti í gær að fulltrúar í samninganefnd á vegum ísraelska ríkisins myndu mæta til samningaviðræðna á ný þann 15. ágúst. Það gerði hann eftir sameiginlegt ákall Bandaríkjamanna, Egyptalands og Katar þar sem kallað var eftir því að Ísrael og Hamas kæmu aftur að samningaborðinu til að ljúka viðræðum. Hamas hefur ekki svarað kallinu. Erlent 9.8.2024 07:50
Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn. Erlent 6.8.2024 07:23
Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Sprengjan sem varð Ismail Haniyeh að bana var smyglað inn á gestaíbúð þar sem hann dvaldi fyrir um það bil tveimur mánuðum síðan. Hún var sett af stað úr fjarlægð þegar staðfesting fékkst á því að Haniyeh væri í íbúðinni. Erlent 2.8.2024 08:08
Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Útför Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas fór fram í Íran í dag. Hann féll í loftárás í höfuðborginni Tehran sem óttast er að geti leitt til stigmögnunar átaka í heimshlutanum. Erlent 1.8.2024 11:51
Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ólíklegt að dráp Ismail Haniyeh muni leiða til meiriháttar milliríkjaátaka þrátt fyrir að þær muni hafa ýmsar afleiðingar í för með sér. Ástæða þess séu þeir miklu hernaðarlegu yfirburðir sem Ísrael hefur yfir nágrannaríkin. Erlent 31.7.2024 21:00
„Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar. Erlent 31.7.2024 18:57
Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh. Erlent 31.7.2024 10:21
Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran. Erlent 31.7.2024 06:46
Íranir hafna aðild að banatilræðinu Íranir hafnar ásökunum bandaríska embættismanna um samsæri til að ráða Trump af dögunum. Ásakanirnar tengjast þó ekki banatilræðinu gegn Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu á laugardaginn síðasta. Íranir þvertaka fyrir aðild að því. Erlent 17.7.2024 08:30
Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Öryggisgæsla í kring um Donald Trump var fyrir nokkrum vikum aukin þegar bandarísk yfirvöld komust á snoðir um að yfirvöld í Íran hafi ætlað að ráða Trump af dögum. Erlent 17.7.2024 00:11
Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Umbótasinninn Massoud Pezeshkian hefur verið kjörinn nýr forseti Írans og bar þar með sigur úr býtum gegn íhaldssömum keppinaut sínum, Saeed Jalili, í annarri umferð forsetakosninga þar í landi. Erlent 6.7.2024 07:45
Byltingarvörðurinn skilgreindur sem hryðjuverkasamtök Kanadamenn hafa ákveðið að skilgreina íranska byltingarvörðinn, úrvalssveitir klerkastjórnarinnar í Íran, sem hryðjuverkasamtök. Erlent 20.6.2024 08:47
Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flestir sex frambjóðenda sem hlutu náð fyrir augum nefndar sem metur forsetaframbjóðendur í Íran eru íslamskir harðlínumenn. Fyrrverandi samningamaður í kjarnorkumálum er talinn líklegur eftirmaður Ebrahims Raisi sem fórst í þyrluslysi. Erlent 12.6.2024 07:00
Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Bandarískir og breskir hermenn gerðu loftárásir gegn Hútum í Jemen í nótt. Forsvarsmenn Húta segja sextán hafa fallið í árásunum og 42 hafa særst en í kjölfarið segjast Hútar hafa gert árás á bandaríska flugmóðurskipið USS Dwight D. Eisenhower. Erlent 31.5.2024 11:57
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Undanfarna mánuði hafa orðið nokkrar vendingar í stríðinu í Úkraínu. Rússar sækja enn hægt fram á austurhluta Úkraínu og hafa opnað nýja víglínu í norðausturhluta landsins. Úkraínumenn hafa þar að auki áhyggjur af nýrri hernaðaruppbyggingu norðar á landamærunum eða jafnvel í Belarús. Erlent 31.5.2024 08:00