Afganistan
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 13 ›
Minnst fimm eru látin: Mannskæðasta árásin í Kabúl frá brottför Bandaríkjahers Minnst fimm almennir borgarar létu lífið í sprengjuárás við mosku í Kabúl í dag. Um er að ræða mannskæðustu árásina í höfuðborg Afganistan síðan Bandaríkjaher yfirgaf landið í lok ágúst síðastliðins. Erlent 3.10.2021 23:52
Rauði krossinn: Fjörutíu milljónir til Afganistan Fjármagnið frá Íslandi verður nýtt í mjög aðkallandi aðstoð fyrir íbúa í Afganistan. Heimsmarkmiðin 30.9.2021 14:00
Kennir stjórn Donald Trump um yfirtöku talíbana í Afganistan Einn af æðstu hershöfðingjum Bandaríkjahers sagði þingnefnd sem rannsakar nú brottflutning herliðsins frá Afganistan, að yfirtaka landsins af talíbönum og fall stjórnarhersins sé bein afleiðing af samkomulagi sem Trump stjórnin gerði í Doha í febrúar 2020. Erlent 30.9.2021 06:45
Afganskir karlmenn mega ekki lengur láta skerða skegg sitt Talíbanar í Helmand héraði í Afganistan hafa gefið út skipanir þess efnis að rakarar í héraðinu megi héðan í frá ekki skerða skegg karlmanna. Talíbanar segja slíka iðju vera á skjön við íslömsk lög og að þeim sem brjóta þau lög verði refsað. Erlent 27.9.2021 07:07
Talibanar hengdu upp lík mannræningja til sýnis Yfirvöld talibana í borginni Herat í vestanverðu Afganistan drápu fjóra meinta mannræningja og hengdu lík þeirra upp öðrum til varnaðar í opinberu rými. Fórnarlömb mannránsins eru sögð hafa sloppið ómeidd. Erlent 25.9.2021 14:47
Aftökur og aflimanir hefjast á ný Fangelsismálaráðherra Afganistan, Nooruddin Turabi, segir að aftökur og aflimanir verði teknar upp á nýtt, nú þegar talíbanar eru aftur við stjórn í landinu. Þær verði þó mögulega ekki framkvæmdar fyrir opnum tjöldum. Erlent 24.9.2021 08:49
Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali. Erlent 21.9.2021 14:52
Mistök í breska varnarmálaráðuneytinu setja afganska túlka í hættu Breska varnarmálaráðuneytið hefur beðist afsökunar á mistökum sem urðu til þess að tölvupóstföng fleiri en 250 afganskra túlka voru gerð opinber og líf þeirra þannig sett í hættu. Erlent 21.9.2021 08:40
Stúlkum bannað að sækja miðskóla í Afganistan Stjórn Talibana í Afganistan tilkynnti í gær að miðskólar yrðu opnaðir á ný eftir mánaðarlangt hlé. Hvergi er minnst á stúlkur í yfirlýsingunni og er talið að stjórnarliðar vilji þar með banna stelpum að sækja miðskóla í landinu. Erlent 18.9.2021 12:00
Bandaríkjaher játar mistök vegna drónaárásar í Kabúl Þann 29. ágúst síðastliðinn framkvæmdi Bandaríkjaher drónaárás í Kabúl sem grandaði tíu almennum borgurum, þar af sjö börnum úr sömu fjölskyldu. Hershöfðinginn Kenneth McKenzie sagði á upplýsingafundi í dag að hann telji nú að þau sem létust í árásinni hafi ekki tengst Ríki Íslams né verið hættuleg hermönnum á flugvellinum í Kabúl. Erlent 17.9.2021 23:17
Hafnar orðrómi um ósætti og segir talíbana bundna sterkum böndum Aðstoðarforsætisráðherra talíbana í Afganistan og einn valdamesti maður landsins, Mullah Abdul Ghani Baradar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar algjörlega sögusögnum um mikið ósætti á milli helstu leiðtoga talíbana. Erlent 16.9.2021 07:00
Leiðtogar Talibana sagðir hafa hnakkrifist í forsetahöllinni Leiðtogar Talibana eru sagðir hafa hnakkrifist yfir því hvernig ný bráðabirgðaríkisstjórn þeirra í Afganistan er skipuð. Hávaðarifrildi er sagt hafa brotist út í forsetahöllinni í Kabúl. Erlent 14.9.2021 21:01
UNICEF hvetur þjóðarleiðtoga til að aðstoða í Afganistan Á fundinum fengu ráðherrar meðal annars að heyra hvernig tíu milljónir afganskra barna þurfi á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af. Heimsmarkmiðin 14.9.2021 15:05
Óttast um öryggi gamals nemanda sem er enn fastur í Afganistan Alls hafa 33 einstaklingar komið til Íslands frá Afganistan með aðstoð stjórnvalda eftir að ríkisstjórnin samþykkti tillögur um móttöku flóttafólks frá landinu. Hefur sú tala haldist óbreytt frá því að herafli Vesturlanda yfirgaf Afganistan um síðustu mánaðamót. Innlent 14.9.2021 07:01
Talibanar aðskilja háskólanema eftir kyni Afganskir stúdentar verða aðskildir eftir kyni og nýjar reglur um klæðaburð í háskólum verða settar í landinu. Þetta tilkynntu Talibanar í dag og sögðu að konum í landinu verði leyft að mennta sig, en ekki á sama stað og karlar. Erlent 12.9.2021 17:52
Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. Erlent 11.9.2021 11:11
Síðasta drónaárásin í Kabúl: Sjö börn úr sömu fjölskyldunni dóu Síðasta eldflaugin sem vitað er að Bandaríkjamenn skutu í Afganistan grandaði ekki ISIS-liða eins og ráðamenn hafa haldið fram. Þess í stað lenti hún á bíl manns sem hefur starfað fyrir bandarísk hjálparsamtök sem var að skutla vinnufélögum sínum til og frá vinnu. Erlent 11.9.2021 10:52
Yfir 100 manns flogið frá Kabúl til Katar Fyrsta vélin til að yfirgefa Kabúl í Afganistan með útlendinga innanborðs eftir að talíbanar tóku þar öll völd hóf sig til flugs í gærkvöldi. Erlent 10.9.2021 06:42
Fyrsta almenna farþegaflugið frá Kabul í langan tíma Fyrsta flugvélin í almennu farþegaflugi kom til Kabul höfuðborgar Afganistans í dag. Talsmaður Talibana vonar að flugvöllurinn verði tilbúinn fyrir venjubundið farþgaflug innan tíðar. Fréttir 9.9.2021 19:41
Kína skýtur á Bandaríkin og heitir neyðaraðstoð til handa Afganistan Stjórnvöld í Kína hafa heitið 4 milljörðum króna í neyðaraðstoð til Afganistan, meðal annars í formi matarbirgða og bóluefna gegn Covid-19. Þá segjast þau reiðubúin til að eiga opið samtal við nýja stjórn talíbana. Erlent 9.9.2021 07:46
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af bráðabirgðastjórninni Bandarísk stjórnvöld segjast hafa áhyggjur af nýskipaðri bráðabirgðastjórn í Afganistan sem talíbanar kynntu til sögunnar í gær. Erlent 8.9.2021 07:03
Talibanar skipa bráðabirgðastjórn Talibanar tilkynntu í dag að þeir hefðu skipað bráðabirgðaríkisstjórn í Afganistan. Þar eru fremstir í flokki margir af eldri forystumönnum samtakanna sem hafa leitt baráttuna gegn fjölþjóðaliðinu og kjörnum stjórnvöldum síðustu tvo áratugina. Erlent 7.9.2021 17:02
Skutu að hópi mótmælenda í Kabúl Sveitir Talibana leystu upp mótmæli í höfuðborginni Kabúl í dag og tóku marga blaðamenn höndum. Þetta eru talin fjölmennustu mótmælin sem fram hafa farið eftir að Talibanar tóku völdin í landinu í síðasta mánuði. Erlent 7.9.2021 14:50
Segjast nú hafa landið allt á valdi sínu en andspyrnan gefst ekki upp Talíbanar hafa nú ítrekað þær fullyrðingar sínar að þeir hafi náð fullum yfirráðum yfir Panjshir-dal norður af Kabúl í Afganistan. Erlent 7.9.2021 06:37
Lofar andspyrnu gegn Talibönum Þrátt fyrir fullyrðingar Talibana um að hafa náð síðasta héraðinu í Afganistan undir sína stjórn, segir talsmaður andspyrnuhreyfingarinnar NRF að baráttan í Panjshir-dal haldi áfram. Erlent 6.9.2021 15:56
Talíbanar segjast hafa náð yfirráðum yfir Panjshir Talíbanar segjast nú hafa náð yfirráðum yfir Panjshir-dal, sem er síðasta vígi andstæðinga þeirra í Afganistan. Miklir bardagar hafa geisað á svæðinu síðustu daga en dalurinn er norður af höfuðborginni Kabúl. Erlent 6.9.2021 06:49
Talibanar sakaðir um að myrða ólétta lögreglukonu Vígamenn Talibana í Afganistan hafa verið sakaðir um að hafa skotið ólétta lögreglukonu til bana. Konan er sögð hafa verið komin átta mánuði á leið. Erlent 5.9.2021 18:26
Óttast að hryðjuverkahópar skjóti aftur rótum í Afganistan Mark Milley, yfirmaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, telur líklegt að borgarastyrjöld muni skella á í Afganistan og að hryðjuverkahópar geti notið þá óreiðu til að skjóta þar niður rótum. Talibanar berjast nú við andófsmenn í Panjshir-dal en virðast vera að bera sigur úr býtum. Erlent 5.9.2021 07:45
Kröfugöngu kvenna í Kabúl mætt með táragasi Hópur kvenna sem mótmælti Talibönum í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í dag segir að þeim hafi verið mætt af hörku. Táragasi og piparúða hafi verið spreyjað yfir hópinn og þær hindraðar í að komast að forsetahöllinni. Erlent 4.9.2021 21:40
Þurftu að skilja tveggja mánaða barn eftir þegar þau flúðu frá Kabúl til Íslands Hjónin Zeba Sultani og Khairullah Yosuf, sem flúðu nýverið frá Afganistan til Íslands, þurftu að skilja tveggja mánaða son þeirra eftir í Afganistan. Ungt barn þeirra dó næstum því í öngþveitinu við flugvöllinn í Kabúl, þegar verið var að flytja Afgana sem þykja í hættu vegna yfirtöku Talibana frá landinu. Innlent 4.9.2021 14:40