
Lyf

Sertral eða sálfræðimeðferð
Þegar kemur að notkun, geð-, svefn,- og róandi lyfja virðumst við Íslendingar eiga enn einn „vafasama“ metið.

Opið bréf til Kastljóss vegna umfjöllunar um hugbirtandi efni í fyrrakvöld
Lilja heiti ég og er sálfræðingur. Ég hef síðustu ár einbeitt mér að skaðaminnkun og skaðaminnkandi hugmyndafræði, bæði í samfélaginu og í meðferð.

Bílalúgurnar eru okkar sérstaða
Síðasta föstudag, 2. febrúar, opnaði fimmta bílaapótek Lyfjavals á Miklubraut í Reykjavík en Lyfjaval rekur nú fimm bílaapótek.

Eina athugasemdin vegna of mikillar sótthreinsunar
Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech. Eina athugasemdin var vegna þess að eftirlitsmaður sá starfsmann Alvotech sótthreinsa hanska sína of oft og nota þá ekki með hárréttum hætti.

Stjórnendum fækkar hjá Lyfjastofnun
Ráðist hefur verið í skipulagsbreytingar hjá Lyfjastofnun í tengslum við aðhaldsaðgerðir og hafa sviðum stofnunarinnar verið fækkað. Samhliða breytingunum hefur stjórnendum verið fækkað en ekki þurfti að grípa til uppsagna.

Uppáskrifað morfín dregur úr hjólaþjófnaði
Hjólarán eru algeng á Íslandi og tengjast oft neyslu, þjófarnir grípa hluti eins og hjól, eitthvað sem þægilegt er að ferja og reyna að fá þeim skipt fyrir vímuefni, eða koma þeim í verð sem svo fjármagnar neyslu.

Vara við fentanýl-menguðu Oxycontin: „Látnar líta alveg eins út og Oxy“
Fyrirtækinu Varlega, sem flytur inn vímuefnapróf, hefur borist ábendingar um að fentanýlblandaðar Oxycontin-töflur gætu verið í umferð hérlendis.

Lyfjafræðingar kalla eftir skýrari reglum um skaðaminnkun
Lyfjafræðingar funda í kvöld um skaðaminnkun í lyfjameðferð. Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands segir lyfjafræðinga kalla eftir faglegu verklagi og skýrari reglum í tengslum við skaðaminnkun.

Gengur vel að aðstoða fólk með fíknisjúkdóm í apótekinu
Tugir hafa nýtt sér skaðaminnkandi þjónustu í Reykjanesapóteki þar sem fólki er bæði hjálpað við að draga úr neyslu og veitt aðstoð í viðhaldsmeðferð. Lyfjafræðingur segir fyrirkomulagið hafa gefið góða raun og vill að það verði tekið upp á landsvísu.

Viðræður hafnar um samruna Samkaupa við Heimkaup og Orkuna
Fjárfestingafélagið Skel og Samkaup hafa undirritað yfirlýsingu um að hefja könnunarviðræður vegna mögulegs samruna Samkaupa við Orkuna og Heimkaup. Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallar.

Enn fleiri sektaðir vegna fullyrðinga um CBD
Neytendastofa hefur sektað Fitness Sport ehf og Ozon ehf fyrir fullyrðingar um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og fyrirtækin selja á heimasíðu sinni og auglýsa á samfélagsmiðlum. Fjöldi fyrirtækja hefur verið sektaður fyrir það sama undanfarið ár.

Talin hafa stolið lyfjum í vinnunni
Kona, sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri, hefur verið ákærð fyrir að stela lyfjum af spítalanum.

„Ég hef engan hag af því að ávísa þessum lyfjum“
Sérfræðilæknir sem þegið hefur hæstu greiðslurnar hér á landi frá danska lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk sem framleiðir sykursýkis-og þyngdarstjórnunarlyf segist engan hag hafa af því að ávísa lyfjunum. Embætti landlæknis segist ekki geta lagt mat á hvort viðeigandi sé af heilbrigðisstarfsmönnum að þiggja slíkar greiðslur.

Andrés húðskammar Lyfjastofnun
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir Lyfjastofnun fyrir 8,7 prósenta hækkun á gjaldskrá um áramótin. Allir verði að leggja sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og háa vexti, líka Lyfjastofnun.

Enn á lífi því kærastan kom snemma heim
Að kvöldi 7. desember árið 2022 tók Arnar Freyr Jónsson þá skyndiákvörðun að taka inn ópíóðalyfið OxyContin. Afleiðingarnar voru þær að hann var einungis hársbreidd frá dauðanum.

Félagslækningar og frelsi til bata
Umræðan um skaðaminnkandi lyfjameðferðir síðustu vikur hefur litast mikið af hinu læknisfræðilega módeli. Að horfa bara á líkamlegu hlið sjúkdóma kemur okkur ekki langt í heilsueflingu. Það er misjafnt hve mikil áhrif veikindi hafa á umhverfi okkar og það er mjög misjafnt hve vel samfélagið sýnir hinum mismunandi áskorunum veikinda skilning og stuðning.

Bendi ekki til tengsla við sjálfsvígshugsanir
Viðamikil bandarísk rannsókn bendir til þess að engin tengsl séu á milli notkunar sykursýkis-og megrunarlyfjanna Ozempic og Wegovy og aukinnar tíðni sjálfsskaða-og sjálfsvígshugsana.

Hafa uppgötvað nýjan flokk sýklalyfja gegn fjölónæmum bakteríum
Vísindamenn hafa uppgötvað nýjan flokk sýklalyfja sem virðast geta unnið á einni af þeim þremur fjölónæmu bakteríutegundum sem eru taldar ógna mannkyninu hvað mest.

Fagnar því um jólin að fá loksins lífsnauðsynleg lyf
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og aðgerðasinni, fagnar því um þessar mundir að lyfið Evrysdi sé komið í kerfið og aðgengilegt þeim sem þjást af taugahrörnunarsjúkdóminum SMA. Lyfið á að geta stöðvað framvindu sjúkdómsins alveg.

Ávísanir geri ekkert til að minnka alvarlegasta skaðann
Geðlæknir á fíknigeðdeild Landspítala og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ segja það að skrifa út morfíntöflur fyrir fíkla ekki taka á mestu hættunni sem steðjar að þeim.

Lyfjameðferð í skaðaminnkun
Tilefni þessara skrifa er umræða sem hefur átt sér stað vegna ávísana sjálfstætt starfandi læknis á morfíntöflum í nafni skaðaminnkunar, til handa fólks sem sprautar í æð.

Segir sviptingu Árna Tómasar mögulega ekki hugsaða til enda
Greint var frá því í gær að Árni Tómas Ragnarsson gigtarlæknir hafi verið sviptur læknaleyfi sínu að hluta og gæti ekki lengur ávísað lyfjum til sjúklinga sinna. Árni hefur aðstoðað hóp fíkla en hann aðhyllist skaðaminnkandi úrúrræði.

Lyfjameðferð í skaðaminnkandi tilgangi?
Í nýlegri frétt á Vísi kemur fram að læknirinn Árni Tómas Ragnarsson hafi skrifað út lyf til handa einum veikasta hópi samfélagsins í skaðaminnkandi tilgangi um nokkurt skeið. Þetta eru einstaklingar sem hann hefur væntanlega af sinni læknisfræðilegu kunnáttu metið og í framhaldinu veitt þeim þá meðferð sem hann hefur talið besta fyrir hvern og einn.

Árni Tómas getur ekki skrifað út lyf lengur
Árni Tómas Ragnarsson gigtarlæknir hefur verið sviptur læknaleyfi sínu að hluta; hann er nú með takmarkað starfsleyfi. Sem þýðir að hann má ekki ávísa lyfjum til sjúklinga sinna.

Gleymda fólkið
Heill og sæll hæstvirtur landlæknir. Nú er komin upp sú staða að gigtarlæknirinn minn og margra, maður sem sór eið til að lækna og bjarga lífi og geðheilsu okkar verkjasjúklinga sem annars mæta engum skilning og engu nema fordómum í þessu skelfilega heilbrigðiskerfi þínu, hefur verið sviptur lyfjaréttindum.

Kostnaður SÍ vegna offitulyfja tæpir tveir milljarðar á árinu
Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna sykursýkislyfja sem einnig eru notuð til þyngdarstjórnunar hefur tólffaldast á síðustu fimm árum. Það segir í tilkynningu frá stofnuninni en kostnaður á þessu ári er nær tveir milljarðar. Sviðsstjóri segir stofnunina ekki sjá fram á að breyta reglum um niðurgreiðslu.

Verðandi stjórnarformaður Controlant fjárfesti í útboði félagsins
Þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu inn sem nýir beinir hluthafar í Controlant þegar þeir lögðu til félaginu meginþorra þess fjármagns sem það sótti sér í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Daninn Søren Skou, verðandi stjórnarformaður Controlant og fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók sömuleiðis þátt í útboðinu en í bréfi til fjárfesta boðar tæknifyrirtækið tíðari upplýsingagjöf til hluthafa.

Tekjur jukust mikið en tapið áfram gríðarlegt
Heildarsölutekjur Alvotech fyrstu níu mánuði ársins jukust í 29,8 milljónir dollara, samanborið við 11,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra. Félagið tapaði þó 275,2 milljónum dollara, samanborið við 193,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra.

Melatónínnotkun íslenskra barna aukist um mörg hundruð prósent
Síðastliðinn áratug hefur melatónínnotkun barna aukist um mörg hundruð prósent að sögn svefnsérfræðings. Hún segir mikilvægt að uppræta orsakir svefnleysis barna í stað þess að plástra einkenni þess með lyfinu.

„Ekki gott að við séum að greina of marga“
Formaður Sálfræðingafélags Íslands segir langa biðlista eftir ADHD-greiningum hjá fullorðnum skýrast að hluta af því að margir fullorðnir, sem þjást af kvíða, streitu eða öðrum kvillum, telji sig vera með röskunina. Tryggja þurfi fjölbreyttari meðferðarúrræði við ADHD en lyfjagjöf.