Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Í nýbirtri skýrslu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá því að um fjörutíu prósenta undirmönnun sé á sextán bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta er meðal þess sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) snertir á í innsendri grein á Vísi en hún segir mönnun hafa áhrif á afdrif sjúklinga. Á deildunum sem um ræði dvelji margir af veikustu sjúklingum landsins. Innlent 12.10.2026 20:24
Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Þingmaður Framsóknarflokksins segir að stjórnvöld megi ekki sofa á verðinum þegar kemur að sjóvörnum. Niðurskurður til málaflokksins skjóti skökku við í ljósi hækkunar sjávar og aukinnar sjávarflóðahættu. Ísland sé á flæðiskeri statt. Innlent 11.10.2026 17:22
Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Efnalekinn í fiskvinnslu Hnýfils á Óseyri á Akureyri orsakaðist af því að stíflueyðir sem hellt var í niðurfall í morgun blandaðist við þrifaefni sem notað var á gólfin síðdegis með þeim afleiðingum að klórgas myndaðist. Slökkvilið segir störf hafa gengið vel á vettvangi. Innlent 23.9.2026 21:21
Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent 12.9.2026 21:46
Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema. Innlent 5. september 2026 20:01
Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Tveir voru handteknir hvor á sínum staðnum í aðgerð lögreglu og sérsveitar á Akureyri í gær. Lögregla gefur ekki upp hvert tilefni handtakanna var. Innlent 5. september 2026 09:49
Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra og sérsveit Ríkislögreglustjóra voru kallaðar að heimahúsi við Engimýri á Akureyri á öðrum tímanum í dag. Innlent 4. september 2026 16:02
Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hernámsins á Akureyri á tímum síðari heimsstyrjaldar er minnst með nýrri sýningu Minjasafns bæjarins. Forsvarsmenn sýningarinnar þurftu að vera frumlegir við uppsetninguna þar sem margar minjar höfðu glatast. Lífið 3. september 2026 21:02
Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Skemmdarverk voru unnin á gröfum og öðrum vinnuvélum í eigu verktakafyrirtækisins G. Hjálmarsson á Akureyri. Fyrirtækið hefur verið við vinnu í nýju Móahverfi í um fjögur ár. Eigandi segir tjónið hlaupa á milljónum. Spreyjað hafi verið með olíulakki og heilspreyja þurfi vélarnar upp á nýtt og merkja þær. Innlent 1. september 2026 12:01
Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga segir sóðaskapinn sem mætti honum í Kjarnaskógi í morgun yfirgengilegan. Dósir lágu um alla jörð og æla á skiptiborði ætluðu ungabörnum. Innlent 29. ágúst 2026 16:06
Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir nauðgun á Akureyri árið 2024. Innlent 26. ágúst 2026 11:51
Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Ráðast þarf í mikið viðhald á Akureyrarkirkju og er áætlað að viðhaldskostnaður nemi fimm hundruð milljónum. Stefnt er að því að kirkjan verið komin í gott stand árið 2040 þegar hundrað ár verða frá vígslu hennar. Innlent 23. ágúst 2026 22:52
Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Valur vann dramatískan sigur á Þór/KA norður á Akureyri í 17. umferð Bestu deildar kvenna. Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði eina mark leiksins undir lokin. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 17:15
Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bíll og mótorhjól skullu saman á hringveginum sunnan við munna Akureyrarmegin Vaðlaheiðargangnanna á fjórða tímanum í dag. Innlent 20. ágúst 2026 17:07
Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Skiptar skoðanir eru á tilfærslu Vínbúðarinnar á Akureyri, ári eftir að hún var gerð. Kaupmenn segja miðbæinn enn lifandi en afhendingarstaður netverslunar með áfengi var opnaður í húsnæðinu þar sem vínbúðin var áður. Innlent 17. ágúst 2026 23:21
Nicole er fyrir norðan Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar. Lífið 17. ágúst 2026 19:05
Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri N1 mót stúlkna á Akureyri fór fram á Akureyri um síðastliðna helgi. Þetta er í annað skiptið sem mótið er haldið og mættu yfir sjö hundruð stúlkur til leiks með sínum liðum. Gleðin var við völd og tilþrifin mikil. Sýnt var frá mótinu í þættinum Sumarmótin á Sýn Sport í gær. Þáttinn má sjá í heild sinni hér. Íslenski boltinn 14. ágúst 2026 12:02
Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við vasaþjófum á þekktum ferðamannastöðum í sínu umdæmi. Innlent 14. ágúst 2026 10:50
Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram. Tónlist 13. ágúst 2026 13:02
Stelpurnar tóku yfir Akureyri Það var líf á fjör á Akureyri þegar að N1 mót stúlkna fór fram og knattspyrnustjörnur framtíðarinnar léku listir sínar. Íslenski boltinn 13. ágúst 2026 12:32
Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir N1 mót stúlkna fer fram á Akureyri í annað sinn um helgina en sambærilegt mót fyrir stráka hefur farið fram síðustu fjörutíu ár. Framkvæmdastjóri KA segir mótið komið til að vera og vonast til að stúlkurnar skapi minningar fyrir lífstíð. Innlent 8. ágúst 2026 16:03
Farþegar elska lopapeysur Sölubás Rauða krossins við Ráðhústorgið á Akureyri þar sem gestir og gangandi versla sér prjónaföt er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna. Sjálfboðaliðar sjá um að prjóna fötin og þvo. Viðskipti innlent 7. ágúst 2026 22:59
Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Einn þekktasti stuðningsmaður Ísraelshers, bandaríski rabbíninn Shmuley Boteach, birti í gær myndband á Instagram-síðu sinni af Íslendingi, Samúel Guðmundssyni, og sakar hann um gyðingahatur og áreitni. Innlent 6. ágúst 2026 11:00
Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði, segir að þó svo að leikfangabyssa sé notuð til að ógna sé það alvarlegt því fólk geri ekki endilega greinarmun á henni og raunverulegri byssu. Margrét segir mikilvægt að lögregla hafi brugðist við slíku atviki á Akureyri um helgina. Hún segir áríðandi að stjórnmálamenn bregðist ekki við slíkum atvikum með að ala á ótta eða andúð í garð ákveðinna hópa í samfélaginu. Innlent 5. ágúst 2026 10:10
Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Akureyringar buðu landsmenn alls staðar að velkomna til höfuðborgar Norðurlands yfir verslunarmannahelgina. Lífið 3. ágúst 2026 17:04