Bítið
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 24 ›
Dæmi um að ferðamenn gangi af sér skóna Frá því að eldgosið í Meradölum hófst eru dæmi um að björgunarsveitir hafi þurft að skutla ferðamönnum til baka vegna þess að ekkert er eftir af skóbúnaði þeirra. Formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar biðlar til þeirra sem ætla að ganga að gosinu að undirbúa sig vel. Innlent 12.8.2022 14:46
Vinna við erfiðasta kaflann á vinsælustu gönguleiðinni hefst í dag Í dag er áætlað að unnið verði að því að lagfæra erfiðasta kaflann á svokallaðri A-gönguleið að eldgosinu í Meradölum. Innlent 8.8.2022 09:14
Eldgos gæti tekið af okkur báða vegina til Suðurnesja Eldfjallafræðingur segir það vera skynsamlegt að byggja annan alþjóðaflugvöll fjarri Keflavíkurflugvelli. Það gæti gerst að eldgos taki af okkur bæði Suðurstrandarveg og Reykjanesbrautina þannig að engin leið sé fyrir bílaumferð til og frá Reykjanesi. Innlent 2.8.2022 11:23
Vakinn af værum blundi með skjálftasímtali úr Kópavogi Grindvíkingar virðast lítið hafa fundið fyrir þremur stórum skjálftum sem riðu yfir skömmu fyrir miðnætti og í nótt. Bæjarstjórinn segir að dóttir hans hafi vakið foreldra sína í gærkvöldi með símtali úr Kópavogi, smeyk um stöðuna í Grindavík eftir að hafa fundið vel fyrir einum af skjálftunum. Innlent 2.8.2022 11:15
Tímaspursmál hvenær moskítóflugan nái hér fótfestu Mjög ör breyting hefur verið á skordýraflóru Íslands seinustu áratugi og hefur tegundum fjölgað um 300 til 400 hér á landi seinustu áratugi. Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði, segir einungis tímaspursmál hvenær moskítóflugur ná fótfestu hér og lifi góðu lífi á Íslandi. Innlent 28.7.2022 07:01
Vara við óþarfa ferðum um Krýsuvíkurbjarg í skjálftahrinum Stórar sprungur eru í Krýsuvíkurbjargi vegna stöðugrar hreyfingar sem bjargið er á. Sprungurnar hafa dýpkað talsvert undanfarin ár vegna jarðskjálftahrina. Fólk er varað við því að fara út á bjargbrúnina, sérstaklega þegar jarðskjálftahrinur ganga yfir. Innlent 25.7.2022 10:39
Vildi vera krúttlegur teppalistamaður en endaði sem stríðsljósmyndari Óskar Hallgrímsson segist lifa tvöföldu lífi, annars vegar búi hann til krúttleg teppalistaverk ásamt eiginkonu sinni og hins vegar sé hann ljósmyndari á stríðshrjáðu svæði. Innlent 11.7.2022 14:31
Til mikils að vinna slái maður ekki garðinn sinn Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur mætti í Bítið til að ræða um Villigarðahreyfinguna sem hefur talað fyrir því að fólk slái ekki garða sína og hvað maður gæti grætt á að leyfa garðinum að vaxa villtum. Hún segir að slái maður ekki garðinn sinn geti ýmsar skemmtilegar plöntur farið að vaxa auk þess sem það viðhaldi líffræðilegum fjölbreytileika. Lífið 7.7.2022 14:30
Ófremdarástandið gæti varað fram á haust Ófremdarástandið sem ríkir á flugvöllum víða í Evrópu gæti varað fram á haust að sögn forstjóra þýska flugfélagsins Lufthansa því erfitt hefur reynst að manna stöður eftir faraldurinn. Ritstjóri Túrista segir að það sé ekki skynsamlegt að bóka tengiflug í sumar því viðbúið sé að miklar breytingar verði á flugáætlunum. Innlent 6.7.2022 15:22
Segir skipta höfuðmáli að lögfesta Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segir það algjört grundvallaratriði í sínum huga að vinna að því að gera kerfið betra. „Við þurfum að vinna á öllum þeim áskorunum sem koma upp og ekki síst þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks.“ Innlent 6.7.2022 11:12
Bjartsýn á að komast í höfn Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir vandasama siglingu fram undan varðandi hagstjórnina enda hafi landsmenn ekki séð aðrar eins verðbólgutölur í langan tíma. Innlent 5.7.2022 08:51
Gefast upp á erfiðum markaðsaðstæðum og selja bruggverksmiðju Eigendur brugghússins Steðja hafa ákveðið að selja allar sínar bruggræjur og hætta starfsemi sinni. Annar eigandinn segir að greiða þurfi fyrir að koma áfengi í hillur ÁTVR. Viðskipti innlent 29.6.2022 10:40
Rangt að leggja umræðuna upp að sveitarstjórar séu afætur á íslensku samfélagi Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að laun sveitarstjóra í landinu skeri sig ekki úr þegar litið er til launa stjórnenda í millistórum fyrirtækjum. Hún segir rangt að leggja umræðuna upp á þann veg að sveitarstjórar séu verklausir og afætur á íslensku samfélagi. Það sé alls ekki raunin. Innlent 24.6.2022 08:58
Selja húfu til styrktar ungu fólki sem glímir við ófrjósemi í kjölfar krabbameinsmeðferðar Góðgerðafélagið Lífskraftur hefur sölu á Lífskraftshúfum í samstarfi við 66° norður til stuðnings fjölskyldum og einstaklingum sem glíma við krabbamein og ófrjósemi í kjölfar krabbameinsmeðferðar. Lífið 14.6.2022 14:54
Frítt í sund og strætó fyrir börn einu fingraför Framsóknar að mati Hildar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að henni virðist einu fingraför Framsóknarflokksins á málefnasamningi nýja meirihlutans í borginni vera að frítt verði í sund og strætó fyrir börn. Hún kvartar yfir leiðindapólitík sem hafi verið stunduð þegar flokkar voru að máta sig í meirihlutaviðræðum. Innlent 7.6.2022 09:44
Ekki nema nokkrir áratugir þar til jöklarnir hverfa Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, jöklafræðingur, telur að ef fram haldi sem horfir muni Snæfellsjökull hverfa að fullu á næstu nokkrum áratugum. Að óbreyttum útblæstri munu í raun allir jöklar hverfa á næstu áratugum en þó sé hægt að hægja verulega á þróuninni með minni hlýnun, að sögn Guðfinnu. Innlent 30.5.2022 11:34
Kvikmyndarisar bíði eftir aukinni endurgreiðslu Leifur B. Dagfinnsson, stofnandi og formaður stjórnar kvikmyndaframleiðandans True North segir að stór kvikmyndaver séu að bíða eftir því að endurgreiðsla stærri kvikmyndaverkefna verði 35 prósent hér á landi. Mikil tækifæri felist í slíkri endurgreiðslu fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en stjórnvöld hafa þegar lagt fram frumvarp þess efnis. Viðskipti innlent 24.5.2022 15:27
Óskynsamlegt að gera kröfu um borgarstjórastólinn þrátt fyrir ákall grasrótarinnar Grasrót Framsóknarflokksins í Reykjavík kallar eftir því að gerð verði skýlaus krafa borgarstjórastólinn allt næsta kjörtímabil fari flokkurinn í formlegar meirihlutaviðræður við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn. Einar Oddviti Framsóknar telur þó óskynsamlegt að setja fram afarkosti áður en viðræður hefjast. Innlent 24.5.2022 08:13
„Ríkið á að auka tækifæri fólks í þessari stöðu en ekki öfugt“ Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði nýverið fram frumvarp til breytinga á löggjöf um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks í kringum tæknifrjóvganir ásamt auknu frelsi og trausti til handa tilvonandi foreldrum sem þurfa að nýta sér tæknifrjóvgun. Innlent 20.5.2022 14:27
Dagur hefur ekki svarað símtölum Hildar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur ekki svarað símtölum Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segist hafa rætt við alla oddvitana í borginni eftir kosningar, utan tveggja. Innlent 17.5.2022 10:42
Borgarstjóri segir önnur sveitarfélög hafa brugðist í húsnæðiskrísunni Fyrirliggjandi er að helstu mál fyrir sveitarstjórnarkosningar á morgun hvað Reykjavíkurborg varðar er tvö: Húsnæðismál og samgöngumál. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir ábyrgð annarra sveitarfélaga mikla því þau hafi látið Reykjavík draga þann vagn eina að byggja fyrir hina tekjulægstu. Innlent 13.5.2022 14:16
Ekki sérlega smeykur við ný afbrigði veirunnar Sóttvarnalæknir segist ekki hafa of miklar áhyggjur af nýjum afbrigðum kórónuveirunnar. Nýtt undirafbrigði omikronafbrigðisins þykir meira smitandi en önnur en óljóst er hvort það valdi alvarlegri veikindum. Innlent 9.5.2022 08:59
Guðni Th. um aðstöðuleysi á Íslandi: „Þjóðarhöll stendur ekki undir nafni ef hana má ekki nota“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mætti í Bítið á Bylgjunni til að ræða stöðu þjóðarleikvanga Íslands í boltaíþróttum. Hann vill nýja þjóðarhöll hið fyrsta. Sport 20.4.2022 12:00
„Við erum komin inn í gostímabil“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að talsverðar líkur séu á öðru gosi á Reykjanesskaga „á næstunni“. „Við erum komin inn í gostímabil. Það er nokkuð ljóst að á tiltölulega stuttum tímaskala þá fáum við annað gos. Spurningin er hvort það gerist á morgun, eftir ár, eða eftir tíu ár.“ Innlent 20.4.2022 08:41
Bjarna kom í opna skjöldu að pabbi hans væri meðal kaupenda Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að sér hafi komið í opna skjöldu að faðir hans, Benedikt Sveinsson fjárfestir, hafi verið meðal kaupenda í útboði á hlutum Íslandsbanka nú á dögunum. Innlent 7.4.2022 08:53
Breyta búningunum fyrir Eurovision en ætla ekki að dansa Elín og Beta Eyþórsdætur ræddu sigurinn á Söngvakeppninni í Bítinu á Bylgjunni fyrr í dag. Þær eru á fullu að skipuleggja og æfa sig og ætla að gefa út nýja tónlist saman áður en þær fara út og eru því á leið í hljóðverið. Tónlist 15.3.2022 13:31
Tesla firrar sig ábyrgð: Situr uppi með milljóna króna tjón eftir að hafa ekið í poll Samkvæmt ábyrgðarskilmálum Tesla ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjónum sem verða þegar Teslu-bifreið er ekið í vatn sem er dýpra en 20 sentímetrar. Þetta segir Hafþór Pálsson, sem varð fyrir því að glæný Tesla tjónaðist þegar hann ók í poll á dögunum. Innlent 3.3.2022 11:02
Gæti reynst þungt högg að útiloka Rússa frá SWIFT Vesturlöndin hafa undanfarna viku gripið til umfangsmikilla refsiaðgerða gegn Rússum og er nýjasta útspilið að loka fyrir aðgengi Rússa að SWIFT kerfinu svokallaða. Hagfræðingur segir að áhrifin verði líklega töluverð en hætt er við að aðgerðirnar bitni mest á almenningi. Viðskipti erlent 28.2.2022 12:29
Erfitt að sjá hverju takmarkanir skila þegar útbreiðslan er svona mikil Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir erfitt að sjá hverju sóttvarnatakmarkanir skili nú þegar útbreiðsla kórónuveirunnar er jafn mikil og raun ber vitni. Hann stefnir að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands og á landamærum í síðasta lagi á föstudag. Innlent 23.2.2022 08:53
Segir Ingu hræsnara fyrir að vilja banna blóðmerahald Blóðmerabóndi segir Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hræsnara fyrir að hafa lagt fram frumvarp á þingi um bann á blóðmerahaldi. Frumvarpið sé aðför að fátæku fólki, sem Inga hafi sagst berjast fyrir. Innlent 15.2.2022 15:54