Seðlabankinn
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 48 ›
Geðshræring vegna stýrivaxtahækkunar Verulegrar geðshræringar gætti á samfélagsmiðlum í morgun þegar tilkynnt var um enn eina hækkun stýrivaxta, þá 13. í röðinni en hækkunin nam 1,25 stigum. Innlent 24.5.2023 12:16
Segir nauðsynlegt að gera hófsama kjarasamninga til langs tíma Seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að gerðir verði hóflegir langtíma kjarasamningar og aðhald aukið í ríkisfjármálum til að ná verðbólgunni niður. Ef Seðlabankinn eigi einn að ná niður verðbólgu þurfi að hækka vexti enn frekar. Innlent 24.5.2023 12:12
Vonandi ekki þjóðarsátt um að Seðlabankinn bregðist einn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir gríðarlega mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins standi undir sinni ábyrgð og taki þátt í því að bregðast við verðbólgu og verðbólguvæntingum með Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 24.5.2023 10:56
Stærsta vaxtastökkið frá hruni með 125 punkta hækkun Seðlabankans Peningastefnunefnd kom markaðsaðilum og greinendum á óvart með því að hækka vexti Seðlabankans úr 7,5 prósentum í 8,75 prósentum, sem var umfram væntingar, til að ná böndum á undirliggjandi verðbólgu sem heldur áfram að hækka samtímis því að horfur eru á enn meiri vexti í innlendri eftirspurn í ár. Þrátt fyrir að vaxtahækkunin nú upp á 125 punkta sé sú mesta í einu vetfangi frá því við fall bankanna haustið 2008 þá boðar nefndin enn frekari hækkun vaxta á næstunni. Innherji 24.5.2023 08:57
Bein útsending: Rökstyðja þrettándu stýrivaxtahækkunina í röð Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 1,25 prósentustig, í 8,75 prósent. Viðskipti innlent 24.5.2023 08:53
Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti og nú um 1,25 prósentustig Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 7,5 prósentum í 8,75. Viðskipti innlent 24.5.2023 08:31
Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. Innlent 23.5.2023 12:02
Seðlabankinn nauðbeygður til að hækka vexti um hundrað punkta Yfirgnæfandi meirihluti markaðsaðila býst við því að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun. Meginstefið í svörum þeirra sem tóku þátt í könnun Innherja er að Seðlabankinn sé nauðbeygður enda er langt í næstu vaxtaákvörðun, raunvextir enn neikvæðir og bankanum hefur ekki tekist að ná stjórn á verðbólguvæntingum. Innherji 23.5.2023 08:00
Ríkisstjórnin verði að dempa áfallið sem hlýst af vaxtahækkunum Formanni Samfylkingarinnar finnst ekki ólíklegt að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir á miðvikudag líkt og greiningaraðilar eru á einu máli um. Hún hefur ekki gefið upp von um að ríkisstjórnin dempi höggið sem heimilin finna fyrir þessar þrjár síðustu vikur þingsins. Auknar vaxtabætur og leigubremsa þurfi að koma til svo hægt verði að verja heimilin í þessu viðkvæma efnahagsástandi. Innlent 22.5.2023 13:01
Lýst eftir fjármálaráðherra Aukinnar svartsýni gætir nú á fjármálamörkuðum um þróun verðbólgu. Gert er ráð fyrir að hún verði enn yfir 6% eftir ár. Hið sama má sjá í áliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem segir að vextir gætu þurft að hækka enn frekar frá því sem nú er. Skoðun 20.5.2023 12:00
Blasi við að Seðlabankinn sé að verja fjármagnseigendur Formaður VR segir það blasa við að Seðlabankinn sé að verja fjármagnseigendur frekar en fólkið í landinu. Búist er við að Seðlabankinn hækki stýrivexti enn eina ferðina í næstu viku. Gerist það verður um að ræða þrettándu stýrivaxtahækkunina í röð. Innlent 19.5.2023 17:21
Verðtryggður flótti í boði Seðlabankans Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands situr nú á rökstólum og mun tilkynna næstu vaxtaákvörðun sína miðvikudaginn 24. maí. Flestir greiningaraðilar spá því að bankinn muni hækka stýrivexti, þrettánda skiptið í röð. Skoðun 19.5.2023 11:32
Efnahagsnefnd vill samþykkja Seðlabankafrumvarpið í óbreyttri mynd Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt til að frumvarp, sem felur meðal annars í sér að seðlabankastjóri gegni formennsku fjármálaeftirlitsnefndar bankans í stað varaseðlabankastjóra, verði samþykkt í óbreyttri mynd. Innherji 17.5.2023 15:20
Spá því að vextir hækki um heila prósentu Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um eitt prósentustig í næstu viku. Ef spá Landsbankans gengur eftir verða stýrivextir hærri en þeir hafa verið í rúm þrettán ár. Viðskipti innlent 17.5.2023 15:10
„Ekki reikna með að aðstæður séu að fara að lagast strax á næstunni“ Björn Berg Gunnarsson hefur starfað í bankakerfinu í vel á annan áratug, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. Nú hefur Björn látið af störfum í bankanum til að hefja sjálfstæðan rekstur sem fjármálaráðgjafi fyrir einstaklinga um sparnað, fjárfestingar, lánamál og annað. Viðskipti innlent 16.5.2023 09:20
„Mesti skaðvaldur sem til er í íslensku efnahagskerfi“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, fer hörðum orðum um íslenska bankakerfið í viðtali við Ísland í dag og hvetur til þess að verðtryggð neytendalán verði bönnuð. Innlent 12.5.2023 10:01
Ranghugmyndir Seðlabankans um efnahagsmál Seðlabankinn segir réttilega að það sé þensla (ofhitun) í hagkerfinu, en horfir framhjá helstu orsökunum. Helsta orsökin er taumlaus ofvöxtur ferðaþjónustunnar sem kallar á mikla fjárfestingu og gríðarlegan innflutning á vinnuafli, sem kyndir undir verðbólgu. Mikil einkaneysla efnaðri hluta þjóðarinnar er einnig mikilvæg orsök þenslunnar. Skoðun 10.5.2023 15:01
Auka þurfi aðhald í efnahagsstjórninni Að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru hagvaxtarhorfur á landinu fremur jákvæðar. Þeim fylgir þó ójafnvægi og er áhætta töluverð. Auka þurfi aðhald í efnahagsstjórninni en samtímis verja stöðu þeirra sem lakast standa. Komandi kjaraviðræður séu tækifæri til að tengja betur raunlaun og framleiðnivöxt. Innlent 9.5.2023 11:16
Stígi skref til baka í átt að sjálfstæðara FME Seðlabankastjóri segir að sér finnist ekki ólíklegt að stigin verði skref til baka frá sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í átt að því að gera eftirlitið sjálfstæðara. Viðskipti innlent 9.5.2023 11:11
AGS segir Seðlabankanum að fylgjast vel með fasteignafélögum Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur að undanförnu lagt mat á stöðu efnahagsmála hér á landi, telur að fylgjast þurfi vel með atvinnuhúsnæðismarkaðinum og mögulega þarf að innleiða sérstök lánþegaskilyrði fyrir fasteignafélög sem eru mjög skuldsett. Innherji 9.5.2023 11:01
Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálaseftirlitsnefndar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Unnur Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits munu mæta á opinn fund í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sem hefst klukkan 9:15 í dag. Viðskipti innlent 9.5.2023 08:45
Að meðaltali frekar fínt Á síðustu árum hefur fasteignaverð margfaldast og það hafa vextir af lánum gert sömuleiðis. Þess vegna ekki að furða þótt hlutfall fyrstu kaupenda hafi minnkað gífurlega. Það er einfaldlega of erfitt að komast inn á markaðinn. Fyrir vikið safnast snjóhengja af ungu fólki í húsnæðisþörf sem fyrr eða síðar mun þurfa að komast í íbúð, sama hvað. Skoðun 4.5.2023 07:31
AGS varar við hættu á pólitískum þrýstingi í fjármálaeftirlitsnefnd Nefndarseta fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans getur skapað hættu á pólitískum þrýstingi, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur gert athugasemdir við þá skipan mála í samskiptum sínum við stjórnvöld en sjóðurinn vinnur nú að viðamikilli úttekt á íslenska fjármálakerfinu. Skrifstofustjóri ráðuneytisins, sem er í nefndinni og sóttist eftir því að verða varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, dró umsókn sína til baka sama dag og ráðherra skipaði í embættið. Innherji 3.5.2023 15:29
Seðlabankinn aldrei dregið á þrettán ára gjaldmiðlaskiptasamning við Kína Aldrei hefur verið dregið á gjaldmiðlaskiptasamning Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Kína sem fyrst var gerður árið 2010, að sögn bankans, en hann hljóðar upp á um 70 milljarða króna eða 3,5 milljarða kínverskra júana. Rannsóknir hafa sýnt að slíkir gjaldamiðlaskiptasamningar auka viðskipti landa við Kína en aðrar Norðurlandaþjóðir hafa ekki gert sambærilegan samning við einræðisríkið. Innherji 2.5.2023 16:06
Útlán bankanna og verðbólga Verðbólga á Íslandi er enn of há, þrátt fyrir vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands. Það eru margar ástæður fyrir henni en ein hefur verið lítið rædd: útlánaveitingar bankakerfisins. Skoðun 2.5.2023 08:30
„Funheitt“ hagkerfi kallar á aðra stóra vaxtahækkun Seðlabankans Nýlega birtar verðbólgutölur, mun hærri en greinendur höfðu vænst, ásamt öðrum hagvísum sem sýna mikinn þrótt í hagkerfinu þýðir að líkur eru á að vextir Seðlabankans verði hækkaðir í annað sinn í röð um 100 punkta síðar í þessum mánuði en verðbólguálag á skuldabréfamarkaði fer rísandi á nýjan leik. Áfram er mikill vöxtur í nýjum útlánum bankanna til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir að fjármagnskostnaður hafi aukist verulega. Innherji 1.5.2023 11:27
Ásgeiri brugðið þegar hann heyrði að Íslendingum hafi fjölgað um 3.000 á árinu Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra var brugðið þegar hann fékk að vita það á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun að Íslendingum hafi fjölgað um þrjú þúsund frá áramótum. Viðskipti innlent 28.4.2023 11:59
Bindur vonir við nýja forystu ASÍ Ásgeir Jónsson segist binda miklar vonir við að ný forysta ASÍ komi sambandinu á þann stað að það verði aftur leiðandi á vinnumarkaði. Vinnumarkaðurinn þurfi að taka ábyrgð á sínum þætti í verðbólgunni og fara að grípa til aðgerða til að árangur náist í baráttu gegn henni. Viðskipti innlent 28.4.2023 10:32
Bein útsending: Ræða skýrslu peningastefnunefndar til þingsins Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis klukkan 9:15 í dag. Viðskipti innlent 28.4.2023 08:46
Ekki ljós punktur í verðbólgutölum og Seðlabankinn mun bregðast hart við Líklegt er að Seðlabankinn bregðist hart við tíðindum um hærri verðbólgu – sem var langt yfir opinberum spám greinenda - og hækkandi verðbólguálagi. Sjóðstjóri telur að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um eitt prósent við næstu vaxtaákvörðun. Gangi það eftir yrðu þeir 8,5 prósent. Annar sjóðstjóri segir erfitt að sjá „ljósan punkt“ í nýjustu verðbólgumælingu því „hann er líklega ekki til staðar.“ Innherji 28.4.2023 07:00