Fram - Víkingur | Bestu deildarslagur í bikarnum Fram og Víkingur eigast við í Bestudeildarslag í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 17:00. Íslenski boltinn 4.4.2026 16:16
Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram FH lenti undir gegn Þór í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í dag en kom til baka og vann 2-4 sigur. Adolf Daði Birgisson skoraði tvö mörk í leiknum í Boganum. Íslenski boltinn 4.4.2026 15:56
Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum Þróttur er kominn í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir sigur á ÍBV í vítaspyrnukeppni, 2-4. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 2-2. Íslenski boltinn 4.4.2026 14:53
KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. Reykjavíkurstórveldin og erkifjendurnir KR og Valur drógust saman. Íslenski boltinn 24. mars 2026 12:26
Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Vestramenn tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með sigri á Val á Laugardalsvellinum á föstudaginn og það var afar vel tekið á móti þeim þegar þeir mættu með bikarinn heim á Ísafjörð. Íslenski boltinn 25. ágúst 2025 22:03
Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Bikarmeistarar Vestra fengu konunglegar móttökur á Silfurtorgi á Ísafirði í kvöld þegar þeir komu heim eftir frækinn sigur á Valsmönnum á Laugardalsvelli á föstudaginn. Lífið 24. ágúst 2025 22:50
Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Bikarmeisturum Vestra verður vel fagnað á Silfurtorgi á Ísafirði í kvöld þar sem til stendur að heiðra liðið sem tryggði sér titilinn með sigri á Valsmönnum á Laugardalsvelli á föstudaginn. Sigurinn er sögulegur fyrir félagið en Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, hvetur alla sem geta til að fjölmenna á Silfutorg á eftir. Innlent 24. ágúst 2025 15:03
Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Mjólkin flæddi og stemningin var rosaleg í stúkunni á Laugardalsvelli í gærkvöldi þegar Vestramenn urðu bikarmeistarar í fótbolta í fyrsta sinn. Í sannkölluðu gæsahúðarmyndbandi sem félagið birti í morgun má heyra úr ræðu þjálfarans Davíðs Smára Lamude, sjá aðdragandann og sigurstundina sjálfa. Fótbolti 23. ágúst 2025 09:57
Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Vestri varð í gær bikarmeistari karla í fótbolta í fyrsta sinn eftir sigur á Val, 1-0, á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 23. ágúst 2025 09:01
„Það er æfing á morgun“ Davíð Smári Lamude var í skýjunum eftir að hafa unnið Val 0-1 í úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill í sögu Vestra og Davíð var afar ánægður með að vera hluti af þeirri sögu. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 22:20
„Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Vestri vann 0-1 sigur gegn Val í úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill í sögu félagsins. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins og sagði að þetta hafi verið hans flottasta mark á ferlinum. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 22:00
Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Valsmaðurinn og markahrókurinn mikli Patrick Pedersen sleit hásin í bikarúrslitaleiknum gegn Vestra og verður frá út tímabilið hið minnsta. Slík meiðsli krefjast vanalega margra mánaða endurhæfingar. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 21:54
„Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ „Þetta er óraunveruleg upplifun. Ég neitaði að trúa þessu fyrr en dómarinn flautaði leikinn af“ sagði bikarmeistarinn Guy Smit, sem var að vinna sinn fyrsta titil hér á landi líkt og flestallir leikmenn Vestra. Hann segir það frekar sturlað að lið frá Ísafirði sé bikarmeistari. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 21:38
Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Vestri er bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 1-0 sigur gegn Val í úrslitaleik á Laugardalsvelli. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins með stórkostlegu langskoti, Valsmenn voru síðan með völdin á vellinum en urðu fyrir áfalli þegar eldri Pedersen bróðirinn Patrick var borinn meiddur af velli. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 21:30
„Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Minn fyrsti bikarúrslitaleikur hérna heima, þannig að menn eru spenntir“ segir Hólmar Örn Eyjólfsson fyrirliði Vals fyrir úrslitaleikinn gegn Vestra sem fer fram á Laugardalsvelli í kvöld. Hann stefnir á að lyfta báðum titlunum sem eru í boði í íslenska boltanum og vonar að skellurinn gegn ÍBV í síðasta leik lyfti liðinu upp á tærnar. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 10:31
„Stór og merkilegur viðburður fyrir okkur“ „Ég trúi ekki öðru en að fólk nýti þetta tækifæri,“ segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, fyrir stærsta leik í sögu félagsins en í kvöld mætir Vestri liði Vals í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fótbolta. Íslenski boltinn 22. ágúst 2025 08:59
Fá góðar fréttir fyrir stærsta leik í sögu félagsins Stuðningsmenn Vestra hafa fengið góðar fréttir fyrir úrslitaleik Mjólkurbikars karla því einn af lykilmönnum liðsins hefur framlengt samning sinn við það. Íslenski boltinn 21. ágúst 2025 12:32
Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ Bikarúrslitaleikur karla fer fram á föstudagskvöldið á Laugardalsvellinum en þarna eru ekki bara Valur og Vestri að mætast heldur einnig dönsku bræðurnir Patrick og Jeppe Pedersen. Íslenski boltinn 20. ágúst 2025 06:31
Fáar spilað leik á þessum velli „Mér líður rosalega vel og þetta er eitthvað sem við erum búnar að vera bíða eftir síðan við unnum undanúrslitaleikinn,“ segir Arna Eiríksdóttir fyrir bikarúrslitaleikinn sem fram fer á Laugardalsvelli klukkan fjögur í dag. Íslenski boltinn 16. ágúst 2025 12:00
Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Vestri tók á móti Fram í undanúrslitum Mjólkurbikars karla nú í dag. Mikið var undir enda ljóst að sigurvegarinn væri á leið á Laugardalsvöll og myndi þar mæta Val sem hafði tryggt sig í úrslitaleikinn fyrr í mánuðinum. Eftir markalausar 120 mínútur þá réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni þar sem heimamenn fóru með sigur eftir að hafa skorað úr öllum sínum spyrnum og tryggði sig í leiðinni í úrslitaleikinn í fyrsta sinn í sögunni. Íslenski boltinn 12. júlí 2025 13:31
Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var að störfum við að ferja leikmenn liðsins frá flugvellinum á Ísafirði á hótel Framara í miðbænum þegar Vísir náði tali af honum á ellefta tímanum í morgun. Fram mætir Vestra í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í dag. Íslenski boltinn 12. júlí 2025 11:01
Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Risaleikur fer fram á Ísafirði á laugardaginn kemur þegar Vestri og Fram spila um sæti í bikarúrslitaleiknum í ár. Íslenski boltinn 9. júlí 2025 16:33
„Þetta er svekkjandi“ Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar var svekktur eftir tapið í kvöld. Valsmenn voru töluvert betri þegar líða fór á leikinn og áttu Stjörnumenn fá svör við leik heimamanna. Fótbolti 1. júlí 2025 22:34
„Vonbrigði að komast ekki í úrslitin í fyrra“ „Mér fannst við spila vel, við byrjuðum ekki vel en við náðum að koma okkur inn í leikinn. Eftir 20 mínútur vorum við betra liðið á vellinum og ég er ánægður með frammistöðuna okkar í dag.“ Fótbolti 1. júlí 2025 22:31