

Dómsmálaráðherra hefur ekki útskýrt fyrir umboðsmanni Alþingis hvers vegna Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri var ekki áminntur eftir að hann sendi tveimur fjölmiðlamönnum bréf á bréfsefni embættis hans, vegna máls er varðaði hans eigin hagi.
Það var á grundvelli meðalhófsreglu sem Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri var ekki áminntur eftir að hann sendi tveimur fjölmiðlamönnum bréf á bréfsefni embættis ríkislögreglustjóra vegna máls sem varðaði hann sjálfan.
Ríkislögreglustjóri segir of mikið gert úr ummælum hans um meinta spillingu innan lögreglunnar.
Dómsmálaráðuneytið hefur leitað til utanaðkomandi sérfræðinga vegna eineltismála hjá embætti ríkislögreglustjóra og hafa ráðgjafar meðal annars rætt við sérsveitarmenn. Dómsmálaráðherra segist líta eineltismál alvarlegum augum.
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að dómsmálaráðherra útskýri hvers vegna Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, hafi ekki verið áminntur eftir að hann sendi tveimur fjölmiðlamönnum bréf á bréfsefni embættis ríkislögreglustjóra vegna máls sem varðaði hann sjálfan.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, gagnrýndi framkomu nefndarmanna á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, ræddi hugmyndir sínar um skipulagsbreytingar löggæslu í landinu á fundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fráleitt að málefni ríkislögreglustjóra hafi verið tekið fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í morgun.
Ríkislögreglustjóri hefur, með orðum sínum og gjörðum, komið sér í þá stöðu að hann nýtur ekki lengur trausts í embætti.
Tvö mál er varða einelti ríkislögreglustjóra í garð sérsveitarmanna hafa borist dómsmálaráðuneyti. Fréttablaðið hefur bréf sem dómsmálaráðherra sendi lögreglustjórum undir höndum þar sem hún segir rétt að lögreglan verðirekin sem ein heild. Ríkislögreglustjóra boðin starfslok í sumar, sem ekki varð af.
Dósent í stjórnsýslurétti segir að það sé töluverðum takmörkunum háð að semja um starfslok embættismanna á borð við ríkislögreglustjóra.
Meðal þess sem er til skoðunar innan dómsmálaráðuneytisins til þess að leysa úr þeim deilum sem geysa á milli ríkislögreglustjóra og lögreglunnar í landinu er að hvort sameina ætti embætti Ríkislögreglustjóra og embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Dómsmálaráðherra gefur sér nokkrar vikur til að finna lausn á málinu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra mun koma á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar klukkan níu í fyrramálið til að ræða málefni ríkislögreglustjóra.
Snorri Magnússon, formaður Landsambands lögreglumanna, er hissa á tíðindum dagsins. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að ráðherra verði að útskýra betur hvernig hvernig lögreglan geti verið starfhæf á meðan nefnd á hennar vegum vinni að einhvers konar skipulagsbreytingum.
KOM í krísustjórnun fyrir ríkislögreglustjóra.
Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að ástandið sem upp sé komið innan lögreglunnar sé ekki gott.
Haraldur Johannessen mun ekki stíga til hliðar úr embætti ríkislögreglustjóra þrátt fyrir vantraust átta af níu lögreglustjóra á landinu.
Lögreglustjórar og Landssamband lögreglumanna lýsa yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir dómsmálaráðherra verða að bregðast við.
Viðtal Harald Johannessen við Morgunblaðið á dögunum var kornið sem fyllti mælinn sem varð til þess að formannafundur Landssambands lögreglumanna ákvað að lýsa yfir vantrausti á hendur ríkislögreglustjóra. Formaður félagsins fær ekki séð hvernig Haraldur getur setið áfram í embætti.
Formannafundur Landssambands lögreglumanna hefur bæst í hóp þeirra sem lýsa yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra. Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla nú síðdegis er skorað á Harald að stíga til hliðar.
Átta af níu lögreglustjórum lýsa yfir vantrausti á ríkislögreglustjóra.
Stjórn Landsambands lögreglumanna fundaði með Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra í morgun. Varaformaður landsambandsins segir að enn sé mikið kurr innan stéttarinnar.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir það alvarlegt að æðsti yfirmaður lögreglunnar hér á landi tali um spillingu innan raða lögreglunnar.
Fatnaður lögreglumanna hefur verið eitt af aðal deilumálum embættisins við lögreglufélög og lögregluembætti frá því snemma á þessu ári en um langa hríð hafa embættin sjálf séð um innkaup fyrir lögreglumenn í sínu embætti og því engin stefna á landsvísu hvernig klæðnaður lögreglumanna skuli keyptur.
Ekki er ólíklegt að formenn aðildarfélaga Landssambands lögreglumanna lýsi yfir vantrausti á störf Haraldar Johannessen, ríkislögreglustjóra, á fundi sem verður haldinn eftir helgi. Mikil ólga er meðal lögreglumanna vegna ummæla og framferðis ríkislögreglustjóra undanfarin misseri.
Fyrrverandi lögreglumaður og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur eðlilegt að ríkislögreglustjóri víki úr embætti vegna stöðunnar sem upp er komin.
Lögreglufélag Vestfjarða fagnar því í ályktun sem félagið sendi frá sér í kvöld að stjórnsýsluúttekt fari fram á embætti ríkislögreglustjóra.
Haraldur Johannessen vill gera út um málin utan fjölmiðla.
Tólf ára gamalt brot formanns lögreglufélagsins dregið fram í tengslum við væringar innan lögreglunnar.
Haraldur Johannessen fundar nú með ráðherra.