Verslun
Barnavöruæði hjá VAZ.is VAZ.is er vefverslun vikunnar á Vísi. Lífið samstarf 17.1.2022 10:13 N1 tekur músagildrur sem ekki má nota úr sölu Fyrirtækið N1 hefur tekið límgildrur, sem Matvælastofnun segir ekki samræmast lögum um dýravelferð, úr sölu. Límgildrurnar voru til sölu á sölustöðum og í veferslun N1 þar til síðdegis í dag. Viðskipti innlent 15.1.2022 18:00 N1 selur límgildrur sem óheimilt er að nota Fyrirtækið N1 selur sérstakar límgildrur sem Matvælastofnun hefur sagt að samræmist ekki lögum um dýravelferð. Samkvæmt lögunum er óheimilt að beita aðferðum við aflífun dýra, sem valda þeim óþarfa limlestingum eða kvölum. Viðskipti innlent 15.1.2022 16:54 Meiri neysla við hápunkt faraldursins en árið 2019 Kortavelta innlendra greiðslukorta jókst um 14% í desember miðað við sama mánuð árið 2020. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 18 milljörðum króna og jókst um 90% milli ára miðaða við fast gengi. Viðskipti innlent 14.1.2022 13:32 Forstjóri Haga: Kostnaðarhækkanir „dynja yfir geirann“ sem munu skila sér út í verðlagið Finnur Oddsson, forstjóri Haga sem reka meðal annars matvöruverslanirnar Bónus og Hagkaup, segir kostnaðarverðshækkanir „dynja yfir geirann þessar vikurnar“ og að það blasi við að þær muni „óhjákvæmilega“ finna sér leið út í verðlagið. Innherji 13.1.2022 10:35 Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“ Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar. Neytendur 11.1.2022 17:22 Íslendingar straujuðu kortin fyrir 93 milljarða í desember Heildar greiðslukortavelta, bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna, í desember á nýliðnu ári nam samtals rúmum 101 milljarði króna. Veltan jókst um tæplega 13 prósent frá fyrri mánuði og um 18,6 prósent borið saman við desember á árinu 2020. Innherji 11.1.2022 15:02 Kláraði viðskiptin fyrir utan eftir að hann æsti sig vegna grímuskyldu Óskað var eftir aðstoð lögreglu í ónefndri verslun í Reykjavík í dag þegar viðskiptavinur neitaði að bera andlitsgrímu inn í verslunarhúsnæðinu. Maðurinn sinnti ekki tilmælum starfsmanna og stóð fyrir utan verslunina þegar lögregla kom á staðinn. Innlent 9.1.2022 19:01 Starfsmenn ráðuneytisins ekki með 0,5 prómill í blóðinu alla daga Kaup Fangelsismálastofnunar á tóbaki sem selt er áfram til fanga skýrir þá háu upphæð sem greint var frá í gær að hefði farið frá dómsmálaráðuneytinu í kaup á áfengi og tóbak á síðasta ári. Tæpar 25 milljónir fóru í kaup á tóbaki fyrir fangelsin en tóbaksnotkun fanga fer minnkandi milli ára. Dómsmálaráðuneytið sjálft keypti áfengi fyrir 163 þúsund krónur á síðasta ári. Innlent 6.1.2022 19:00 Slær á fingur Costco vegna tilhögunar á endurnýjun aðildar viðskiptavina Neytendastofa hefur slegið á fingur Costco á Íslandi vegna tilhögunar og kynningar á endurnýjun viðskiptaaðildar hjá versluninni. Er hún talin villandi, ósanngjörn í garð neytenda og til þess fallin að hafa veruleg áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra. Neytendur 1.1.2022 11:06 Gamlársdagur: Hvar er opið og hversu lengi? Hátíðarnar eru annasamur tími fyrir flesta landsmenn og gamlársdagur er þar engin undantekning. Flugeldakaupin eru mörgum mikilvæg og aðrir telja ómissandi að drekka bjór með Skaupinu. Eins og gengur og gerist geta hlutir gleymst þrátt fyrir góðan undirbúning og þá er gott að vita hvar opið er á gamlársdag. Innlent 31.12.2021 07:27 « ‹ 21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 41 ›
Krónan fellir grímuna Verslunarkeðjan Krónan mun frá og með morgundeginum ekki gera kröfu um að viðskiptavinir beri andlitsgrímur, líkt og flestar verslanir hafa að undanförnu gert vegna kórónuveirufaraldursins. Viðskipti innlent 11.2.2022 21:52
Sektar sex verslanir í Eyjum vegna trassaskaps við verðmerkingar Neytendastofa hefur sektað sex verslanir í Vestmannaeyjum þar sem þær hafi ekki sinnt reglum um verðmerkingar. Verslanirnar sem um ræðir eru Flamingó, Heimaey, N1 Friðarhöfn, Póley, Salka og Tvisturinn og nema sektirnar ýmist 50 eða 100 þúsund krónur. Neytendur 9.2.2022 08:10
Herrafataverslun Birgis lokað: „Nú er þrekið búið“ Birgir Georgsson, eigandi Herrafataverslunar Birgis, hefur ákveðið að loka versluninni þann 28. febrúar. Hann segir þrekið búið en hann greindist með parkinsonsjúkdóminn fyrir nokkrum árum. Viðskipti innlent 8.2.2022 16:40
Sandra nýr markaðsstjóri Smáralindar Sandra Arnardóttir hefur verið ráðin í starf markaðsstjóra Smáralindar en hún tekur við starfinu af Tinnu Jóhannsdóttur. Viðskipti innlent 8.2.2022 14:07
Skilur ekki að borgin ætli að gera veður út af saklausum skiltum Borgin ætlar að fara fram á það við verslunareigendur við Ármúla að þeir fjarlægi skilti sem banna öðrum en viðskiptavinum að leggja fyrir utan verslanir þeirra. Sjálfir eru þeir steinhissa á málinu, töldu sig eiga stæðin og segja borgina vera að gera veður út af engu. Innlent 4.2.2022 22:00
Lofa hálfri milljón í fundarlaun fyrir vélsleða Verslunin Ellingsen lofar ríflegum fundarlaunum til þess sem veitt getur upplýsingar um stolna vélsleða. Sleðunum var stolið af lóð verslunarinnar á Fiskislóð úti á Granda í Reykjavík í gær. Innlent 2.2.2022 17:56
Krónan fram úr Bónus í fyrsta sinn og Boozt kom inn með látum Bónus var með 30,9 prósent markaðshlutdeild á matvörumarkaði árið 2021 og Krónan var með 28,3 prósent hlutdeild sé litið yfir allt árið í fyrra. Hins vegar gerðist það í fyrsta sinn í apríl 2021 að Krónan tók fram úr Bónus á þessum markaði. Innherji 31.1.2022 14:00
Telur að Íslendingar muni fyrirgefa Dönum Formaður Norræna félagsins telur ákvörðun Hagkaupa um að fresta Dönskum dögum í ljósi aðstæðna ekki til marks um stækkandi gjá milli Danmerkur og Íslands. Hann telur að Íslendingar muni fyrirgefa nágrönnum sínum meintan grikk á EM í gær, fyrr en síðar. Innlent 27.1.2022 21:57
Hagkaup frestar Dönskum dögum í ljósi aðstæðna Stjórnendur Hagkaups hafa tekið ákvörðun um að fresta fyrirhöguðum Dönskum dögum um óákveðinn tíma í ljósi aðstæðna. Líkt og frægt er orðið töpuðu Danir fyrir Frökkum í mikilvægum leik á EM í handbolta í gærkvöldi en með sigri Dana hefðu Íslendingar komist í undanúrslitin. Viðskipti innlent 27.1.2022 11:42
„Það eru allir að boða hækkanir“ Búast má við að verðhækkanir á næstu vikum muni svipa til þeirra sem sáust eftir hrun, að sögn framkvæmdastjóra Bónus. Hins vegar sé staðan í dag sú að bæði innlendir og erlendir aðilar hafi boðað hækkanir en að í hruninu hafi það nær eingöngu átt við um innfluttar vörur. Hann segir allt gert til þess að milda hækkanirnar eins og hægt er. Neytendur 26.1.2022 22:01
Hvetur fyrirtæki til að hagræða frekar en að grípa til hækkana ASÍ gefur lítið fyrir áhyggjur stórfyrirtækja um yfirvofandi verðhækkanir, enda séu þau sannarlega ekki á flæðiskeri stödd, og geti vel hagrætt fremur en að velta hækkunum út í verðlagið. Heildsölur og stærri fyrirtæki hafa lýst því yfir að hækkanir muni dynja yfir á næstu vikum. Innlent 24.1.2022 19:16
Verslunum Olís á landsbyggðinni breytt í afgreiðslulagera og söluskrifstofur Nýtt félag verður stofnað innan Haga á næstu mánuðum sem er ætlað að sjá um þjónustu og sölu á hreinlætis-, rekstrar- og heilbrigðisvörum til stórnotenda. Nýja rekstrareiningin mun fá heitið Stórkaup en Hagar lokuðu samnefndri verslun sinni í maí á síðasta ári. Viðskipti innlent 24.1.2022 14:47
Tekjur Haga yfir væntingum vegna „innfluttrar verðbólgu“ Þrátt fyrir að vörusala Bónus, sem var 15 milljarðar króna á síðasta ársfjórðungi, hafi verið umfram áætlanir Haga þá er framlegðin enn undir langtímamarkmiðum félagsins. Það skýrist af kostnaðarverðshækkunum og hækkandi hrávöruverði auk þess sem flutningskostnaður hefur rokið upp sem má vænta að hafi einnig nartað í framlegð Haga. Innherji 24.1.2022 08:32
Hafði aftur betur gegn Bílabúð Benna vegna illa lyktandi Porsche Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Bílabúð Benna þurfi að greiða Ólöfu Finnsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dómstólasýslunnar, fjórtán milljónir vegna gallaðs Porsche-jeppa. Neytendur 22.1.2022 08:28
Rándýr stóll Góða hirðisins loksins kominn með heimili Saga rándýra hönnunarstólsins sem var til sölu hjá Góða hirðinum fékk farsælan endi í dag. Stóllinn hefur hlotið sannkallaða yfirhalningu og var í dag gefinn til góðgerðasamtaka. Innlent 20.1.2022 21:00
Heimamenn fylla skarðið sem risinn skildi eftir Heimamenn á Húsavík láta ekki deigan síga þótt búið sé að loka einu byggingarvöruverslun bæjarins. Verktakar á svæðinu hafa tekið höndum saman og munu þeir opna nýja byggingarvöruverslun í bænum í næsta mánuði. Viðskipti innlent 20.1.2022 14:10
Forsvarsmenn verslunar og ferðaþjónustu kalla eftir bólusetningarvottorðum Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir óþol atvinnulífsins gagnvart sóttvarnaaðgerðum og örum breytingum þar á orðið mikið. Innlent 20.1.2022 06:57
Þriðji þorrinn sem fer í súginn vegna samkomutakmarkanna og ástandið súrt Á föstudaginn hefst þriðji þorrinn sem fer í súginn vegna samkomutakmarkanna. Þetta segir veitingamaður í Múlakaffi. Hann vinnur nú að því að koma fimmtán tonnum af súrmat út, en flest öll íþróttafélög hafa ýmist aflýst eða frestað þorrablótum. Innlent 18.1.2022 20:00
Bjarni Haraldsson á Sauðárkróki er látinn Bjarni Haraldsson, verslunarmaður á Sauðárkróki, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki aðfaranótt gærdagsins. Innlent 18.1.2022 09:57
N1 tekur músagildrur sem ekki má nota úr sölu Fyrirtækið N1 hefur tekið límgildrur, sem Matvælastofnun segir ekki samræmast lögum um dýravelferð, úr sölu. Límgildrurnar voru til sölu á sölustöðum og í veferslun N1 þar til síðdegis í dag. Viðskipti innlent 15.1.2022 18:00
N1 selur límgildrur sem óheimilt er að nota Fyrirtækið N1 selur sérstakar límgildrur sem Matvælastofnun hefur sagt að samræmist ekki lögum um dýravelferð. Samkvæmt lögunum er óheimilt að beita aðferðum við aflífun dýra, sem valda þeim óþarfa limlestingum eða kvölum. Viðskipti innlent 15.1.2022 16:54
Meiri neysla við hápunkt faraldursins en árið 2019 Kortavelta innlendra greiðslukorta jókst um 14% í desember miðað við sama mánuð árið 2020. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 18 milljörðum króna og jókst um 90% milli ára miðaða við fast gengi. Viðskipti innlent 14.1.2022 13:32
Forstjóri Haga: Kostnaðarhækkanir „dynja yfir geirann“ sem munu skila sér út í verðlagið Finnur Oddsson, forstjóri Haga sem reka meðal annars matvöruverslanirnar Bónus og Hagkaup, segir kostnaðarverðshækkanir „dynja yfir geirann þessar vikurnar“ og að það blasi við að þær muni „óhjákvæmilega“ finna sér leið út í verðlagið. Innherji 13.1.2022 10:35
Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“ Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar. Neytendur 11.1.2022 17:22
Íslendingar straujuðu kortin fyrir 93 milljarða í desember Heildar greiðslukortavelta, bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna, í desember á nýliðnu ári nam samtals rúmum 101 milljarði króna. Veltan jókst um tæplega 13 prósent frá fyrri mánuði og um 18,6 prósent borið saman við desember á árinu 2020. Innherji 11.1.2022 15:02
Kláraði viðskiptin fyrir utan eftir að hann æsti sig vegna grímuskyldu Óskað var eftir aðstoð lögreglu í ónefndri verslun í Reykjavík í dag þegar viðskiptavinur neitaði að bera andlitsgrímu inn í verslunarhúsnæðinu. Maðurinn sinnti ekki tilmælum starfsmanna og stóð fyrir utan verslunina þegar lögregla kom á staðinn. Innlent 9.1.2022 19:01
Starfsmenn ráðuneytisins ekki með 0,5 prómill í blóðinu alla daga Kaup Fangelsismálastofnunar á tóbaki sem selt er áfram til fanga skýrir þá háu upphæð sem greint var frá í gær að hefði farið frá dómsmálaráðuneytinu í kaup á áfengi og tóbak á síðasta ári. Tæpar 25 milljónir fóru í kaup á tóbaki fyrir fangelsin en tóbaksnotkun fanga fer minnkandi milli ára. Dómsmálaráðuneytið sjálft keypti áfengi fyrir 163 þúsund krónur á síðasta ári. Innlent 6.1.2022 19:00
Slær á fingur Costco vegna tilhögunar á endurnýjun aðildar viðskiptavina Neytendastofa hefur slegið á fingur Costco á Íslandi vegna tilhögunar og kynningar á endurnýjun viðskiptaaðildar hjá versluninni. Er hún talin villandi, ósanngjörn í garð neytenda og til þess fallin að hafa veruleg áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra. Neytendur 1.1.2022 11:06
Gamlársdagur: Hvar er opið og hversu lengi? Hátíðarnar eru annasamur tími fyrir flesta landsmenn og gamlársdagur er þar engin undantekning. Flugeldakaupin eru mörgum mikilvæg og aðrir telja ómissandi að drekka bjór með Skaupinu. Eins og gengur og gerist geta hlutir gleymst þrátt fyrir góðan undirbúning og þá er gott að vita hvar opið er á gamlársdag. Innlent 31.12.2021 07:27