Fylkir

„Við fórum mögulega smá í svona krúskontról á slæman hátt“
Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, var að vonum sáttur eftir dramatískan 4-3 sigur KR gegn Fylki í Árbænum nú í kvöld.

Uppgjörið: Fylkir - KR 3-4 | Markaveisla í Árbænum
KR fór í heimsókn í Árbæ þar sem liðið mætti Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla. Lokatölur 3-4 fyrir gestina í hreint út sagt ótrúlegum leik.

Aron klár í slaginn í kvöld
Aron Sigurðarson verður líklega í byrjunarliði KR sem hefur leik í Bestu deild karla gegn Fylki í kvöld. Minniháttar meiðsli plöguðu hann á dögunum en hann hefur æft á fullu í vikunni.

Fylki berst liðsstyrkur úr Val fyrir baráttuna í Bestu deildinni
Orri Hrafn Kjartansson mun leika með Fylki á komandi tímabili í Bestu deildinni. Hann kemur á láni til félagsins frá Valsmönnum út tímabilið.

„Þetta er fallhópur“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Fylkismenn tefli á tæpasta vað með því styrkja liðið ekki meira en þeir hafa gert fyrir átökin í Bestu deild karla í sumar.

Besta-spáin 2024: Trú Rúnars Páls þarf að flytja fjöll
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fylki 11. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Ólíkt gengi hjá nýliðunum í Lengjubikarnum í kvöld
Víkingur Reykjavík og Fylkir fóru upp síðasta haust og spila í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar. Liðin spiluðu í Lengjubikarnum í kvöld en aðeins annað þeirra fagnaði sigri.

Gylfa hafi verið tilkynnt að hann sé ekki í landsliðshópnum
Gylfi Þór Sigurðsson fékk að vita á dögunum að hann verði ekki í landsliðshópi Íslands sem tilkynntur verður á morgun ef marka má fyrirliða Fylkis. Gylfi æfði með Fylkismönnum á Spáni í síðustu viku.

Arnar Númi í Árbæinn
Knattspyrnumaðurinn Arnar Númi Gíslason, sem á að baki 22 leiki fyrir yngri landslið Íslands, er genginn í raðir Fylkis frá Breiðabliki.

Sigurður Bjartur líklega á förum frá KR
Það virðast ætla að verða frekari breytingar á leikmannahópi KR áður en tímabilið í Bestu deild karla í knattspyrnu hefst.

Þrenna hjá Pedersen og Fylkir valtaði yfir Fjölni
Valur og Fylkir unnu stóra sigra í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í dag. Patrick Pedersen var á skotskónum hjá Val gegn Þrótti.

Víkingur vann meðan Fjölnir og Leiknir skildu jöfn
Undirbúningstímabil íslenskra knattspyrnuliða fyrir komandi átök í sumar hófst af alvöru með fyrstu leikjum Reykjavíkurmótsins í dag.

Skór Ólafs Karls komnir upp í hillu
Ólafur Karl Finsen hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna en hann greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í dag.

Gunnlaugur genginn í raðir Fylkis
Knattspyrnumaðurinn Gunnlaugur Fannar Guðmundsson er genginn í raðir Fylkis frá Keflavík og mun leika með Árbæjarliðinu á komandi leiktíð í Bestu-deild karla í knattspyrnu.

Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
16-liða úrslitum Poweradebikars kvenna lauk í kvöld með nokkuð óvæntum úrslitum. Íslandsmeistarar Vals sátu hjá þessa umferð og fara beint í þá næstu.

Guðmundur Tyrfingsson keyrir frá Selfossi og í Árbæinn
Fótboltamaðurinn Guðmundur Tyrfingsson er genginn í raðir Fylkis frá Selfossi.

Hlutur úr The Sixth Sense réði úrslitunum
Í Kviss á laugardagskvöldið mættust Fylkir og ÍR.

„Værum í Evrópusæti hefðum við spilað svona í allt sumar“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var í skýjunum með að hafa náð að halda liðinu í Bestu-deildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Fram 5-1 | Fylkir bjargaði sér frá falli með stórsigri
Fylkir rúllaði yfir Fram og bjargaði sér frá falli. Heimamenn settu tóninn strax í upphafi leiks og skoruðu þrjú. Fylkir bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik og Fylkir og Fram verða í Bestu-deildinni á næsta tímabili.

Vinskapur nafnanna settur til hliðar í dag: „Ábyggilega furðulegt fyrir hann“
Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, segir þægilegt fyrir sitt lið að vita að það hafi örlögin í sínum höndum fyrir mikilvægan leik gegn Fram í einum af fallbaráttuslag dagsins í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta. Ragnar Sigurðsson, þjálfari Fram, er uppalinn Fylkismaður og vinur Ragnars Braga sem telur furðulega stöðu blasa við vini sínum.

KA og Keflavík hafa engu að keppa en geta ráðið því hvaða lið fellur úr Bestu
Lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta fer næstum því öll fram í dag og það er mikil spenna á botninum þar sem fjögur lið eiga það enn á hættu að falla úr deildinni.

Menningar- og viðskiptaráðherra fór á kostum í Besta þættinum
Víkingur og Fylkir áttust við í lokaþætti Besta þáttarins í sumar. Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, fór á kostum í þættinum.

Mörkin úr Bestu: Valsmenn útkljáðu Evrópubaráttuna | Eyjamenn eygja von
Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær, átján mörk voru skoruð og tóku línur að skýrast fyrir lokaumferð deildarinnar sem fer fram eftir tæpa viku. Evrópubaráttan er ráðin en enn er óvíst hvaða lið fellur með Keflavík.

Leik lokið: Keflavík 1 - 3 Fylkir | Árbæingar sækja mikilvæg stig í botnbaráttunni
Fylkir er hársbreidd frá því að halda sæti sínu Bestu deild karla eftir frábæran endurkomu sigur á Keflavík suður með sjó í dag.

Missti af leik vegna barneigna
Pétur Bjarnason var ekki í leikmannahópi Fylkis þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli við HK í neðri hluta Bestu deildarinnar í gær. Leikmaðurinn hafði komið við sögu í öllum nema einum leik Fylkis á þessu tímabili og spurningar vöknuðu um ástæðu fjarverunnar.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Fylkir 2-2 | Tíu Árbæingar náðu í stig
HK og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í Kórnum. Þrátt fyrir að hafa spilað nánast allan leikinn manni færri og lent tvisvar undir sýndi Fylkir mikinn karakter og náði í jafntefli. Gestirnir voru betri og óheppnir að ná ekki í öll stigin. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Enginn skjálfti í HK-ingum: Það situr enn í okkur að þeir hafi unnið deildina í fyrra
HK mætir Fylki í kvöld í neðri hluta Bestu deildar karla en þetta er gríðarlega mikilvægur leikur í baráttunni um áframhaldandi sæti í Bestu deildinni.

FH með flest karakterstig en Blikar á botninum
FH-ingar eru með yfirburðarforystu á einum lista í Bestu deildar karla í fótbolta í sumar. Þeir hafa náð flestum stigum út úr leikjum þar sem þeir lenda undir.

„Rosalega margt jákvætt fyrir KA sem kemur úr þessum leik“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var að vonum sáttur með góðan 4-2 sigur á Fylki í Árbænum nú í dag. KA-menn spiluðu flottan bolta og skoruðu fjögur glæsileg mörk. Hallgrímur segir að það hafi verið margt jákvætt sem kom út úr þessu leik fyrir sitt lið.

Umfjöllun og viðtal: Fylkir - KA 2-4 | Árbæingum mistókst að slíta sig frá fallsætunum
Fylkir tók á móti KA í annarri umferð neðri hluta Bestu deild karla nú í dag. Fyrir leikinn var KA með 32 stig í efsta sæti neðri hluta deildarinnar á meðan Fylkir var tveimur sætum neðar en þó aðeins einu stigi frá fallsæti. Svo fór að lokum að KA vann mjög góðan 4-2 sigur sigur og styrki stöðu sína í 7. sætinu í leiðinni.