
UMF Njarðvík

Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“
Njarðvíkingar bíða spenntir eftir því að taka nýtt íþróttahús í notkun en framkvæmdir eru á lokametrunum suður með sjó.

Njarðvík mistókst að komast á toppinn og botnliðið náði í mikilvæg stig
Afturelding vann góðan 5-2 sigur er liðið heimsótti Njarðvík í Lengudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Á sama tíma vann botnlið Þróttar mikilvægan 1-0 sigur gegn Grindavík.

Fimm mörk og eitt rautt spjald í seinni hálfleik í sigri Njarðvíkur
Grótta tapaði 2-3 á móti Njarðvík í fyrsta leik 8. umferð Lengjudeildar karla. Öll fimm mörk leiksins og eitt rautt spjald litu dagsins ljós í seinni hálfleik.

Njarðvík yfirgefur Ljónagryfjuna og fær nýjan heimavöll afhentan í sumar
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur yfirgefur hina fornfrægu Ljónagryfju. Nýr heimvöllur í nýju íþróttahúsi við Stapaskóla verður afhentur þann 29. júlí næstkomandi.

Fjölnir fagnaði öruggum sigri og situr í efsta sæti deildarinnar
Fjölnir vann öruggan 4-2 sigur gegn Njarðvík og tyllti sér á toppinn í Lengjudeild karla.

Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum
Njarðvík gerði sér lítið fyrir og valtaði fyrir Þór, 5-1, þegar liðin áttust við suður með sjó í Lengjudeild karla í kvöld.

Rúnar Ingi og Einar Árni staðfestir sem þjálfarar Njarðvíkur
Rúnar Ingi Erlingsson hefur tekið við þjálfun karlaliðs Njarðvíkur í körfubolta. Einar Árni Jóhannsson tekur við störfum Rúnars með kvennaliðið.

Myndasyrpa: Keflavík Íslandsmeistari 2024
Keflavík er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta árið 2024. Liðið lagði Njarðvík örugglega í þremur leikjum og er óumdeilanlega besta lið landsins. Ljósmyndari Vísis var á svæðinu og myndaði leikinn sem og fagnaðarlæti Keflavíkur í leikslok.

„Þá fóru að læðast inn hugsanir sem ég var að reyna að halda í burtu“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta, var klökkur þegar hann mætti í viðtal eftir að lið hans hafði tapað fyrir Keflavík í þriðja leik liðanna í úrslitum. Tapið þýðir að Keflavík er Íslandsmeistari 2024 en um var að ræða síðasta leik Rúnars Inga með liðið.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Keflavík-Njarðvík 72-56 | Keflavík Íslandsmeistari 2024
Keflvíkingar voru í kjörstöðu til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í Subway-deild kvenna í kvöld og sópa þar með Njarðvíkingum í hverru einustu viðureign liðanna og sú varð raunin að lokum.

Titill undir og spennan mikil
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, segir spennuna meiri en stressið fyrir leik liðsins við Njarðvík í úrslitaeinvígi kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík verður Íslandsmeistari með sigri.

Keflavík er 10-0 á móti Njarðvík í körfunni í vetur
Keflavíkurliðin hafa unnið alla tíu leiki sína á móti nágrönnum sínum úr Njarðvík á þessu tímabili í körfuboltanum.

„Þetta eru tvö dúndurlið“
Sverrir Þór Sverrisson var ánægður með frammistöðu síns liðs í sigrinum á Njarðvík í kvöld. Hann sagði einvíginu hvergi nærri lokið þó staðan væri orðin 2-0 fyrir Keflavík.

„Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“
Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur kallar eftir meira hugrekki í leik sinna leikmanna en Njarðvík tapaði 2-0 gegn Keflavík í kvöld í úrslitaeinvígi Subway-deildar kvenna.

Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn
Keflavík er komið í lykilstöðu í úrslitaeinvígi liðsins gegn Njarðvík í Subway-deild kvenna. Liðið vann 81-71 sigur í Ljónagryfjunni í kvöld og er komið í 2-0 í einvígi liðanna. Þrjá sigra þarf til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga
Leiknir vann Breiðholtsslaginn gegn ÍR og Njarðvík hélt sigurgöngu sinni í Lengjudeild karla áfram í dag.

„Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“
Sjaldan eða aldrei hefur þjálfari mætt í viðtal jafn augljóslega brjálaður yfir úrslitum leiks og Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur í kvöld, en hans konur máttu þola tap í Keflavík 94-91 eftir tvíframlengdan leik.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir
Keflavík er komið 1-0 yfir í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta eftir ótrúlegan sigur á Njarðvík í tvíframlengdum leik. Ef marka má leik kvöldsins verður einvígið algjör veisla allt til enda.

Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu
Keflavík og Njarðvík hefja í kvöld úrslitaeinvígi sitt um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta.

Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur verður næsti þjálfari karlaliðs félagsins í körfubolta. Þetta herma heimildir Vísis og sömuleiðis bendir margt til þess að Einar Árni Jóhannsson taka við kvennaliði Njarðvíkur af Rúnari Inga.

Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur
Þjálfari Njarðvíkinga var að sjálfsögðu súr í bragði þegar hann talaði við Andra Má Eggertsson skömmu eftir leik. Hann mun ekki halda áfram með Njarðvík eftir tímabilið.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins
Valur mun mæta Grindavík í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn með 85-82 sigri á Njarðvík í kvöld í oddaleiknum. Þeir læstu kofanum seinni hluta fjórða leikhlutans þegar þeir voru 11 stigum undir og sneru taflinu við.

Oddaleikur Vals og Njarðvíkur: Frákastakóngar liðanna skila mestu
Valur og Njarðvík spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild karla í körfubolta.

Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld
Það er sannkallaður hátíðardagur hjá körfuboltaunnendum því í kvöld fara fram tveir oddaleikir í Subway-deild karla. Slíkt gerist ekki á hverju ári.

Fyrsta skiptið í úrslitakeppninni eftir „Guð blessi Ísland“
Keflvíkingar tryggðu sér í gær oddaleik í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Grindavík í úrslitakeppni Subway deild karla í körfubolta. Það þýðir að við fáum oddaleik í báðum undanúrslitaeinvígunum í ár.

Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix
Bandaríkjamaðurinn Chaz Williams segist kominn með grænt blóð í æðar eftir veru sína hjá Njarðvík og er staðráðinn í að færa liðinu Íslandsmeistaratitil í körfubolta á næstu vikum.

„Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“
Njarðvíkingar lögðu Val af velli í fjórða leik liðana í ljónagryfjunni 91-88 og tryggðu sér um leið oddaleik til að komast í úrslit Subway deildar karla.

„Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“
Njarðvíkingar lögðu Val af velli í fjórða leik liðana í ljónagryfjunni 91-88 og tryggðu sér um leið oddaleik til að komast í úrslit Subway deildar karla.

Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik
Oddaleik þarf til að skera úr um hvort Njarðvík eða Valur muni leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Njarðvíkingar voru með bakið upp við vegg, en unnu dramatískan sigur á heimavelli í fjórða leik liðanna í kvöld, 91-88.

„Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“
Njarðvíkingar þurftu að sætta sig við súrt eins stigs tap, 68-67, gegn Valsmönnum á Hlíðarenda í kvöld en úrslit leiksins réðust á vítalínunni. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkinga var ekki sáttur við dómgæsluna undir lokin.