Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Leika gegn Kongó á HM í dag

Keppni á heimsmeistaramóti landsliða leikmanna 21 árs og yngri í handknattleik hófst í Ungverjalandi í gær. Íslendingar sátu yfir í fyrstu umferð en mæta Kongómönnum í dag. Kongómenn steinlágu fyrir Þjóðverjum í gær með 38 marka mun, 48-10. Auk Þjóðverja og Kongómanna eru Chilemenn og Spánverjar með Íslendingum í riðli.

Sport
Fréttamynd

Baldvin áfram hjá Val

Baldvin Þorsteinsson skrifaði í dag undir samning við handknattleiksdeild Vals en leikmaðurinn sem hefur leikið með Hlíðarendaliðinu undanfarin tvö ár hafði hugsað sér til hreyfings en hefur nú ákveðið að vera áfram í herbúðum liðsins. Þá gerði liðið samning við franska leikmanninn Mohamadi Loutoufi...

Sport
Fréttamynd

Stjarnan steinlá gegn Lemgo

Lið Stjörnunnar úr Garðbæ í handknattleik karla steinlá fyrir þýska liðinu Lemgo í kvöld 48-23 á 16-liða æfingamóti, sem hófst í Hessen í Þýskalandi í fyrrakvöld. Staðan í hálfleik var 21-9 fyrir Lemgo. Tite Kalandadze var markahæstur Stjörnunnar með 9 mörk.

Sport
Fréttamynd

Stjarnan tapaði fyrir Melsungen

Stjarnan tapaði fyrir Melsungen 25-31 á Sparkassen-mótinu í handbolta í Þýskalandi í gær. Arnar Theódórsson var markahæstur í liði Stjörnunnar með 7 mörk en David Kekelia kom næstur með 5. Staðan í hálfleik var 17-8. Lemgo vann landslið Katar 39-19 í þessum sama riðli.

Sport
Fréttamynd

Viggó velur HM hóp U21

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari A-landsliðs og U21 árs landsliða Íslands í handbolta tilkynnti í dag 16 manna hóp sem tekur þátt í úrslitakeppni U21 árs landsliða í Ungverjalandi. Allir leikmennirnir nema þrír leika með íslenskum félagsliðum. Mótið hefst á þriðjudaginn n.k. og heldur liðið utan um helgina.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur til erkifjendanna

Guðmundur Pedersen, handboltamaður í FH, gekk í gær í raðir Íslandsmeistara Hauka. Guðmundur hefur alið allan aldur sinn hjá FH og hefur undanfarin tvö ár verið fyrirliði liðsins. Hann gekk frá árs samningi við Hauka.

Sport
Fréttamynd

Tilkynning frá HSÍ vegna Viggó

Stjórn Handknattleikssambands Íslands sendi frá sér tilkynningu vegna máls Viggós Sigurðssonar landsliðsþjálfara. Hér má lesa yfirlýsinguna í heild sinni.

Sport
Fréttamynd

Stjórn HSÍ fundar vegna Viggós

Stjórn Handknattleikssambands Íslands mun funda í dag og um helgina og fara yfir mál Viggós Sigurðssonar landsliðsþjálfara, en honum var fylgt út úr Leifsstöð af lögreglu eftir að hafa lent í útistöðum við flugþjón í vél Flugleiða síðasta sunnudag. Viggó var á leið heim frá Svíþjóð með ungmennalandsliðinu í handknattleik og segir Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, að sambandið líti atburðinn alvarlegum augum.

Sport
Fréttamynd

21. árs og yngri unnu Norðmenn

Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri sigraði Norðmenn 34-31 í lokaleik liðsins á opna skandinavíumótinu en leikið var í svíþjóð. Arnór Atlason í Magdeburg var markahæstur hann skoraði 7 mörk.

Sport
Fréttamynd

Tap gegn Svíum

Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri tapaði í gær fyrir Svíum 23-20 á Opna Skandinavíumótinu sem fer fram í Svíþjóð. Staðan í hálfleik var jöfn 8-8. Björgvin Gústafsson var bestur íslenska liðsins og varði 18 skot. Íslenska liðið mætir því norska í dag.

Sport
Fréttamynd

Handboltinn af stað 17. september

Handboltavertíðin hefst formlega laugardaginn 17.september þá fara fram leikirnir í Meistarakeppni HSÍ og leikið verður að Ásvöllum í Hafnarfirði. Íslandsmóti karla hefst síðan miðvikudaginn 21. september og Íslandsmót kvenna fer af stað laugardaginn 24. september.

Sport
Fréttamynd

Haukar til Lúxemborg

Í morgun var dregið í 1. umferð á Evrópumótum félagsliða í handknattleik. Íslandsmeistarar Hauka í handknattleik karla drógust gegn Berchem í Lúxemborg í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Valur dróst gegn Tbilisi í Georgíu í 1. umferð í Evrópukeppni félagsliða.

Sport
Fréttamynd

Lukkudráttur hjá Haukunum

Íslandsmeistarar Hauka duttu svo sannarlega í lukkupottinn er dregið var í forkepni meistaradeildar Evrópu. Liðið á greiða leið í riðlakeppnina en Haukar drógust gegn Berchem frá Lúxemborg en hvorki liðið né landið hafa verið hátt skrifuð í evrópskum handbolta.

Sport
Fréttamynd

Heimir Ríkarðs til Vals

Handboltaþjálfarinn Heimir Ríkarðsson hefur bundið enda á marga vikna vangaveltur um framtíð sína með því að skrifa undir tveggja ára samning við Val. Þar mun Heimir gegna starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks liðsins ásamt því að sjá um þjálfun 2. og 3. flokks félagsins.

Sport
Fréttamynd

Heimir þjálfar Valsmenn

Heimir Ríkarðsson, einn reyndasti og virtasti handboltaþjálfari landsins, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Vals.Heimir mun aðstoða Óskar Bjarna Óskarsson með meistaraflokk karla ásamt því að þjálfa 2. og 3. flokk karla hjá félaginu

Sport
Fréttamynd

Mæta Serbíu í janúar

Karlalandsliðið í handbolta leikur fyrsta leik sinn á Evrópumótinu í Sviss í 26. janúar á næsta ári gegn Serbíu og Svartfjallalandi en leikjadagskrá mótsins kom út í gær. Þeir leika einnig gegn Dönum og Ungverjum í C-riðli en þrjár efstu þjóðirnar komast áfram í milliriðla.

Sport
Fréttamynd

Valinn í úrvalslið Evrópumótsins

Ernir Arnarson úr Aftureldingu var valinn í úrvalsliðið á Opna Evrópumótinu í handbolta, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, sem haldið er í Gautaborg. Hann var einnig valinn besta örvhenta skyttan. Íslenska liðið varð í 11. sæti, unnu Sviss 26-23 í lokaleiknum.

Sport
Fréttamynd

Einar Örn til Spánar

Hornamaðurinn Einar Örn Jónsson er búinn að semja við spænska úrvalsdeildarfélagið Torrevieja en hann hefur síðustu ár leikið með Wallau Massenheim.Þýska félagið fór sem kunnugt er á hausinn og því varð Einar að leita á önnur mið og úr varð að hann fór til Spánar.

Sport
Fréttamynd

Mætum Dönum, Ungverjum og Serbum

Íslenska handboltalandsliðið er í riðli með Dönum, Ungverjum og Serbum á Evrópumótinu sem verður í Sviss í janúar á næsta ári. Dregið var í riðla í Sviss í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Íslendingar í 4. styrkleikaflokki

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik er í 4. styrkleikaflokki en dregið verður í riðla Evrópukeppninnar í Luzern í Sviss á laugardag. Íslendingar tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni um helgina með sigri á Hvít-Rússum með 12 marka mun samtals. Norðmenn, Úkraínumenn og Slóvakar eru í sama styrkleikaflokki og Íslendingar geta því ekki lent á móti þessum liðum.

Sport
Fréttamynd

Leika við Hvít-Rússa í dag

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik mætir liði Hvít-Rússa í dag í síðari leik liðanna um þátttökurétt í lokakeppni Evrópumóts landsliða í Sviss á næsta ári. Strákarnir unnu fyrri leikinn með níu marka mun, 33-24.

Sport
Fréttamynd

Dönsk handboltakona til Gróttu/KR

Danska handboltakonan Karen Smidt er gengin til liðs við Gróttu/KR í úrvalsdeild kvenna í handboltanum. Hún er 26 ára og kemur frá Viborg. Smidt kom til landsins um síðustu helgi og hefur skoðað aðstæður hjá liðinu síðan. Hún þykir mikill fengur fyrir Gróttu/KR enda Viborg eitt besta liðið í dönsku deildinni.

Sport
Fréttamynd

Komnir inn á EM í Svíss 2006

Íslenska handboltalandsliðið tryggði sér áðan sæti á Evrópumótinu í Sviss sem fram fer eftir áramót. Ísland vann þriggja marka sigur, 31-34, á Hvít Rússum í seinni leik liðanna sem fram fór í Minsk. Íslensku strákarnir unnu þar með samanlagt með tólf marka mun eftir 33-24 sigur í fyrri leiknum í Kaplakrika. Einar Hólmgeirsson var markahæstur í dag með 7 mörk.

Sport
Fréttamynd

Ísland með eins mark forskot

Íslenska handboltalandsliðið er með eins marks forskot, 18-17, í hálfleik á seinni úrslitaleik sínum við Hvít Rússa um sæti á Evrópumótinu í Sviss í janúar 2006.  Einar Hólmgeirsson er markhæstur með 4 mörk úr 5 skotum.

Sport
Fréttamynd

Frakkar á EM í Sviss

Frakkar sigruðu Ísraelsmenn með 28 mörkum gegn 19 í síðari leik liðanna í umspili um laust sæti í lokakeppni Evrópukeppni landsliða sem fram fer í Sviss í byrjun næsta árs. Þeir tryggðu sér þar með sæti í lokakeppninni en Frakkar höfðu mikla yfirburði gegn Ísraelsmönnum í báðum leikjunum.

Sport
Fréttamynd

Kristinn Björgúlfsson á útleið

Á þriðjudagskvöld skrifaði handknattleiksmaðurinn Kristinn Björgúlfsson undir samning við norska liðið Runar til tveggja ára. Upphaflega ætlaði Kristinn að semja við Elverum en hlutirnir voru fljótir að gerast eftir að Runar sýndi honum áhuga.

Sport
Fréttamynd

Haukar og Valur með í Evrópukeppni

Haukar og Valur verða með á Evrópumótinum í handknattleik á næsta vetri bæði í karla og kvennaflokki. Íslandsmeistarar Hauka í karlaflokki verða með í Meistaradeildinni en kvennaliðið tekur þátt EHF-keppninni. Valur tekur þátt í EHF-keppni karla og kvennalið Vals verður með í Áskorendakeppni Evrópu.

Sport
Fréttamynd

París er borg upp á tíu

Handknattleiksmaðurinn Ragnar Óskarsson er á leið til Frakklands á ný eftir skamma viðveru í Danmörku. Hann hefur ákveðið að ganga til liðs við Parísarliðið US Ivry.

Sport
Fréttamynd

Handboltarisinn að vakna

Handknattleiksdeild FH er stórhuga fyrir næsta tímabil og safnar liði í kvenna- og karlaflokki. Formaðurinn deildarinnar er búinn að fá nóg af meðalmennskunni og segir kominn tíma á að vekja handboltarisann.

Sport
Fréttamynd

Stórsigur á Hvít-Rússum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan 9 marka sigur á Hvít-Rússum, 33-24 í Kaplakrika í kvöld. Staðan í hálfleik var 18-12 fyrir Ísland. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti á Evrópumótinu sem fer fram í Sviss í janúar á næsta ári. Ólafur Stefánsson var markahæstur með 7 mörk.

Sport