Ástin á götunni

Fréttamynd

Beckham óhress með rauða spjaldið

David Beckham var ekki sáttur við að vera rekinn af leikvelli í leiknum gegn Austurríki nú áðan og sagði bæði gulu spjöldin sem hann fékk hafa verið mjög strangir dómar. Sven-Göran Eriksson tók í sama streng, en var sáttur við sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Óvíst með Auðun

"Það er farið að líta betur út með Gunnar Heiðar en það er enn óvissa með Auðun fyrir þennan leik gegn Svíþjóð," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í gær, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar.

Sport
Fréttamynd

Beckham sá rautt

David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, fékk að líta rauða spjaldið á 59. mínútu leiksins við Austurríki, eftir að hafa fengið að líta sitt annað gula spjald. Dómurinn var nokkuð strangur, því austurríski leikmaðurinn kryddaði brot Beckham nokkuð vel og fiskaði hann í raun útaf. Staðan í leiknum er enn 1-0 fyrir England.

Sport
Fréttamynd

Enskir geta þakkað Hollendingum

Englendingar gátu leyft sér að fagna í gærkvöldi eftir sigur liðsins á Austurríki og enn fremur eftir sigur Hollands á Tékklandi. Þau úrslit þýddu að bæði Pólland og England eru komin áfram á HM þar sem þau tvö lið sem ná bestum árangri í 2. sæti riðlanna komast beint áfram.

Sport
Fréttamynd

Hollendingar skutu England á HM

Hollendingar gerðu Englendingum stóran greiða í dag þegar þeir lögðu Tékka 2-0 á útivelli, en sigur Hollendinga þýðir að enska liðið er öruggt með sæti á HM, hvort sem það endar í fyrsta eða öðru sæti riðils síns.

Sport
Fréttamynd

Guðjón æfur eftir tapið í gær

Guðjón Þórðarson, stjóri Notts County, var skiljanlega ekki kátur með sína menn eftir fyrsta tap liðsins á heimavelli á leiktíðinni gegn Boston United í gær og leikmenn hans eiga ekki von á góðu, því hann segist ætla að eyðileggja helgina fyrir þeim.

Sport
Fréttamynd

Englendingar sigruðu Austurríki

Englendingar unnu tilþrifalítinn en mikilvægan sigur á Austurríkismönnum í 6. riðli undankeppni HM í Manchester í dag, en það var Frank Lampard sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 25. mínútu leiksins, en enska liðið lék manni færra frá 59. mínútu, eftir að fyrirliðanum David Beckham var vikið af leikvelli.

Sport
Fréttamynd

Króatar í toppsætið í 8. riðli

Króatar skutust í kvöld í efsta sæti 8. riðilsins í undankeppni HM þegar þeir lögðu Svía 1-0 á heimavelli sínum. Það var Srna sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 56. mínútu. Fyrr um daginn sigruðu Búlgarir Ungverja 2-0 með mörkum frá Berbatov og Lazarov.

Sport
Fréttamynd

Fjórir nýliðar frá Afríku á HM

Mikil dramatík var í Afríkuriðlum undankeppni HM í dag, en eftir leiki dagsins var ljóst að þrjú lönd úr álfunni færu á heimsmeistaramótið í fyrsta skipti í sögunni. Þetta eru Togo, Gana, Fílabeinsströndin og Angóla.

Sport
Fréttamynd

Vilmundur fær 10 mánaða bann

Aganefnd KSÍ dæmdi í gær Vilmund Sveinsson, leikmann í 2. flokki Víkings, í rétt tæplega 10 mánaða keppnisbann fyrir að leggja hendur á dómara í leik í gegn KA 17. september síðastliðinn. Auk þessa voru sex aðrir leikmenn dæmdir í leikbann af aganefndinni, fimm voru dæmdir í tveggja leikja bann og einn í þriggja leikja bann.

Sport
Fréttamynd

Nýtt lið gegn Pólverjum

"Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið eftir seinni æfingu landsliðsins í gær.

Sport
Fréttamynd

Ísland tapaði fyrir Pólverjum

Vináttuleik Íslendinga og Pólverja í knattspyrnu er lokið með 3-2 sigri heimamanna. Kristján Örn Sigurðsson kom íslenska liðinu yfir í fyrri hálfleik og eftir að Pólska liðið jafnaði leikinn, kom Hannes Sigurðsson Íslendingum yfir á ný, en Pólverjar voru betri í síðari hálfleiknum og unnu sanngjarnan 3-2 sigur.

Sport
Fréttamynd

Einbeitingarleysi felldi okkur

Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfarana, var þokkalega sáttur með frammistöðu sinna manna gegn Pólverjum í gær en sagði það óneitanlega vonbrigði að tapa leiknum með þessum hætti.

Sport
Fréttamynd

Loksins sigur hjá U-19

Íslenska U-19 ára landslið Íslands vann í dag góðan 2-0 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í lokaumferð undankeppni EM, en riðillinn var spilaður í Bosníu. Theodór Elmar Bjarnason og Arnór Smárason skoruðu mörk íslenska liðsins seint í leiknum. Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti í riðlinum og kemst ekki áfram í milliriðla.

Sport
Fréttamynd

Hannes kemur Íslendingum yfir

Hannes Þ. Sigurðsson hefur komið íslenska landsliðinu aftur yfir í  Varsjá og staðan er því orðin 2-1 fyrir Ísland, þegar skammt er eftir af fyrri hálfleik. Hannes skoraði með þrumuskoti úr vítateignum á 38. mínútu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Ísland komið yfir gegn Pólverjum

Íslenska landsliðið er komið yfir gegn Pólverjum í Varsjá. Það var Kristján Örn Sigurðsson sem skoraði markið með góðu skoti eftir stundarfjórðung, eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá fyrirliðanum Brynjari Birni Gunnarssyni.

Sport
Fréttamynd

Pólverjar jafna

Það tók Pólverja aðeins tíu mínútur að jafna leikinn gegn íslenska liðinu í vináttulandsleik þjóðanna í Varsjá. Þar var að verki Krzynowek, eftir snarpa sókn heimamanna.

Sport
Fréttamynd

Værukær varnarleikur í Varsjá

Það vantaði fjölmarga lykilmenn í íslenska landsliðið í gær og því kjörið tækifæri fyrir aðra til að sanna sig. Sumir nýttu það tækifæri ágætlega en aðrir miður vel. Pólska liðið er að gera frábæra hluti í undankeppni HM og það er enginn skömm að því að tapa naumlega fyrir þessu liði. Leikur íslenska liðsins gekk upp að mörgu leyti en eins og venjulega varð ömurlegur varnarleikur liðinu að falli.

Sport
Fréttamynd

Enn tapar Notts County

Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku annari deildinni, tapaði enn einum leiknum í kvöld þegar það tók á móti Boston United á heimavelli sínu. Boston hafði sigur 2-1.

Sport
Fréttamynd

Enska U-21 árs liðið tapaði

Enska landsliðið, skipað leikmönnum undir 21 árs, hitaði ekki vel upp fyrir A-landsliðið í gær, þegar það tapaði 2-1 á heimavelli fyrir jafnöldrum sínum frá Austurríki. Carlton Cole kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik, en tvö mörk frá Marc Janco í þeim síðari tryggðu Austurríki sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Pólverjar jafna

Pólverjar eru búnir að jafna leikinn gegn Íslendingum í 2-2 í Varsjá. Markið var heldur ódýrt og kom eftir aukaspyrnu pólska liðsins. Það var varamaðurinn Baszczynski sem skoraði mark Pólverja á 56. mínútu, en skömmu síðar hitnaði í kolunum og lá við slagsmálum milli leikmanna á vítateig pólska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Allt í góðu hjá Wenger og Henry

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að allt sé í himnalagi milli hans og framherjans Thierry Henry, þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi farið fram á að seinka viðræðum um framlengingu á samningi sínum við félagið.

Sport
Fréttamynd

Leikur Íslands og Póllands hafinn

Vináttuleikur Íslendinga og Pólverja í Varsjá er nú hafinn og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Fylgst verður með gangi mála í leiknum hér á Vísi.

Sport
Fréttamynd

Tími hefnda runninn upp

Enska landsliðið í knattspyrnu tekur í dag á móti því austurríska í undankeppni HM 2006. Leikurinn er sá fyrsti hjá landsliði Englands síðan það tapaði heldur óvænt fyrir Norður-Írum í Belfast í síðasta mánuði. Leikurinn skiptir miklu máli fyrir Englendinga sem heyja harða baráttu við Pólverja um toppsæti riðilsins en þessi lið mætast í næstu viku í lokaumferð riðilsins.

Sport
Fréttamynd

Pamarot klár í slaginn með Spurs

Franski bakvörðurinn Noe Pamarot er nú farinn að æfa á fullu með liði Tottenham Hotspurs, eftir að hafa verið meiddur á hné síðan í apríl í vor. "Ég er búinn að vera lengi frá og því var það sérstaklega ánægjulegt að ná að fara í gegn um heila æfingu," sagði Pamarot.

Sport
Fréttamynd

Valur mætir Potsdam í dag

Valsstúlkur mæta í dag þýska liðinu Potsdam í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu en leikurinn fer fram Laugardalsvelli. Ljóst er að lið Vals þarf að eiga góðan leik til þess að leggja þýska liðið að velli þar sem það er án efa eitt það sterkasta í Evrópu um þessar mundir.

Sport
Fréttamynd

Pólverjar komnir yfir

Pólverjar eru komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum við Íslendinga í Varsjá. Það var Smolarek sem skoraði markið á 64. mínútu eftir að hann fékk laglega sendingu innfyrir vörn íslenska liðsins og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Kristáni Finnbogasyni í markinu. Þetta var annað mark Pólverja á aðeins átta mínútum.

Sport
Fréttamynd

Arsenal íhugar kaup á miðjumanni

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á höttunum eftir miðjumanninum Hossam Ghaly hjá Feyenoord í Hollandi. Hossam er 23 ára gamall Egypti og hefur hann viðurkennt að það væri draumur fyrir sig að ganga í raðir enska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Bent ætlar á HM

Framherjinn knái hjá Charlton, Darren Bent, segist gera sér grein fyrir að hann verði að halda áfram að skora grimmt ef hann ætli sér að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM í Þýskalandi næsta sumar, en mikil samkeppni er meðal framherjanna sem koma til greina í liðið.

Sport
Fréttamynd

Hremmingar í Póllandi

Landsliðsframherjinn Heiðar Helguson, leikmaður Fulham, boðaði forföll af persónulegum ástæðum í vináttulandsleikinn gegn Pólverjum annað kvöld en hann verður hins vegar með gegn Svíum á miðvikudaginn. Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke, var kallaður inn í hópinn í hans stað.

Sport