Ástin á götunni

Fréttamynd

Brynjar B. aftur í byrjunarliðið

Landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Króatíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 18:05 í dag í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Nokkrar breytingar eru á byrjunarliðinu frá síðasta leik sem var gegn S.Afríku.

Sport
Fréttamynd

Naumur sigur Englendinga á Wales

Joe Cole leikmaður Chelsea tryggði Englendingum sigur á Wales, 0-1 í undankeppni HM 2006 í fótbolta í dag. Sigurmarkið kom á 54. mínútu en leikurinn fór fram í Cardiff. Með sigrinum komst England á topp riðilsins með 19 stig, einu stigi ofar en Pólverjar sem eru í 2. sæti þegar bæði liðin eiga þrjá leiki eftir.

Sport
Fréttamynd

Leiknir og Stjarnan í 1. deild

Leiknir og Stjarnan tryggðu sér í gær sæti í 1. deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Leiknir vann Njarðvík 3-2 og trónir á toppnum í 2. deild með 37 stig og hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Stjarnan tryggði einnig sæti sitt í 1. deild með 5-0 sigri á Leiftri/ Dalvík. Stjarnan í öðru sæti deildarinnar með 33 stig.

Sport
Fréttamynd

Tap gegn Króötum

Íslendingar töpuðu fyrir Krótötum, 1-3, á Laugardalsvellinum í leik liðanna í undankeppni HM í kvöld. Íslendingar höfðu verðskuldaða 1-0 forystu í hálfleik en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og skoruðu þrjú mörk.

Sport
Fréttamynd

5000 miðar farnir á Króatíuleikinn

Forsölu aðgöngumiða á viðureign Íslands og Króatíu í undankeppni HM 2006 í fótbolta lauk í gærkvöldi og höfðu þá alls selst um 5.000 miðar á leikinn. Aðeins 7000 miðar eru í boði. Leikur Íslands og Króatíu á Laugardalsvelli í dag hefst kl. 18:05 og er miðasala nú opin við Laugardalsvöll. Byrjunarlið Íslands verður kynnt innan skamms

Sport
Fréttamynd

Ísland-Króatía BEINT

Boltavakt Vísis er stödd á Laugardalsvelli þar sem Ísland mætir Króatíu í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Lesendur Vísis geta fylgst með beinni lýsingu frá leiknum á <a href="/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000204&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank">BOLTAVAKTINNI.</a>

Sport
Fréttamynd

Líklegt byrjunarlið Íslands

Byrjunarlið Íslands gegn Króatíu verður tilkynnt kl. 16:00 en leikurinn hefst kl. 18:05. Eiður Smári Guðjohnsen fyrirliði Íslands segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að hann sætti sig ekki við jafntefli gegn Króötum í dag og setji markið hátt. Vísir.is hefur teiknað upp líklegt byrjunarlið Íslands.

Sport
Fréttamynd

Tap fyrir Hollendingum

Ungmennalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði fyrir Hollendingum 1-0 í vináttulandsleik í Hollandi í gær.

Sport
Fréttamynd

Stuart Downing frá í þrjá mánuði

Stuart Downing, leikmaður Middlesbrough, verður frá næstu þrjá mánuðina þar sem hann fór nýlega í uppskurð á hné. Downing er 21 árs miðvallarleikmaður sem hafði gert sér vonir um að vinna sér inn sæti í enska landsliðinu fyrir næstu heimsmeistarakeppni.

Sport
Fréttamynd

Blatter myndi fagna boði Englands

Joseph S. Blatter, formaður alþjóðaknattspyrnusambandins, FIFA, segir að hann myndi fagna boði Englands til að halda heimsmeistarakeppnina árið 2018. "Þetta er vagga fótboltans. Ég myndi segja já og þeir ættu að leggja fram boð," sagði Blatter. London var um daginn valin til að vera vettvangur Ólympíuleikanna árið 2012 eins og kunnugt er.

Sport
Fréttamynd

Eitt fótboltalið Breta á ÓL 2012

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur farið fram á það að Bretar sendi eitt fótboltalið til keppni á Ólympíuleikunum árið 2012, sem fara fram í Lundúnum. Eins og kunnugt er hafa knattspyrnusamböndin fjögur innan Bretlands fengið að senda hvert sitt lið til þátttöku á stórmótum í knattspyrnu en svo verður ekki á Ólympíuleikunum.

Sport
Fréttamynd

Luke Young í byrjunarliðinu?

Svo gæti farið að Luke Young, leikmaður Charlton, verði í byrjunarliði Englands í stöðu hægri bakvarðar. Gary Neville, leikmaður Manchester United, er meiddur en hann er venjulega í þeirri stöðu. Búist hafði verið við að bróðir hans Phil myndi jafnvel leysa hann af en ef marka má æfingu enska landsliðsins í gær er Young líklegri í byrjunarliðið.

Sport
Fréttamynd

2-1 sigur Króatíu á Íslandi

Í dag áttust við landslið Íslands og Króatíu skipuð leikmönnum 21 árs og yngri á KR-vellinum og lauk leiknum með 2-1 sigri gestanna. Króatar skoruðu tvö mörk, eitt í hvorum hálfleik en Emil Hallfreðsson minnkaði muninn með marki úr víti á 88. mínútu. Króatar sitja sem fyrr á toppi riðilsins með 18 stig en Íslendingar eru enn með sjö stig í fjórða sæti.

Sport
Fréttamynd

Sullivan framlengir um eitt ár

Neil Sullivan, markvörður enska 1. deildarliðsins Leeds United, hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár en fyrri samningur hans rennur út í vor. Sullivan kom frá Chelsea árið 2004 og hefur verið á milli stanganna hjá Leeds í 53 leikjum síðan þá. Meiðsli í læri hafa gert honum erfitt fyrir í haust og hefur hann spilað aðeins þrjá leiki.

Sport
Fréttamynd

Forsölu hætt á netinu

Forsölu aðgöngumiða á lansdleik Íslands og Króatíu er nú hætt á vefsvæðunum ksi.is og esso.is. Hún heldur þó áfram í dag á völdum sölustöðum Essó en þegar hafa selst 3500 miðar. Á morgun verður miðasalan eingöngu á Laugardalsvellinum en þá hefur miðaverð hækkað um 500 krónur, bæði í nýju og gömlu stúkunni þar sem núverandi miðaverð er 2000 og 3000 krónur.

Sport
Fréttamynd

Breytt byrjunarlið U-21 landsliðs

Eyjólfur Sveirrisson, þjálfari landsliðs Íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir liði Króatíu á KR-velli klukkan 17. Eins og fram hefur komið eru fjórir fastamenn frá af ýmsum ástæðum, það eru Bjarni Þórður Halldórsson, Ólafur Ingi Skúlason, Viktor Bjarki Arnarsson og Hannes Þ. Sigurðsson.

Sport
Fréttamynd

UEFA vill semja frið við Mourinho

Knattspyrnusamband Evrópu hefur lofað að Jose Mourinho og Chelsea fái að hefja nýtt tímabil í Evrópukeppninni með hreinan skjöld en grunnt var á því góða milli þessara aðila í fyrra. Mourinho var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gagnrýna sænska dómarann Anders Frisk og Frank Rijkaard, knattspyrnustjóra Barcelona.

Sport
Fréttamynd

Giggs ætlar að taka Beckham í gegn

Fyrrum liðsfélagar hjá Manchester United og vinir til margra ára, David Beckham og Ryan Giggs, verða fyrirliðar sinna landsliða er England mætir Wales á þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Ryan Giggs segir að fyrir tíu árum hefði hvorugum þeirra órað fyrir að sá dagur ætti eftir að koma að þeir mætast á velli sem landsliðsfyrirliðar.

Sport
Fréttamynd

Solskjær meiddist aftur

Norski knattspyrnumaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því í morgun var tilkynnt að hann hefði meiðst á hné. Þetta er talið geta orðið til þess að markaskorarinn mikli neyðist til að ákveða að leggja skóna endanlega á hilluna.

Sport
Fréttamynd

Eiður sætti sig ekki við jafntefli

Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði eru sammála um að króatíska liðið sem mætir því íslenska í dag í undankeppni HM sé það sterkasta sem hefur mætt á Laugardalsvöllinn í langan tíma.

Sport
Fréttamynd

West Brom keypti varnarmann

West Brom krækti í varnarmanninn unga Curtis Davies frá Luton Town áður en félagaskiptaglugginn lokaðist á Englandi í gærkvöldi, en hann kostaði félagið um 3 milljónir punda og talinn mikið efni.

Sport
Fréttamynd

Fólkið vildi Solano aftur

Graeme Souness segir að stuðningsmenn Newcastle hafi spilað stóran þátt í því að félagið ákvað að fá Nolberto Solano aftur á St James´ Park, aðeins tæpu ári eftir að hann yfirgaf félagið og fór til Aston Villa.

Sport
Fréttamynd

Breytingar hjá 21. árs og yngri

Eyjólfur Sverrisson þjálfari 21 árs landsliðsins í knattspyrnu hefur orðið að gera 2 breytingar á leikmannahópnum fyrir landsleik Íslendinga og Króata á morgun. Fylkismennirnir Bjarni Þórður Halldórsson og Viktor Bjarki Arnarsson geta ekki verið með.

Sport
Fréttamynd

Guðjón stjóri mánaðarins

Guðjón Þórðarson, hjá Notts County var nú í hádeginu valinn knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku annari deildinni, en það er frábær árangur hjá Guðjóni sem er ný tekinn við liðinu.

Sport
Fréttamynd

Gylfi til Reading

Gylfi Þór Sigurðsson, 16 ára gamall leikmaður Breiðabliks í knattspyrnu gengur til liðs við Reading sem leikur í ensku Championship deildinni þann 1. október næstkomandi. Fyrir hjá Reading eru tveir Íslendingar, Ívar Ingimarsson og landsliðsmaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson.

Sport
Fréttamynd

Carragher ver ákvörðun Liverpool

Varnarmaðurinn Jamie Carragher er ekki á því að Liverpool hafi gert mistök þegar liðið náði ekki í fyrrum sóknarmann sinn Michael Owen frá Real Madrid og bendir á að liðið sé búið að eyða alveg nógum peningum í framherja.

Sport
Fréttamynd

Stark dæmir á laugardag

Wolfgang Stark, frá Þýskalandi dæmir leik Íslands og Króatíu á laugardaginn á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2006. Stark þykir einn bestir dómari heims og dæmir um hverja helgi í þýsku úrvalsdeildinni. Aðstoðarmenn hans koma einnig frá Þýskalandi.

Sport
Fréttamynd

Ronaldinho semur við Barcelona

Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2010 og fetar þar með í fótspor þeirra Samuel Eto´o, Deco, Xavi og Victor Valdes, sem allir hafa framlengt til ársins 2010.

Sport
Fréttamynd

England spilar nýtt kerfi

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands er að hugleiða að spila leikkerfið 4-5-1 á laugardaginn þegar Englendingar spila við Wales í undankeppni HM og það mun þýða að David Beckham verði stillt upp djúpum á miðjunni, fyrir aftan þá Frank Lampard og Steven Gerrard.

Sport
Fréttamynd

Helstu félagaskipti gærdagsins

Félagskiptum í enska boltanum rigndi inn í gær. Dæmi er um að félög hafi fengið einn og fleiri en tvo leikmenn á síðustu stundu. Til að mynda fengu Portsmouth til sín þrjá leikmenn, sem allt eru landsliðsmenn.

Sport