Hernaður
42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 55 ›
Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Erlent 14.3.2022 11:47
Móðir og ófætt barn hennar létust í árás Rússa á fæðingarspítalann Þunguð kona og ófætt barn hennar létust á sjúkrahúsi í Mariupol eftir árás Rússa á fæðingar- og barnasjúkrahús í borginni 9. mars síðastliðinn. Þau létust bæði eftir að læknar reyndu að bjarga barninu í keisaraskurði í kjölfar árásarinnar. Erlent 14.3.2022 10:38
Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. Erlent 14.3.2022 06:54
Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. Erlent 13.3.2022 18:26
Missti annað barnið sitt í sprengjuárás Rússa Pútín Rússlandsforseti sýndi engan vilja til að binda enda á stríðið við Úkraínu að sögn franskra yfirvalda en Pútín átti símafund með Frakklandsforseta og kanslara Þýskalands í dag. Árásir Rússa á nokkrar úkraínskar borgir færðust mjög í aukana í morgun. Við vörum við myndefni sem fylgir myndbandinu í fréttinni. Erlent 12.3.2022 23:00
Rússar verði háðir Kínverjum eftir nýjustu efnahagsþvinganir Evrópusambandið ætlar að meina Rússum aðgang að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem myndi gera þá algerlega háða Kínverjum eða Indverjum þegar efnahagur landsins hrynur. Þetta er á meðal þess sem kynnt var í fjórða pakka þvingunaraðgerða gegn Rússlandi í gær. Erlent 12.3.2022 20:30
Líður öruggari með hverjum deginum sem líður: „Ég veit ekki hvað ég taldi margar hríðskotabyssur“ Íslendingur sem búsettur er í Kænugarði óttast ekki að Rússar séu að undirbúa áhlaup á borgina. Hann segir tilraunir Rússa til að ná úkraínskum borgum á sitt vald hafa misheppnast hrapalega. Næstu tveir dagar komi til með að segja mikið um framhald stríðsins. Erlent 12.3.2022 12:09
Reyna að koma upp flóttaleiðum en segja árásir Rússa linnulausar Sautjándi dagur innrásar Rússa í Úkraínu hófst með látum í morgun þar sem loftvarnasírenur ómuðu í flestum borgum Úkraínu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að koma upp öruggum flóttaleiðum í dag en yfirvöld segja árásir Rússa gera þeim erfitt fyrir og stofna lífi flóttamanna í hættu. Erlent 12.3.2022 11:08
Vaktin: Rússar nálgast Kænugarð og beita stórskotavopnum á íbúasvæði Rússar hófu árásir á borgirnar Lutsk og Dnipro snemma í morgun en þetta er í fyrsta sinn sem innrásarsveitirnar beina sjónum sínum að borgunum tveimur. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 11.3.2022 06:49
Telja Úkraínumenn geta haldið aftur af Rússum við Kænugarð Þó þeir hafi sótt lítillega fram í dag er sókn Rússa að Kænugarði talin vera strand, ef svo má að orði komast. Hugveitan Institute for the Study of War segir auknar líkur á því að Úkraínumenn geti varist sókn Rússa að höfuðborginni, áður en þeim tekst að umkringja hana. Erlent 10.3.2022 23:55
„Við erum að fara lengra og lengra út af brautinni“ Utanríkisráðherra segist ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna. Stríðið sýni skýrt að hægt sé að brjóta niður þau kerfi og réttindi, sem byggð hafa verið upp áratugum saman, á svipstundu. Innlent 10.3.2022 22:33
Fundi ráðherranna lokið: Lavrov heitir því að Rússar verði aldrei aftur háðir Vesturlöndum Fundi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, er lokið. Viðræður ráðherranna skiluðu ekki teljandi árangri en ekki er útilokað að þeir muni funda á ný á næstunni. Erlent 10.3.2022 10:36
Utanríkisráðherrarnir hittast í Tyrklandi til að ræða varanlegt vopnahlé Utanríkisráðherrar Rússlands og Úkraínu munu funda í Tyrklandi í dag en Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segist vonast til að á fundinum verði „dyrnar opnar“ fyrir varanlegu vopnahléi. Erlent 10.3.2022 06:36
Segir árásina á barnaspítalann til marks um þjóðarmorð Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sendi leiðtogum Vesturlanda tóninn í kvöld. Það gerði hann í nýju ávarpi, sem hann birti á netinu þar sem hann sagði Rússa hafa sannað að þeir ætluðu sér að fremja þjóðarmorð gagnvart Úkraínumönnum. Erlent 9.3.2022 23:44
Vaktin: Selenskí sendir vestrinu tóninn Úkraínumenn segjast hafa komið um fjörutíu þúsund manns úr nokkrum borgum Úkraínu sem Rússar sitja um í dag. Tímabundið vopnahlé náðist í morgun og lauk því klukkan sjö að íslenskum tíma. Erlent 9.3.2022 06:55
Óskar segir Rússa ráðast vísvitandi á flóttafólk Óskar Hallgrímsson sem býr með úkraínskri eiginkonu sinni Mariiku í Kænugarði sá í fyrsta skipti í dag þar sem flugskeyti var skotið frá borginni. Hann segir loftvarnir Kænugarðs hafa verið efldar til muna en í morgun hrukku þau hjónin upp við sprengjugný. Innlent 9.3.2022 22:00
Líf milljóna manna í algerri upplausn og neyð Líf milljóna manna er í algerri upplausn og að minnsta kosti hundruð þúsunda eru í algerri neyð vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Í dag voru gerðar tilraunir til að flytja þúsundir manna frá umkringdum borgum víðs vegar um landið. Nú hafa um 2,2 milljónir manna flúið Úkraínu. Erlent 9.3.2022 20:01
Sprengjum varpað á barnaspítala í Mariupol Barnaspítali og meðgöngudeild í úkraínsku borginni Mariupol er nú í rústum eftir að sprengjum var varpað á borgina í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir rússneska hermenn hafa verið að verki. Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að brjóta gegn vopnahléi sem komið var á í dag. Erlent 9.3.2022 16:49
Ísraelar segja viðræður um vopnahlé þokast í rétta átt Axios hefur eftir háttsettum ísraelskum embættismönnum að viðræður milli Rússa og Úkraínumanna um vopnahlé þokist í rétta átt. Báðir eru sagðir hafa slakað á í afstöðu sinni en utanríkisráðherrar ríkjanna funda í Tyrkalandi á morgun. Erlent 9.3.2022 13:30
Sprengingar heyrast í Kænugarði: Í fyrsta sinn sem hann verður var við átökin, segir ljósmyndari Nú fyrir stundu heyrðust tvær miklar sprengingar í miðborg Kænugarðs. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem býr í borginni, segist sjá reyk liggja upp frá miðbænum og hvíta rák eins og eftir flugskeyti. Erlent 9.3.2022 11:58
Óvíst hvort Úkraínumenn fá MiG-þoturnar en Bandaríkjamenn senda Patriot-kerfi til Póllands Algjör óvissa ríkir um það hvort Úkraínumenn fái MiG-29 herþotur frá Póllandi eftir nokkurn vandræðagang bandarískra og pólskra stjórnvalda. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, mun heimsækja Pólland í dag þar sem málið verður líklega á dagskrá. Erlent 9.3.2022 07:41
Vaktin: Pepsi, Coca-Cola, McDonalds og fleiri loka í Rússlandi Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gasútflutning til Evrópu en Evrópuríkin, Bandaríkin og Japan íhuga nú að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu. Erlent 8.3.2022 06:46
Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum Prófessor í stjórnmálafræði segir að Íslendingar verði nú að taka umræðuna um hvort sérstakar varnarsveitir hafi viðveru á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, í ljósi stríðs í Evrópu. Ísland sé hvorki varið fyrir allsherjarinnrás né sértækum hryðjuverkaárásum. Innlent 7.3.2022 21:35
Vaktin: Telja að Rússar muni brátt reyna að stöðva vopnasendingar til Úkraínu „Ef hann verður ekki stöðvaður í Úkraínu mun hann ekki láta staðar numið þar,“ sagði Gitanas Nauseda, forseti Litháen, við utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar þeir funduðu í dag um innrás Rússa í Úkraínu. „Árás á einn er árás á alla,“ var svar Antony Blinken. Erlent 7.3.2022 06:48
Safna fyrir fatlað fólk í Úkraínu Þroskahjálp, Átak - félag fólks með þroskahömlun, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Þau segja fatlað fólk sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og stöðu þess í Úkraínu grafalvarlega. Innlent 7.3.2022 17:58
Bókstafurinn sem táknar stuðning við innrás Rússa Tákn sem birst hefur á myndum af stríðsvélum Rússa í Úkraínu og virðist upphaflega átt að þjóna þeim tilgangi að aðgreina stríðsgögnin hefur öðlast nýtt líf. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu. Erlent 7.3.2022 13:30
Íslensk öryggismál ekki á neinum tímamótum vegna Úkraínustríðsins Vegna Úkraínustríðsins hafa dúkkað upp skoðanir um að þess vegna þurfi að hyggja að nýju að hernaðarlegu öryggi Íslands. Umræða um öryggismál er af hinu góða en þarf að byggja á réttum forsendum. Þá kann hún að valda fólki óþörfu áhyggjum með tali um ógn við Ísland í tengslum við innrásina í Úkraínu og harmleikinn þar. Umræðan 7.3.2022 09:57
Halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þátttöku Dana í varnarsamstarfi ESB Dönsk stjórnvöld munu auka framlög sín til varnarmála á næstu árum á þann veg að árið 2033 munu tvö prósent af vergri landsframleiðslu renna til málaflokksins. Þá stendur til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um þátttöku Danmerkur í varnarsamstarfi Evrópusambandsins. Erlent 7.3.2022 08:49
Forsætisráðherra Ástralíu segir stríðið í Úkraínu ögurstundu fyrir Kínverja Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, hefur varið afstöðu þarlendra stjórnvalda til átakanna í Úkraínu. Hann segir þau munu tala fyrir friðarviðræðum. Samkvæmt New York Times neitar hann að kalla aðgerðir Rússa „innrás“. Erlent 7.3.2022 08:13
Rússar boða tímabundið vopnahlé til að greiða fyrir rýmingu fjögurra borga Interfax fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum innan varnarmálaráðuneytis Rússlands að árásum verði tímabundið hætt og öruggar flóttaleiðir opnaðar fyrir almenna borgara Kænugarðs, Maríupól, Kharkív og Súmí. Erlent 7.3.2022 06:25