Leikskólar
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 26 ›
Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. Innlent 2.1.2023 20:42
„Við verðum að leyfa kerfinu að fá aðeins að anda“ Mannekla er helsta áskorunin þegar kemur að uppbyggingu leikskólakerfisins í Reykjavík að sögn borgarfulltrúa Samfylkingarinnar en fjölmargir leikskólakennarar hafa flutt sig yfir í grunnskólana. Formaður Félags leikskólakennara segir leikskólastigið ekki ráða við mikið meira og að kerfið hafi stækkað allt of hratt. Jafna þurfi starfsaðstæður, til að mynda með styttingu vinnuvikunnar. Innlent 30.12.2022 15:54
Ár uppbyggingar og mikilla áskorana Árið 2022 hefur verið ár mikillar uppbyggingar í borginni en líka fordæmalausra skakkafalla sem hafa seinkað fyrirætlunum um bætta þjónustu. Hvergi hefur þetta birst með eins skýrum hætti og í leikskólamálunum þar sem fleiri nýir leikskólar opnuðu en nokkru sinni fyrr en að sama skapi fækkaði til muna nýtanlegum plássum í leikskólum vegna viðhaldsframkvæmda og vinnu við að fjarlægja rakaskemmdir og myglu. Skoðun 30.12.2022 08:42
Beitir þú ofbeldi? Fyrir mörgum árum ég eyddi kvöldstundum í spjalli með einstakling sem ég trúði að væri sammála mér, spjallið fór oft út í þá sálma hvað fólk sem beitti ofbeldi væri hræðilegt, þessi einstaklingur hafði stór orð um það hvað þau ættu skilið svartholið. Líklega átti það ekki við hann þegar „stóri dómurinn“ féll og Litla Hraun varð vistarveran í nokkur ár eftir hrottalegt og gróft ofbeldi á fjölskyldumeðlim. Skoðun 23.12.2022 11:01
Minnisblað varpar ljósi á óróleika og óánægju vegna Grandaborgar Leikskólastjóri Grandaborgar, Helena Jónsdóttir, hefur dregið uppsögn sína til baka en uppsögnin vakti nokkurn kurr meðal starfsmanna og foreldra. Þrír starfsmenn í 2,5 stöðugildum sögðu upp störfum í kjölfar uppsagnar leikskólastjórans. Innlent 21.12.2022 08:49
Landslagið í leikskólamálum Reykjavíkurborgar ólgar Mönnunarvandi borgarinnar er rótgróinn og vel þekktur, sömu sögu má segja um launamálin og nú upp á síðkastið hefur vandræðalegri stöðu ýmissa leikskólabygginga verið gerð nokkuð góð skil. Skoðun 14.12.2022 07:30
Tveggja ára stal senunni í umræðu um leikskólamál „Flautið. Það var bíll. Þeir voru með dekk. Já. Þau voru að keyra svo hratt. Já. Ætti hann að keyra hægar? Nei.“ Á þessum nótum talaði senuþjófurinn Víðir Ágúst tveggja ára í viðtali sem átti að vera við móður hans Albínu Huldu Pálsdóttur í Íslandi í dag á miðvikudag. Innlent 12.12.2022 08:45
„Ég var ekki að eignast barn til að láta einhvern annan vera með það“ Foreldrar sem rætt var við í Íslandi í dag voru á einu máli um að lengra fæðingarorlof væri heillaskref og að þar mætti ganga enn lengra, enda vilji margir hafa börn sín lengur hjá sér áður en þau eru látin á leikskóla. Fólki leist misvel á að fá heimagreiðslur fyrir að vera heima með börnin. Innlent 9.12.2022 07:31
„Að fólki skuli detta þetta til hugar er að mínu viti skammarlegt“ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fer hörðum orðum um ákvörðun Reykjavíkurborgar að draga saman seglin í leikskólamálum, meðal annars með því að fækka starfsfólki og skera niður í skólamáltíðum. Viðtal við Sólveigu má sjá hér í innslaginu að ofan og hefst á níundu mínútu. Innlent 8.12.2022 09:00
Hringavitleysan í leikskólum borgarinnar Leikskólapláss fyrir tólf mánaða gömul börn í Reykjavík. Falleg hugmynd sem gekk ekki upp á árinu sem er að líða. Innlent 6.12.2022 07:00
Er heils dags leikskóli eina lausnin fyrir ársgömul börn? „Allir eru farnir út að vinna, karlar og konur, frá eins árs eða yngri börnum og við erum komin í öngstræti að mínu mati. Erum við raunverulega að segja að eina tilboðið sem við viljum gera eins árs gömlum börnum sé heils dags leikskóli?“ Innlent 5.12.2022 06:47
„Lítið gert til að skera niður í fínum móttökum í Höfða og ráðhúsinu“ Með hagræðingaaðgerðum Reykjavíkurborgar vegna 11,1 milljarða króna er kroppað í hér og þar, en þær eru máttlausar og huglausar að sögn oddvita Sjálfstæðisflokksins. Í stað þess að skerða leikskólaþjónustu hefði að hennar mati heldur átt að minnka yfirbygginguna. Innlent 2.12.2022 19:01
Faglærðir starfsmenn Grandaborgar segja upp störfum Verulegur uggur og urgur er meðal foreldra barna í Grandaborg en Helena Jónsdóttir leiksskólastjóri hefur sagt upp störfum. Hún tók við sem leikskólastjóri Grandaborgar árið 2014. Innlent 2.12.2022 12:00
Brugðist við hallarekstri borgarinnar: Færri sýningar og boðsmiðar en meiri tími í beðunum Ráðast á í margvíslegar aðgerðir til að bregðast við miklum hallarekstri A-hluta Reykjavíkurborgar. Þar á meðal á að ráðast í 92 hagræðingaraðgerðir sem fela meðal annars í sér færri sýningar á Listasafni Reykjavíkur og færri boðsmiða á safnið. Skoða á mögulega sölu á bílastæðahúsum auk þess sem að útlit er fyrir að unglingar í Vinnuskólanum þurfi að eyða meiri tímum í beðum borgarinnar en fyrri sumur. Innlent 2.12.2022 11:58
Leikskólastjórnendur afar gagnrýnir á skóla- og frístundasvið „Samfélagið, stjórnmálafólk verður núna, árið 2022, að skilja mikilvægi þess að hlúa að yngsta fólkinu sem byrjar rúmlega eins árs í leikskóla og dvelur þar að jafnaði 8,5 klukkustundir fimm daga vikunnar.“ Innlent 2.12.2022 09:35
Leikskólatíminn í Reykjavík styttist frá og með 15. janúar Dvalartími barna í leikskólum í Reykjavík verður að hámarki 42,5 klukkustundir á viku frá og með 15. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í pósti frá Reykajvíkurborg til foreldra og forráðamanna leikskólabarna í dag. Innlent 30.11.2022 16:42
Leikskólamálin á Alþingi Á dögunum óskaði ég eftir sérstakri umræðu við mennta- og barnamálaráðherra um stöðu leikskólamála á Íslandi. Áhersla umræðunnar var á misjafna stöðu barna þegar kemur að menntun á fyrsta skólastiginu eftir sveitarfélögum. Skoðun 30.11.2022 08:31
Nemendur Grandaborgar færðir öðru sinni vegna myglu í bráðabirgðahúsnæði Foreldri barns á leikskólanum Grandaborg, þar sem mygla fannst í sumar, segist orðið þreytt á endalausu hringli og loðnum svörum frá borginni. Mygla er í bráðabirgðahúsnæði sem hluti nemenda var færður í en færa á þá enn annað í byrjun desember. Innlent 21.11.2022 19:31
Dómari sem sýknaði borgina vegna blöðruboltaslyss talinn vanhæfur Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í máli leikskólakennara gegn Reykjavíkurborg vegna blöðruboltaslyss í dag. Einn dómaranna við Landsrétt sem sýknaði borgina var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. Innlent 16.11.2022 17:55
Óvissa varðandi leikskólann Hlíð: „Erum í raun á hrakhólum“ Loka þurfti stærstum hluta húsnæðis leikskólans Hlíðar í lok október vegna myglu. Börn, foreldrar og starfsfólk þurfa að ferðast langar leiðir daglega á leikskóla í önnur hverfi borgarinnar. Bugaðir foreldrar þrýsta á Reykjavíkurborg og vilja að mögulega verði slakað á kröfum tímabundið varðandi húsnæði. Innlent 9.11.2022 15:00
Miklar skemmdir unnar á leikskólanum Funaborg: „Þetta er eiginlega bara ónýtt“ Miklar skemmdir hafa verið unnar síðustu vikur á leikskólanum Funaborg í Grafarvogi. Í október var kveikt í ruslagámi sem hafði miklar afleiðingar á starf skólans. Um síðustu helgi var nýlegt skógarhús spreyjað að utan og eru skemmdirnar að öllum líkindum varanlegar. Leikskólastýra segist ráðalaus. Innlent 4.11.2022 14:01
Stefna um fjölgun leikskólaplássa og fækkun starfsmanna sýni metnaðarleysi Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn vakti í dag athygli á því að samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár, 2023 væri aðeins reiknað með að leikskólaplássum í Reykjavík fjölgi um 109. Einnig sé stefnt að því að fækka leikskólastarfsmönnum. Innlent 1.11.2022 18:44
Saknar leikskólans og foreldrarnir vita ekki hvernig þeir tækla næstu viku Mæður leikskólabarna sem ekki hafa komist á leikskólann síðustu daga vegna manneklu og mygluvanda segja Reykjavíkurborg treysta á að foreldrar hafi gott bakland. Foreldrar verði fyrir tekjutapi og segjast ekki hafa hugmynd um hvernig þær ætli að tækla næstu viku. Innlent 26.10.2022 22:33
618 ársgömul börn á biðlista eftir leikskólaplássi Enn bíða 618 börn 12 mánaða og eldri eftir að fá leikskólapláss í Reykjavík. Nærri hundrað pláss eru ónýt vegna myglu og þá hefur ekki tekist að manna leikskólana til að geta boðið fleiri pláss. Innlent 21.10.2022 06:56
Hver á að hugsa um yngstu börnin? Ég er sannfærð um að börn yngri en tveggja ára sem ekki eru í leikskólum og eru í umsjón foreldra sinna geti fengið öll þau námstækifæri sem við í leikskólanum bjóðum þeim uppá ef foreldrarnir geta og vilja það. Flestir foreldrar eru bestir í að lesa í þarfir barna sinna og því ákjósanlegastir umönnunaraðilarnir og mennta börnin sín vel með því að bregðast við þeim og örva þau til dáða. Skoðun 20.10.2022 13:32
Umdeild reglugerð ráðherra um fjölda barna á leikskólum sett á bið Reglugerðarbreyting mennta- og barnamálaráðherra um ákvörðunarvaldið hvað varðar fjölda barna á leikskólum hefur verið sett á bið eftir mikla gagnrýni. Ráðherra segist vilja ræða málin á breiðari grunni, leiða saman ólíka hópa, og gera stærri breytingar en voru undir í reglugerðinni. Samtal þess efnis muni eiga sér stað á næstu vikum og mánuðum. Innlent 14.10.2022 12:18
Hafnarfjarðarbær vinnur að breytingum á skipulagi leikskóla sinna Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur formlega ýtt úr vör vinnu við að endurskilgreina skipulag leikskóla bæjarins. Skoðun 6.10.2022 17:01
Hvers virði er farsæld barna og kennara? Á Alþjóðadegi kennara standa stjórnendur, kennarar og starfsfólk leikskóla sig langt umfram eðlilegar kröfur, sem og aðra daga. En hversu langt er hægt að ganga? Er ekki þegar komið að þolmörkum? Skoðun 5.10.2022 12:00
Hver vitleysan rekur aðra Starfsemi grunnskóla og leikskóla í Reykjavík er víða í uppnámi. Áralöng vanræksla innviða og innantóm fyrirheit um hvers kyns endurbætur skilja fjölskyldur eftir í þröngri stöðu. Skoðun 4.10.2022 11:01
Yfirvöld þurfi að bregðast við svo þau verði ekki sanngirnisbótaskyld Talskonur Heimilis og skóla segja úrræðaleysi ríkja í málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi í skólum. Varaformaðurinn vill fá opinbera stefnumótun í málaflokknum. Ella sé hætta á að það þurfi að greiða þolendum ofbeldis sanngirnisbætur í framtíðinni. Innlent 3.10.2022 19:46