Landslið karla í fótbolta

Fréttamynd

Landsliðin flúðu haustlægðina

Karlalandslið Íslands flúði fyrstu haustlægð ársins og æfði innanhúss í Miðgarði í Garðabæ í morgun. U21 landsliðið gerði slíkt hið sama.

Fótbolti
Fréttamynd

Gæti þurft að skipta um her­bergis­fé­laga

Hákon Rafn Valdimarsson er laus við meiðsli og klár í slaginn fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeildinni. Leiða má að því líkur að hann standi milli stanganna í leikjunum fjórum í fjarveru Elíasar Rafns Ólafssonar.

Fótbolti
Fréttamynd

Elías lengi frá eftir að­gerð á nýra

Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland og íslenska landsliðsins, fékk högg á nýrað í leik við OB í dönsku úrvalsdeildina um helgina. Hann þurfti að fara undir hnífinn og verður lengi frá.

Fótbolti
Fréttamynd

Yoro ekki til Ís­lands

Leny Yoro kemur ekki til Íslands að spila með U21 árs landsliði Frakka á morgun líkt og til stóð. Hann hefur tekið sæti í A-landsliðshópnum.

Fótbolti
Fréttamynd

Dauði varnarmannsins

„Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu.

Fótbolti
Fréttamynd

Lands­liðið svitnaði undir vökulu auga vísinda­manna

Vísinda­menn frá Gator­ade Sports and Science Insti­tute söfnuðu gögnum um svita leik­manna ís­lenska karla­lands­liðsins í fót­bolta og eru bundnar vonir við að niður­stöðurnar á prófunum, sem hafa verið til staðar hjá stór­liðum á borð við Manchester City og Barcelona, geti skilað niður­stöðum sem gagnist leik­mönnum og lands­liðinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met

Ákvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Hvernig á að leysa varnar­leikinn?

Varnarlína landsliðsins er mörgum hugleikin fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta. Vísir ræddi við tvo leikmenn sem manna líklega öftustu línu í komandi leikjum.

Fótbolti
Fréttamynd

Vaknaði við skila­boð frá nýja þjálfaranum

Breytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð.

Fótbolti
Fréttamynd

Erfið og leiðin­leg staða fyrir Heimi að vera í

Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Sport
Fréttamynd

„Þá mun ég reka mig sjálfur“

Arnar Gunnlaugsson segist ekki hafa rými til þess að fara í miklar tilraunir með unga leikmenn í varnarlínu Íslands í komandi keppnisleikjum. Fámenn varnarlína hefur verið hausverkur síðustu misseri.

Fótbolti
Fréttamynd

„Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“

Eitt af óvæntari nöfnunum í nýjasta landsliðshópi Íslands í fótbolta er Ísak Snær Þorvaldsson. Þessi sterkbyggði framherji gerði landsliðsþjálfaranum Arnari Gunnlaugssyni oft óleik þegar Arnar stýrði Víkingi, þá sem leikmaður Breiðabliks.

Fótbolti
Fréttamynd

Andri Lucas svaraði fautaskap með marki

Andri Lucas Guðjohn­sen kom inn á sem varamaður og gull­tryggði 3-1 sigur Black­burn Rovers með marki þegar liðið tók á móti Millwall í ensku B-deildinni í dag. Hann stráði salti í sár leik­manns Millwall sem tók harka­lega á Ís­lendingnum skömmu fyrir markið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Drauma­byrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio

Albert Guðmundsson var hetja Lazio í sínum fyrsta leik með félaginu í 2-1 sigri gegn Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það tók Albert aðeins átta mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir Lazio.

Fótbolti