„Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ „Tilfinningin er náttúrulega ólýsanleg,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir að liðið tryggði sér sinn fyrsta bikarmeistaratitil með sigri gegn Grindavík/Njarðvík í úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Sport 12.9.2026 19:42
„Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Í dag var aðal tilfinningin stolt og svo þakklæti líka, sem kom mér á óvart. Ég hélt að maður ætti að vera fúll eftir að hafa tapað,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir 2-1 tap liðsins gegn Þrótti Reykjavík í úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta. Fótbolti 12.9.2026 19:37
„Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Unnur Dóra Bergsdóttir reyndist hetja Þróttar er hún tryggði liðinu sinn fyrsta bikarmeistaratitil í sögunni. Fótbolti 12.9.2026 19:32
Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn 12.9.2026 15:31
Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Bikarhelgi er fram undan í fótboltanum og af nægu er að taka í aðdraganda úrslitaleikjanna tveggja sem fram fara á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 10. september 2026 08:32
Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Úrslitaleikirnir um Mjólkurbikar kvenna og karla fara fram um helgina. Karlamegin mætir Afturelding Breiðabliki á föstudagskvöldið klukkan 19:00. Íslenski boltinn 9. september 2026 22:00
Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þróttar í fótbolta, gagnrýnir þá staðreynd að úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna sé á sama tíma og spennandi lokaumferð í Lengjudeildinni klárast. Þá kallar hann eftir fjölgun liða í tólf í Bestu deild kvenna, líkt og gert var hjá körlunum fyrir meira en 18 árum síðan. Íslenski boltinn 9. september 2026 11:03
KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Mikið hefur gerst á Laugardalsvelli í dag þar sem verið var að setja upp nýtt tjald til þess að vernda völlinn á veturna. Tjaldið kallast „pulsan“ og ætti að gjörbreyta ástandi Laugardalsvallar. Íslenski boltinn 2. september 2026 22:15
Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Orðið frábært kom oft fyrir í viðtali við Gylfa Tryggvason, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir sigurinn á Fram, 0-3, í dag. Enda tilefni til því Suðurnesjaliðið er komið í bikarúrslit í fyrsta sinn. Íslenski boltinn 25. júlí 2026 20:05
Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Natasha Anasi, reyndasti leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, brosti breitt eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum í fyrsta sinn. Natasha skoraði þriðja og síðasta mark Grindavíkur/Njarðvíkur í öruggum sigri á Fram, 0-3, í dag. Íslenski boltinn 25. júlí 2026 19:52
Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Grindavík/Njarðvík er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna eftir 0-3 sigur á Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem Grindavík/Njarðvík kemst í bikarúrslit en þar mætir liðið Þrótti 12. september næstkomandi. Íslenski boltinn 25. júlí 2026 19:30
„Búin að slá út ansi öflug lið“ Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar úr Reykjavík var afar hreykinn af liðsmönnum sínum eftir að liðið vann ÍBV 1-0 í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur er þar með kominn í bikarúrslit kvenna í annað sinn í sögunni. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 22:05
Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Þróttur úr Reykjavík er kominn í úrslitaleik Mjólkurbikarsins eftir að hafa lagt ÍBV að velli, 1-0, á AVIS vellinum í Laugardal í undanúrslitum í kvöld. Þróttur mætir Fram eða Grindavík/Njarðvík í bikarúrslitum þann 12. september næstkomandi. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 21:10
Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Þórdís Nanna Ágústsdóttir reyndist hetja Þróttar úr Reykjavík þegar liðið lagði ÍBV 1-0 að velli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur fer þar með í bikarúrslit í annað sinn í sögunni. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 21:05
Eyjakonur þétta vörnina ÍBV hefur borist liðsstyrkur í formi bandaríska varnarmannsins Jessica Hinton fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna og undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 22. júlí 2026 13:46
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur varð fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta í kvöld þegar þær fögnuðu sigri á Stjörnunni í Grindavík. Nýliðarnir bættust þar með í hóp með Þrótti, ÍBV og Fram. Íslenski boltinn 18. júní 2026 22:52
Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Mollee Swift, markvörður og fyrirliði Þróttar, var ánægð eftir 1-0 sigur liðsins gegn Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á AVIS-vellinum í Laugardalnum í kvöld. Íslenski boltinn 18. júní 2026 19:59
Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum Þróttarakonur tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarsins í kvöld og aðeins nokkrum mínútum síðar fengu þær að vita um mótherja sinn í undanúrslitaleiknum. Íslenski boltinn 18. júní 2026 19:37
María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Þróttarakonur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar þriðja árið í röð eftir 1-0 sigur á Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkursbikar kvenna í fótbolta í Laugardalnum. Íslenski boltinn 18. júní 2026 19:24
Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik ÍBV tryggði sig í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í dag með sigri á FH sem er topplið Bestu deildar kvenna, 3-2. Framlengja þurfti leikinn þar sem eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 2-2. Fótbolti 17. júní 2026 18:43
Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Framkonur urðu í dag fyrstar til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta með afar öruggum 7-1 sigri gegn FHL í Fjarðabyggðarhöllinni. Taylor Hamlett fór hamförum í leiknum. Íslenski boltinn 17. júní 2026 14:49
Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Lengjudeildarlið Aftureldingar komst í kvöld í undanúrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 3-1 endurkomusigur á Bestudeildarliði Stjörnunnar þar sem liðið skorað þrisvar á tíu mínútna kafla í seinni hálfleik. Fótbolti 10. júní 2026 21:30
Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks eru fallnar úr leik í Mjólkurbikarnum. Varð það ljóst eftir glæsilegan 3-2 sigur Þróttar á þeim grænklæddu í lokaleik 16-liða úrslita Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 16. maí 2026 18:10
Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum Að loknum 3-2 sigri Þróttar á Breiðabliki í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag var dregið í átta liða úrslit keppninnar. Íslenski boltinn 16. maí 2026 17:57
„Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ „Við mættum bara miklu ákveðnari. Það vantaði smá upp á í hinum leikjunum í deildinni, þannig að við ákváðum bara aðeins að koma grimmar til leiks og það skilaði sínu,“ sagði Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, eftir glæstan 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á AVIS-vellinum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 16. maí 2026 17:43