Færð á vegum
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi Í dag er allhvöss og hvöss norðvestanátt og rigning, hvassast á Austfjörðum og undir Vatnajökli. Gular viðvaranir eru í gildi vegna vinds og ráðlagt að fara með gát, einkum þegar ferðast er með aftan í vagna. Viðvörunin rennur úr gildi snemma á laugardagsmorgun. Veður 28.6.2024 07:30
Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfirði með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi. Veður 27.6.2024 08:43
Yfir tuttugu gráður með mígandi rigningu næstu helgi Eflaust eru margir farnir að huga að veðrinu næstu helgi fyrir útilegur og önnur ferðalög. Á vef Veðurstofunnar segir að á laugardag verði hlýjast á Suðausturlandi og að hiti gæti þar náð tuttugu stigum. Á sunnudag verður svo hlýjast á Norðausturlandi og gæti hitinn náð 24 stigum. Veður 25.6.2024 15:31
Suðvestanátt með skúrum Í dag fara skil sem komu með rigningu í gær og í nótt til norðurs frá landinu. Þá snýst vindurinn í suðvestanátt með skúrum, en léttir til á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu átta til fimmtán stig samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Hlýjast verður austanlands. Veður 23.6.2024 07:41
Rigning eða súld um mest allt landið Í dag verður breytileg átt og þrír til átta metrar á sekúndu. Það verður aðeins hvassara á Vestfjörðum, en þar verður norðvestan átt og átta til þrettán metrar á sekúndu. Það verður samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings rigning eða súld um mest allt land en styttir smám saman upp austanlands. Hiti 7 til 14 stig yfir daginn. Veður 22.6.2024 07:12
Öxnadalsheiði opin á ný Vegurinn um Öxnadalsheiði var opnaður á ný á fimmta tímanum í nótt. Honum var lokað í gærkvöldi eftir að alvarlegt rútuslys varð á veginum. Innlent 15.6.2024 09:41
Næsta gusa lendi á landinu annað kvöld Langvarandi veðurviðvaranir eiga loks að falla úr gildi í nótt. Appelsínugul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra en gul viðvörun á vestan-, norðan, og austanverðu landinu. Veður 6.6.2024 20:41
Áfram hríðarveður fyrir austan Áfram er spáð hríðarveðri norðaustan- og austanlands í dag, og einnig hvasst, hviður um 35 m/s og sandfok á köflum, suðaustantil á landinu. Veður 5.6.2024 10:34
Stærðar snjóskaflar og nagladekkin sett aftur á Tveggja metra snjóskaflar og hríðarbylur blasti við starfsmönnum Landsvirkjunar þegar þeir mættu til vinnu í morgun á Þeistareykjum á Norðurlandi. Öll ummerki sumars voru fjarlægð á einni nóttu á svæðinu en eins og greint hefur verið frá gildir appelsínugul veðurviðvörun víðs vegar á landinu í dag. Innlent 4.6.2024 17:01
Illviðri miðað við árstíma Næstu daga er útlit fyrir óvenjulegt illviðri miðað við árstíma. Gul viðvörun er í gildi þar til á miðnætti 5. júní miðvikudag. Hvatt er til þess að huga að lausamunum sem geta fokið. Ferðalög geti verið varasöm, sérílagi á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi. Veður 2.6.2024 08:07
Samfelld rigning á Suðvesturlandi en þurrt á Vestfjörðum Í dag verður suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og hvassast norðvestan til. Þá verður nokkuð samfelld rigning og súld suðvestanlands, en rigning öðru hverju fyrir norðan og austan. Á Vestfjörðum verður þó líklega alveg þurrt. Veður 31.5.2024 07:29
Regnsvæði á leið yfir landið Regnsvæði er nú á leið austur yfir land í morgunsárið, í kjölfarið á því styttir upp og það léttir til norðaustan- og austanlands eftir hádegi. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að næstu daga sé suðvestanátt í kortunum, upp í stinningskalda eða allhvassan vind norðvestantil í dag. Veður 30.5.2024 07:36
Vætan minnkar smám saman og birtir til Í nótt var rigning eða súld nokkuð víða á landinu. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að vætan sé nú smám saman að minnka. Það verði væntanlega þurrt að kalla eftir hádegi og birti jafnvel upp um tíma vestanlands. Vindurinn í dag verður fremur hægur, úr norðvestri eða vestri. Veður 29.5.2024 07:21
Skýjað og dálítil væta í dag Í dag má búast við hægri og breytilegri vindátt. Þá verður skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að í kvöld komi úrkomubakki inn á vestanvert landið með rigningu og súld og vestan fimm til tíu metrar á sekúndu. Þá fer aðeins að hreyfa vind. Veður 28.5.2024 07:25
Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Vegagerðin stefnir á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Vogaveg og Grindavíkurveg á morgun. Innlent 26.5.2024 10:50
Um 18 stig á Norðausturlandi í dag Í dag verður suðaustanátt og þrír til tíu metrar á sekúndu. Það væri verið skýjað og sums staðar lítilsháttar væta eða stöku skúrir en bjart með köflum norðaustanlands. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að þar sem að vindur er hægari í dag en í gær sé líklegt að hafgolan nái sér á strik á Norðausturlandi. Veður 26.5.2024 07:13
Líklega síðasta veðurviðvörunin í bili Lægð gærdagsins mjakast vestur til Grænlands og í leiðinni fjarlægast skilin landið. Núna í morgunsárið er enn nokkuð hvasst vestanlands en annars er vindur yfirleitt á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu. Enn er í gildi gul veðurviðvörun á Breiðafirði og Miðháheldi. Það gæti orðið vel hlýtt á norðausturlandi í dag. Veður 25.5.2024 07:30
Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun Í dag er hæð suðaustur af landinu sem er á leið austur. Það er því hægviðri á sunnanverðu landinu í dag en suðvestan 5 til 13 metrar á sekúndu bæði norðan- og norðvestanlands. Hvassast er á annesjum er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 9.5.2024 07:18
Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu Öryggi starfsfólks við vegavinnu er til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar í dag. Á fundinum verður kynnt vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa í nálægð við þunga og hraða umferð. Samgöngustofa frumsýnir myndband um akstur gegnum vinnusvæði. Innlent 7.5.2024 09:01
Norðlægari vindur í dag en um helgina Í dag verður vindur norðlægari en var um helgina. Á Austfjörðum verður strekkingur, en annars hægari vindur. Lítilsháttar skúrir eða él verða á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti verður á bilinu tvö til 12 stig, mildast verður syðra. Veður 29.4.2024 07:16
Lægð nálgast landið úr austri Dálítil lægð nálgast nú landið úr austri og verður því norðan- og norðaustanátt í dag. Víða kaldi eða stinningskaldi og dálitlar skúrir eða él, en bjart að mestu um landið suðvestanvert. Veður 27.4.2024 07:12
Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Veðurupplýsingar frá Veðurstofu Íslands eru orðnar aðgengilegar á kortavef Já.is. Samstarf 24.4.2024 10:49
Víða blautt í dag og varað við asahláku Í dag gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind með súld eða rigningu sunnan- og vestanlands. Norðaustan til verður úrkomuminna. Síðdegis bætir í rigningu, og verður talsverð rigning á Vesturlandi. Hiti verður víða fimm til 12 stig, hlýjast í hnúkaþey fyrir norðan og austan. Veður 20.4.2024 09:15
Enn verður kalt í dag Í dag verða litlar breytingar á veðrinu. Enn verður kalt og samhliða hæg norðlæg eða breytileg átt. Á norðanverðu landinu gæti snjóað dálítið og verið frost. Stöku skúrir eða él sunnantil á landinu og hiti þar um eða yfir frostmarki. Veður 18.4.2024 07:12
Hlýnar um helgina Áfram verður svalt í dag og á morgun en um helgina fer að hlýna. Grunnar lægðir fara nú austur með suðurströndinni. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að þeim fylgi lítilsháttar úrkoma öðru hverju og frekar hægur vindur. Veður 17.4.2024 08:04
Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Varað er við hríðarveðri og allhvössum vindi yfir miðjan daginn á Norðurlandi. Búast má því að það verði víða blint og erfitt yfirferðar norðanlands. Einkum í Húnaþingi og Skagafirði, en einnig við utanverðan Eyjafjörð og austur með ströndinni. Veður 15.4.2024 10:11
Geta sent ökumönnum skilaboð í rauntíma á nýjum skiltum Vegagerðin vonast til þess að geta komið upplýsingum til ökumanna á fjallvegum með skilvirkari leiðum á nýjum skiltum. Innlent 15.4.2024 09:09
Snjóflóðið reyndist vera stór skafl Björgunarsveitir á Tröllaskaga voru kallaðar út í dag um klukkan hálf tvö vegna snjóflóðs á Siglufjarðarvegi. Ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofunni segir að öllum líkindum hafi ekki verið snjóflóð. Það sé afar slæm færð á veginum og óvissustig en tilkynningin hafi borist um hættu utan þess svæðis. Innlent 12.4.2024 14:01
Fastir bílar loka Steingrímsfjarðarheiðinni Vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði er ófær sem stendur. Innlent 12.4.2024 07:42
Aflétta rýmingu í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Búið er að aflétta hættustigi og rýmingu í Neskaupstað. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að úrkomulítið sé orðið í Norðfirði, bloti kominn í snjóinn og að lítill snjór sé í neðri hluta hlíða. Veður 8.4.2024 09:12