Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Það sem skiptir máli

Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, spurði þeirrar einföldu spurningar hér á Vísi í gær: „Skiptir máli að Jens Garðar sé á þingi?“. Svarið við því er einfalt; já.

Skoðun
Fréttamynd

Að­lögun að ESB sé þegar hluti af dag­legu lífi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Leggur til að at­kvæða­greiðslunni verði frestað

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun leggja til breytingu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, meðal annars þess efnis að atkvæðagreiðslunni verði frestað fram í október.

Innlent
Fréttamynd

Fyrri um­ræðu um þjóðar­at­kvæði lokið

Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Fauk í Krist­rúnu í fyrirspurnartíma

Það fauk í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi nú fyrir stundu en hún velti fyrir sér hvers kyns leikrit væri í gangi í þingsal; stjórnarandstaðan þráspyrði um sömu atriðin.

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Ingi snýr aftur á þing í dag

Guðmundur Ingi Kristinsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 16. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Grétar Mar Jónsson, af þingi. Greint var frá því í upphafi desember að hann væri kominn í veikindaleyfi vegna hjartaaðgerðar.

Innlent
Fréttamynd

Stakar styrk­veitingar taldar með í upptökutölfræðinni

Fyrrverandi forstöðumaður lagaskriftstofu EFTA segir að ekki sé hægt að líta á aðildarferli að Evrópusambandinu sem framsal réttarkerfisins. Með því að stilla landslögum upp gegn Evrópulögum sé ryki þyrlað í augu fólks og leikur að innleiðingartölfræði sé ekki gagnlegur.

Innlent
Fréttamynd

Orðhengils­háttur vill ein­kenna ESB-um­ræðuna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er önnum kafinn einstaklingur en hún heldur áfram að koma á óvart hvað varðar viðtöl við fjölmiðla. Hún var mætt í Brennsluna á FM 957 í morgun í ítarlegt viðtal um ESB og kosningarnar um aðildarviðræður.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ís­land geta klárað við­ræður á einu og hálfu ári

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu.

Erlent
Fréttamynd

Sjái þegar merki um að for­spá um klofningu þjóðarinnar standist

Prófessor í fjölmiðlafræði segist þegar sjá skautun á samfélagsmiðlum vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og bendir á að bæði meiri- og minnihluti hafi talið atkvæðagreiðsluna muna skipta þjóðinni í fylkingar. Rannsóknir sýni fram á að sífellt færri leiti frétta úr ólíkum áttum.

Innlent
Fréttamynd

Krafði Sig­mund svara varðandi MAGA og upp­skar skammir

Þingmenn stjórnarandstöðunnar brugðust ókvæða við því þegar Dagur B. Eggertsson sagði Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi ætluð tengsl við MAGA-hreyfinguna svokölluðu. „Ælir út úr sér óhróðri og drullu!“ sagði Þorgrímur Sigmundsson Miðflokki til að mynda.

Innlent
Fréttamynd

Ráð­leggur Þor­gerði fram að þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem stefnt er á að halda í lok ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Óttast ekki að þjóðar­at­kvæða­greiðslunni verði seinkað

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist ekki óttast að langar umræður á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB muni seinka atkvæðagreiðslunni sem til stendur að blása til 29. ágúst. Hún hafnar ásökunum um samráðsleysi og segist hugsi yfir því að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi ekki svarað því hvort þeir muni virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún vísar þögn um ESB-málið á bug

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki ætla að liggja á skoðunum sínum varðandi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, þvert á fullyrðingar pólitískra andstæðinga hennar þar um.

Innlent
Fréttamynd

Frekari ESB-umræður í þinginu

Fyrsta umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu heldur áfram á Alþingi á þingfundi dagsins. Málið var rætt langt fram á kvöld í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi

Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, vill halda Íslandi utan Evrópusambandsins, þar sem innganga myndi veikja samningsstöðu Bandaríkjanna gagnvart Íslandi hvað varðar viðskipti og koma niður á varnarmálum Bandaríkjanna. Bandarískur ráðgjafi breska stjórnmálamannsins Nigel Farage, formanns breska flokksins Reform, er sagður hafa komið tvisvar sinnum til Íslands á þessu ári. 

Innlent
Fréttamynd

Ræddu þjóðar­at­kvæði fram á kvöld og halda á­fram í dag

Þingfundi á Alþingi lauk ekki fyrr en vel var gengið á ellefta tímann í gærkvöldi þar sem tekist var á um þingsályktunartillögu um hvort halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aildarviðræðna við ESB. Hart var tekist á í þingsalnum og þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ívið fjölmennari í þingsalnum.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta eru allt­of miklar hækkanir“

Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Innlent
Fréttamynd

Að kljúfa þjóðina með til­finningaþrunginni spurningu

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, opnaði umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið með fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi nú fyrr í dag. Víst er að stjórnarandstaðan er að búa sig í skotgrafirnar.

Innlent
Fréttamynd

Saka Þor­gerði um brot á þing­sköpum

Þingmenn stjórnarandstöðunnar fara hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna ákvörðunar hennar um að bera þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki undir utanríkismálanefnd. Þeir segja það brot á þingsköpum en stjórnarliðar vísa því alfarið á bug. Hún biður stjórnandstöðuna um að treysta þjóðinni „í guðanna bænum.“

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: ESB-ballið byrjar á Al­þingi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópu­sambandinu á þingfundi dagsins, sem hefst klukkan 15. Ætla má að hart verið tekist á um málið og fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Land­búnaðar­stefna ESB henti ís­lenskum land­búnaði illa

Búast má við hörðum umræðum á Alþingi í dag um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort haldið skuli áfram með aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Bændasamtökin hafa ekkert á móti því að kanna hug þjóðarinnar til málsins. Landbúnaðarstefna sambandsins henti hins vegar afar illa hér á landi.

Innlent