Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna
1 2 3 … 3 ›
Hvað kostar möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu? Viljum við Íslendingar halda áfram að ráða yfir eigin auðlindum, eigin peningamálum, eigin stjórnsýslu og hafa eigin sjálfstæða rödd á alþjóðavettvangi, þar á meðal gagnvart Norðurskautsráðinu, eða breyta stjórnarskránni og framselja fullveldi þjóðarinnar í mikilvægum greinum inn í kerfi þar sem ákvarðanir eru teknar af fulltrúum 27 ríkja? Umræðan 31.3.2026 18:26
Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins telur mikilvægt að þjóðin fái að kjósa um það hvort að halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Hún segist ekki á móti Evrópusamvinnu en hún sé ekki sannfærð um að aðilda sé rétta svarið. Hún segir skorta kjölfestu í umræðu svo hún geti farið fram á heilbrigðan hátt og kallar eftir kjölfestu frá stjórnvöldum. Innlent 31.3.2026 10:51
Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur flest benda til þess að ríkisstjórnin stuðli meðvitað að verra efnahagsástandi til þess að auka líkur á að kjósendur samþykki að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Stjórnin hafi hvata til þess að halda því áfram næstu árin. Innlent 28.3.2026 07:03
Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár. Viðskipti innlent 26.3.2026 16:42
Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Samþykki Íslendingar að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið er gert ráð fyrir að þær verði kláraðar fyrir lok kjörtímabilsins og að ráðist verði í stjórnarskrárbreytingar fyrir næstu kosningar. Utanríkisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Ráðherra segir engar viðræður hafnar. Innlent 25.3.2026 12:50
Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir engin samtöl hafa átt sér stað við Evrópusambandið um svokallaðan „fiskveiðikommissara“ og að ummæli hennar hafi aðeins vísað til léttra vangaveltna Norðmanna. Innlent 25.3.2026 10:02
Opinn fundur í utanríkismálanefnd um ESB atkvæðagreiðslu Opinn fundur verður í utanríkismálanefnd klukkan 9 þar sem á að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Gestur fundarins verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Innlent 25.3.2026 08:48
Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Hin hatramma umræða um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en þjóðaratkvæðagreiðsla er fyrirhuguð 29. ágúst, er nú hafin og skeytin fljúga vinstri hægri og fer þar ýmislegt á milli mála. Er þá ekki best að heyra í manninum sjálfum sem var í miðju átakanna þegar hlé var gert á viðræðunum á sínum tíma? Innlent 25.3.2026 07:02
Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra „Við þurfum að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað,” sagði Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún ræddi frétt Morgunblaðsins um meint orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Innlent 24.3.2026 15:41
Af og frá að viðræður séu hafnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir af og frá að viðræðurnar við Evrópusambandið séu hafnar. Hún telur rétt að koma þessu skýrt á framfæri við þjóð sína í ljósi umræðu undanfarna daga. Innlent 24.3.2026 13:04
Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Greiningardeild ríkislögreglustjóra undirbýr nú mat á því hvort erlend ríki eða aðrir hagsmunaaðilar kunni að reyna að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið. Innlent 21.3.2026 14:47
Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Formaður norska íhaldsflokksins Høyre, systurflokks Sjálfstæðisflokksins, telur að Norðmenn ættu að sækja um inngöngu í Evrópusambandið, meðal annars með vísan til mögulegrar umsóknar Íslendinga um inngöngu. Erlent 20.3.2026 11:35
Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segist staðráðinn í því að flýta fyrir samningaviðræðum um forgangsmál Íslands, kjósi þjóðin að halda áfram aðildarviðræðum í ágúst. Innlent 18.3.2026 18:18
Það sem skiptir máli Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, spurði þeirrar einföldu spurningar hér á Vísi í gær: „Skiptir máli að Jens Garðar sé á þingi?“. Svarið við því er einfalt; já. Skoðun 18.3.2026 16:01
Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum. Innlent 17.3.2026 16:16
Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun leggja til breytingu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, meðal annars þess efnis að atkvæðagreiðslunni verði frestað fram í október. Innlent 17.3.2026 13:34
Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis. Innlent 17.3.2026 07:20
„Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Inga Sæland segir það ekki koma neinum við hvernig hún hyggst greiða atkvæði í boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 16.3.2026 16:49
Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Það fauk í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi nú fyrir stundu en hún velti fyrir sér hvers kyns leikrit væri í gangi í þingsal; stjórnarandstaðan þráspyrði um sömu atriðin. Innlent 16.3.2026 16:15
Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag Guðmundur Ingi Kristinsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 16. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Grétar Mar Jónsson, af þingi. Greint var frá því í upphafi desember að hann væri kominn í veikindaleyfi vegna hjartaaðgerðar. Innlent 16.3.2026 08:01
Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Fyrrverandi forstöðumaður lagaskriftstofu EFTA segir að ekki sé hægt að líta á aðildarferli að Evrópusambandinu sem framsal réttarkerfisins. Með því að stilla landslögum upp gegn Evrópulögum sé ryki þyrlað í augu fólks og leikur að innleiðingartölfræði sé ekki gagnlegur. Innlent 15.3.2026 13:58
Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Kjósendur verða að beita eigin dómgreind og kynna sér sjónarmið. Á sama tíma er það skylda stjórnvalda að vanda undirbúning í hverju einasta skrefi. Þessi ákvörðun sé stærri en flokkspólitískir hagsmunir. Innlent 14.3.2026 10:17
Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er önnum kafinn einstaklingur en hún heldur áfram að koma á óvart hvað varðar viðtöl við fjölmiðla. Hún var mætt í Brennsluna á FM 957 í morgun í ítarlegt viðtal um ESB og kosningarnar um aðildarviðræður. Innlent 11.3.2026 11:37
Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu. Erlent 11.3.2026 07:46
Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Prófessor í fjölmiðlafræði segist þegar sjá skautun á samfélagsmiðlum vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og bendir á að bæði meiri- og minnihluti hafi talið atkvæðagreiðsluna muna skipta þjóðinni í fylkingar. Rannsóknir sýni fram á að sífellt færri leiti frétta úr ólíkum áttum. Innlent 10.3.2026 23:55
Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Þingmenn stjórnarandstöðunnar brugðust ókvæða við því þegar Dagur B. Eggertsson sagði Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi ætluð tengsl við MAGA-hreyfinguna svokölluðu. „Ælir út úr sér óhróðri og drullu!“ sagði Þorgrímur Sigmundsson Miðflokki til að mynda. Innlent 10.3.2026 17:24
Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem stefnt er á að halda í lok ágúst. Innlent 10.3.2026 14:07
Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist ekki óttast að langar umræður á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB muni seinka atkvæðagreiðslunni sem til stendur að blása til 29. ágúst. Hún hafnar ásökunum um samráðsleysi og segist hugsi yfir því að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi ekki svarað því hvort þeir muni virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Innlent 10.3.2026 13:51
Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki ætla að liggja á skoðunum sínum varðandi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, þvert á fullyrðingar pólitískra andstæðinga hennar þar um. Innlent 10.3.2026 13:50
Frekari ESB-umræður í þinginu Fyrsta umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu heldur áfram á Alþingi á þingfundi dagsins. Málið var rætt langt fram á kvöld í gærkvöldi. Innlent 10.3.2026 13:30