Samgöngur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 100 ›
Fjöldi kærður og sektaður eftir slys á rafhlaupahjóli Lögregla hefur á þessu ári kært og sektað um hundrað manns sem hafa dottið á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. Aðalvarðstjóri umferðardeildar segir óhæft hversu algeng slysin eru og telur að taka þurfi á málinu. Innlent 1.11.2023 12:51
Hjólin éti upp árangurinn Samhliða fjölgun rafhlaupahjólaslysa fjarlægjast Íslendingar markmið um fækkun umferðarslysa. Samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er talinn nema um fjörutíu milljörðum á ári. Innlent 1.11.2023 07:00
Um þrír á dag á bráðamóttöku eftir slys á rafhlaupahjóli Á hverjum degi leita um tveir til þrír á bráðamóttökuna eftir slys á rafhlaupahjóli. Yfirlæknir segir algengt að fólk skelli á andlitið og margir hljóta því höfuðáverka. Hann segir börn og ölvað fólk eiga ekkert erindi á hjólin. Innlent 31.10.2023 21:00
Heilaáverkar og lömun eftir rafhlaupahjólaslys: „Lífið mitt er bara svona núna“ Fjórðungur allra alvarlegra slysa í umferðinni verða á rafhlaupahjólum. Endurhæfingardeild Grensáss tekur á móti alvarlegustu tilfellunum; fólki með mænu- og heilaskaða og sumir ná sér aldrei til fulls. Í Kompás heyrum við sögur Evu og Birnu sem báðar lentu í lífshættu eftir alvarlegt slys á rafhlaupahjóli. Innlent 31.10.2023 07:00
Samið við Sæferðir um rekstur nýs Baldurs Vegagerðin hefur samið við Sæferðir um rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Áformað er að nýr Baldur, sem nú er í slipp í Hafnarfirði, hefji áætlunarsiglingar um Breiðafjörð upp úr miðjum nóvember. Innlent 30.10.2023 14:35
Umferðarslys við álverið í Straumsvík Miklar tafir eru á umferð um Reykjanesbraut eftir umferðarslys þar sem tveir bílar lentu saman. Þrír voru fluttir á slysadeild en meiðsl þeirra eru að öllum líkindum ekki alvarleg. Innlent 29.10.2023 13:58
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. Innlent 25.10.2023 22:22
Nýr kafli með bundnu slitlagi að opnast á Dynjandisheiði Stefnt er að því að nýr vegarkafli á Dynjandisheiði með bundnu slitlagi verði tekinn í notkun eftir næstu helgi. Kaflinn er 3,5 kílómetra langur og liggur um hæsta hluta fjallvegarins milli núverandi slitlagsenda við Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, og Vatnahvilftar neðan Botnshests ofan Geirþjófsfjarðar. Innlent 24.10.2023 18:15
Boðað til vígsluhátíðar brúar yfir Þorskafjörð Vegagerðin hefur boðað til vígsluathafnar í Þorskafirði í Reykhólasveit klukkan 14 á morgun, miðvikudag 25. október. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, munu þá formlega opna nýju Þorskafjarðarbrúna með því að klippa á borða. Innlent 24.10.2023 11:26
Flugmaður ákærður fyrir að reyna að brotlenda farþegaþotu Bandarískur flugmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa freistað þess að valda vélarbilun farþegaþotu. Ákæran er í 83 liðum, sem endurspeglar fjölda farþega um borð. Erlent 24.10.2023 08:57
Slösuð fyrir lífstíð eftir harkalegan árekstur í Ölfusi Rúmlega sjötugur bandarískur karlmaður búsettur vestan hafs sætir ákæru fyrir að hafa sumarið 2021 ekið bíl Mazda CX-30 bíl í veg fyrir Chevrolet Malibu bíl á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar án þess að virða forgang sem gefin var til kynna með stöðvunarmerki. Innlent 23.10.2023 17:53
Vinstri beygjan við Eiðsgranda aldrei í hættu Vinstri beygjan af Hringbraut á Eiðsgranda við JL-húsið er ekki í hættu líkt og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur haldið fram. Beygjan sem lagt er til að hverfi er úr porti nokkrum metrum frá hringtorginu. Innlent 22.10.2023 12:18
Ósammála um breytt gatnamót við JL-húsið Deilt er um framkvæmdir við JL-húsið sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir gerðar í nafni umferðaröryggis. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir framkvæmdirnar óhjákvæmilegar eftir ítrekaðar kvartanir frá íbúum svæðisins. Innlent 21.10.2023 21:31
Auglýsa eftir nýjum rekstraraðilum í Mjódd Um þrjú þúsund manns fara á hverjum degi um biðstöðina í Mjódd. Reykjavíkurborg auglýsir nú eftir nýjum rekstraraðila sem eigi að móta hann upp á nýtt. Gerð er krafa um opnun frá 8 til 22 og aðgengi gesta að salerni. Viðskipti innlent 20.10.2023 12:31
Icelandair gert að greiða farþega skaðabætur vegna yfirbókunar Icelandair var gert að greiða farþega skaðabætur upp á tæplega 37 þúsund krónur samkvæmt nýlegum úrskurði Samgöngustofu vegna þess að félagið hafði neitað honum um far, sem hann hafði þegar bókað, á brottfarardegi. Neytendur 18.10.2023 17:54
Senn líður að jólum Nú er haustið að skella á okkur af fullum þunga. Hver lægðin á fætur annarri bregður sér yfir landið og léttir á sér yfir okkur. Svo kólnar, og rigningin breytist í slyddu og snjó. Færð spillist og birtutíminn styttist. Við tekur tímabil fram á vormánuði þar sem veghaldarar landsins keppast við að halda akstursskilyrðum eins góðum og hægt er. Verkefni sem er fullt af áskorunum eins og síðasti vetur bar með sér. Skoðun 17.10.2023 11:31
Norðurljósaþota Icelandair í óvenjulegri ferð vegna bilunar Hekla Aurora, norðurljósavél Icelandair, var notuð í flugferðum innanlands til og frá Akureyri vegna bilunar í Q400-flugvél fyrirtækisins. Innlent 15.10.2023 19:44
Umferðarslys á bæði Þelamerkurvegi og Hörgárdalsvegi Hringveginum um Þelamerkurveg var lokað tímabundið vegna áreksturs um sexleytið í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega að sögn ökumanns. Umferð var í kjölfarið beint um Hörgárdalsveg en þar varð einnig slys og var þeim vegi því einnig lokað. Þelamerkurvegur var opnaður á ný upp úr hálf átta. Innlent 13.10.2023 19:51
Saka Samgöngustofu um matarsóun og vanvirðingu við hænur Formaður Samtaka grænkera á Íslandi segir nýja markaðsherferð Samgöngustofu vanhugsaða. Hún stuðli að matarsóun og sé vanvirðing við hænur. Stofnunin sendi völdum samfélagsmiðlastjörnum eggjabakka og hvatti þær til þess að brjóta eggin. Innlent 13.10.2023 14:26
Segir sveitarfélög draga lappirnar vegna illa lagðra hlaupahjóla Hjólreiðaaðgerðarsinni segir illa lögð rafhlaupahjól á hjólreiðastígum höfuðborgarsvæðisins vera orðin eitt helsta vandamálið á stígunum. Hann segir alveg ljóst að sveitarfélög beri ábyrgð á málinu, þó sum hver firri sig ábyrgð og segir þrjá möguleika til betrumbóta. Innlent 13.10.2023 06:45
Lægsta boð í Vestfjarðaveg langt undir kostnaðaráætlun Tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, vegfyllingu yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag og reyndist lægsta boð aðeins 74 prósent af kostnaðaráætlun. Brúin yfir Þorskafjörð verður tekin í notkun síðar í þessum mánuði, átta mánuðum á undan áætlun. Innlent 12.10.2023 21:10
Opna tímabundna skiptistöð við Skúlagötu Vegna framkvæmda við Hlemm þarf að opna tímabundna skiptistöð fyrir Strætó við Skúlagötu. Innlent 12.10.2023 19:41
Betri tíð í samgöngumálum Þau sem fylgst hafa með umræðum um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu síðustu árin og áratugina hafa orðið vitni af stöðugum ágreiningi milli ríkis og sveitarfélaga og þá sérstaklega á milli ríkis og Reykjavíkurborgar. Skoðun 12.10.2023 13:01
Nýja brúin yfir Þorskafjörð opnuð síðar í mánuðinum Vegagerðin stefnir að því að nýja brúin yfir Þorskafjörð verði opnuð umferð miðvikudaginn 25. október næstkomandi, eftir tæpar tvær vikur. Það er átta mánuðum á undan áætlun en útboðsskilmálar gerðu ráð fyrir verklokum þann 30. júní á næsta ári. Innlent 12.10.2023 11:39
Kanna fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um könnun á fýsileika jarðganga á milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 11.10.2023 12:54
Furða sig á því að stjórnendur Landspítala sleppi við gjaldtöku í þágu umhverfismála Fleiri en fjögur hundruð starfsmenn Landspítala segjast ósáttir við fyrirhugaða gjaldtöku á bílastæði starfsmanna og furða nokkrir sig á því hvers vegna ekki eigi að rukka stjórnendur á skrifstofu spítalans um sömu gjöld. Innlent 6.10.2023 21:01
Fresta gjaldskyldu við Landspítala skömmu eftir að hún var kynnt Fyrirhugaðri gjaldtöku við húsnæði Landspítalans á Hringbraut og við Landakot hefur verið frestað. Gjaldtakan átti að hefjast 1. nóvember næstkomandi. Starfsmönnum spítalans var tilkynnt þetta í dag, en hafði skömmu áður verið greint frá gjaldtökunni. Innlent 6.10.2023 14:09
Bein útsending: Morgunfundur um Sundabraut Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi um Sundabraut þar sem fyrirhuguð framkvæmd verður til kynningar, ásamt áherslum í komandi umhverfismati.Fundurinn hefst klukkan 9:00 og stendur til 10:15. Innlent 6.10.2023 08:31
Minnst milljarður á ári í hjólreiðainnviði Staðan á hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021 til 2025 var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni. Tíu kílómetrar af sérstökum hjólastígum hafa bæst við frá árinu 2021 og eru þeir orðnir 42 kílómetrar samtals. Fjárfestingar í nýjum hjólreiðainnviðum í Reykjavík eiga að vera að lágmarki fimm milljarðar króna á tímabilinu. Innlent 5.10.2023 19:23
Bregðast við ítrekuðum seinkunum leiðar 14 Til stendur að leggja niður strætóstoppistöðina Hólsveg sem er að finna á horni Langholtsvegar og Hólsvegar í Reykjavík. Strætó númer 14 stoppar þar á leið sinni í átt að Verzlunarskólanum, en ákvörðunin nú er tekin til að strætó geti betur haldið áætlun. Innlent 5.10.2023 14:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent